Morgunblaðið - 14.06.2013, Qupperneq 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2013
Ultimate Greens:
Spirulina pakkað af næringaefnum sem
gefa mikla orku.
Barley Grass kemur á réttu pH gildi og gerir
líkamann basískan.
Chlorella hreinsar líkamann af auka– og
eiturefnum, þungmálmum og geislunum.
Bætir líkamslykt. Gott við streitu.
www.celsus.is
lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar
Fáðu heilsuna
ogorkuna upp!
Kraftmesta
ofurfæði jarðar
Fæst í Apótekum, heilsubúðum, Hagkaup og Krónunni.
Ármann Agnarsson hönnuður
hlaut viðurkenningu hinna virtu
Art Directors Club of Europe Aw-
ards fyrir hönnun sína á bókinni
House Project. Art Directors Club
of Europe, eru samtök félaga evr-
ópskra hönnuða og auglýsinga-
gerðarfólks. Verðlaun samtakanna
hafa verið veitt árlega frá 1990 en
keppnin er sú stærsta og virtasta á
sviði grafískrar hönnunar og aug-
lýsingagerðar í álfunni.
House Project gerir skil verkum
myndlistarmannsins Hreins Frið-
finnssonar, Hús eða House Pro-
ject: First House, Second House,
Third House sem sýnd voru í
Hafnarborg vorið 2012. Bókin er
gefin út af Hafnarborg í samstarfi
við Crymogeu bókaútgáfu og
prentuð hjá Prentmeti og segir Ár-
mann verðlaunin endurspegla gott
samstarf allra þeirra aðila sem
koma að listræna ferlinu. „Auðvit-
að er gaman að vinna til svona
verðlauna en þau endurspegla að
mínu mati frekar ferlið í heild sinni
og gott samstarf þeirra aðila sem
koma að því,“ segir Ármann sem
einnig hefur unnið til verðlauna
hér á landi fyrir sama verk. Ár-
mann vonar að verðlaunin verði til
þess að vekja athygli á íslenskri
hönnun og því góða starfi sem unn-
ið er hér á landi.
Sigríður Rún Kristinsdóttir
hlaut einnig Art Directors Club of
Europe Awards í flokki nem-
endaverðlauna eða Awards fyrir
Anatomy of Letters en verk Sig-
ríðar var útskriftarverkefni hennar
úr Listaháskólanum vorið 2012.
Verk hennar þótti skara fram úr
enda var mat dómnefndar Art Di-
rectors Club of Europe einróma.
House Project Ármann Agnarsson
vann til verðlauna fyrir hönnun sína.
Íslenskir hönn-
uðir verðlaunaðir
Hönnun fyrir House Project vann
Verðlaunaverk Sigríður Rún vann í flokki nemendaverðlauna.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Viðey er góður staður fyrir tónleika-
hald, enda ekkert launungarmál að
eyjan framkallar sköpunarkraft
þeirra sem þangað leggja leið sína.
Eyjan er hluti af Reykjavíkurborg og
aðeins í nokkurra mínútna siglingu
frá landi, en virkar samt á einhvern
hátt svolítið framandi,“ segir Védís
Hervör Árnadóttir, formaður félags
sem nefnist KÍTÓN og stendur fyrir
Konur í tónlist, en í sumar heldur fé-
lagið úti tónleikaröðinni Tónhvörf KÍ-
TÓNs í Viðey.
Tónleikaröðin, sem KÍTÓN stend-
ur fyrir í samstarfi við Reykjavík-
urborg og Viðeyjarstofu, hefst sunnu-
daginn 16. júní og lýkur sunnudaginn
25. ágúst en á þeim tíma verður boðið
upp á samtals tíu tónleika með á
fjórða tug flytjenda. „Upphaflega
stóð til að hafa tónleikana alltaf á
sömu vikudögunum, en félagskonur
eru svo uppteknar við tónleikahald
bæði hér- og erlendis að við urðum að
hafa tónleikadagana fljótandi. Tón-
leikagestir geta þó gengið að því að
við verðum með tónleika a.m.k. aðra
hverja viku,“ segir Védís Hervör, en
tæmandi dagskrá sumarsins má nálg-
ast á vefnum videy.com. Almennt
miðaverð er 2.700 kr. og innifalið í því
verði er siglingin milli lands og eyjar,
en aðgangur er ókeypis fyrir börn
yngri en 12 ára. Miðasala er á midi.is,
en upplýsingar um ferjutíma á eld-
ing.is.
Hátt í 200 félagar
Aðspurð um nafn tónleika-
raðarinnar segir Védís Hervör það
vísa í það „hugfrjóa ástand þegar
ólíkar stefnur hverfa saman í eina,“
segir Védís Hervör og tekur fram að
tónleikaröðinni sé ætlað að vera upp-
hitun fyrir stórtónleika KÍTÓNs sem
fram fara í Hörpu í október.
Að sögn Védísar Hervarar hafa nú
þegar hátt í 200 konur skráð sig í KÍ-
TÓN frá stofnun félagsins fyrr á
þessu ári. „Félagið er hið fyrsta sinn-
ar tegundar á Íslandi, þar sem allar
tónlistarkonur eru velkomnar óháð
tónlistarstefnu, menntun, reynslu,
bakgrunni eða þjóðerni,“ segir Védís
Hervör og tekur fram að félagið sé
fyrir jafnt flytjendur sem og lagahöf-
unda. „Félaginu er ætlað að efla sam-
félag tónlistarkvenna, auka samstarf
þeirra í tónlistarflutningi og skapa
vettvang fyrir kvenkyns lagahöf-
unda,“ segir Védís Hervör og bendir
á að í dag renni aðeins 9% STEF-
gjalda til kvenna, en að gaman væri
auka hlutfallið á næstu misserum.
Kvennapartí haldið 19. júní
Sem fyrr segir hefst tónleikaröðin
nk. sunnudag kl. 16 með tónleikum
dúósins Kolku sem píanóleikarinn
Arnhildur Valgarðsdóttir og söng-
konan Heiða Árnadóttir skipa. „Þær
munu leika spennandi og flotta efnis-
skrá, en þær frumflytja m.a. nýtt
verk eftir Ásbjörgu Jónsdóttur við
ljóð Matthíasar Johannessen, Veröld
þín. Einnig munu þær flytja ljóð með
spuna, þar sem leikið verður undir á
kristallsglös, verk eftir John Cage,
lög eftir Samuel Barber og barna-
lagaflokk eftir skoska tónskáldið
Theu Musgrave.“
Næstu tónleikar í röðinni verða
síðan kvennadaginn 19. júní kl. 19.30.
„Þá mun stjórn KÍTÓNs troða upp
og bjóða upp á sannkallað kvenna-
partí,“ segir Védís Hervör, en auk
hennar koma fram söngkonurnar
Greta Salóme Stefánsdóttir, Hafdís
Huld Þrastardóttir, Lára Rúnars-
dóttir, Ragnheiður Gröndal, Ísabella
Leifsdóttir og flautuleikarinn Hall-
fríður Ólafsdóttir, en Andrea Jóns-
dóttir skífuþeytir hitar upp. „Þetta
verður skemmtilegt prógram þar
sem við tökum lög eftir hver aðra.
Þarna verða eldri og þekktari lög í
bland við nýjar tónsmíðar,“ segir
Védís Hervör.
Af öðrum tónlistarkonum sem
fram munu koma í sumar má nefna
söngkonurnar Margréti Eir, Krist-
jönu Arngrímsdóttur, tónlistarhópinn
Aurora Borealis, Öddu Ingólfsdóttur,
Lilju Björk Runólfsdóttur, sem ný-
verið útskrifaðist úr tónsmíðadeild
LHÍ, og Önnu Maríu Björnsdóttur
sem syngur með spunaflokknum IKI
sem hlaut dönsku tónlistarverðlaunin
2011. „Okkur fannst mikilvægt að
tefla saman reyndari tónlistarkonum
í bland við yngri sem eru kannski að
stíga sín fyrstu skref í bransanum.“
Tónlistarkonur bjóða
upp á tónleika í Viðey
Morgunblaðið/Ómar
Konur í stjórn Kíton Ísabella Leifsdóttir, Védís Hervör og Hafdís Huld.
Upphitun fyrir
stórtónleika
KÍTÓNs í Hörpu
Tvær nýjar myndir verða í bíó-
húsum landsins um helgina en það
eru myndirnar Pain and Gain með
þeim Mark Wahlberg, Rebel Wilson
og Dwayne Johnson (The Rock) og
The Internship með Owen Wilson,
Will Farrell og Vince Vaughn.
Pain and Gain
Mark Wahlberg leikur fyrrverandi
tugthúslim sem snýr sér að líkams-
ræktinni í von um að upplifa amer-
íska drauminn. Eitthvað gengur þó
hægt hjá honum að nálgast
draumalífið og snýr hann sér þá að
óhefðbundnum aðferðum þ.e. að
ræna valdamiklum og spilltum við-
skiptavin á líkamsræktarstöðinni
sem hann vinnur á. Til verksins fær
hann tvo félaga sína sem einnig eru
í líkamsræktarbransanum. Þeir fé-
lagar stíga þó ekki í vitið og vindur
verkið upp á sig.
Rottentomatoes 55%
IMDB 69%
The Internship
Þegar tveir sölumenn af gamla
skólanum missa vinnuna vegna net-
væðingar ákveða þeir að sækja um
vinnu hjá netrisanum Google þrátt
fyrir að vita lítið sem ekkert um
tölvur. Til að fá vinnuna þurfa þeir
að sækja námskeið og keppa þar
við aðra um starf hjá fyrirtækinu.
Því eru góð ráð dýr hjá þeim fé-
lögum sem eru ákveðnir að standa
sig vel á nýjum vettvangi.
Rottentomatoes 69%
IMDB 62%
Bíófrumsýningar
Tvær góðar grínmyndir