Morgunblaðið - 14.06.2013, Síða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2013
Viðskiptavinir Kjaran
eru lítil og stór
fyrirtæki, stofnanir og
prentsmiðjur sem eiga
það sameiginlegt að
gera kröfur um gæði
og góða þjónustu.
bizhub C35 er sannkallað fjölnotatæki
bizhub C35 er prentlausn sem hentar flestum fyritækjum.
Prentari, ljósritunarvél, faxtæki og skanni í einu nettu tæki sem
prentar 30 blaðsíður á mínútu, hvort sem er í svart-hvítu eða lit.
Kynntu þér rekstrarkostnaðinn því hann kemur á óvart. Þú þarft
ekki annað tæki en bizhub C35.
Verð: 379.900 kr.
Konica Minolta fjölnotatækin eru margverðlaunuð fyrir
hönnun, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
Á TOPPNUM Í ÁR
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
PAINANDGAIN KL.5:20-8-10:40
PAINANDGAINVIP KL.5:20-8-10:40
NOWYOUSEEME KL.5:30-8-10:30
HANGOVER-PART3 KL.5:50-8-10:10
FAST&FURIOUS6 KL.8
THEGREATGATSBY2D KL.5:10-8
PLACE BEYOND THE PINES KL. 10:40
IRON MAN 33D KL. 5:20 - 10:50
KRINGLUNNI
PAIN AND GAIN KL. 5:20 - 8 - 10:40
NOW YOU SEE ME KL. 5:30 - 8 - 10:30
HANGOVER - PART 3 KL. 5:50 - 8 - 10:10
PAIN AND GAIN KL. 5:20 - 8 - 10:40
NOW YOU SEE ME KL. 5:30 - 8 - 10:30
HANGOVER - PART 3 KL. 5:50 - 8 - 10:10
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
PAINANDGAIN KL.8-10:40
NOWYOUSEEME KL.8
HANGOVER-PART3 KL.10:30
AKUREYRI
PAIN AND GAIN KL. 5:20 - 8 - 10:40
NOW YOU SEE ME KL. 10:10
HANGOVER - PART 3 KL. 5:50 - 8
VINSÆLASTI GRÍNÞRÍLEIKUR ALLRA TÍMA!
FRÁBÆR GRÍNMYND
NEW YORK DAILY NEWS
PURE SUMMER MAGIC
ÓVÆNTASTI SMELLUR ÁRSINS
3D 2DÍSL TAL
DREPFYNDIN GLÆPAGRÍNMYND
FYNDNASTA MYND SEM ÉG
HEF SÉÐ Í ÁR.
NEW YORK POST
T.V. - BÍÓVEFURINN
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
ERU GRJÓTHARÐIR Í ÞESSARI FRÁBÆRU MYND
OG
Borgfirskir tónlistarmenn verða í
aðalhlutverki á IsNord tónlistar-
hátíðinni sem er haldin í níunda sinn
um þessar mundir. Í kvöld kl. 20.30
koma fram í Reykholtskirkju þær
Margrét Brynjarsdóttir kontraalt-
söngkona og Jónína Erna Arn-
ardóttir píanóleikari, sem jafnframt
er listrænn stjórnandi hátíðarinnar.
Á morgun verða útitónleikar kl. 16 í
Englendingavík í Borgarnesi þar
sem fram koma Þóra Sif Svansdóttir
djasssöngkona og Birgir Þórisson
píanóleikari. Hátíðinni lýkur á
sunnudag á tvennum stofutónleikum
heima hjá annars vegar Theodóru
Þorsteinsdóttur kl. 14.30 og hins
vegar Zsuzsönnu Budai kl. 16. Þess
má geta að miðafjöldinn er tak-
markaður á stofutónleikunum en
ókeypis aðgangur er á úti-
tónleikana. Miðasala er á midi.is og
við innganginn. Allar nánari upplýs-
ingar er að finna á facebook síðu Is-
Nord sem og á vefnum isnord.is.
IsNord tónlistarhátíðin í 9. sinn
Píanóleikari Jónína Erna Arnardóttir
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
Ég þakka nefnist sjöunda ljóðabók
Sigurðar Ingólfssonar bókmennta-
fræðings og ljóðskálds. Sigurður
segir hugmyndina að bókinni hafa
kviknað fyrir þrjátíu árum og því má
segja að verkið hafi lengi verið í
smíðum.
Þegar Sigurður var fjögurra ára
gamall munaði litlu að hann léti lífið
við að byggja stromp á snjóhús og
hefur sú reynsla mótað sýn hans á
lífið.
„Ég þakka fyrir það á hverjum
degi að vera til,“ segir hann. „Mig
vantaði ákveðið form á þetta verk
mitt og seinasta sumar datt ég niður
á þá hugmynd að teikna tré. Eftir
það var komin tenging við jarðlífið og
himininn og þá gat ég sett smáform
utan um þessa bók. Útkoman er svo
þessi og svona lítur bókin út.“ Í bók-
inni eru 52 ljóð og ber hún undirtitil-
inn „Fimnmtíuogtvær þakkar-
bænir“. Kristján Valur Ingólfsson
vígslubiskup í Skálholti skrifar for-
mála að bókinni.
Bókin nánast uppseld
Eins og fyrr kom fram er þetta
sjöunda bókin sem Sigurður gefur
út. Hann segist alltaf hafa vitað að
hann myndi einhvern daginn senda
þessa bók frá sér en helsta fyrir-
staðan hafi verið sú að finna rétta
farveginn fyrir hana.
„Mér þykir mjög vænt um þessa
bók. Seinasta bók sem ég gaf út er
ólík þessari og eftir að hún kom út,
þá hugsaði ég með mér að nú væri
þetta bara komið. Svo var bara eins
og þessi bók biði eftir mér og þetta
kom út eins og eitt stórt flóð,“ segir
Sigurður en bókin kom út í 500 ein-
tökum og er nánast uppseld.
Bókina gefur Sigurður út sjálfur
en hann tók þá ákvörðun að setja
hana ekki í bókaverslanir. Ástæðuna
fyrir því segir hann vera svartsýni
forlaganna á sölumöguleika, ásamt
því að í bókabúðum er hætta á því að
bókin verði seld hræódýrt á útsölum.
„Þeir segja alltaf við mann í forlög-
unum að það taki því ekki að gefa út
ljóðabækur þar sem þær seljist ekki.
Ég er mjög sérvitur með það að ég
vil ekki setja bækur mínar í bóka-
búðir, þar sem þá er hætt við því að
þær lendi á einhverri bókaútsölu. Ég
neyðist því alltaf til að gera þetta
sjálfur og það hefur bara gengið
ágætlega. Bækurnar hafa nánast
alltaf selst upp,“ segir Sigurður.
Fjölskylda Sigurðar veitir honum
mikinn innblástur þegar kemur að
skrifum en í tileinkun bókarinnar
þakkar hann sonum sínum og eigin-
konu fyrir allt og segir að án þeirra
hefði bókin aldrei orðið að veruleika.
„Synir mínir eru mér í raun og veru
stanslaus innblástur. Mér finnst
miklu betra að hlusta en tala og þess
vegna þykir mér mjög gaman að
heyra strákana mína spá í lífið og til-
veruna. Maður öðlast nýja lífssýn á
hverjum degi ef maður barar leggur
við hlustir,“ segir Sigurður.
Sýndi myndlist í klaustri
Í Gallerí Klaustri á Skriðuklaustri
hélt Sigurður myndlistarsýningu þar
sem meðal annars voru sýndar teikn-
ingar sem prýða nýju bókina. Sýn-
ingin bar sama titil og bókin, Ég
þakka.
„Ég ákvað að sýna myndirnar í
Skriðuklaustri af persónulegum
ástæðum. Ég vann þar í nokkur ár
við fornleifauppgröft. Svo fannst mér
líka gaman að sýna í klaustri þar sem
maður er aldrei jafnnakinn og þegar
maður er í klaustri. Ég ætla svo að
reyna að sýna aftur á Akureyri og
jafnvel í Reykjavík ef ég verð ekki
búinn að selja allar myndirnar,“ seg-
ir Sigurður. Þeim sem hafa áhuga á
að kaupa bækur eða önnur verk eftir
Sigurð er bent á að senda tölvupóst á
netfangið drsiggi@gmail.com.
Vill ekki selja bækur
í bókaverslunum
Sigurður Ingólfsson mætir svartsýni hjá forlögum
„Ég þakka fyrir það á hverjum degi að vera til“
Skáldið „Svo var bara eins og þessi bók biði eftir mér og þetta kom út eins
og eitt stórt flóð,“ segir skáldið Sigurður Ingólfsson um bókina Ég þakka.
Bassaleikarinn Steven Alexander
eða Alex James eins og flestir
þekkja hann sagði í viðtali við Bang
Showbiz að upptökur á Blur í Hong
Kong hefðu tekist mjög vel. „Við
áttum nokkurra daga frí í Hong
Kong og ákváðum að slá til og
skella okkur inn í stúdíó. Það gekk
allt saman mjög vel enda njótum við
hverrar stundar sem við eigum
saman í hljóðverinu að taka upp
tónlist,“ sagði Alex.
Stóra spurningin er hvort fram-
hald verði á Think Tank frá Blur
sem kom út árið 2003.
Aðdáendur hljómsveitarinnar
fengu að heyra tvö ný lög í fyrra:
Under The Westway og The Purit-
an, sem hljómsveitin flutti á Hyde
Park tónleikunum á síðasta ári.
Framleiðandinn William Orbit
hefur sagt fjölmiðlum að hann hafi
verið með hljómsveitinni í hljóðveri
að undanförnu þar sem unnið hafði
verið að nýju efni. Þó hefur gít-
arleikari Blur, Graham Coxon,
þverneitað að ný plata sé á leiðinni
frá hljómsveitinni og verða aðdá-
endur því bara að bíða og sjá.
Blur skemmtir sér
við upptökur í
Hong Kong
Upptökur Enn ríkir nokkur óvissa um
það hvort ný plata sé á leiðinni frá Blur.