Morgunblaðið - 06.07.2013, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2013
Sundlaugin á Hofsósi heldur áfram að laða til
sín gesti, sérstaklega yfir sumarið. Á síðasta
ári komu um 30 þúsund manns í laugina og
miðað við aðsókn þessa árs stefnir í áfram-
haldandi aukningu. „Þetta er sannkölluð
ferðamannalaug og er einnig ágætur sam-
komustaður fyrir heimamenn sem kíkja í
pottinn, ræða málin og fá sér kaffisopa á eft-
ir,“ segir Ótthar Edvardsson, forstöðumaður
íþróttamannvirkja í Skagafirði.
Sundlaugin var opnuð árið 2010 og er gjöf
til íbúa Skagafjarðar frá Lilju Pálmadóttur á
Hofi og Steinunnar Jónsdóttur í Bæ á Höfð-
aströnd. Sveitarfélagið Skagafjörður rekur
laugina og þrjár til viðbótar, og segir Ótthar
að Hofsóslaugin sé einna vinsælust meðal
ferðamanna á sumrin. Hann segir Héðins-
fjarðargöngin hafa haft mikið að segja þar
sem margir ferðamenn á Tröllaskaga-
hringnum stoppi á Hofsósi og fari í sund.
Staðsetning laugarinnar og útsýnið yfir
Skagafjörðinn er einstakt. Hönnunin er
þannig hjá Sigríði Sigþórsdóttur arkitekt að
þegar synt er frá suðri til norðurs rennur
vatnsflötur laugarinnar saman við hafflötinn
neðan hennar með beina stefnu á Drangey.
„Hér geta allir synt Drangeyjarsund og sér-
staklega eru það erlendir ferðamenn sem
halda vart vatni í hrifningu sinni,“ segir Ótt-
har en sundlaugin er frábært myndefni fyrir
ferðamenn og ljósmyndara, eins og myndin
að ofan ber glöggt merki um. bjb@mbl.is
30 þúsund manns koma í laugina á Hofsósi
Héðinsfjarðargöng skiptu sköpum fyrir aðsóknina „Hér geta allir synt Drangeyjarsund“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Drangeyjarsund Skriðsundstökin tekin í sundlauginni á Hofsósi í blíðviðri í vikunni. Drangey blasir við og geta sundmenn auðveldlega sett sig í spor Grettis sterka forðum daga.