Morgunblaðið - 06.07.2013, Qupperneq 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2013
Síðumúla 11, 108 Reykjavík, sími 568 6899, vfs@vfs.is
Ryobi Juðari ESS200RS
Afl: 200W
6.990.-
Ryobi Skrúfvél CSD4107BG
4V Lithium Rafhlaða
¼“ Bitahaldari
6.990.-
Ryobi Borvél RCD12011L 12V
Átak: 25 Nm
1x 1.3 Ah Lithium Rafhlaða
15.900.-
Ryobi Fjölnota Verkfæri RMT200S
Afl: 200W
Tekur flestar gerðir af blöðum
15.900.-
www.vfs.is
fyrir sumarbústaði
og heimili
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það kemur upp ágreiningur milli ást-
vina. Láttu ekki kæruleysið ná tökum á þér,
þá er verr af stað farið en heima setið.
20. apríl - 20. maí
Naut Fjármálin eiga eftir að batna verulega
þetta árið og eyðsla þín mun að sjálfsögðu
aukast í kjölfarið. Samkenndin liggur í loftinu
en þú ættir þó að varast að lofa upp í ermina
á þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft að nota forystuhæfileika
þína til þess að safna vinnufélögum þínum að
viðamiklu verkefni. Allt rugl flækir málin og er
tímasóun.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Láttu þér ekki til hugar koma að grípa
til einhverra aðgerða bara til þess að angra
aðra. Treystu á sjálfa/n þig ef þú vilt koma
einhverju í verk.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Erfiðir einstaklingar hafa sínar sterku
hliðar, annars væru þeir ekki hluti af þínu lífi.
Ef þú sýnir þolinmæði og heldur þetta tímabil
út átt þú eftir að uppskera ríkulega.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ættir að slaka svolítið á og hvíla þig
í stað þess að hafa áhyggjur af einhverjum
sem stendur þér nærri. Viðkomandi vill aukið
frelsi til að koma og fara eins og honum sýn-
ist.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gættu þess að þú standir ekki í vegi fyrir
metnaðarfullum tilburðum samstarfsmanns
þíns. Vertu uppörvandi í samskiptum við
aðra.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Vinnusemi þín er nú að skila þér
áfram að því marki sem þú hefur stefnt að.
Varastu stærilæti og sýndu samstarfsvilja.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Afstaða stjarnanna færir þér
heppni og ákjósanlegar kringumstæður.
Sinntu því sem þarfnast úrlausnar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nýttu þér þörfina fyrir að bæta
skipulag þitt í dag. Slakaðu á og reyndu bara
að gera þitt besta. Taktu tillit til annarra þeg-
ar þú leysir málin.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Passaðu þig á því að lofa ekki of
miklu í vinnunni í dag. Upphaf og endir renna
saman. Ef þú leynir einhverju áttu það á
hættu að ná ekki takmarkinu og verða þar
með fyrir vonbrigðum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Láttu ekki illa, þótt þér finnist dag-
skráin í dag mótuð af öðrum og lítið tillit tek-
ið til þinna þarfa. Framkoma þín fer ekki
framhjá augum yfirmanns þíns.
Karlinn á Laugaveginum hringdií mig að norðan, sagði að það
hefði verið ljóta veðrið í Skagafirð-
inum, þegar hann fór þar um, norðan
slagviðri og fór með vísu eftir Hjör-
leif Jónsson á Gilsbakka í Austurdal:
Dynur regnið, dignar hóll
dúr, er þegnar losa.
Trauðla megnar Tindastóll
tárin gegnum brosa.
Karlinn sagði, að alltaf lægi vel á
sér, þegar hann færi um Sauð-
árkrók og vék talinu undireins að
Ísleifi Gíslasyni kaupmanni, sem
væri um margt einhver liprasti og
skemmtilegasti hagyrðingur sem
við hefðum eignast og minnti um
margt á Káinn:
Sóttu tveir um sálina
sjúklingsins með takið:
Fjandinn þreif í fæturna,
faðirinn hélt í bakið.
Leikurinn þannig lengi stóð,
litlar fengust náðir. -
En - hvorugum sýndist sálin góð,
svo þeir - slepptu báðir!
Karlinn lauk talinu með því að
segja, að það væri morgunfagurt í
Siglufirði og bætti við:
Ekki finnst mér leiðin löng
sem liggur um iður jarðar
þegar ég ek göng við göng
göngin til Siglufjarðar.
Ég rakst á skemmtilega ljóðabók,
Þá mun vorið vaxa, eftir Einar
Georg Einarsson kennara frá Hús-
vík. Fyrsta erindið ber yfirskriftina
Tíminn líður:
Dagarnir eru fiskar
sem smjúga gegum greipar.
Drottinn situr í himninum
og keipar.
Skáldbóndinn Þórarinn í Kílakoti
lýsti sjálfum sér svo:
Skarðan drátt frá borði bar,
barn að háttum glaður.
Völl ég átti en ég var
enginn sláttumaður.
Þórarni hefur liðið vel þegar
hann ort:
Einn í þögn ég uni hér,
angrið dó í geði.
Bakkus fögnuð færði mér,
fulla ró og gleði.
„Líður að lokum“ er yfirskrift
þessarar vísu:
Bráðum kveð ég bæ og hörg
bjartan flýg í geiminn.
Ég á orðið ekki mörg
erindi við heiminn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vísur og kviðlingar
að norðan
Í klípu
„FYRRVERANDI ER HÉRNA AÐ SÆKJA LÍKAMS-
RÆKTARBLÖÐIN SÍN. ÞÚ MÁTT KOMA INN EF ÞÚ
LOFAR AÐ KOMA EKKI AF STAÐ RIFRILDUM.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„KRAKKINN MINN TEIKNAÐI ÞAU Á VEGA-
BRÉFSMYNDINA MÍNA MEÐ MERKIPENNA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að kýla á það, saman.
HVER BORÐAÐI BÖKUNA
SEM ÉG BAKAÐI FYRIR
GÓÐGERÐARBASARINN?
AHA! RÉTT EINS OG
MIG GRUNAÐI!!!
„ANDVARP“ AF
HVERJU ER ALLTAF
BENT Á MIG?
INNFLUTNINGURFÓLKS
GRETTIR, ÞAÐ
ER KOMIÐ AÐ
ÞVÍ.
KOMINN TÍMI
TIL AÐ ÞRÍFA
ELDHÚSIÐ.
KAKKALAKKARNIR ERU
MEÐ PARTÍHATTA.
MÖRG
AFMÆLI
Í DAG.
Víkverji veit að það er hásumar.Grasið er grænt, blómin blómstra
og greinar trjánna svigna undan
þungum laufkrónum. Um miðjar næt-
ur er bjart sem að degi. Sumar.
x x x
Sumarið er þó ekki sérlega sum-arlegt. Svo dögum skiptir mjak-
ast kvikasilfrið í hitamælinum ekki
einu sinni yfir tíu gráður á selsíuskv-
arða. Öðru sinni á stuttum tíma er
skollin á „haustlægð“. Vindurinn
blæs og dembur ganga yfir. Útihá-
tíðir verða innihátíðir. Á tímabili í
gær leið Víkverja eins og hann væri
fastur í bílaþvottastöð þegar rigning-
artaumarnir flæddu niður gluggann
og útsýnið var eins og impressjón-
istamálverk á iði, kannski Monet, en
þó sennilegar Manet.
x x x
Nú gæti lesandinn haldið að Vík-verji væri að kvarta, en það er
síður en svo. Ef Víkverji vildi sól,
logn og hita hefði hann löngu forðað
sér af landi brott, farið eitthvert þar
sem aldrei er veður, Kaliforníu eða
Krítar. Víkverji hefur áttað sig á því
að þótt hann eigi til að tuða vegna
veðurs er fjölbreytileiki þess kostur.
Veðrið á að vera óútreiknanlegt,
aldrei eins, stöðugur ógnvaldur at-
vinnuöryggis veðurfræðinga.
x x x
Þá sér Víkverji ýmsa kosti við hinarysjóttu tíð. Ýmis skordýr, sem
hingað hafa leitað í trausti þess að yf-
irlýsingar vísindamanna um hlýnun
jarðar hafi tryggt þeim afkomu á Ís-
landi, eiga nú undir högg að sækja.
Hann er sérlega ánægður með hvað
hann hefur lítið orðið var við geit-
unga í sumar. Víkverji er ekki hald-
inn þeirri óskhyggju að geitungar
séu alfarið horfnir af landi brott
vegna ótíðarinnar, en er á meðan er.
x x x
Hann saknar þó þeirra daga, semgeitungar fyrirfundust ekki hér
og mest ógn stóð af silalegri hun-
angsflugunni. Í fyrrasumar var Vík-
verji meira að segja farinn að hugsa
um að setja flugnanet í gluggana hjá
sér því að hann var orðinn þreyttur á
að veiða geitunga í glös og sleppa
þeim út. víkverji@mbl.is
Víkverji
En öllum þeim sem tóku við honum
gaf hann rétt til að verða Guðs börn,
þeim sem trúa á nafn hans.
(Jóhannesarguðspjall 1:12)