Morgunblaðið - 03.08.2013, Qupperneq 1
Morgunblaðið/Eggert
Borgin Hótelið rís í hjarta Reykja-
víkur við Hljómalindarreitinn
Árni Grétar Finnsson
agf@mbl.is
Um 150 störf skapast við fram-
kvæmdir á nýju Icelandair-hóteli
við Hljómalindarreitinn, en um 70
störf munu skapast við rekstur
hótelsins.
Íslenskir iðnaðarmenn, sem
fluttu af landi brott eftir banka-
hrunið, hafa sett sig í samband við
fyrirtækið Þingvang, sem byggja
mun hótelið, með það fyrir augum
að flytja aftur heim til Íslands og
vinna að framkvæmdunum. Áætl-
uð verklok eru um mitt ár 2015.
Gamla gengið kemur saman
„Við vorum alveg rosalega
ánægð að heyra fréttirnar,“ segir
Pálmar Harðarson, aðaleigandi
Þingvangs. Hann segir að þessir
menn hafi starfað saman á Íslandi
fyrir hrun en hafi síðan flutt til
Noregs þar sem hópurinn tvístr-
aðist.
„Þeir vilja hóa hópnum saman
aftur. Gamla genginu, eins og þeir
kölluðu sig,“ segir Pálmar.
Hótelið mun bera nafnið Cult-
ura, sem vísar til þess menning-
arlega yfirbragðs Reykjavík-
urborgar sem mun einkenna það.
Magnea Þórey Hjálmarsdóttir,
framkvæmdastjóri Icelandair Hot-
els, segir að hótelið falli vel að
anda borgarinnar.
„Við viljum að hótelið aðlagist
borginni, en ekki öfugt.“ » 4
Vilja snúa heim til Íslands
Nýja hótelið við Hljómalindarreitinn laðar Íslendinga heim frá Noregi
L A U G A R D A G U R 3. Á G Ú S T 2 0 1 3
Stofnað 1913 180. tölublað 101. árgangur
FAGNA 130 ÁRA
AFMÆLI
EIÐASKÓLA
LAUK LÖG-
FRÆÐI OG FÓR
Í FATAHÖNNUN
BÍÓDÓMAR
FLESTIR
JÁKVÆÐIR
SUNNUDAGUR 2 GUNS FRUMSÝND 38TÓNLISTARVEISLA 10
Umferðin út úr höfuðborginni í gær gekk að mestu áfallalaust
fyrir sig að sögn lögreglunnar.
Framan af degi var umferðin talsvert þyngri á Suðurlands-
vegi en Vesturlandsvegi. Á tíunda tímanum í gærkvöldi hafði
hinsvegar dregið vel úr allri umferð úr borginni. Að sögn lög-
reglunnar kom smáskot um kaffileytið í gær en annars mun
umferðin út úr borginni hafa verið svipuð og um hefðbundnar
ferðahelgar í júlí á þessu sumri.
Á vefsíðu Vegagerðarinnar mátti sjá að á tíunda tímanum í
gærkvöldi höfðu á fjórtánda þúsund bifreiðar ekið um Sand-
skeið fyrir ofan Reykjavík frá miðnætti og á tólfta þúsund bif-
reiðar ekið um Kjalarnes. skulih@mbl.is
Umferðin út úr borginni náði hámarki um kaffileytið
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Slitastjórn Sparisjóðabankans, áð-
ur Icebank, vinnur að undirbúningi
að nýju nauðasamningsfrumvarpi
sem er talið líklegra til að hljóta
samþykki Seðlabanka Íslands.
Samningskröfuhöfum Spari-
sjóðabankans hefur verið tilkynnt
að ekki muni takast að ljúka við
þann nauðasamning sem var lagður
fyrir kröfuhafa í mars á þessu ári.
Ekki fékkst samþykki allra kröfu-
hafa svo nauðasamningurinn næði
fram að ganga. Seðlabankinn vildi
ennfremur ekki samþykkja út-
greiðslu gjaldeyris til erlendra
kröfuhafa, né heldur sjálfan nauða-
samninginn.
hordur@mbl.is »18
Fékk ekki samþykki
fyrir nauðasamningi
Tæplega þrjú
hundruð erlendir
hlauparar hafa
boðað komu sína í
alþjóðlegt hlaup
sem fram fer á
hálendi Íslands
næstu daga og
hefst á morgun.
Hver keppandi
reiðir fram 3700
dollara, sem jafn-
gildir um 442 þúsund krónum, í þátt-
tökugjald.
Racing the Planet er röð svo-
nefndra óbyggðahlaupa. Hlaupið á
Íslandi tekur sex daga. Samkvæmt
upplýsingum á heimasíðu RTP eru
hlaupnir 40-50 kílómetrar fyrstu
fjóra dagana, um 67 kílómetrar
fimmta daginn og svo 10 kílómetrar
lokadaginn. Heildarvegalengdin er
um 250 kílómetrar. Fram kemur á
heimasíðu hlaupsins að lagt verði af
stað frá ónefndum stað á milli Vatna-
jökuls og Langjökuls. Keppendur fá
ekki að vita hlaupaleiðina sjálfa fyrr
en þeir koma á staðinn þó ljóst sé að
farið verður um hálendi Íslands. Að
lokum hvers dags fá keppendur svo
að vita hver hlaupaleið næsta dags
verður, ekki fyrr. »20
Hlaupið
kostar
stórfé
Hlaupið í sex
daga á hálendinu
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
aslaug@mbl.is
„Það er búið að skera það mikið niður
í heilbrigðiskerfinu að það er ekki
hægt að skera meira niður, það þarf
að fara að byggja upp kerfið að nýju,“
segir Björn Zoëga forstjóri Landspít-
alans. Hann segir þetta nauðsynlegt
til að halda áfram að fá unga sérfræð-
inga til landsins eftir að hafa verið að
vinna annars staðar. „Hlutfall af
landsframleiðslu í
heilbrigðiskerfið
hefur minnkað og
þar erum við í
hópi með mörgum
ríkjum sem við
höfum hingað til
ekki viljað bera
okkur saman við,“
segir Björn.
„Þetta stefnir í
óefni, því er ég sammála,“ segir Þor-
björn Jónsson, formaður Lækna-
félags Íslands, um stöðuna á Land-
spítalanum. Þorbjörn segir aðbúnað
spítalans, launakjör og mikið vinnu-
álag verða til þess að yngra fólk sem
búið er að sérmennta sig erlendis sé
síður tilbúið að koma heim.
Skráningar í Læknafélagið gefa
mynd af því hve margir læknar flytja
utan. 208 læknar hafa skráð sig úr fé-
laginu á síðustu tveimur árum, en að-
eins 71 læknir skráð sig í félagið. »4
Björn Zoëga
Erum í hópi landa sem við vilj-
um ekki bera okkur saman við
Yfir 200 skráningar úr Læknafélaginu á þremur árum