Morgunblaðið - 03.08.2013, Blaðsíða 11
Tónlist Hljómsveitin Norðurljósin
var stofnuð á 7. áratugnum.
umskipti í þessu núna. Fólk er farið
að koma aftur út á land, og jafnvel í
litlu byggðirnar. Á Borgarfirði eystra
eru skemmtilegir hlutir að gerast,
unga fólkið er að flytja heim aftur.
Það er búið að halda þar tvo fundi og
vinna vel að þessu. Það var gerð
könnun á því hvað vanti svo að fólk
geti sest þar að. Það verður því gam-
an að fylgjast með þessu, það er rosa-
legur hugur í unga fólkinu,“ segir
hún.
„Ég held að það standi bara í
stað á Egilsstöðum. Ég er búin að
búa þar í þrjátíu ár og þar er alltaf
sama gegnumstreymið af fólki,“ segir
hún um heimabæ sinn.
„Annars er mikill vilji hjá fólki
að mæta á þessa samkomu, hvar sem
það býr. Bæði hjá þeim sem eru að
fara að spila og eins hjá þeim sem
ætla bara að mæta. Þetta er heil tón-
leikahelgi og það liggur við að þetta
sé eins og útihátíð. Það verður dag-
skrá og fjör alla helgina. Á sunnudag-
inn verður síðan poppmessa sem Jón-
as Sig., Magni og gospelsöngkonan
Esther Jökuls sjá um. Þetta eru allt
gamlir Eiðanemar,“ segir Bryndís.
Heimavistarskólinn bætir
„Þetta var heimavistarskóli.
Andinn þar var magnaður, það var
allt fullt af lífi, fjöri, hrekkjum og
hlátri. Svo eru Eiðar alveg þekktar
fyrir draugagang. Draugarnir hljóta
að mæta á samkomuna í haust,“ segir
Bryndís sposk.
„Ég var sjálf tvo vetur þarna og
þett gat orðið svolítið einangrað á vet-
urna. Við fórum heim einu sinni á
haustönn og tvisvar sinnum á vorönn.
Svo fórum við heim til okkar í jólafrí-
um. Þetta var alveg magnað. Það var
rosalega mikið félagslíf í skólanum
þannig að manni leiddist aldrei. Mér
finnst að það eigi að bjóða upp á
svona heimavistarskóla í dag. Fólk
sem var á heimavist á svo margar
minningar þaðan, þetta var bara eins
og ein stór fjölskylda,“ segir Bryndís
og bætir því við að þrátt fyrir að skól-
inn hafi verið hugsaður fyrir nem-
endur frá Austfjörðum hafi einnig
komið þangað krakkar af Norður- og
Suðurlandi. Hún segir krakka nú til
dags jafnframt geta lært sitt hvað á
því að eyða tíma í slíkum skólum.
„Það er í raun þetta félagslega
samneyti við krakka á svipuðum
aldri. Svo er það að fara að heiman,
spjara sig og standa á eigin fótum.
Krakkarnir þurfa líka að skipuleggja
námið sitt án þess að hafa foreldra
sína alltaf yfir sér,“ segir hún.
Húsin standa auð
„Árgangarnir hafa aðeins verið
að hittast á Eiðum, það voru tveir ár-
gangar sem hittust þar til að mynda
síðastliðið haust. Það segja það allir
sem hafa mætt á samkomu á Eiðum
að þarna sé yndislegur andi í loftinu,“
segir Bryndís. Hún segir þó enga
starfsemi í húsunum í dag.
„Hótel Edda leigði þarna af Sig-
urjóni Sighvatssyni landeiganda
þangað til fyrir tveimur árum. Sig-
urjón á öll þessi hús, skóginn og vatn-
ið og hann hefur verið okkur mjög
vinsamlegur. Við höfum komið þarna
upp sögustofu í húsnæði innan skól-
ans. Hann leyfir okkur að vera þar
endurgjaldslaust. Þar má finna sögu
staðarins í máli og myndum. Hann
leyfir okkur líka að halda þessi nem-
endamót þarna og hvetur okkur til
þess. Það er þó engin starfsemi þarna
sem er. Við verðum bara að vera
bjartsýn og vona að það gerist eitt-
hvað þarna í framtíðinni. Það er okk-
ar einlæga von að það komi þarna
einhver góð starfsemi,“ segir Bryn-
dís.
Gistipláss í boði
„Kannski verður þetta bara upp-
hafið að einhverju öðru stórkostlegu.
Við eigum von á um þrjú hundruð
manns þessa helgi og seljum gistingu
í skólahúsnæðinu. Við erum líka búin
að taka á leigu barnaskólann á Eiðum
sem er þarna í kílómetra fjarlægð.
Við erum því með svona hundrað og
fimmtíu gistirými sem við getum selt
og svo verður fólk eiginlega bara að
bjarga sér. Fólk á ættingja þarna í
nágenninu og svo eru bústaðir þarna í
kring. Svo er bændagisting alltaf
möguleiki. Það verður kannski orðið
svolítð seint að tjalda þarna í sept-
ember, en það er aldrei að vita,“ segir
Bryndís. Hún bætir því við að lokum
að það sé ekki von á neinu öðru en lífi
og fjöri á Eiðum um umrædda helgi.
Hún segir staðinn koma til með að iða
af lífi að nýju.
Sveit Hljómsveitin Hjárómar kemur frá Eiðum eins og svo margar aðrar.
„Það eru margar þekkt-
ar hljómsveitir, allavega
hjá Eiðamönnum, sem
munu koma þarna sam-
an. Þar má til að mynda
nefna sveitirnar Trass-
ana, Norðurljósin og
Barkakýli gíraffans.“
Skóli Á Eiðum var rekinn skóli en húsin hafa staðið auð frá því Hótel Edda yfirgaf svæðið fyrir tveimur árum.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2013
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/weledaísland
Weleda birkisafinn er bragðgóður drykkur sem örvar vatnslosun og styður við náttúrulega út-
hreinsun líkamans, birkisafinn léttir á líkamanum, losar bjúg og byggir hann upp. Það er mikilvægt
fyrir líkamalega vellíðan. Í samhljómi við mann og náttúru. Lesið meira um lífrænar vörur á weleda.is
Útsölustaðir Weleda eru apótek og heilsuverslanir um allt land.
Vilt þú létta á líkamanum
eftir verslunarmannahelgina!Helgin á Faktorý verður full af fjöri enhún verður þétt sökum skemmtilegrar
dagskrár Innipúkans. Á sunnudaginn
verður haldið heljarinnar sumarpartí
með útitónleikum. Það er Funkþátt-
urinn og Elements sem standa fyrir
veislunni en fram munu koma Sísí Ey
og Ben Pearce. Auk þeirra mun stór
hópur plötusnúða skemmta gestum
en þar má nefna Terrordisco, AJ
Caputo, Casanova og Mike the Jacket.
Ben Pearce er frá Manchester en
hann er þekktur fyrir hæfileika sína
þegar kemur að
því að þeyta skíf-
um og blanda
saman lögum.
Tónlist hans sam-
anstendur af hin-
um ýmsu stefnum
en þar flakkar
hann frá metalrokki til hip-hops og
fönks. Viðburðurinn hefst klukkan 18
en samkvæmt upplýsingum bíður
glaðningur eftir þeim fyrstu hundrað
sem mæta.
Sumarpartí á Faktorý
Plötusnúður frá Manchester
Stofutónleikar verða haldnir á
Gljúfrasteini á sunnudaginn en það
eru tónlistarhjónin Kristjana Arn-
grímsdóttir og Kristján Eldjárn Hjart-
arson sem munu þar stíga á stokk.
Lagaval þeirra mun verða úr ýmsum
áttum en þau munu þó bókað spila
lög af sólóplötum Kristjönu.
Margir ættu að kannast við hjónin
en þau hafa um nokkurt skeið vegið
þungt í tónlistarlífi í sinni heima-
byggð, Dalvíkurbyggð. Kristján hefur
auk þess tileinkað sér skandínavískan
vísnasöng og komið fram víða um
land. Kristjana hefur að sama skapi
komið víða fram og meðal annars ver-
ið virk í starfi Leikfélags Dalvíkur.
Tónleikarnir munu hefjast klukkan
16 og allir eru velkomnir á meðan hús-
rúm leyfir. Nánari upplýsingar um
tónleikana er hægt að nálgast á
heimasíðu Gljúfrasteins, gljufra-
steinn.is.
Stofutónleikar á Gljúfrasteini
Morgunblaðið/Arnaldur
Tónlist Gljúfrasteinn mun hýsa gesti.
Ást og tangó í húminu