Morgunblaðið - 03.08.2013, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.08.2013, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2013 falleg minning á fingur www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind PI PA R\ TB W A • SÍ A • 12 16 6 6 Giftingarhringar Nýlega las ég bandarískan reyfara þar sem greindi frá konunokkurri sem stóð á verönd við hús sitt. Vindhviður skókuhúsið og konan hélt sér dauðahaldi í grindverkið til að forð-ast að verða svipt „fyrir borð“. Konan, sem um ræðir hefði, ef svo illa hefði tekist til að hún hefði fokið af verönd sinni, fallið í garð sinn meðal mjúkra grasa og blóma – en ekki í æstar öldur hafsins þar sem beið hennar barátta fyrir lífinu. Þetta, að konan skyldi óttast að falla „fyrir borð“ af verönd sinni, olli því að ég fór að hugsa um örlög orðanna, ekki síst borðsins. Hvenær er hægt að falla fyrir borð eða fara um borð. Við göngum um borð í skip og báta sem á vitaskuld rætur í því að um viðartegundir var að ræða. Þessir farkostir voru smíðaðir úr timbri, borðviði. Nú eru dagar slíkra skipa og báta að mestu taldir. Plast og stál hefur tekið við. En hvað um það, enn förum við um borð – og föllum fyrir borð. En þetta borð færði sig með tím- anum yfir á aðra farkosti. Ég hef oft heyrt talað um að fólk fari um borð í flugvélar og jafnvel áætlunarbíla – en ekki aðra bíla, t.d. einkabíla – enn. Nú nýlega mátti heyra í fréttum útvarps að ógæfusöm kona nokkur, ákaflega ölmóð, var dregin af vígreifum verði laganna „um borð í lögreglubílinn“. Eftir þessu að dæma má bú- ast við að einn góðan veðurdag fari Jói litli um borð í þríhjólið sitt og, sakir þess að hann er enn að æfa sig, falli fyrir borð. Það er líka ástæða til að minnast þess hér að enn borðar fólk við borð sem ekki lengur eru úr viði heldur plasti, gleri, stáli og fleiri efnum. Þessi þróun er ekkert einsdæmi. Eitt sinn var orðið herðatré rétt- nefni. Það var að mestu úr tré. Síðar komu til sögunnar önnur efni en tréð sat sem fastast. Við hengjum fötin okkar á herðatré þótt úr plasti sé og alls kyns vírum. Hins vegar gerist það stundum að ágætum heitum hluta er gert að hverfa sakir þess að hluturinn breytir um form. Önnur orð setjast á þá í staðinn. Gott dæmi um slíkt er hið fallega orð gleraugnahús, orð sem ég ólst upp við og sakna. Gleraugnahús höfðu eins konar dyr sem hægt var að opna og loka. Skyndilega var slíkum húsum lokað hinsta sinni en við tóku lágkúrulegri orð eins og hulstur eða hylki sem engin reisn er yfir. Dagar gleraugnahúsa voru taldir. Af orðum Þórður Helgason thhelga@hi.is Tungutak Snemma að morgni 18. nóvember 2010 tilkynntiPatrick Honohan, aðalbankastjóri SeðlabankaÍrlands, sem þá var staddur í Frankfurt í Þýzka-landi í höfuðstöðvum Seðlabanka Evrópu, að vinnuhópur frá ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum mundi koma til Írlands og vinna að samkomulagi um stórt lán til Írlands. Svo virðist, sem hvorki Brian Cowen, forsætisráð- herra landsins, né Brian Lenihan fjármálaráðherra hafi verið kunnugt um að seðlabankastjórinn mundi skýra frá þessari heimsókn. Og svo virðist sem hvorugur þessara ráðherra hafi verið þeirrar skoðunar að Írland þyrfti á slíku stóru láni að halda. Þetta er meðal þess, sem frá er sagt í nýrri bók, sem út kom í sumar og nefnist: The Fall of the Celtic Tiger- Ireland and the Euro debt crises. Höfundar bókarinnar eru tveir sérfróðir menn, Donal Donovan og Antoin E. Murphy. Hvers vegna lét seðlabankastjórinn ráðherrana tvo ekki vita fyrirfram? Vegna þess að þá var líklegt að þeir mundu reyna að tala hann ofan af því að gefa þessa yfirlýsingu, sem sett hefði seðlabankastjórann í erfiða aðstöðu. Þann 4. október 2010 hafði Lenihan fjármálaráðherra fengið trúnaðarbréf frá Jean-Claude Trichet, þáverandi aðalbankastjóra Seðlabanka Evrópu, þar sem hann lýsti áhyggjum yfir stöðu írsku bankanna. Mánuði síðar, 4. nóvember 2010, fékk Lenihan annað bréf frá Trichet þar sem ábending hans var ítrekuð. Hinn 9. nóvember hafnaði Lenihan því algjörlega að Írland þyrfti á neyðarláni að halda. Tveimur dögum seinna var írska krísan á dagskrá fundar fjármálaráðherra G-7 ríkjanna í Seúl í Suður-Kóreu. Á fundinum var það sam- eiginleg skoðun, að Írar þyrftu að sækja um neyðarlán, og Timothy Geithner, þá fjármálaráðherra Bandaríkjanna, (sá sem lýsti tilboði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um aðstoð við Ísland sem „kossi dauðans“ í samtali við Davíð Odds- son, þá formann bankastjórnar Seðlabanka Íslands) setti fram þá skoðun að hugsanlegt fall írsku bankanna gæti haft meiri háttar áhrif á stöðu banka um allan heim. Hinn 12. nóvember komst eins konar „æðsta ráð“ Seðla- banka Evrópu að þeirri niðurstöðu að bankinn gæti ekki haldið áfram lánveitingum til írsku bankanna og krafðist þess að skuldir þeirra yrðu lækkaðar (sem minnir á sam- bærilega kröfu gagnvart íslenzku bönkunum snemma sumars 2008). Í framhaldi af þessu gripu ráðamenn Seðlabanka Evr- ópu til óvenjulegra ráða. Þeir kölluðu blaðamenn á nokkr- um lykilmiðlum í Evrópu á sinn fund og láku fréttum, sem miðlarnir birtu samkvæmt „heimildum“ innan ESB þess efnis að Írland þyrfti á neyðarláni að halda og að viðræður væru í undirbúningi. Sama dag fór fram samtal í síma á milli Trichets og Lenihans. Efni þess er ókunnugt. Honoh- an sagði síðar að hann hefði ákveðið að fara í viðtalið við írska útvarpsstöð um morguninn 18. nóvember vegna þess að honum hefði borizt til eyrna að von væri á leiðara í Financial Times um málið þann dag. Daginn eftir, 13. nóvember, báru helztu ráðamenn í Dublin saman bækur sínar og tveimur dögum síðar, 15. nóvember, aftók forsætisráðherrann með öllu að Írar mundu sækja um neyðarlán. Á bak við tjöldin reyndu Írar að semja um að lánið væri eingöngu vegna írsku bankanna (eins og síðar var gert á Spáni) en ekki vegna efnahags- stöðu Írlands almennt. Þann 16. nóvember skýrði for- sætisráðherrann trúnaðarmönnum flokks síns frá þessari atburðarás og sagði að neyðarlán kæmi ekki til greina. Sama dag var lagt hart að Brian Lenihan í Brussel, sér- staklega af hálfu Þjóðverja, að tilkynna að Írland mundi sækja um neyðarlán. Daginn eftir, 17. nóvember, sagði forsætisráðherrann í þinginu að engar viðræður stæðu yf- ir um neyðarlán og gagnrýndi rangan fréttaflutning um málið. Lenihan talaði hins vegar undir rós um að hann væri að vinna með hóp frá ESB/AGS að málefnum írsku bankanna. Hinn 19. nóvember, daginn eftir út- varpsviðtalið við Honohan frá Frank- furt sendi Trichet bréf til Lenihans þar sem hann hótaði því að Seðlabanki Evrópu lokaði á Írland ef ekki yrði lögð fram umsókn um neyðarlán. Hinn 21. nóvember 2010 gafst ríkisstjórn Írlands upp og sendi formlega beiðni um neyðarlán og viku síðar hinn 28. nóvember 2010 var tilkynnt um samkomulag þessa efnis. Um hvað snýst þessi saga? Hún snýst um það að tæpum tveimur árum eftir að írska ríkisstjórnin lýsti yfir ábyrgð írskra skattgreiðenda á öllum skuldbindingum írskra einkabanka voru þessir bankar komnir að fótum fram. Ríkisstjórnir beggja vegna Atlantshafs höfðu þungar áhyggjur af áhrifum þess á sínum heimaslóðum. Þeim var að sjálfsögðu sama um Íra en þeir gerðu sér grein fyrir að fall írsku bankanna gæti þýtt fall banka í öðrum löndum. Þess vegna tóku ráðamenn í Bandaríkjunum og innan Evrópusambandsins og Seðlabanka Evrópu höndum sam- an um að pína Íra til þess að sækja um neyðarlán og afsala sér með því að mati höfunda þeirrar bókar, sem hér er vitnað til, fjárhagslegu sjálfstæði Írlands um skeið. Út af fyrir sig kemur boðskapur Geithners ekki á óvart og heldur ekki bréfasendingar Trichets (hann sendi líka bréf til Íslands og hringdi til Íslands). En óneitanlega kemur á óvart að svo virðuleg stofnun sem Seðlabanki Evrópu er skuli grípa til vinnubragða af því tagi að leka fréttum í fjölmiðla og segja að þeir megi nota „frasann“ um heimildarmenn innan ESB! Engum þarf hins vegar að koma á óvart að ráðamenn á Írlandi hafi upplifað eins konar umsátursástand í Dublin í nóvembermánuði 2010. Ríkisstjórn Írlands tilkynnti uppgjöf sína 21. nóvember 2010 Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Umsátrið um Dublin í nóvember 2010 Um verslunarmannahelgina fervel á því að rifja upp gildi verslunar. Jón biskup Vídalín seg- ir í prédikun tíunda sunnudag eft- ir Trinitatis: „Það er víst, að ekki getur veröld þessi staðist án kauphöndlunar. Mismun hefur hinn alvísi skapari gjört bæði landanna og mannanna, en engum hefur hann gefið allt.“ Um svipað leyti og Vídalín mæl- ir þessi orð, skrifar enska skáldið Addison í tímaritið Spectator 1711: „Nytsamlegri menn eru ekki til en kaupmenn. Þeir binda mannkyn saman í gagnkvæmum samskiptum góðra verka, dreifa gjöfum náttúrunnar, veita fátæk- lingum atvinnu, bæta við auð hinna ríku og vegsemd hinna miklu. Hinn enski kaupmaður vor breytir tini í eigin landi í gull og skiptir ull fyrir rúbína. Fylg- ismenn Múhameðs spámanns klæðast breskum fatnaði, og íbúar hinna nístingsköldu Norðurslóða skýla sér í gærum af sauðum vor- um.“ Addison bætir við: „Án þess að viðskiptin hafi bætt neinum löndum við ríki Bretakonungs, hafa þau fært oss eins konar við- bótarveldi. Þau hafa margfaldað tölu efnamanna, aukið stórkost- lega verðmæti jarða vorra og bætt við aðgangi að öðrum jörðum jafnverðmætum.“ Þetta er í svipuðum anda og Jón Sigurðsson, sem var eindreg- inn frjálshyggjumaður, segir í Nýjum félagsritum 1843: „Ekkert land í veröldinni er sjálfu sér ein- hlítt, þó heimska mannanna hafi ætlað að koma sér svo við, að það mætti verða, en ekkert er heldur svo, að það sé ekki veitanda í ein- hverju og geti fyrir það fengið það, sem það þarfnast. En þegar það getur fengið það, og það veit- ir einmitt verslanin, þá er það eins og það hefði sjálft þessi gæði. Þegar nú verslanin er frjáls, þá leitar hver þjóð með það, sem hún hefir aflögu, þangað sem hún get- ur fengið það, sem hún girnist.“ Einnig mætti minna á það, sem Halldór Kiljan Laxness leggur í munn söguhetju sinnar í Íslands- klukkunni, Arnæi: „En það voru ekki mjölbætur sem ég æskti þessu mínu fólki, og ekki hallær- iskorn, heldur betri verslun.“ Athugasemdir og leiðréttingar vel þegn- ar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Verslunar- mannahelgi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.