Morgunblaðið - 03.08.2013, Blaðsíða 27
að. Traustur hlekkur í fjöl-
skyldunni er brostinn, ástkær
eiginkona, umhyggjusöm móðir
og amma, sem barnabörnin fá
ekki að njóta lengur, en þar
áttu þau elskuríka stoð og
styttu og fagra fyrirmynd.
Að leiðarlokum er hugur
minn fullur þakklæti fyrir að
hafa öðlast vinátta Ingu Lóu og
fengið að vera hluti af lífshlaupi
hennar.
Bergþóra Einarsdóttir.
Angur í hjarta.
Endurminningar
líða um hugann
líkt og svipmyndir.
Gáskafull skólaár.
Gæðastundir síðar
í góðum hópi.
Ljúf og einstök
í lífi og starfi.
Fjölskyldu, börnum,
félögum og vinum,
sinnti hún öllum
af sömu natni.
Ógn steðjaði að.
Á henni var tekið
af æðruleysi.
Lokins kom nóttin
með líknandi hönd
og lokaði augum.
Góðvina er gengin
geymi hana faðir
í hæstu hæðum.
Kallið er komið, Inga Lóa
vinkona okkar er horfin úr
hópnum og söknuðurinn er sár.
Við undirritaðar áttum samleið
með henni í rúmlega hálfa öld
og nutum vináttu hennar,
gæsku og trygglyndis. Margs
er að minnast og minningarnar
streyma fram, ein af annarri.
Minningar um glaðar stundir
við skemmtan, útivist, söng og
spjall á síðkvöldum munu ylja
okkur um ókomin ár.
Við kynntumst Ingu Lóu
fyrst haustið 1960 við upphaf
náms í Menntaskólanum á Ak-
ureyri. Við komum alls staðar
að af landinu og margar okkar
bjuggu í heimavist skólans.
Inga Lóa var innfæddur Ak-
ureyringur og bjó í foreldra-
húsum í Goðabyggðinni. For-
eldrar hennar, Haraldur og
Áslaug, sýndu okkur mikla
ræktarsemi og gestrisni og
opnuðu okkur heimili sitt og
faðm alla tíð. Slíkt var ómet-
anlegt fyrir unglinga sem voru
að fóta sig í lífinu fjarri heima-
högum. Inga Lóa erfði góða
eðliskosti foreldra sinna, hún
var blíðlynd og fáguð, hnyttin í
svörum og vel máli farin. Í MA
kynntist hún lífsförunaut sínum
Jóni Gunnari Gunnlaugssyni
sem nú hefur misst eiginkonu
sína og besta vin.
Þau Jón voru einna fyrst úr
hópnum til að stofna sitt eigið
heimili og þegar frá leið urðu
þau fastir punktar í tilveru okk-
ar. Þau kunnu þá list að taka
vel á móti gestum og heimsókn-
ir til þeirra á Álftanesið, í
„Gleðihúsið“ niðri á túni og í
sumarbústaðinn Brekkukot í
Vaðlaheiðinni, eru okkur
ógleymanlegar. Þau hjón voru
samhent og börnin þrjú voru
augasteinar þeirra. Ekki
minnkaði ánægjan þegar
barnabörnin komu til sögunnar
og það var stolt amma sem
sagði okkur sögur af þeim. Fyr-
ir margt löngu stofnuðum við
stelpurnar úr árgangi okkar í
MA félagsskap – sem við í gríni
kölluðum stundum saumaklúbb
– og gáfum honum heitið Flit-
tige hænder og tavse munde,
skammstafað FHOTM. Inga
Lóa var virk í starfsemi klúbbs-
ins enda félagslynd og hug-
myndarík en það eru eiginleik-
ar sem nýtast vel í samskiptum
við okkur. Með sitt fallega bros
og bjarta yfirbragð varð hún
fljótlega ein af skrautfjöðrum
klúbbsins. Og þá er nú mikið
sagt. Við höfum gert ótrúleg-
ustu hluti saman og treyst vin-
áttuböndin í blíðu og stríðu.
Líf sem vel er nýtt, er langt
líf. Inga Lóa gat litið sátt yfir
farinn veg. Hún hafði verið far-
sæl og heilsteypt í lífi og starfi
og í glímunni við erfið veikindi
sýndi hún mikinn kjark og
æðruleysi. Við dáðumst að bar-
áttuþreki hennar og erum
þakklátar fyrir að hafa átt hana
að vini. Hún stóð á meðan stætt
var og miklu, miklu lengur.
Við þökkum Ingu Lóu ára-
langa vináttu og vottum Jóni,
börnum og öðrum ástvinum
innilega samúð.
Hvíl í friði.
Fyrir hönd vinkvenna í
FHOTM,
Ingibjörg Möller, Ingi-
björg Símonardóttir og
Hlín Daníelsdóttir.
Í dag kveð ég Ingu Lóu Har-
aldsdóttur. Ég var svo heppinn
að fá að vinna með Ingu Lóu
um árabil. Hún stýrði ritara-
þjónustu Barnaspítala Hrings-
ins og undanfarinn áratug var
hún skrifstofustjóri og ritari
prófessors. Öll samskipti voru
ánægjuleg, auðveld og þægileg
og aldrei bar þar skugga á.
Inga Lóa var vinnusöm, vand-
virk og samviskusöm. Hún
lagði mikla alúð í öll störf. Það
var meðal annars greinilegt í
verkefnum er sneru að nem-
unum en hún gætti vel að öllum
málum er snertu skipulag náms
í barnalækningum. Oft sá hún
fyrir verkefni sem komu upp og
hafði jafnvel lokið þeim þegar
ég bryddaði upp á hugmynd-
inni. Var þá jafnvel svolítið
kankvís: „Þetta er tilbúið í
skúffunni.“
Inga Lóa var einnig
skemmtileg og stundum glettin.
Þegar við starfsfélagarnir sögð-
um glaðir frá því hvernig við
höfðum að sumarlagi farið yfir
Sprengisand, meira að segja í
þoku og slæmu skyggni, kom í
ljós að Inga Lóa hafði nýlega
farið með Jóni sínum upp í
Grímsvötn um hávetur. Og þeg-
ar við rifjuðum upp veiðisögur
liðins sumars, stoltir að hafa
landað einum þrátt fyrir lítið
vatn í ánni, kom í ljós að Inga
Lóa hafði nýlega verið uppi á
hálendi með Jóni í 20 stiga
frosti að dorga í gegnum ís. Og
þetta sagði hún okkur eins og
þetta væri fullkomlega eðlilegt
– að vísu með léttum, skemmti-
legum hlátri og glettni í aug-
unum.
Inga Lóa var einlægur og
góður félagi. Hún var einnig
mikil fjölskyldumanneskja,
sagði stolt frá börnunum og
barnabörnunum og sögur af
ferðalögum með Jóni. Ferðirn-
ar norður í húsið þeirra í Vaðla-
heiðinni voru henni mikils virði
undanfarin ár þar sem hún
naut samvista við fjölskylduna.
Ég sakna Ingu Lóu. Ég
minnist margra góðra stunda
og er þakklátur fyrir að hafa
átt hana að vini og samstarfs-
manni. Ég tala fyrir hönd allra
samstarfsmanna Barnaspítala
Hringsins, öll söknum við góðs
félaga.
Fjölskyldu Ingu Lóu sendi
ég mínar bestu samúðarkveðj-
ur.
Ásgeir Haraldsson.
Kveðja frá félögum í
Álftaneskórnum
Við kveðjum nú kæran og
tryggan félaga í Álftaneskórn-
um til áratuga, hana Ingu Lóu.
Það er stórt skarð höggvið í
okkar raðir. Við höfum ríghald-
ið í vonina um að hún myndi
sigrast á veikindum sínum og
koma aftur í hópinn, en það er
ekki liðið nema rúmt ár síðan
við vorum öll saman á Ítalíu í
söngferð sem hún tók fullan
þátt í.
Inga Lóa var afar tryggur
félagi, glæsileg, hreinskiptin og
glaðlynd. Söng altrödd, var ein
af styrkustu stoðum þess hóps
innan kórsins og vantaði mikið
þegar hún var ekki, hvort sem
það var við æfingar eða þegar
kórinn kom fram og söng.
Kórinn naut gestrisni
hjónanna Jóns og Ingu Lóu í
ríkum mæli og eigum við góðar
minningar um samverustundir í
garðhúsinu þeirra þar sem við
grilluðum, sungum og skemmt-
um okkur. Í vor komum við síð-
ast á heimili þeirra til að
syngja saman og var vel tekið á
móti okkur að venju.
Um leið og við syrgjum góð-
an félaga og söknum, berum við
jafnframt gleði og þakklæti í
hjarta fyrir allar samveru-
stundirnar sem við höfum átt
með henni í kórstarfinu.
Við vottum Jóni Gunnari eig-
inmanni Ingu Lóu, börnum
þeirra og fjölskyldum innilega
samúð okkar allra.
Fyrir hönd Álftaneskórsins,
Hallfríður Erla
Guðjónsdóttir.
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2013
Sumarið 1962 sá
ég stúlku sem afgreiddi í verslun
föður síns, Jóns Þórðarsonar, í
Þingholtstræti 1, og var klædd
samkvæmt nýjustu tísku. Í ljós
kom að stúlkan, sem fáum árum
seinna varð konan mín, hafði siglt
með Þórði stóra bróður sínum til
Rotterdam og Hamborgar á Ms
Selfossi. Saman höfðu þau farið í
flottustu búðirnar og meira að
segja séð Bítlana spila á Star Club
í Hamborg rétt áður en þeir urðu
heimsfrægir. Tveimur árum
seinna fórum við Þóra sama túr
með Þórði. Svona var Þórður
mágur minn alla tíð, gestrisinn,
örlátur og skemmtilegur. Þótt
Þórður væri kominn af kaup-
mönnum í Þingholtsstræti 1, þar
sem Jón Þórðarson elsti byggði
fyrsta steinhúsið fyrir austan læk
árið 1892 og rak landskunna versl-
un, fór hann snemma á sjóinn.
Samskipti okkar voru því stund-
um slitrótt en þegar hann kom í
land var bæði tilhlökkun og fagn-
aðarfundur. Sú tilfinning fylgdi
Þórður Sævar
Jónsson
✝ Þórður SævarJónsson fædd-
ist 24. ágúst 1934.
Hann lést á Líkn-
ardeild Landspít-
alans í Kópavogi
18. júlí 2013.
Þórður Sævar
var jarðsunginn frá
Neskirkju 2. ágúst
2013.
Þórði alla tíð eftir að
hann fór að vinna við
virkjanir á hálendinu
og eins eftir að hann
flutti á Laugar-
bakka, svo á
Hvammstanga og
loks á Flateyri, það
var alltaf gaman
þegar Þórður kom í
bæinn. Hann var
snyrtimenni til fara
og bíllinn var ævin-
lega þveginn við borgarmörkin.
Seinni árin átti hann vísan sama-
stað hjá okkur í Engjaseli hvenær
sem hann vildi. Þá voru sagðar
sögur og hlegið dátt, ekki síst um
jól og áramót þegar fjölskyldan
kom saman. Hans verður sárt
saknað á næstu jólum.
Þórður eignaðist fjögur mann-
vænleg börn með tveimur fyrstu
konum sínum, en þau hjónabönd
urðu skammvinn. Hann eignaðist
Jón Sævar og Guðnýju Arndísi
með Bergljótu Aðalsteinsdóttur.
Guðný dó aðeins 14 ára gömul í
bílslysi og það var Þórði þung-
bært. Síðan eignaðist hann Mar-
gréti og Steingrím Jón með Arn-
gunni Jónsdóttur. Örlögin höguðu
því þannig að við Þóra tókum
Steingrím sem okkar fósturson
þegar hann var fimm ára og Mar-
grét átti athvarf hjá okkur um
skeið. Þrátt fyrir allt var ást og
skilningur milli allra aðila í þessu
flókna fjölskyldumynstri og við
Þórður sögðum gjarnan frá því að
við ættum börn saman. Betra gat
það nú ekki orðið. Það var stóra
gæfan í lífi Þórðar er hann kynnt-
ist henni Láru sinni, sem var lífs-
förunautur hans í 31 ár. Þau
bjuggu á Laugabakka og
Hvammstanga í 10 ár og á Flat-
eyri í 17 ár. Fyrstu árin ráku þau
hinn kunna skemmtistað Vagninn,
sem var Flateyringum nauðsyn-
legur samkomustaður eftir snjó-
flóðið, og mig grunar að Þórður
vagnstjóri hafi reynst mörgum
góður sálufélagi, þótt það hafi allt
verið með óbeinum hætti. Það var
ekki síður ánægjulegt að njóta
gestrisni Láru og Þórðar þegar
þau voru heimsótt.
Þegar Þórður hætti að vinna
tók sig upp gamalt áhugamál sem
hafði blundað með honum síðan
hann var að sinna trjárækt með
föður sínum barn að aldri í land-
skika fjölskyldunnar við Rauða-
vatn. Og það var eins og við mann-
inn mælt, allt óx og dafnaði sem
hann setti niður, hvort sem það
var í hans eigin garði, við íþrótta-
húsið eða meðfram götum á Flat-
eyri. Við Þóra áttum erindi á Vest-
firði um daginn og komum í
garðinn hans stutta stund. Þar var
allt með glæsibrag, tré og plöntur.
Daginn eftir kvaddi Þórður þenn-
an heim, umvafinn ástvinum sín-
um. Lengi átti hann sér þá von að
sjá garðinn sinn í blóma einu sinni
enn. Það gerir hann nú án fjötra
hins jarðneska lífs. Þakkir fyrir
allt sem þú gafst okkur og megi
góður Guð styrkja Láru og fjöl-
skylduna á sorgarstundu.
Björn G. Björnsson.
Inger Steinsson
Inger Rós Ólafsdóttir
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Vönduð og persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 - 691 0919
athofn@athofn.is - Akralandi 1 - 108 Reykjavík
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HANNA JONNÝ SÍMONARDÓTTIR,
Sólvangsvegi 3,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn
1. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn
9. ágúst kl. 13.00.
Ólöf Hreiðarsdóttir,
Helen Hreiðarsdóttir, Haraldur Arason,
Linda Björg Guðmundsdóttir,
Helgi Örn Guðmundsson,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
EYÞÓR MAGNÚSSON
frá Geirastöðum,
lést þriðjudaginn 30. júlí.
Útför fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Una Eyþórsdóttir,
Magnús Böðvar Eyþórsson.
✝
Okkar ástkæri
GUNNAR GUÐRÖÐARSON,
fyrrv. skólastjóri,
Lerkihlíð 2,
Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni fimmtu-
daginn 1. ágúst.
Jarðarför verður auglýst síðar.
Guðrún Nielsen,
Karl Gunnarsson,
Bergrún Helga Gunnarsdóttir, Gunnar Pálsson,
Vaka Gunnarsdóttir, Guðmundur Vestmann,
Halla Gunnarsdóttir,
Kría Guðmundsdóttir.
✝
Elskulegur afi okkar og langafi, bróðir og
mágur,
HALLDÓR KRISTINSSON,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut miðvikudaginn 31. júlí.
Útför verður frá Fossvogskapellu
þriðjudaginn 6. ágúst kl. 15.00.
Tinna, Sunna og Sif Ingvarsdætur,
Fríða Ír Søberg,
Ástríður Ösp Sigurðardóttir,
Sólveig Kristinsdóttir,
Jón Kristinsson, Sigríður Eysteinsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
SVAVAR STEFÁNSSON,
fyrrverandi mjólkursamlagsstjóri
frá Egilsstöðum,
Bogahlíð 6,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
föstudaginn 2. ágúst.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 8. ágúst kl. 11.00
Kristbjörg Sigurbjörnsdóttir,
Ingunn St. Svavarsdóttir, Sigurður Halldórsson,
Birna Kristín Svavarsdóttir, Kristinn Ingólfsson,
Erla Kolbrún Svavarsdóttir, Gunnar Svavarsson,
Alma Eir Svavarsdóttir, Guðjón Birgisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi,
EINAR RAGNARSSON,
Lágholti 12,
Stykkishólmi,
lést mánudaginn 29. júlí á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi.
Útförin fer fram frá Stykkishólmskirkju
föstudaginn 9. ágúst kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Rósa Helgadóttir,
Nanna Einarsdóttir,
Ragnar Hinrik Einarsson, Ása Valdís Ásgeirsdóttir,
Hafþór Helgi Einarsson, Guðrún Heiðarsdóttir,
Sólveig Einarsdóttir, Guðmundur Leifur Kristjánsson
og barnabörn.