Morgunblaðið - 03.08.2013, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 03.08.2013, Blaðsíða 19
Skrímsli » Saksóknari byggði mál sitt m.a. á dagbókum stúlknanna, þar sem þær skrifuðu m.a. að Castro færi með þær eins og dýr. » Stúlkurnar fengu að borða einu sinni á dag og fengu sjald- an að fara á salernið en gerðu þarfir sínar í fötu sem var sjaldan tæmd. » Þær dreymdi um daginn sem þær slyppu og hittu fjöl- skyldur sínar aftur. Chicago. AFP. | Strætóbílstjórinn Ariel Castro, sem rændi, pyntaði og nauðgaði þremur konum í um áratug á heimili sínu í Ohio í Bandaríkjunum, var á fimmtudag dæmdur í lífstíðarfangelsi. Castro, 53 ára, játaði sök í síðustu viku gegn því að saksóknarar færu ekki fram á dauðarefsingu. „Herra, það er enginn staður í þessari borg, enginn staður í þessu landi og sannarlega enginn staður í veröldinni fyrir þá sem binda aðra í ánauð, þá sem misnota aðra kynferðislega og þá sem misþyrma öðrum,“ sagði dómarinn Michael Russo við dómsuppkvaðningu. Castro var fundinn sekur um að hafa rænt Michelle Knigth, Amöndu Berry og Ginu DeJesus þegar þær voru 20, 16 og 14 ára og haldið þeim föngnum. Við réttar- höldinn sagðist Knight ánægð með samkomulag Castro og saksóknara og sagði að dauði hefði verið kval- ara hennar léttbærari. „Ég eyddi ellefu árum í helvíti og nú er þitt helvíti rétt að byrja,“ sagði hún við Castro. Sagði konurnar ljúga „Ég er ekki skrímsli. Ég var veikur,“ sagði Castro, sem bar í bætifláka fyrir gjörðir sínar og sagðist þjást af kynlífsfíkn. Hann sagðist ekki skilja hvað hefði vald- ið því að hann ákvað að halda kon- unum föngnum en hélt því fram að það hefði ríkt samlyndi á heim- ilinu. Þá sagði hann að konurnar lygju því að hann hefði lamið þær og nauðgað. „Ég er ekki ofbeldisfull manneskja,“ sagði hann og hélt því fram að kynlíf hans og kvennanna hefði í flestum tilfellum verið með þeirra samþykki. Geðlæknirinn Fran Ochberg sagði hins vegar að meðferð Castro á konunum jafngilti lífstíð- ardómi fyrir þær. Amanda Knigth varð fjórum sinnum þunguð eftir Castro, sem svelti hana og barði þar til hún missti fóstrin, en Berry eignaðist stúlku sem er 6 ára. Castro óskaði eftir því að fá að hitta dóttur sína en var neitað. Enginn staður fyrir hann í veröldinni  Ariel Castro dæmdur í ævilangt fangelsi  „Þitt helvíti að byrja“ AFP Lífstíð Málið komst upp þegar Berry tókst að flýja ásamt 6 ára dóttur sinni. FRÉTTIR 19 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2013 Nýkjörinn forseti Íran, Hassan Rowhani, sem tekur við embætti í dag, sagði í gær að Ísraelsstjórn væri sár á múslímaheiminum sem þyrfti að hreinsa. Ummælin lét hann falla í samtali við fréttamenn á Quad-degi en þá efna Íranar til mik- illa mótmælaganga gegn síonistum og yfirráðum Ísrael yfir Jerúsalem. Rowhani þykir hófsamari en gengur og gerist innan íranska stjórnkerfisins en andstaða við sjálf- stætt Ísraelsríki hefur verið óhagg- anlegur hornsteinn utanríkisstefnu Írana frá 1979. Ríkissjónvarp lands- ins sýndi í gær frá fjöldagöngum þar sem hundruð þúsunda hrópuðu „Dauði yfir Ísrael“ og „Dauði yfir Ameríku.“ Benjamin Netanyahu, forsætis- ráðherra Ísrael, sagði að Rowhani hefði með ummælum sínum sýnt sitt rétta andlit, fyrr en búast hefði mátt við. „Ummæli forsetans ættu að vekja hluta af heiminum af tálsýnum sínum,“ sagði forsætisráðherrann. Hann sagði að þrátt fyrir að for- setaskipti hefðu orðið í Íran væri það enn markmið stjórnvalda að smíða kjarnorkuvopn til að ógna Ísrael, Miðausturlöndum og friði og öryggi um allan heim. Áður en fregnir bárust af ummæl- um Rowhani í gær sagði Guido Wes- terwelle, utanríkisráðherra Þýska- lands, að hann vonaðist til þess að viðræður um kjarnorkuáætlun Ír- ana myndu þokast áfram eftir að Rowhani tæki embætti. Hann ítrek- aði þó að Vesturveldin myndu halda áfram refsiaðgerðum gegn landinu þar til þau væru þess fullviss að Ír- anar hefðu fallið frá þróun kjarna- vopna. AFP Nýkjörinn Rowhani þykir meðal hófsamari stjórnmálamönnum í Íran. Hefur í hótunum  Nýkjörinn forseti Íran segir Ísrael sár á múslimaheiminum sem þurfi að hreinsa Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa lýst mikilli óánægju með ákvörðun Rússa um að veita uppljóstraranum Edw- ard Snowden tímabundið hæli í Rúss- landi. Yfirvöldum vestanhafs var ekki gert viðvart áður en tilkynnt var um ákvörðunina, sem Jay Carney, tals- maður Hvíta hússins, sagði hafa vald- ið stjórnvöldum miklum vonbrigðum. Carney tilkynnti jafnframt að í kjölfarið yrðu fyrirætlanir um fund Baracks Obama Bandaríkjaforseta og Vladimirs Pútíns Rússlands- forseta í Moskvu í næsta mánuði teknar til endurskoðunar. Ónefndur bandarískur embættis- maður sagði í samtali við CNN að hælisveitingin hefði legið í loftinu í nokkurn tíma og kæmi því varla á óvart. Þá sagði George Little, tals- maður Pentagon, að bandarísk her- málayfirvöld vildu að sjálfsögðu við- halda samskiptum sínum við rússneska herinn. Það kvað þó ekki við sáttatón hjá fjölda þingmanna sem tjáðu sig um málið í gær. Öldungadeildar- þingmaðurinn John McCain kallaði ákvörðun Rússa löðrung í andlit allra Bandaríkjamanna og hvatti til þess að samskipti stjórnvalda við Vladimir Pútín yrðu tekin til gagngerrar end- urskoðunar. „Rússar hafa stungið okkur í bakið og fyrir hvern dag sem herra Snow- den er frjáls ferða sinna er hnífnum snúið,“ sagði öldungadeild- arþingmaðurinn Charles E. Schumer. Faðir Edwards, Jon Snowden, sagði í samtali við rússneska fjöl- miðla á fimmtudag að hann væri þakklátur Rússum og hlakkaði til að heimsækja son sinn í Rússlandi. Þá virðist Snowden ekki dæmdur til að sitja auðum höndum þar sem Pavel Durov, stofnandi samskiptasíð- urnnar V Kontakte, hefur boðið hon- um starf í höfuðstöðvum fyrirtæk- isins í Sankti Pétursborg. Reiðir ákvörðun Rússa  Bandaríkjamenn ósáttir við að Snowden hafi fengið hæli AFP Hæli Lögmaður Snowdens sýndi fjölmiðlum hælisleyfið í fyrradag. Bandaríska utanríkisráðuneytið gaf út ferðaviðvörun í gær þar sem það var- aði við því að hryðjuverkasamtökin Al Kaída undirbyggju árásir í ágústmán- uði. Ráðuneytið tilkynnti á fimmtudag að sendiráð yrðu sumstaðar lokuð á sunnudag og hugsanlega lengur. Ráðuneytið sagði líkur á árásum „sérstak- lega í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku“ og hugsanlega á Arabíuskag- anum. „Þær upplýsingar sem við höfum í höndunum benda til þess að Al Kaída og samtök tengd þeim haldi áfram að skipuleggja hryðjuverkaárásir bæði á svæðinu og víðar og að vera megi að þau leggi áherslu á árásir á tímabilinu frá því í dag og fram til enda ágúst,“ sagði í viðvöruninni til bandarískra ferða- manna en í henni var sérstaklega varað við mögulegum árásum á almennings- samgöngur og aðra innviði í ferðaþjónustu. Meðal þeirra sendiráða sem verða lokuð á sunnudag eru sendiráðin í Egyptalandi og Ísrael. Leggja vara við hryðjuverkaógn AFP Varúð Óeirðalögregla stendur vörð um bandaríska sendiráðið í Tyrklandi í mótmælum í vikunni.  Gefa út ferðaviðvörun og loka sendiráðum á sunnudag www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu Hörku- spennandi saga Eftir höfund Góða nótt, yndið mitt Leyndarmál, lygar og svikin loforð - sannleikurinn kemur alltaf í ljós SG / MBL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.