Morgunblaðið - 03.08.2013, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 03.08.2013, Blaðsíða 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2013 Menntaskólinn við Hamrahlíð www.mh.is Danska/Danish (6 einingar/10 fein*), mán. 19. ágúst kl. 15:00. Enska/English (9 einingar/15 fein*), mán. 19. ágúst kl. 17:00. Franska/French (12 einingar/20 fein*) fös. 16. ágúst kl. 15:00. Ítalska/Italian (12 einingar/20 fein*), fös. 16. ágúst kl. 15:00. Norska/Norwegian (6 einingar/10 fein*), mán. 19. ágúst kl. 15:00. Spænska/Spanish (12 einingar/20 fein*), fös. 16. ágúst kl. 15:00. Stærðfræði/ Mathematics fim. 15. ágúst kl. 15:00. (stæ103/5 fein, stæ203/5 fein , stæ263/5 fein) Sænska/Swedish (6 einingar/10 fein*), mán. 19. ágúst kl. 15:00. Þýska/German (12 einingar/20 fein*), fös. 16. ágúst kl. 15:00. *hámarks einingafjöldi sem hægt er að ná, frá og með fyrsta áfanga á framhaldsskólastigi. Rafræn skráning í stöðupróf fer fram á heimasíðu skólans www.mh.is. Frekari upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 595-5200 eftir 11. ágúst. Sýna þarf persónuskilríki með mynd í prófinu. Prófgjald, kr. 8000 fyrir hvert próf, ber að greiða inn á reikning Menntaskólans við Hamrahlíð í banka 323 hb 26 nr 106, kt. 460269-3509. Greiðslufrestur er til hádegis á prófdegi, nauðsynlegt er að fram komi nafn og kennitala próftaka. Réttur til próftöku byggist á að prófgjald hafi verið greitt. PLACEMENT TESTS Placement tests (for Secondary School credit) will be held at Menntaskólinn við Hamrahlíð in the sub- jects listed above. On-line registration takes place on the school website www.mh.is. For more information call the school office tel. 595-5200 after August 11th. Everyone sitting the test must show an ID with a picture. The fee, kr. 8000 per test, should be paid to the account of the Menntaskólinn við Hamrahlíð bank 323 – 26 – account no. 106, id. 460269-3509 before noon on the day of the test, except for Norwegian and Swedish should be before noon on the day before the test. Please provide the name and identification number of the examinee when paying. Only those that have paid can sit the exam. Rektor. STÖÐUPRÓF HAUSTIÐ 2013 Stöðupróf á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins verða haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð sem hér segir: AF TÓNLIST Guðni Einarsson gudni@mbl.is Bandaríski kántrí- og gosp-elsöngvarinn Guy Penrodheldur tónleika á Kotmóti í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð á sunnudagskvöld. Hann er unn- endum svonefndrar Suðurríkja- gospeltónlistar vel kunnur. Penrod er nú á tónleikaferðalagi um Evr- ópu og mun hann halda 14 tónleika á Íslandi, í Svíþjóð, Noregi og Hollandi. Penrod varð þekktur sem for- söngvari Gaither Vocal Band- sönghópsins á árunum 1994-2008. Bill Gaither, sem sönghópurinn er kenndur við, er einn helsti núlifandi höfundur trúarsöngva í Suður- ríkjagospelstíl í Bandaríkjunum. Hann samdi m.a. lagið „He Touched Me“ (Hann snart mig) sem Elvis Presley söng af innlifun.    Guy Penrod fæddist árið 1963og hóf hann söngferilinn ungur að árum. Hann gerðist bak- raddasöngvari í hljóðverum í Nash- ville og víðar árið 1980 og söng m.a. með Amy Grant, Shania Twain, Kenny Chesney, Garth Brooks og James Ingram svo nokkur séu nefnd. Hann ferðaðist með Gaither Vocal Band víða um heim og kom fram á fjölda tónleika á sviði og í sjónvarpi auk þess að syngja inn á 13 hljómplötur með sönghópnum. Guy Penrod hætti í Gaither Vocal Band í ársbyrjun 2009 og hóf sólóferil. Fyrsta einsöngsplata hans, Breathe Deep, kom út í ágúst 2009. Hún inniheldur kántrítónlist með kristilegu ívafi. Í fyrra gaf hann út plötuna Hymns sem geymir þekkta sálma í sveitasöngstíl. Einn- ig kom út safnplata með bestu lög- um hans frá árunum í Gaither Vocal Band. Í æviágripi sem er birt á heima- síðu Penrod (www.guypenrod.com) segir m.a. að hann sé fæddur í Abi- lene í Texas þar sem faðir hans var baptistaprestur. Penrod ólst upp í kirkjunni og þráði að hafa áhrif á heiminn með einhverjum hætti. „Ég komst að því nokkuð snemma á ævinni að tónlistin var góður farvegur fyrir mig,“ sagði hann. Hann fór að syngja sem barn og söng einnig í kirkjunni og skól- anum. Hann nam við Liberty Uni- versity í Virginíu og hlaut náms- styrk vegna sönghæfileika sinna. Hann gerðist söngkennari að loknu námi áður en hann varð atvinnu- tónlistarmaður. Penrod hóf feril sinn í kántrítónlistinni og fékk síðar mikinn frama innan Suður- ríkjagospelsins. Tónlist hans í dag ber sterkan keim af þessum bak- grunni.    Guy Penrod var nýlega til-nefndur af National Quartet Convention Music Awards sem ein- söngvari ársins 2013. Penrod og eiginkona hans, Angie, eiga átta börn, sjö stráka og eina stelpu. Þau búa á búgarði fjölskyldunnar í Tennessee þar sem Penrod sinnir bústörfum og ekur um á dráttarvél og pallbíl á milli tónleikaferða. Tónleikarnir hefjast klukkan 22.00 á sunnudagskvöld í Örkinni í Kirkjulækjarkoti. Tveir bandarísk- ir gítarleikarar koma með honum til landsins en auk þeirra eru í hljómsveitinni Óskar Einarsson hljómborðsleikari, Páll E. Pálsson bassaleikari og Brynjólfur Snorra- son trommuleikari. Nánari upplýs- ingar um tónleikana eru á www.kotmot.is. Kántrísálmar á Kotmóti » Penrod hóf ferilsinn í kántrítónlist- inni og fékk síðar mik- inn frama innan Suð- urríkjagospelsins. Tónlist hans í dag ber sterkan keim af þessum bakgrunni. Hæfileikaríkur Bandaríski kántrí- og gospelsöngvarinn Guy Penrod heldur tónleika á Kotmóti í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð á sunnudagskvöld. Austurríska listakonan Mercedes Mühleisen opnar sýningu í sýning- arsal Kunstschlager í dag, 3. ágúst, klukkan 20. Á sama tíma mun Val- gerður Sigurðardóttir sýna verk sín á vegg í basarnum, en hún er listamaður vikunnar að þessu sinni. Sýning Mühleisen nefnist An Object Lesson og býður upp á úr- beinaða einingu sem þráir hlut- gervingu, hægðatregðu-heimspek- ing sem stefnir í andlega ævintýra- reisu og brauðhleif sem sefur einsamall, eins og segir í tilkynn- ingu. Munu þar vera myndbönd, fí- gúrur og hlutir til sýnis. Mercedes Mühleisen fæst við skúlptúra, inn- setningar, myndbandsverk og gjörninga. Mikilvægur liður í sköp- un hennar og smíði er að skapa að- stæður þar sem fáránleikinn heimt- ar sína eigin rökfræði. List Mercedes Mühleisen opnar sýn- ingu sína í kvöld klukkan átta. Úrbeinuð eining í Kunstschlager

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.