Morgunblaðið - 03.08.2013, Blaðsíða 16
SVIÐSLJÓS
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Reiknað er með að Heimsleikar ís-
lenska hestsins sem hefjast í Berlín á
morgun verði í röð stærstu leikanna
til þessa, þeir stærstu ef vel tekst til.
Mikill áhugi er meðal hestamanna og
hestaáhugafólks og skipuleggjendur
gera einnig margt til að ná til borg-
arbúa þannig að búast má við tugþús-
undum áhorfenda, fleirum en sést
hafa á síðustu heimsmeistaramótum.
Áætlað er að
nokkuð á annað
þúsund Íslend-
ingar sæki leik-
ana.
Heldur dauft
hefur verið yfir
sölu og útflutningi
íslenskra reið-
hesta undanfarin
ár. Vonast hesta-
menn til að mótið í
Berlín verði til að
koma málum á hreyfingu. Mikið er
lagt undir því fjöldi hesta er sendur
út til sýninga og keppni án þess að
þeir hafi verið seldir fyrirfram.
„Mótið sem haldið var í Þýskalandi
1999 var stórt og öflugt. Mér heyrist
menn hafi væntingar um að slík
straumhvörf verði nú. Ég veit ekki
hvort það verður en veit þó að þetta
verður vel skipulagt og gott mót með
frábærum knöpum og hrossum,“ seg-
ir Haraldur Þórarinsson, formaður
Landssambands hestamannafélaga
(LH).
Krafa um árangur
Mótið hefst á morgun og lýkur á
sunnudeginum eftir rúma viku.
Keppt verður um níu heimsmeist-
aratitla í hestaíþróttum, eins og verið
hefur undanfarin ár, auk þess sem
sérstök keppni verður í ungmenna-
flokki og sýnd verða og dæmt bestu
kynbótahrossin sem þátttökulöndin
hafa tök á að senda.
Ísland er upprunaland íslenska
hestsins og því eru gerðar kröfur um
árangur. Íslendingar unnu þrjá titla
síðast og fjóra á mótinu þar á undan.
Frá því farið var að keppa um níu
titla hefur Ísland unnið 21 heims-
meistaratitil samtals en fimm aðrar
þjóðir unnið samtals 25 titla. Íslend-
ingar hafa einnig oftast verið efstir í
íþróttakeppni ungmenna, þótt hlut-
fallið sé mun lægra en í aðalkeppn-
inni, og á kynbótasýningunum.
Ekki er sjálfgefið að þessi árangur
náist alltaf. Ræktun hefur aukist og
batnað í Evrópulöndum og það skilar
fleiri gæðingum auk þess sem margir
af bestu hestunum úr ræktuninni hér
heima eru seldir úr landi og geta þá
erlendir knapar keppt á þeim á
Heimsleikum. Þá er reiðmennskan í
stöðugri framför.
Liðsstjóri landsliðsins og þeir sem
að verkefninu standa binda vonir við
að fleiri titlar vinnist en á síðasta
móti. Breytingar sem gera þurfti á
landsliðinu sem valið hafði verið eru
þó taldar veikja það heldur. Þannig
hefur Daníel Jónsson sem náð hefur
góðum árangri í mótum erlendis á
Oliver frá Kvistum orðið að draga sig
út úr liðinu vegna veikinda hestsins.
Þá þurfti Eyjólfur Þorsteinsson að
fara með varahest. Haukur Tryggva-
son kemur þó sterkur inn af bekkn-
um og öflugir hestar koma í stað
þeirra sem heltust úr lestinni. Þá á
liðsstjórinn möguleika á að nota
knapa sem skráðir eru í ungmenna-
flokkinn ef hann telur þá og hestana
eiga möguleika á sigri. Það gæti til
dæmis átt við um Konráð Val Sveins-
son og Þórdísi frá Lækjarbotnum í
skeiðgreinum og raunar fleiri.
Tekst Jóhanni að verja titilinn?
Spennandi verður að fylgjast með
töltkeppninni og hvort Jóhanni
Rúnari Skúlasyni tekst að vinna tölt-
hornið enn einu sinni. Þjóðverjinn
Karl Zingsheim mun mæta með Dag
og reyna að hefna fyrir ósigurinn á
síðasta móti. Það var æsispennandi
keppni þar sem Jóhann hafði betur.
Héðan að heiman kemur Hinrik
Bragason fullur sjálfstrausts með
Smyril frá Hrísum eftir mjög góðan
árangur á mótum.
Jakob Svavar Sigurðsson og Alur
frá Lundum 2 eru líklegir til árang-
urs í fimmgangi, miðað við gengi
þeirra á mótum hér heima. Þeir þurfa
þó að vinna núverandi heimsmeist-
ara, Magnús Skúlason sem keppir
fyrir Svía á Hraunari frá Efri-
Rauðalæk, og fleiri góða keppinauta.
Íslendingar eiga vænlega fulltrúa í
flestum greinum en ekki er ráðlegt að
telja verðlaunin fyrr en þau hafa ver-
ið hengd um háls knapanna. Í þessari
íþrótt eins og öðrum getur dags-
formið ráðið miklu og alltaf verða
óvænt úrslit.
Íslenska liðið hefur unnið liðabik-
arinn sem veittur hefur verið á tvenn-
um síðustu heimsleikum og þar telur
heildarárangur landsliðsins. Það er
staðfesting þess að íslenska liðið stóð
sig best á þessum mótum. Hafliði
Halldórsson liðsstjóri er ekki á því að
láta liðabikarinn vera lengur en HM-
vikuna í Þýskalandi.
Ýtt undir ungmennin
Bestu ungmennin hafa verið heiðr-
uð á Heimsleikum frá 1999 og frá
2003 hafa þátttökulöndin mátt bæta
þremur ungmennum við landslið sín.
Þau hafa tekið þátt í íþróttakeppninni
með fulloðnu knöpunum en þau efstu
verið verðlaunuð sérstaklega. Nú er
meiri áhersla lögð á unga fólkið. Riðin
verða sérstök úrslit í helstu greinum
og liðunum er heimilt að tefla fram
fimm ungmennum. Íslendingar eiga
góða fulltrúa, þar á meðal tvo stór-
efnilega 16 og 17 ára unglinga, systk-
inasynina Konráð Val Sveinsson og
Gústaf Ásgeir Hinriksson.
Kynbótasýningar hafa verið á
Heimsleikum frá 1985. Íslendingar
hafa oft átt hæst dæmdu hrossin
enda hafa þeir haft yfirburði í rækt-
un. Það háir hins vegar liðinu að erfitt
er að fá eigendur bestu hrossanna
hér heima til að senda þau út vegna
þess að þau eiga ekki afturkvæmt.
Því þarf oft að fara niður listann og
leita til eigenda hrossa sem flutt hafa
verið úr landi.
Endar ná saman
Það er mikið verkefni og dýrt að
senda landsliðið til keppni í Berlín.
Aðeins sá hluti sem Landssamband
hestamannafélaga ber nemur hátt í
þrjátíu milljónum króna. Haraldur
Þórarinsson, formaður LH, segir að
fjárhagsdæmið sé að ganga upp.
Hann þakkar það öflugum bak-
hjörlum landsliðsins, stuðningi frá
hinu opinbera og síðast en ekki síst
duglegri landsliðsnefnd sem vinni
mikið sjálfboðaliðsstarf.
Spennandi keppni í mörgum greinum
Heimsleikar íslenska hestsins hefjast í Berlín á morgun Barist um níu heimsmeistaratitla og
fjölda annarra verðlauna Tugþúsundir gesta Á annað þúsund Íslendinga fer á mótið
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Efla liðsandann Landsliðsmenn hafa komið oft saman að undanförnu til að efla liðsandann og undirbúa sig fyrir
Heimsleikana í Berlín. Myndin var tekin þegar landsliðið var fyrst kynnt en mannabreytingar hafa síðan orðið.
Skráðir til keppni
» 163 knapar/hestar eru
skráðir til keppni á Heims-
leikum íslenska hestsins, í
keppni fullorðinna og ung-
menna. Þar með eru taldir
varaknapar.
» Þátttakendur eru frá 16
löndum. Flestir frá Íslandi,
Noregi, Danmörku, Svíþjóð,
Þýskalandi, Austurríki og Hol-
landi.
» 44 hross eru skráð á kyn-
bótasýningu, frá 12 löndum.
Þar á meðal er eitt frá Kanada
og annað frá Slóveníu. Er þetta
mesta þátttaka sem verið hef-
ur í kynbótasýningu á Heims-
leikum.
Sigurvegarar á Heimsleikum
2011 í Austurríki
2009 í Sviss
2007 í Hollandi
2005 í Svíþjóð
2003 í Danmörku
2001 í Austurríki
1999 í Þýskalandi
LiðsbikarinnHeimsmeistaratitlar
Efstu ungmenni
2011
2009
2007
2005
2011
2009
2007
Efstu kynbótahross
Haraldur
Þórarinsson
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2013
Nokkrir Íslendingar taka þátt í
lokaspretti boðreiðarinnar miklu
til Berlínar í fyrramálið. Tekið verð-
ur á móti hestamönnunum á torg-
inu við Brandenborgarhliðið í mið-
borg Berlínar. Búist er við að allt
að 400 hestar verði með.
Reiðin í gegnum Brandenborg-
arhliðið er síðasti áfanginn í yfir
mánaðarlangri boðreið hesta-
manna, úr þremur nágrannalönd-
um og í gegnum Þýskaland. Leið-
irnar þrjár koma saman í Berlín
þar sem Heimsleikarnir eru haldn-
ir. Tilgangurinn er að gefa hesta-
áhugafólki möguleika á að taka
þátt í Heimsleikunum með þessum
hætti og bera fána og kefli frá
Austurríki, þar sem síðasta mót
fór fram, til Berlínar með svip-
uðum hætti og hlaupið er með ól-
ympíueldinn.
Fulltrúar aðildarlanda FEIF, al-
þjóðasamtaka um íslenska hest-
inn, ríða lokaáfangann með Þjóð-
verjum. Fulltrúar Íslands verða
Dorrit Moussaieff forsetafrú,
Gunnar Sturluson, varaforseti
FEIF, Haraldur Þórarinsson, for-
maður LH, og Sigurborg Daðadótt-
ir yfirdýralæknir.
Forsetahjónin verða í einka-
heimsókn í Berlín þennan dag.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti og
Klaus Wowereit, borgarstjóri Berl-
ínar, ávarpa hestamennina við
Brandenborgarhliðið.
Sumir hestamannanna ríða síð-
an áfram til Karlshorst-hesta-
íþróttasvæðisins í austurhluta
Berlínar þar sem vegleg opnunar-
athöfn hefst klukkan 15, með mikl-
um hestasýningum.
Sigurður Ingi Jóhannsson land-
búnaðarráðherra verður sérstakur
gestur FEIF á Heimsleikunum og
mun meðal annars afhenda verð-
laun um næstu helgi þegar úrslit
verða í flestum greinum.
Íslendingar ríða í gegnum
Brandenborgarhliðið
SÍÐASTI ÁFANGI MÁNAÐARLANGRAR BOÐREIÐAR
Morgunblaðið/Hildur
Berlín Boðreiðin endar á torginu við
Brandenborgarhliðið í miðborginni.
Alþjóðleg
mót fyrir ís-
lenska hest-
inn hafa verið
haldin frá
1970. Þau eru
nú haldin
annað hvert
ár, á móti
Landsmóti
hestamanna
á Íslandi.
Fyrsta Evrópumótið var haldið
árið eftir að FEIF, alþjóða-
samtök um íslenska hestinn
voru stofnuð.
Gunnar Bjarnason, hrossa-
ræktarráðunautur og frum-
kvöðull í útflutningi íslenskra
reiðhesta, boðaði til stofnfund-
arins í nafni Búnaðarfélags Ís-
lands og var kjörinn varafor-
maður samtakanna. Gunnar
hafði í tuttugu ár unnið að upp-
byggingu félagskerfis og móta-
halds í löndum Evrópu til að
undirbyggja hestaútflutning-
inn. Taldi þá þróun mála það
langt komna að tímabært væri
að efna til Evrópukeppni. FEIF
er þýsk skammstöfun á heitinu
Evrópusamband vina íslenska
hestsins og felst í því ákveðin
yfirlýsing.
Á fyrsta Evrópumótinu sem
haldið var í Aegidiensberg í
Þýskalandi voru 26 þátttak-
endur frá sex löndum. Íslend-
ingar voru með frá upphafi og
urðu fyrir vonbrigðum að ná
ekki að sigra á fyrstu mót-
unum. Síðan fjölgaði í samtök-
unum og eru nú átján þjóðir að-
ilar, Bandaríkin og Kanada auk
Evrópuþjóðanna. Með vísan til
breiðari aðildar var heiti mót-
anna breytt árið 1991 í Heims-
meistaramót eða Heimsleika
íslenska hestsins.
Kynbótasýningar voru hafn-
ar 1985 og eru sérstakar sýn-
ingar innan vébanda leikanna.
Þá hafa dyrnar smám saman
verið opnaðar betur fyrir ung-
menni, 16-21 árs.
Evrópumót
verða
heimsleikar
ALÞJÓÐLEG MÓT ÍSLANDS-
HESTA HALDIN FRÁ 1970
Gunnar
Bjarnason
HEIMSLEIKAR ÍSLENSKA HESTSINS