Morgunblaðið - 03.08.2013, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2013
M
agnús fæddist á Sel-
fossi en ólst upp í
Haukholtum I við
öll almenn sveita-
störf. Hann var í
Grunnskólanum á Flúðum, stundaði
nám í viðskiptafræði við Fjölbrauta-
skóla Suðurlands á Selfossi, stund-
aði síðar nám við Landbúnaðarhá-
skólann á Hvanneyri og lauk þaðan
búfræðiprófi 2003.
Magnús var snúningsstrákur í
Auðsholti í Hrunamannahreppi í tvö
sumur, fór til sjós er hann var 16 ára
og var þá á netaveiðum á Eldey GK
sumarið 1999, á síld á Faxa RE frá
Reykjavík sumarið 2000 og var á
snurvoð á bátnum Jón á Hofi haust-
ið 2000. Hann var síðan háseti á
Melavík GK sumarið 2001, á línu-
veiðum á Fjölni ÍS 2002 og 2003-
2005.
Magnús fór aftur til sjós í þrjá
mánuði 2007 en lenti í alvarlegu
slysi þá um sumarið er hann datt of-
an í Stóra-Laxárgljúfur og höfuð-
kúpubrotnaði. Hann tók sér þá frí
frá sjómennskunni í þrjú ár en fór
Magnús Helgi Loftsson, sjómaður og bóndi í Haukholtum I - 30 ára
Bóndinn Magnús Helgi hugar að hrossum í Haukholtum. Þar eru nú 35 hross.
Sinnir sjómennsku og
bústörfum til skiptis
Í fjárhúsunum Magnús Helgi og Alina, ásamt alsælum dætrum sínum, Önnu Maríu og Ástbjörtu.
Nanna Teitsdóttir, doktorsnemi í heimspeki og matarbloggari,er þrítug í dag. Hún er nýflutt aftur til landsins eftir fjögurraára dvöl í Bandaríkjunum, en þar var eiginmaður hennar við
nám. „Ég er bara nýflutt heim, kom hingað fyrir fjórum vikum. Ég
held að það sé fyrir fullt og allt í bili, þar til ævintýraþráin hellist yfir
mann aftur,“ segir Nanna. „Ég ætlaði að fara í fjallgöngu en spáin var
ekki alveg nógu hagstæð svo að ég geng á fjall á eftir [í gær], en svo
ætla ég út að borða um kvöldið, eitthvað gott, líklega á Rub 23,“ segir
Nanna um áætlanir afmælisdagsins, en hún er mikill matgæðingur og
heldur úti matarblogginu www.eldadivesturheimi.com.
Hún segir að erfitt hafi verið að halda upp á afmælið í gegnum árin
vegna þess að dagurinn falli oftast nær á verslunarmannahelgi, og því
séu margir á ferðalögum á þessum tíma. Hún segir einnig að gjafalist-
inn sé ekki langur þetta árið, helst vilji hún fá góðan mat að borða.
„Það hefur ekki alltaf tekist þrátt fyrir margar tilraunir. Einu sinni
lenti ég í því að fá skemmdan fisk þegar við ætluðum út að borða eitt-
hvað fínt í tilefni dagsins. Sem betur fer heyrir slíkt til undantekn-
inga,“ segir Nanna. Spurð um eftirminnilega afmælisgjöf segir hún:
„Maðurinn minn gaf mér einu sinni nýja linsu á myndavélina mína og
vinkonur mínar gáfu mér eitt sinn úrklippubók með myndum af okk-
ur saman. Það var mjög skemmtilegt.“ agf@mbl.is
Nanna Teitsdóttir er þrítug í dag
Heimspekinemi Nanna býr nú á Akureyri eftir dvölina vestanhafs
og ætlar að sjá KK í Lystigarðinum á sunnudaginn á Einni með öllu.
„Markmiðið að
borða góðan mat“
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Katrín Ósk Guð-
laugsdóttir og
Davíð Freyr
Jónsson gengu í
hjónaband í
Möðrudalskirkju
20. júlí síðastlið-
inn.
Brúðkaup
Hafnarfjörður Theodór Gauti og Elín Máney fæddust 20. október.
Theodór Gauti vó 2.530 g og var 47 cm langur. Elín Máney vó 2.745 g
og var 47 cm löng. Foreldrar þeirra eru Lovísa Karítas Magnúsdóttir
og Brynjar Örn Steingrímsson.
Nýir borgarar
Einrúm
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi · Sími 535 4300 · axis.is
Opnunartími: mán. - fös. 9:00 - 18:00
Sófi úr hljóðísogsefni sem býr
til hljóðskjól í miðjum skarkala
opinna skrifstofurýma, auk
þess að bæta hljóðvist rýmisins