Morgunblaðið - 03.08.2013, Síða 21

Morgunblaðið - 03.08.2013, Síða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2013 Vökvað Elísabet Bjarnadóttir vökvaði blómin á hringtorginu við Víkurveg í Grafarvogi í hitanum í gær, gróðurinn hefur tekið vel við sér undanfarið í sólríkjunni. Eggert Samvera fjöl- skyldunnar er mikilvæg. Rann- sóknir sýna að hún hefur mikið forvarnagildi. Ungmenni vita það líka og þeim líkar að vera í öruggum faðmi foreldra. Auðvitað er stundum erfitt fyrir þau að við- urkenna það. Foreldrar þurfa að vera tilbúnir að sinna sínu hlutverki. Ungmennin þurfa að geta treyst því að foreldr- arnir standi fast á sínum skoðunum þegar kemur að öryggi og utanumhaldi. Foreldrar vita að forvarnir virka og þær þarf að virkja. Börn og ungmenni vilja eiga fleiri samverustundir til að skapa góðar minningar. Í sumar er áberandi að í sam- félaginu er nóg af áhrifum sem vilja að ungmenni byrji áfengisneyslu. Stemningin sem birtist í mörgum skila- boðum á ýmsum miðlum frá áfengisframleiðendum eru á þá leið að ekki sé hægt að skemmta sér án áfengis. Við vitum að þetta er rangt. Það er óþolandi of- beldi gagnvart börnum og ungmennum hvernig auglýs- ingarnar birtast þeim þrátt fyrir að þær séu bann- aðar. IOGT á Íslandi vill hvetja þá sem bjóða upp á há- tíðir í sumar að hyggja vel að skipulagi er varð- ar öryggi barna og ungmenna, t.d. með því að fram- fylgja áfeng- islögum hvað varðar aðgengi og aldursmörk, lögum um útivistartíma barna og barna- verndarlögum. Að sjálfsögðu óskum öllum landsmönnum góðrar ferðahelgar og skemmtið ykkur vel vímu- laust. Eftir Aðalstein Gunnarsson » Börn og ung- menni vilja góð- ar minningar með fjölskyldunni í sum- ar. Það er hlutverk foreldranna að vernda þau fyrir óæskilegum áhrif- um. Aðalsteinn Gunnarsson Höfundur er framkvæmda- stjóri IOGT á Íslandi. Góðar minning- ar æskunnar Margt var fróð- legt og gagnlegt í skýrslu Rann- sóknarnefndar Al- þingis á banka- hruninu frá 2010. Meginniðurstaða nefndarinnar er, að Jón Ásgeir Jó- hannesson í Baugi hafi verið helsti innlendi áhrifa- valdurinn um hrunið. Í 7. bindi, 21. kafla, bls. 189, seg- ir: „Af öllum þeim fyrir- tækjahópum sem höfðu veru- leg útlán í íslenska bankakerfinu stendur upp úr stór hópur fyrirtækja sem tengdist Baugi Group. Í öll- um þremur bönkunum sem og í Straumi-Burðarási skap- aði þessi hópur of stóra áhættu.“ Síðan segir: „Rannsókn- arnefndin telur að hér hafi verið búin að myndast veru- leg kerfisáhætta, þar sem fall eins fyrirtækis gat haft áhrif ekki aðeins á einn kerfislega mikilvægan banka heldur alla þrjá kerfislega mik- ilvægu bankana. Fjár- málastöðugleika var því verulega ógnað af til að mynda Baugi sem var, eins og fram kemur í skýrslunni, kominn í veru- leg greiðslu- vandræði þeg- ar líða tók á árið 2008. Seðlabanka Ís- lands er falið að tryggja fjár- málastöð- ugleika í land- inu, en eins og fram kemur í skýrslunni hafði Seðla- bankinn heldur ekki kallað eftir nauðsyn- legum gögnum til að meta þessa kerfisáhættu. Rann- sóknarnefndin hafnar því hins vegar að honum hafi ekki verið heimilt að fá gögn, eins og fram kemur í kafla 19.7. Fjármálaeftirlitið hafði hins vegar gögnin til að sjá þessa kerfisáhættu.“ Þótt aðfinnslur Rannsókn- arnefndarinnar um ætlaða vanrækslu seðlabankastjór- anna þriggja séu ekki stór- vægilegar, breytir það því ekki, að nefndin sakaði þá um vanrækslu. Þeir hefðu að hennar sögn átt að kalla eftir gögnum um Baug og fyrir- tæki nátengd því. Í at- hugasemdum sínum, sem ekki fengust birtar í hinum prentaða hluta skýrslunnar, vísuðu seðlabankastjórarnir þrír þessum aðfinnslum al- farið á bug og sögðust ekki hafa haft lagaheimild til að útvega sér slík gögn ólíkt Fjármálaeftirlitinu. Nú hefur Alþingi sjálft skorið úr þessum ágreiningi. Það samþykkti sumarið 2013 frumvarp til laga um breyt- ingu á lögum nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands. Í at- hugasemdum er efni þess stuttlega lýst: „Í frumvarp- inu er lagt til að skerpt verði á heimildum Seðlabanka Ís- lands til að setja lánastofn- unum reglur um laust fé og lágmark stöðugrar fjármögn- unar hvort sem er í íslensk- um krónum eða erlendum gjaldmiðlum og skilgreina betur hvaða eignir og skuldir falli undir gjaldeyrisjöfnuð, sundurliðun þeirra og vægi. Til að reglur Seðlabankans nái markmiði sínu og bankinn geti rækt það hlutverk sitt að stuðla að fjármálastöðugleika og þar með virku og öruggu fjármálakerfi er jafnframt lagt til að skerpt verði á heimildum Seðlabankans til þess að afla upplýsinga og að tilgreint ákvæði laganna um beitingu dagsekta verði sett fram með skýrari hætti. Þá er lagt til að skýrt verði tekið fram í lögum um Seðlabanka Íslands að bankinn skuli stuðla að fjármálastöð- ugleika.“ Frumvarp þetta var flutt að frumkvæði Seðlabanka Ís- lands. Sigríður Benedikts- dóttir, sem hefur umsjón með fjármálastöðugleika í bank- anum, taldi að athuguðu máli nauðsynlegt að veita honum auknar heimildir til þess að afla upplýsinga. En hvers vegna þurfti að samþykkja sérstakt frumvarp um það? Vegna þess að Seðlabankinn hafði slíkar heimildir ekki áð- ur. Alþingi hefur nú í raun viðurkennt, að seðla- bankastjórarnir þrír höfðu rétt fyrir sér í athugasemd- um við aðfinnslur Rannsókn- arnefndarinnar. Hefði Rann- sóknarnefndin haft rétt fyrir sér, þá hefði ekki þurft að samþykkja þetta frumvarp. Eftir Hannes Hólmstein Giss- urarson »Með nýjum lög- um fær Seðla- bankinn heimild til að afla upplýsinga frá fjármálafyr- irtækjum. 2010 taldi Rannsókn- arnefnd Alþingi hann hafa slíka heimild. Hannes Hólmsteinn Gissurarson Höfundur er prófessor og sat í bankaráði Seðlabank- ans 2001-2009. Alþingi ómerkir eina niðurstöðu Rannsóknarnefndar Alþingis

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.