Morgunblaðið - 03.08.2013, Page 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2013
Meðal fjölmargra
nemenda Latínuskól-
ans í Reykjavík á ár-
unum næstu fyrir alda-
mótin 1900 var ungur
maður að nafni Valdi-
mar Friðfinnsson, ætt-
aður norðan úr Skaga-
firði. Fæddur var hann
1876, yngstur fjögurra
barna hjónanna Frið-
finns Bjarnasonar og
Hólmfríðar Magnúsdóttur, búenda í
Hvammi í Hjaltadal. Systkini hans
voru Hólmfríður, síðar húsfreyja á
Siglufirði, Gamalíel, faðir hins kunna
athafnamanns Magnúsar Gamalíels-
sonar í Ólafsfirði, og Herdís, hús-
freyja á Húsavík, síðar meir tengda-
móðir skáldsins kunna á Húsavík,
Egils Jónassonar.
Árið 1901, eða litlu síðar, hurfu
þeir bræður Valdimar og Gamalíel af
landi brott og var förinni heitið til
Vesturheims. Af sérstökum ástæðum
hef ég að undanförnu reynt að kom-
ast að því hvað um þá bræður varð,
en dvöl þeirra fyrir vestan haf hefur
verið þoku hulin að mestu og hvað
Gamalíel varðar er undirrituðum
ekki kunnugt hvar eða hvenær hann
lauk sinni tilvist hér í heimi, þrátt
fyrir nokkra eftirgrennslan.
Hinn 6. júlí síðastliðinn ritaði dr.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
grein í Morgunblaðið er hann nefndi
Íslenskur huldumaður á Galapagos-
eyjum. Nefndi hann til sögunnar ís-
lenskan einsetumann er þar bjó um
1930 til 1945. Sá kallaði sig, eftir því
sem Hannes Hólmsteinn ritar, Wal-
ter Finsen. Þótti mér við lestur
greinarinnar sem þar væri kominn
Valdimar Friðfinnsson, enda augljós
líkindi með hinu framandi nafni og
því íslenska, sem erlendir menn
munu eiga í mesta basli með að taka
sér í munn.
Hvernig það gerist að Valdimar
Friðfinnsson, alias Walter Finsen,
skýtur upp kollinum á Galapagos-
eyjum, má ef til vill ráða af því sem
hér fer á eftir.
Ævintýramennska
Af þeim rýru upplýsingum sem
finna má um Valdimar, er þó ljóst að
hann var hinn mesti ævintýramaður.
Hinn 14. okt. 1914, birtir blaðið Ísa-
fold litla frétt undir fyrirsögninni
Landar í Kaliforníu og Mexíkó og
hefur fréttina eftir Lögbergi í Winni-
peg sem hinn 27. ágúst 1914 segir
svo:
„Bjarni Johnson fékk nýlega bréf
frá Jóhannesi Jóhannssyni, sem
vestur að hafi flutti fyrir mörgum ár-
um. Hann dvelur nú í bænum Fel-
lows í California ásamt Hermanni
Thorsteinsson.
Hann sagði frá því í bréfinu, að
Valdemar Friðfinnsson, skólapiltur,
sem flutti vestur um haf fyrir mörg-
um árum og enginn vissi lengi hvar
var niður kominn, sé nú í Tampico í
Mexico og láti vel af líðan sinni. Hann
er að reyna að ná yfirráðum yfir olíu-
löndum þar syðra og hefir góða von
um að það takist. Hann lætur ágæt-
lega af Mexicobúum og loftslaginu
þar. Hver veit nema hann eigi eftir
að verða íslenzkur Rockefeller.“
Bjarni mun vera sonur Þorláks
Johnson kaupmanns. Hann er í Ísl.
æviskrám, sagður hafa dvalist eitt ár
vestanhafs, að því er virðist einhvern
tíma á bilinu 1910-1914.
Ljóst er að bréfið hefur lengi legið
óbirt í skúffu blaðsins, eða hjá Bjarna
og enginn munað eftir því að löngu
áður, eða hinn 28. des. 1911, birti
Lögberg athyglisverða grein er nefn-
ist Íslendingar til Andesfjalla. Grein-
in sú er að mestu bréf frá fararstjór-
anum, J.J. Dalland cand.phil., sem
var enginn annar en áðurnefndur Jó-
hannes Jóhannsson, og hafði tekið
sér eftirnafnið Dalland. Trúlega var
þetta bréf einnig sent til Bjarna
Johnson, sem nefndur er hér að ofan.
Greinin í Lögbergi
Íslendingar eru elskir að norðrinu
og kuldanum. Það er
næsta sjaldgæft, að
þeir leggi leiðir sínar
suður í heitu löndin. Þó
eru þar frá undantekn-
ingar. Má það marka af
bréfi því sem hér fer á
eftir. Bréf þetta er frá
herra J.J. Dalland
cand. phil. Hann fluttist
hingað vestur um haf
fyrir eitthvað 8 árum.
Hefir hann lengst af
dvalið vestur á Kyrra-
hafsströnd. Hann hefir
fengist við trjáviðarhögg o.fl. í B.
Col... í Yukon, Alaska, Washington
og Californiu við námagröft, „cont-
ract“ vinnu og ýmislegt fleira. Hefir
hann oft haft mikið fé handa á milli
en orðið uppgangssamt.
Nú er hann í þann veginn að leggja
af stað suður í Andesfjöll, með fé-
lögum sínum tveimur, öðrum íslenzk-
um, Valdimar Friðfinnssyni, norð-
lenzkum manni. Og hinum norskum.
Er þetta hin mesta svaðilför og eigi
heiglum hent, og alveg eins dæmi að
Íslendingar hafi ráðist í jafn áhættu-
mikla ævintýraferð. Mun slíkt fárra
Íslendinga færi annara en Mr. Dall-
and og hans líka, því hann er afar úr-
ræðisgóður, frábærlega hraustur og
mikill fyrir sér, reglulegt íslenzkt
karlmenni. Hann kveður svo að orði í
bréfi sínu til Lögbergs:
Frá mér er það að segja, að eg hefi
ekki enn þá náð í „það“, þ.e: afl þeirra
hluta, sem gera skal, en samt í
miðjum bardaganum ósærður og ólú-
inn og sífelt sannfærður um stóran,
góðan sigur að lokum; en samt þætti
mér vænt um, ef það færi að sjást til
hans. Ég hefi ávalt haft hugfast, að
ná í stórfé – ekki nokkrar þúsundir
til þess að hafa nóg að éta og þurfa
ekki að starfa – ónei – stórfé til þess
að geta starfað svo um munaði. „Allt
eða ekkert“ , hefir ávalt verið mitt
heróp, þar til nú í seinni tíð stundum,
er ég lít til baka, að mér hefir flogið í
hug, að betra hefði kannske verið að
vera ánægður með minna og hafa þá
það.
Við erum þrír í félagi – Valdi, eins
og þú veizt – og svo er með okkur
„mining engineer“ norskur, Olav
Strand, ágætismaður, norskur að lit,
írskur í skapi og íslenzkur í dugnaði
og ráðvendni. Við höfum bezta „pro-
specting outfit“, sem peningar geta
keypt. Alt, sem margra ára reynsla
okkar sagði nauðsynlegt og mjög
margt, sem telja má „ luxurí „ á þess-
háttar ferðalagi. „Aha“ segir þú nú
líklega við sjálfan þig, nú ætla þeir
enn á ný að asnast til Alaska. Onei –
við erum orðnir langþreyttir á
Alaska, á Yukon, á B. C. og jafnvel á
Estados Unidos og erum nú orðnir
sannfærðir um, að hamingjan bíði
okkar suður í hitabeltinu.
Anyhow, we want to give that part
of the world a chance. Við förum þess
vegna til Californíu í næsta mánuði
með útbúnað og nægilega peninga, til
þess að leita að gulli, olíu og dýr-
mætum steinum í Andesfjöllunum í
tvö ár og trúi eg illa, að við finnum
ekki neitt á því tímabili, ef sjúkdómar
hitabeltisins eða viltir Indíánar sem
sagðir eru þar grimmir og illir við-
ureignar, verða okkur ekki að bana.
Þann 23. Jan. stígum við á skip í
Frisco, komum til Panama 6. Febr-
úar, verðum þar í nokkra daga; það-
an til Buenaventura, þá á járnbraut
til Cali – drottningar Andesfjallanna.
Þar kaupum við 6-8 hesta eða múl-
dýr, and good bye to civilization. Við
höfum tvær myndavélar með okkur
og tökum óspart myndir, og skal eg
senda þér við og við myndir af okkar
ferðalagi. Eg er búinn að koma mér
niður í spönsku, svo eg get vel fleytt
mér, en hún er bráðnauðsynleg í
löndum Suður-Ameríku. Eg tók próf
í Osteopathiu – mig minnir að eg hafi
skrifað þér það; einnig tók eg próf í
dýralækningum, og lækna nú jafnt
menn og skepnur, þegar eg hefi ekk-
ert annað fyrir stafni.“
Eflaust drífur margt sögulegt á
daga þeirra félaga á þessu ferðalagi
þeirra suður í hitabelti. Teljum vér
víst, að marga fýsi að frétta hversu
för þeirra tekst.
Lögberg óskar þeim farsællegrar
ferðar og heillar afturkomu og til að
geta flutt lesendum sínum frekari
fréttir áður langt um líður af þessum
hugdjörfu Íslendingum, sem fyrstir
vorrar þjóðar hafa borið þrek til að
leita gulls og gæfu suður í torfærur
og ferlegar óbygðir Andesfjallanna.
Frekari fréttir
Næst fréttist af þeim félögum, er
bréf frá Sigurði nokkrum Magn-
ússyni í San Pedro í Kaliforníu birtist
í Lögbergi 28. mars 1912.
„Eg fékk nýlega bréf frá þeim Co-
lombia förunum J.J. Dalland og fé-
lögum hans. Er það skrifað frá Pa-
nama 20. Febr. og eru þeir þá
nýlentir þar. En frá San Francisco
lögðu þeir um mánaðamótin Janúar
og Febrúar. Láta þeir vel yfir sjóleið-
inni og lentu í glaumi miklum og
gleði í Panama, því þar stóð þá yfir
kjötkveðjuhátíð (carnival). Er eg nú
að búast við bréfi bráðlega, því eg tel
víst, að þeir séu nú komnir til Colom-
biu, en vænti fastlega að þeir sendi
mér línu áður en þeir leggja upp i
Andesfjöllin. Eg skal láta þig vita,
hvað þeim líður, við og við, ef eg veit
eitthvað um þá, og ef Dalland ekki
skrifar þér, sem ekki væri ótrúlegt.
Þó efast eg um það, því helzt höfðu
þeir á orði að skrifa lítið fyrst um
sinn, og máske þeir skrifi ekki einu
sinni mér.“
Og enn skrifar Sigurður Magn-
ússon í Lögberg, 13. júní 1912 og úr
bréfi hans er þetta að lesa:
„Aðallega skrifa eg þér nú til þess
að segja þér af Dalland og þeim fé-
lögum. Þegar þeir komu til Panama
breyttu þeir hinni upphaflegu fyr-
irætlan sinni, hættu við að fara til Co-
lombia en héldu lengra suður, alla
leið til Bolivia. Þaðan skrifaði Dall-
and mér fyrir æði löngu frá höf-
uðborginni La Paz, en síðar skrifaði
Norðmaðurinn að þeir Dalland og
Valdemar lægju veikir á spítala af
hitasótt illkynjaðri, en þó í afturbata.
Voru þeir þá á leiðinni upp til fjalla.
Það var auðvitað við því að búast
að þeir sýktust, því hjá því kemst
tæplega neinn, er kemur þar suður
og upp í landið í fyrsta sinn. En
Norðmanninn bíta engin járn, enda
er hann einn sá hraustasti og harð-
gerðasti náungi, sem ég nokkru sinni
hefi kynst, og auk bezti drengur. Eg
er nú að búast við bréfi og sendi þér
þá línu.“
Valdimar fundinn?
Engar fleiri fregnir er að finna af
þeim félögum í vestur-íslensku blöð-
unum og því ekki vitað hvernig þeim
varð ágengt í leitinni að „gulli, olíu og
dýrmætum steinum í Andesfjöll-
unum“. Þó segir mér hugur að ekki
hafi þeir fundið „það“, sem Jóhannes
J. Dalland taldi í fyrsta bréfi sínu,
vera „afl þeirra hluta, sem gera
skal“.
Jóhannes sneri aftur til Kaliforníu,
lauk læknaprófum 1914 til 1915 og
gerðist sérfræðingur í augnlækn-
ingum. Hann var læknir í bandaríska
hernum í heimsstyrjöldinni fyrri og
hlaut viðurkenningar fyrir þátttöku í
orrustum í Frakklandi og Belgíu.
Af Valdimar Friðfinnssyni fréttist
hins vegar ekkert meira, en trúlega
hefir grein Hannesar Hólmsteins um
huldumanninn á Galapagos-eyjum
orðið til að varpa ljósi á afdrif æv-
intýramannsins úr Hjaltadal.
Á mynd sem birtist í Lesbók
Morgunblaðsins 24. des. 1941 og tek-
in var af nemendum Latínuskólans
vorið 1895 má sjá þá Valdimar Frið-
finnsson, Jóhannes Jóhannesson og
Bjarna Johnson.
Eftir Hálfdan
Helgason
»Hvernig það gerist
að Valdimar Frið-
finnsson, alias Walter
Finsen, skýtur upp koll-
inum á Galapagos-
eyjum?
Hálfdan Helgason
Höfundur er tæknifræðingur, áhuga-
samur um ættfræði.
halfdan@halfdan.is
Ísland
Bandaríkin
Tampico
San Fransisco
Panama
La Paz
Síle
Galapagos
Ferð Valdimars Friðfinnssonar út í heim
Síðast er vitað með vissu um Valdimar í La Paz í Bólivíu
Yfirgefinn námubær í fjöllum Bólivíu. Hér gætu þeir Valdimar og félagar
hafa átt sinn þátt í að mola niður hlíðarnar.
Úr Hjaltadal til... Galapagos?
Ljósmynd/Yvon from Ottawayvonmaurice@rogers.com