Morgunblaðið - 03.08.2013, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.08.2013, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2013 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta í 90 ár Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ef þú ætlar að fara í ferðalag á næst- unni er þér ráðlagt að fara á stað sem þú hefur komið á áður. Auðveldasta leiðin til að þagga niður í fólki er að samsinna því. 20. apríl - 20. maí  Naut Best er að skipuleggja hlutina um morguninn. En þú þarft að vera tilbúinn til að hlusta á vin þinn, þegar hann þarfnast þín. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Annað hvort er vinnan að gera útaf við þig eða þú ert að leita að nýrri vinnu á fullu. Samskipti við stórar stofnanir og stjórnvöld munu ganga vel og bæta hag þinn. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þér finnst þú ekki nógu opin/n þessa dagana. Njóttu þess að leika vð börnin. Ekk- ert er eins fráhrindandi og talsmaður sem veit ekki hvað hann er að tala um. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Farðu varlega í að gagnrýna vinnufélaga þína, því þeir vinna undir öðrum formerkjum en þú. Tæmdu vasana áður en þú stingur í þvottavélina. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ef þú reiknar alltaf með því versta má telja líklegt að fyrr eða síðar hendi það þig. Boð og hádegisverðir ganga svo vel að þú hefur skrifað undir samning áður en reikn- ingunn kemur. 23. sept. - 22. okt.  Vog Einhverjir hnökrar koma upp á vinnu- stað og þú þarft að taka á honum stóra þín- um til þess að samstarfið endi ekki með ósköpum. En að lokum mun allt fara vel. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Gefðu þér tíma til þess að hugsa málið vandlega og leysa það. Með réttum viðbrögðum getið þið komist hjá erf- iðleikum í tæka tíð. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Bogmaðurinn hefur hugsanlega þurft að beita aðhaldi í fjármálum að und- anförnu vegna breyttra aðstæðna. En allt er best í hófi! 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú þarft að hafa augu á hverjum fingri í fjármálum því það er aldrei að vita hvenær gefur á bátinn. Hann/hún er óhress með ótilgreinda skiptingu og er til í að standa á rétti sínum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er töluvert álag á þér núna bæði í einkalífi og starfi. Hæfileikar þínir til sköpunar eru miklir og þú skalt nota þá. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú munt vekja aðdáun annarra sök- um skipulagshæfileika þinna og hversu vel þér tekst að nýta tímann. Gættu þess bara að ganga ekki fram af þér. Álaugardag fyrir hálfum mánuðivar Dahls-húsið nýuppgert opnað á Eskifirði með sýningu á verkum myndlistarmannanna Árna Páls Jóhannssonar og Kristjáns Guðmundssonar. Húsið hefur alltaf verið nefnt eftir norskum manni Jó- hanni Dahl, sem flutti það inn og reisti 1880. Karlinn á Laugaveginum sagði mér, að þetta hefði verið ógleymanleg stund í steikjandi hita – en lagði síðan kollhúfur yfir einu verka Kristjáns – púnktar í ljóðum Halldórs Laxness – „þeir voru þrír“, sagði hann og bætti við: Í veröld er margt sem mig véldi, hvort ég vissi, eða héldi eða teldi: Er Laxness prik? eða pensilbragð, strik? eða púnktur í æðra veldi? Í Aarbog 1929-30, sem út var gefið af Dansk-Islandsk Samfund, er bráð- skemmtileg grein eftir Sigfús Blöndal orðabókarhöfund og skáld, „Islandske Epigrammer“ sem hefur að geyma tólf tylftir af lausavísum, sem Sigfús valdi og sneri á dönsku. Fyrsta vísan veit að þeirri gömlu þjóðtrú að það sé ógæfumerki að fást við skáldskap. Sigurður Nordal fjallar um „átrúnað Egils Skalla- grímssonar“ í Skírnisgrein árið 1924 og segir þar, að þjóðin hafi kosið eins og Egill. „Skáldskapur og fræðimennska hafa orðið höfuð- lausn íslenskrar alþýðu, þegar hún komst í hann krappastan. Þegar hagyrðingurinn kveður fyrir munni sér: Að yrkja kvæði ólán bjó eftir fornri sögu. en – gaman er að geta þó gert ferskeytta bögu, er hann, án þess að vita það, að fara með veikt bergmál af orðum Egils í Sonatorreki: Þó hefr Mímis vinr mér of fengnar bölva bætur, er et betra telk Hann er að kjósa um dýrkun Þórs og dýrkun Óðins: hversdagslega hagsæld og farsæld, nytsemi og ein- lyndi borgarans – og marglyndi listamannsins, hinar bröttu og tví- sýnu leiðir til sjálfstæðs þroska. Næst tekur Sigfús þá stöku Andr- ésar Björnssonar sem ég hygg að flestir Íslendingar hafi kunnað í mínu ungdæmi og gera kannski enn: Ferskeytlan er Frónbúans fyrsta barnaglingur en verður seinna í höndum hans hvöss sem byssustingur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hagyrðingurinn og Egill Skallagrímsson Í klípu HÚN VISSI ALDREI HVENÆR HANN VAR KALDHÆÐINN. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „JÓNA, HVERNIG SKRIFA ÉG „GEGGLA“ ?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að deila draumnum hennar. TEK ÉG HÖND HENNAR? ERTU AÐ GRÍNAST Í MÉR?! ÉG ER BÚINN AÐ BÍÐA EFTIR ÞESSUM DEGI ALLT MITT LÍF!! BRÁÐAMÓTTAKA ÉG FÓR AÐ VERSLA, LÍSA. OG ÉG KEYPTI HANDA ÞÉR HATT! EKKI HORFA Á MIG … ÞESSI TEGUND ER AÐ VERÐA ÚTDAUÐ! ÉG LÉT ÞIG EKKI DEITA HANN, KONA. FYRIR TÍU ÁRUM BAÐ ÉG ÞIG UM AÐ BREYTA HEGÐUNARVANDAMÁLUM MANNSINS MÍNS EINS OG ÁFLOGUM, DRYKKJU, FJÁR- HÆTTUSPILI OG NÆTURSKEMMTUNUM. ÉG ÆTLA AÐ BIÐJA ÞIG UM AÐ FLÝTA ÞEIRRI BEÐNI MINNI ÁSAMT ÖÐRU … … ÞIGGUR ÞÚ MÚTUR AF EINHVERRI TEGUND? Það gleður Víkverja þegar hannnær að sameina nýtni, notagildi og smekklegheit í kaupum á fata- leppum og ekki skemmir fyrir ef fáum krónum er eytt í kaupunum á sama tíma. Slíkt er ekki sjálfgefið þar sem stundarhrifning og tísku- sveiflur stjórna oftar en ekki fata- kaupum Víkverja. x x x Það er nefnilega frekar vinsæltnúna að hugsa vel um pen- ingana og kaupa frekar færri flíkur og betri. Þarna óma orð ömmu gömlu, saumakonunnar nýtnu sem sagði ógjarnan það skal vanda sem lengi skal standa. x x x Yfirlýsingagleði á það til að grípaVíkverja. Hann lýsti því yfir fyrir nokkru að hann skyldi láta sjá sig í flík sem keypt var honum til háðungar. Vinsæll partíleikur var stundaður hjá Víkverja og vinum hans árið 2007; að kaupa ljót föt handa hver öðrum og fyrirfram ákveðinni upphæð yrði eytt til kaupanna. Auðvitað skal tekið fram að þetta fór fram í Danaveldi og gengi krónunnar hagstæðara. Fötin voru keypt hjá stórum fatarisa sem hefur teygt anga sína um allan heim en þó ekki hingað á klakann. Þetta var ungt og lék sér. x x x Nú er Víkverji mættur í jakkan-um fínum og er að sjálfsögðu sallafínn. Að sjálfsögðu skiptir sam- setning fataleppanna miklu máli og brúnir, skrautlegir tónar pössuðu harla vel við hann, líkt og var um árið. x x x Lærdómurinn sem Víkverji dreg-ur af þessu er sá; þrátt fyrir leikgleði og eyðslusemi sem getur gripið hvern sem er þá er hægt að nýta hlutina betur þegar timb- urmennirnir renna af manni. Að sjálfsögðu á þetta einnig við um tískuna sem fer alltaf í hring og kannski er aftur komið árið 2007 í tískunni? Ætli sérfróðir tískuspek- ingar væru ekki betur til þess falln- ir að svara þeim spurningum. vík- verji@mbl.is Víkverji Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi ei- líft líf. (Jóhannesarguðspjall 3:16)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.