Morgunblaðið - 07.09.2013, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 7. S E P T E M B E R 2 0 1 3
208. tölublað 101. árgangur
KENNIR ÍSLEND-
INGUM AÐ RÆKTA
BÝFLUGUR
ANDLAUS LISTA-
MAÐUR HVÍLDI
SIG Í LÖGFRÆÐI
BJARNABÚÐ ER
EIN ELSTA KJÖR-
BÚÐ LANDSINS
SUNNUDAGUR BOLUNGARVÍK 22EYVIND PEDERSEN 10
ÁRA
STOFNAÐ
1913
Gangi áætlanir eft-
ir mun framleiðsla á
laktósafríum mjólk-
urvörum hefjast í
Bolungarvík í næstu
viku. Þar hefur
Mjólkurvinnslan
Arna komið sér fyrir
í húsnæði þar sem áður var rekin
rækjuverksmiðja. »22
Nettmjólk frá Bol-
ungarvík á markað Á barnsaldri
» Lögregla stöðvaði nýverið
kannabissamkvæmi í bílskúr
heima hjá 13 ára unglingi.
Hann hafði skroppið heim í frí-
mínútum með félögunum.
» Dæmi eru um að börn niður
í 14 ára sprauti sig með hörð-
um fíkniefnum hér á landi.
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
Þeir sem til þekkja eru sammála
um að undirheimar Íslands séu að
taka hröðum breytingum og líkist
sífellt meira því sem tíðkast á meg-
inlandi Evrópu. Angi af því sé ekki
bara aukin harka heldur líka
vopnaburður og kúgun af ýmsu
tagi. Dæmi eru um að fé sé kúgað
út úr fyrirtækjum eða einstakling-
um gegn vernd. Þá þykir ljóst að
helstu gerendur í undirheimum Ís-
lands séu farnir að hugsa stærra
en áður, það er út fyrir landstein-
ana. Þetta kemur fram í Sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins.
Eins og botnlaus hít
Það er líka áhyggjuefni að ís-
lenski fíkniefnamarkaðurinn þykir
fljótur að jafna sig eftir aðgerðir
lögreglu. Sé einn hópur fíkniefna-
sölumanna laskaður eða jafnvel
upprættur tekur bara annar við.
Einn viðmælenda blaðsins orðar
það svo að markaðurinn sé „eins og
botnlaus hít“.
Karl Steinar Valsson, yfirmaður
fíkniefnadeildar lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu, segir þetta
þjóðhagslega spurningu. „Er ekki
ávinningur í því fyrir íslensku þjóð-
ina að fara í hart átak gegn skipu-
lagðri brotastarfsemi og yrði því fé
ekki vel varið? Viljum við hafa
þessa starfsemi hangandi yfir
okkur?“
Kúgun og vopnaburður
Skipulagðri glæpastarfsemi hefur vaxið fiskur um hrygg á Íslandi Ekki bara
aukin harka heldur líka vopnaburður Glæpamenn hugsa út fyrir landsteinana
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vann það
ótrúlega afrek í gærkvöld að vinna upp þriggja
marka forskot Svisslendinga í Bern og ná jafn-
tefli á ævintýralegan hátt, 4:4. Jóhann Berg Guð-
mundsson skoraði þrennu í leiknum og hér
fagna Aron Einar Gunnarsson fyrirliði og Gylfi
Þór Sigurðsson einu markanna með honum.
Ísland er nú í ágætri stöðu í baráttunni um að
komast áfram úr riðlinum. » Íþróttir
AFP
Ævin-
týralegt
jafntefli
„Við náum aldrei viðvarandi hag-
vexti á Íslandi þegar fjárfestingin
er svona veik. Það er algert lykil-
atriði að örva hana,“ segir Þor-
steinn Víglundsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins.
Hagstofa Íslands birti tölur í gær
þar sem fram kemur að fjárfesting
dróst saman um 13% á fyrstu sex
mánuðum ársins. Samdráttinn mið-
að við sama tíma í fyrra megi þó að
miklu leyti rekja til mikils innflutn-
ings á skipum og flugvélum sem þá
átti sér stað. Ef horft er framhjá
fjárfestingu í skipum og flugvélum,
jókst fjárfesting hér á landi um
4,1%. »6
Lykilatriði að
örva fjárfestingu
Heimavinnsla gæti lagst af hér á
landi ef eftirliti með henni verður
ekki breytt. Er það mat stjórnar
samtakanna Beint frá býli. Sam-
tökin gagnrýna framkomu Mat-
vælastofnunar gagnvart heima-
vinnsluaðilum í mjólkurúrvinnslu en
stuðst er við sömu eftirlitslöggjöf
hvort sem verið er að skoða stórar
afurðastöðvar eins og Mjólkursam-
söluna eða lítinn heimavinnsluaðila.
Guðmundur Jón Guðmundsson,
bóndi á Holtseli og formaður sam-
takanna Beint frá býli, segir þetta
aðför að litlum fyrirtækjum í land-
inu. Kröfurnar til þeirra séu miklar
og ekki víst að þau beri þann kostn-
að sem þær geta haft í för með sér.
„Verði þetta raunveruleikinn sem
bændur þurfa að búa við sé ég ekki
fram á annað en að menn annað-
hvort hætti eða fari með starfsemi
neðanjarðar.“ »4
Kröfur og kostnaður
Strangt eftirlit
með heimavinnsluStefán G. Sveinsson
sgs@mbl.is
Það vinnur gegn uppbyggingu
félagslegra íbúða í Kópavogi að ríkið
skuli hafa lögfest að skuldir vegna
íbúðakaupa séu taldar með þegar
hlutfall skulda af tekjum bæjarins er
gert upp. Sveitarfélagið geti enda
selt íbúðir hvenær sem er og fengið
raunvirðið til baka. Á sama tíma
aukist þörf fyrir félagslega aðstoð í
Kópavogi, að sögn Ármanns Kr.
Ólafssonar bæjarstjóra í Kópavogi.
Hann hefur lagt til við Illuga
Gunnarsson, mennta- og menningar-
málaráðherra, að Náttúruminjasafn
Íslands verði í Kópavogi og samein-
ist Náttúrufræðistofu Kópavogs
undir sama þaki.
„Náttúrufræðistofa Kópavogs,
sem er eina alhliða náttúrugripa-
safnið á höfuðborgarsvæðinu, er í
nýju og sérhönnuðu húsnæði og yrði
mikil hagræðing af því fyrir alla að
flytja Náttúruminjasafn Íslands
þangað,“ segir Ármann.
Hann bendir á að hægt yrði að
rýma fyrir safninu með því að flytja
Bókasafn Kópavogs nær Smáralind.
Það þjóni íbúunum betur en núver-
andi staðsetning. »20-21
Vill náttúrusafn í Kópavog
Uppgjörskrafa hamlar smíði félagslegra íbúða í Kópavogi
Morgunblaðið/Kristinn
Bæjarstjóri Ármann Kr. Ólafsson
vill náttúruminjasafn í Kópavog.
Gæsla á landamærum Eistlands
og Rússlands við ána Narva í Eist-
landi er ófullnægjandi og brýnt er
að bæta þar úr. Landamærin eru
hluti af ytri landamærum Schen-
gen-svæðisins.
Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfir-
maður lögfræðisviðs lögreglu-
stjórans á Suðurnesjum, sótti í vor
ráðstefnu um mansal í Eistlandi og
skoðaði m.a. landamærastöð við
Narva. Hún segir að eistnesk
stjórnvöld séu meðvituð um vand-
ann, en það hafi komið henni á
óvart hversu lítil fyrirstaða sé á
landamærunum.
Slæleg gæsla á landamærunum
þýði m.a. að auðveldara sé fyrir
austur-evrópsk glæpasamtök að at-
hafna sig þar, m.a. til að stunda
mansal. »14
Lítil fyrirstaða
á Schengen-
landamærum