Morgunblaðið - 07.09.2013, Side 2

Morgunblaðið - 07.09.2013, Side 2
Atli Vigfússon Laxamýri Kvígur og fullorðnar kýr kunna vel að meta útivist og á Norðurlandi hefur viðrað vel fyrir nautgripi í sumar. Margir bændur láta fyrsta- kálfskvígur bera á haustin þegar heyskap lýkur og ef haustið er gott bera þær sumar úti. Kýr eru hópdýr, en áður en þær taka sóttina færa þær sig út úr hópn- um og finna sér stað til þess að bera kálfinum. Það gerði kvígan Flóra á Laxamýri í Suður-Þingeyjarsýslu sem fór út í móa til að bera sínum fyrsta kálfi. Flóra er grá á litinn og kálfurinn sem hún bar er sægrár. Burðurinn gekk vel og þegar að var komið var kálfurinn kominn á spena og hinn sprækasti. En með burðinum lauk útivistinni í bili og var Flóra rekin heim í fjós til mjalta. Kálfurinn fylgdi auðvitað með en þegar um litla fætur er að ræða get- ur leiðin verið löng og því var brugð- ið á það ráð að koma honum heim á bæ í hjólbörum. Eflaust hefur það verið hin mesta skemmtiferð. Ljósmynd/Atli Vigfússon Í rólegheitum Kvígan Flóra á Laxamýri í Suður-Þingeyjarsýslu fór út í móa til að bera sínum fyrsta kálfi. Burðurinn gekk vel og með honum er Flóra orðin mjólkandi kýr. Flóra er grá á litinn og kálfurinn sem hún bar er sægrár. Í börum Þegar um litla fætur er að ræða getur verið langt heim í fjós og þá er betra að hafa „barnavagn“ sér við hlið til þess að létta ferðalagið. Haust- burður í haganum Flóra bar sínum fyrsta kálfi úti í móa við Laxamýri 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Flókin kolvetni 68,6 g kolvetni í 100 g Sjá vöðvum líkamans og heilafrumum fyrir orku. ORKA SEM ENDIST Weetabix er frábær leið til að byrja daginn. Veldu næringar- ríkan morgunverð sem heldur þér gangandi fram að hádegi. • • PIPA R\TBW A • SÍA • 120578 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Launavísitala fjármálageirans var 7,7% hærri í lok 2. ársfjórðungs en á sama tíma í fyrra, að því er fram kem- ur í nýjum tölum Hagstofunnar. Til samanburðar hækkaði launavísitalan í samgöngum um 6,4% á sama tíma, um 6% í mannvirkjagerð, um 5,9% hjá þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólki og um 5,4% í iðnaði. Sé þróunin milli 1. og 2. ársfjórð- ungs skoðuð sést að vísitalan hækkaði mest í samgöngum eða um 2,4% en um 2% í fjármálageiranum. Laun hjá þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólki hækkuðu um 1,7% á þessum tíma, um 1,4% í mannvirkjagerð og um 1,2% í iðnaði. Samgöngur hafa hækkað mest Sé þróunin frá 1. ársfjórðungi 2009 skoðuð kemur í ljós að launavísitalan hefur hækkað mest í samgöngum eða um 38,6%, um 38,5% í fjármálageir- anum, um 30,1% hjá þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólki, um 29,9% í iðnaði og um 20,2% í mannvirkjagerð. Spurður út í þessa þróun segir Þor- steinn Víglundsson, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins, að launavísitalan hafi hækkað að jafnaði um 34,7% á almennum markaði frá 1. ársfjórðungi 2008 til 2. ársfjórðungs í ár en 35,8% í fjármálageiranum. Það geri að meðaltali um 6% hækkun á ári sem sé langt umfram aukningu í verð- mætasköpun á tímabilinu. „Yfir það heila má segja að laun hafi verið að hækka alltof mikið og verðbólga að sama skapi verið of há. Það hefur mikið verið rætt um launa- skrið á fjármálamarkaði. Þegar horft er lengra aftur, til ársbyrjunar 2008, sést að launaþróunin á fjármálamark- aði er mjög svipuð launaþróun á al- mennum markaði, hækkunin er u.þ.b. 35% á báðum þessum mörkuðum. Ef skoðuð eru styttri tímabil er fjármálageirinn að hækka meira en almenni markaðurinn og það virðist sem fjármálageirinn hafi setið eftir 2008 og 2009 en síðan fengið leiðrétt- ingar. Það er áberandi að mann- virkjageirinn hefur setið eftir frá 2008, sem endurspeglar erfiða stöðu greinarinnar.“ Launavísitala fjármála- geirans hækkar mest  Var 7,7% hærri á öðrum ársfjórðungi en á sama tíma 2012 Morgunblaðið/Golli Grunnurinn frá 2005 » Grunnur vísitölunnar er meðaltal ársins 2005 og mið- ast hún þá við 100. » Hún byggir á könnun í iðn- aði, byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, verslun og viðgerðarþjónustu, sam- göngum og flutningum og fjár- málaþjónustu og hjá lífeyris- sjóðum og vátryggingum. Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Við hófum að setja upp vinnubúðir við Eskifjörð í vikunni,“ segir Dofri Eysteinsson, framkvæmdastjóri Suðurverks, um undirbúning fram- kvæmda við gerð Norðfjarðarganga. Dofri segir stefnt að því að hefja framkvæmdir Eskifjarðarmegin um miðjan nóvember og er ætlunin að opna göngin í september 2017. Þau verða 7,9 kílómetra löng með veg- skálum. Að sögn Dofra munu 35-40 manns vinna við verkefnið að jafnaði og verður um helmingurinn tékkneskir starfsmenn verktakafyrirtækisins Metrostav. Koma Tékkarnir frá Finnlandi þar sem þeir leggja nú lokahönd á gangagerð. Félögin tvö, Suðurverk og Metro- stav, áttu lægsta tilboðið í gerð ganganna en það hljóðar upp á 9,3 milljarða króna. Dofri segir að- spurður að upphæðin sé verðtryggð miðað við byggingarvísitölu sem ætla megi að verði 4-5% á verk- tímanum. Reiknað er með að sprengdir verði um 60 metrar á viku en göngin verða styrkt með steypulagi og komið fyrir vatnsklæðningu, líkt og til dæmis í Hvalfjarðargöngum. Notað í vegagerð Efni sem til fellur úr göngunum Eskifjarðarmegin verður notað í vegagerð og landfyllingar við höfn- ina. Norðfjarðarmegin verður efnið hins vegar notað í gerð 3,5 km vegar og það sem ekki nýtist sett til hliðar. Dofri segir göngin munu verða bylting í samgöngum landshlutans. Gangagerð að hefjast eystra  Vinnubúðir eru að rísa við Eskifjörð Makrílvertíðin er langt komin og lítið eftir af kvótum flestra skipanna. Aflareynsluskipin leggja því áherslu á síldina og taka það sem eftir er af makrílnum sem meðafla á síldveiðum. Krókabátar mega veiða makríl til 20. september án hámarks skv. breytingum á reglugerð frá því í lok ágúst. Í gær var verið að landa afla úr Lundey NS á Vopnafirði og að sögn Arn- þórs Hjörleifssonar skipstjóra var skipið með um 600 tonn af síld og makríl í veiðiferðinni. Hann segir í samtali á heimasíðu HB Granda að síðustu tvö holin hafi verið tekin djúpt austur af Austfjörðum og þar hafi verið mok- veiði, um 70% síld og um 30% hafi verið makríll. Makrílvertíðin er langt komin Íslenskir aðalverktakar leggja nú lokahönd á frágang við Hörpu. Liður í þeirri vinnu er að fjarlægja hluta landfyllingar og er nú unnið að dýpk- unarframkvæmdum austan Hörpu. Að sögn Sigurðar Ragnarssonar hjá tæknisviði ÍAV mun verkið taka um tvo mánuði. ,,Þetta er lokahnykkur í að fjarlægja fyllingu sem vinnubúðirnar okkar stóðu á. Þetta er efni sem við grófum upp úr grunninum við Hörpu og feng- um að setja þarna til hliðar,“ segir Sigurður. Til verksins er notuð grafa á pramma og er efninu mokað upp úr sjónum. ÍAV skilaði af sér byggingu Hörpu árið 2011 en bygging hennar hófst um sumar árið 2006. vidar@mbl.is Morgunblaðið/Rósa Braga Fyllingu mokað úr sjónum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.