Morgunblaðið - 07.09.2013, Side 4
SVIÐSLJÓS
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Heimavinnsla gæti lagst af hér á
landi ef eftirliti með henni verður
ekki breytt. Er það mat stjórnar
samtakanna Beint frá býli sem er
félag heimavinnsluaðila sem
stunda sölu afurða beint frá býli
bóndans.
Samtökin gagnrýna framkomu
Matvælastofnunar (MAST) gagn-
vart heimavinnsluaðilum í mjólk-
urúrvinnslu. En stofnunin hefur
tekið við eftirliti með helstu
heimavinnsluaðilum sem framleiða
úr mjólk af Heilbrigðiseftirlitinu.
Gagnrýnin snýr að því að MAST
styðst við sömu skoðunarhandbók
fyrir matvæli úr dýraríkinu og
stofnunin notar við skoðun á stóru
afurðastöðvunum eins og Mjólkur-
samsölunni. Í þeirri bók sé ekki
gert ráð fyrir að smáframleiðend-
ur fái neinar tilslakanir frá ákvæð-
um þeim sem í henni er að finna,
gildir það sama hvort sem fram-
leitt er úr einu tonni á ári eða á
klukkutíma.
Í bókun frá nýlegum fundi sam-
takanna Beint frá býli kemur fram
að MAST hafi gert atlögu að a.m.k.
tveimur framleiðendum þar sem
verulegar athugasemdir voru gerð-
ar jafnvel þótt báðir hafi verið með
gild starfsleyfi án athugasemda.
„Verði eftirlit með allri heima-
vinnslu grundvölluð á þessari skoð-
unarhandbók, má búast við að
heimavinnsla leggist af,“ segir í
bókuninni.
Sveigjanleiki í eftirlitinu
Sigurður Hansson forstöðumað-
ur matvælaöryggis- og neytenda-
málasviðs Matvælastofnunar, segir
að ný löggjöf varðandi búfjárafurð-
ir hafi tekið gildi 1. nóvember 2011.
MAST hafi gert framsalssamninga
við Heilbrigðiseftirlitið en þeim
samningum hafi verið sagt upp í
fyrrahaust vegna endurskoðunar
og hafi ekki verið framlengdir svo
MAST fer nú með eftirlitið. En það
á ekki að skipta máli hver fer með
það, að sögn Sigurðar, því löggjöfin
er sú sama.
„Öll fyrirtæki, hvort sem þau eru
stór eða smá, eiga að uppfylla
ákvæði í sömu löggjöf. Það á ekki
að skipta máli hver eftirlitsaðilinn
er því löggjöfin sem unnið er eftir
er sú sama.“
Þrátt fyrir að sama skoðunar-
handbók sé notuð á öll fyrirtæki á
eftirlitið að vera sveigjanlegt að
sögn Sigurðar. „Í löggjöfinni er
ákvæði um það að taka eigi tillit til
og taka mið af aðstæðum, eins og
stærð fyrirtækja, hversu ítarlegt
innra eftirlit fyrirtækja þarf að
vera, um hvort unnið er með við-
kvæm hráefni og fleira sem getur
haft áhrif á öryggi matvælanna.
Gert er ráð fyrir að fyrirtæki sem
vinna viðkvæm matvæli og mikið
magn þurfi meira eftirlit en fyrir-
tæki sem vinna úr litlu magni. Þá fá
fyrirtæki sem standa sig vel minna
eftirlit en fyrirtæki sem standa sig
slaklega.“
Sigurður segir þessa reglugerð
ekki eiga að koma heimavinnslunni
verr því gert sé ráð fyrir ákveðnum
sveigjanleika þegar um er að ræða
lítið magn. „En verkefni sem við er-
um sífellt að glíma við er hvernig við
getum nýtt þennan sveigjanleika og
tekið tillit til magnsins í áhættu-
flokkunarkerfinu,“ segir Sigurður.
„Það er tiltölulega stutt síðan þessi
löggjöf tók gildi og ýmislegt sem á
eftir að túlka betur og átta sig á
hvernig er best að framkvæma.“
Vilja fund með ráðherra
Stjórn Beint frá býli hefur óskað
eftir fundi með forsætisráðherra,
fulltrúa stjórnar Samtaka atvinnu-
lífsins og formanni Bændasamtaka
Íslands til að ræða framtíð heima-
vinnslu á Íslandi, með hliðsjón af
íþyngjandi regluverki sem og að
kalla eftir ákveðnari skilgreiningu
á hvað er smáframleiðandi og hvort
heimavinnsla sé smáframleiðsla
eða eitthvað annað.
Þá hefur stjórnin falið lögmanni
félagsins að mótmæla vinnulagi
Matvælastofnunar og undirbúa
samantekt og greinargerð málinu
til stuðnings.
Morgunblaðið/ÞÖK
Ósveigjanlegir Samtökin Beint frá býli gagnrýna framkomu Matvælastofnunar gagnvart heimavinnsluaðilum í mjólkurúrvinnslu.
Segja engar tilslakanir
Hafa áhyggjur af því að heimavinnsla í mjólkuriðnaði leggist af vegna hertrar
eftirlitslöggjafar Atlaga að Beint frá býli Eftirlitið á að vera sveigjanlegt
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013
Stjórnvöld eru hvött til þess að
bregðast við fjórum ábendingum frá
árinu 2010 um fangelsismál, eftir því
sem fram kemur í tilkynningu frá
Ríkisendurskoðun.
Árið 2010 birti Ríkisendurskoðun
skýrslu þar sem settar voru fram
níu ábendingar um úrbætur í
fangelsismálum en enn á eftir að
bregðast við fjórum þeirra. Þrjár
þeirra beindust að innanríkisráðu-
neytinu en ein að velferðarráðuneyt-
inu.
Innanríkisráðuneytið er hvatt til
þess að breyta lögum þannig að for-
stjóri Fangelsismálastofnunar fái
umboð til þess að skipa forstöðu-
menn fangelsa sem hingað til hefur
verið á könnu ráðherra. Þannig færu
vald og ábyrgð betur saman að mati
Ríkisendurskoðunar. Þá er bent á að
Fangelsismálastofnun fái fé til þess
að standa straum af lögbundnum
verkefnum sínum auk þess sem
ráðuneytið eigi að leita leiða til þess
að auka möguleika fanga til þess að
afplána refsingu utan fangelsa.
Loks var velferðarráðuneytið
hvatt til þess að tryggja föngum
nauðsynlega heilbrigðisþjónustu
eins og geðheilbrigðisþjónustu.
Þriggja ára
ábendingar
ítrekaðar
Hvatt til úrbóta
í fangelsismálum
Sjálfboðaliðar og starfsmenn Rauða
krossins vöktu athygli á þeim að-
stæðum sem Sýrlendingar búa nú
við á Lækjartorgi í gær. Í tilkynn-
ingu frá Rauða krossinum segir að í
Sýrlandi ríki nú mesta neyð sem
hjálparstofnanir hafi þurft að takast
á við á undanförnum árum og óttast
er um afleiðingar langvinnra átaka.
Þá er almenningur hvattur til þess
að leggja söfnun Rauða krossins lið.
Mikil neyð
í Sýrlandi
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Mjög slæmt var í sjóinn og öldurnar
sem skullu á Reynisfjöru voru hrika-
legar. Nokkrir ferðamenn voru í fjör-
unni að fylgjast með sjónarspilinu.
Um 4-5 ára gömul stúlka, sem var þar
með föður sínum og systur, hljóp frá
pabba sínum og niður í flæðarmálið.
Hún fór nánast eins neðarlega í fjör-
una og hægt var þegar öldurnar hörf-
uðu í augnablik og þar sem hún stóð
var sandurinn blautur eftir öldurótið.
Það var bara tímaspursmál hvenær
næsta alda skylli á fjörunni og
hremmdi stúlkuna.
Þannig lýsir Páll Jónsson, lögreglu-
maður og leiðsögumaður hjá Experi-
ence Iceland, aðstæðum í Reynisfjöru
þegar hann var þar staddur í lok
ágúst. Öldurnar skella ekki reglulega
á ströndu, eins og margir halda, og
þegar stúlkan stóð í flæðarmálinu var
líkt og hik kæmi á sjóinn. „Ég hljóp til
hennar og náði að rífa hana upp áður
en hafið gleypti hana,“ segir Páll.
Hefði hann ekki gripið til sinna
ráða hefði ekki þurft að spyrja að
leikslokum; stúlkan hefði farist því
enginn hefði getað komið henni til
bjargar.
Í kjölfar banaslyss fyrir nokkrum
árum var sett upp skilti í útjaðri bíla-
stæðisins við fjöruna sem varar ferða-
menn við hættunni af briminu og
þennan dag hefði hættan átt að blasa
við öllum. Samt áttaði faðir stúlkunn-
ar sig ekki á alvarleika málsins.
Páll segist velta fyrir sér hvort ekki
sé rétt að bæta við skiltum eða merk-
ingum til að vara við briminu. Eini
bjarghringurinn á svæðinu hangi á
skiltinu við bílastæðið og þangað sé
töluverður spölur úr fjörunni. Það sé
þó ekki alltaf nóg að setja upp skilti og
hann bendir á að þar sem hægt sé að
aka niður í fjöruna sé líka skilti sem
banni akstur um hana. Engu að síður
sé ekið um fjöruna á stórum jeppum
en til að komast þangað verði að taka
sveig fram hjá bannskiltinu til að
keyra ekki á það. runarp@mbl.is
Í lífshættu í Reynisfjöru
Leiðsögumaður bjargaði lítilli stúlku sem hljóp niður
í flæðarmál Greip stúlkuna áður en hafið gleypti hana
Morgunblaðið/RAX
Brim Flagð undir fögru skinni.
Guðmundur Jón Guðmundsson, bóndi á Holtseli og
formaður félags heimavinnsluaðila Beint frá býli,
gagnrýnir vinnubrögð Matvælastofnunar og segir
þau aðför að litlum fyrirtækjum í landinu.
„Vinnubrögð þeirra koma sér sérstaklega illa fyrir
lítil fyrirtæki í ýmsum matvælaiðnaði og ekki víst að
þau beri þann kostnað sem kröfurnar geta haft í för
með sér. Verði þetta raunveruleikinn sem bændur
þurfa að búa við þá sé ég ekki fram á annað en að
menn annaðhvort hætti eða fari með starfsemi
neðanjarðar. Fæstir láta bjóða sér svona yfirgang.
Þá er ég viss um að neytendur yrðu ekki hrifnir af því að geta ekki
keypt matvæli beint frá býli en slík starfsemi hefur hlotið mikinn með-
byr undanfarið.“ mariamargret@mbl.is
Aðför að litlum fyrirtækjum
FORMAÐUR SAMTAKANNA BEINT FRÁ BÝLI
Guðmundur Jón
Guðmundsson
9. september
í sundlaug Hrafnistu við Laugarás og
í Heilsuborg, Faxafeni 14