Morgunblaðið - 07.09.2013, Page 6

Morgunblaðið - 07.09.2013, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Lítill kippur virðist enn vera kominn í fjárfestingar í atvinnulífinu. Á fyrstu sex mánuðum ársins dróst fjárfesting saman um 13% að raun- gildi borið saman við fyrstu sex mán- uði seinasta árs, skv. tölum Hagstof- unnar sem birtar voru í gær. Þróunin hefur þó ekki verið al- veg svona slæm eins og þessar tölur gefa til kynna því sam- dráttinn miðað við fyrri helming síðasta árs má að miklu leyti rekja til mikils inn- flutnings á skipum og flugvélum sem þá átti sér stað. Ef horft er framhjá fjárfestingu í skipum og flugvélum, jókst fjárfesting hér á landi um 4,1% á fyrstu sex mánuðum ársins. „Fjárfesting atvinnuvega dróst saman um 18,6% (jókst um 4,8% án skipa og flugvéla). Íbúðafjárfesting jókst um 1% og fjárfesting hins op- inbera jókst um 5,1% á sama tíma- bili,“ segir í skýringum Hag- stofunnar. En ef miðað er eingöngu við sama ársfjórðung í fyrra og í ár dróst fjár- festing í heild saman um 5,5% að raungildi og fjárfesting atvinnuvega dróst saman um 10,1%. Sérfræðingar Hagstofunnar birtu einnig í gær yfirlit yfir hagvöxt á seinasta ári og þar kemur fram að ef frá er talin áðurnefnd fjárfesting í skipum og flugvélum í fyrra þá dróst fjárfesting á síðasta ári saman um 4,1% og munar þar mestu um minni fjárfestingu í stóriðju- og orku- verum. Í sögulegu lágmarki í fjögur ár Fjárfestingar hér hafa verið langt undir því sem gengur og gerist í samanburðarlöndum frá því að kreppan skall á. Í fyrra var hlutfall fjárfestinga af landsframleiðslu 14,5% hér á landi og hefur að sögn Hagstofunnar þetta hlutfall verið í sögulegu lágmarki síðustu fjögur árin. Sambærilegt hlutfall fyrir OECD-ríkin í heild hefur verið mun stöðugra, um eða rétt undir 20% undanfarinn aldarfjórðung. „Að raungildi var heildarfjárfesting á síðasta ári svipuð og árið 1997,“ segir í úttekt Hagstofunnar. Þorsteinn Víglundsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, segir sama áhyggjuefnið hversu veik fjárfestingin er „og skelfilegt að horfa upp á samdrátt í fjárfestingu á þessu ári. Við náum aldrei viðvar- andi hagvexti á Íslandi þegar fjár- festingin er svona veik. Það er algert lykilatriði að örva hana,“ segir hann. Þorsteinn segist óttast að fjárfest- ing verði áfram lítil á síðari hluta ársins úr því sem komið er. ,,Tilfinn- ingin hefur því miður verið sú það sem af er ári að hagvaxtarforsend- urnar séu fremur að veikjast en hitt og ekkert sem bendir til mikilla breytinga þar á,“ segir hann. Jákvæðar fréttir hafa þó borist úr einstökum atvinnugreinum. Ferða- þjónustan hefur verið ljós í myrkr- inu, að sögn hans. ,,Þar erum við að sjá þó nokkur áform um fjárfestingar en aðrar at- vinnugreinar virðast ennþá vera talsvert veikar. Vonandi sjáum við þó eitthvað birta yfir í sjávarútveg- inum. Bæði virðist verðþróun vera hagstæðari en menn höfðu óttast og kvótinn hefur verið aukinn. Ef stjórnvöld ná að aflétta óvissunni sem hefur hangið yfir greininni vegna fyrirkomulags við stjórnun fiskveiða, þá ætla ég að við sæjum nokkra innspýtingu í fjárfestingu enda nokkur uppsöfnuð þörf til staðar.“ 2,2% hagvöxtur á fyrri helmingi ársins Tölur Hagstofunnar sýna að hag- vöxtur mælist 2,2% á fyrri helmingi ársins. Þetta eru jákvæðar fréttir að mati Þorsteins þar sem vöxturinn er nokkru sterkari en menn þorðu að vona. Í Morgunkorni Greiningar Ís- landsbanka í gær er tekið í sama streng en þó bent á að myndin sé blendin því vöxturinn sé drifinn áfram af aukningu í þjónustuútflutn- ingi, sem megi að miklu leyti þakka geysihröðum vexti í ferðaþjónustu. Að henni slepptri sé staðan kannski ekki jafn góð og þessar hagvaxtar- tölur gefa til kynna. „Skelfilegt að horfa upp á samdrátt“  13% minni fjárfesting á fyrri árshelmingi  Ef skipa- og flugvélakaup eru undanskilin mælist 4,1% vöxtur  Framkvæmdastjóri SA segir viðvarandi hagvöxt aldrei nást með svo veikri fjárfestingu Morgunblaðið/RAX Byggingavinna Íbúðafjárfesting jókst um 1% á fyrri helmingi yfirstandandi árs frá sama tíma í fyrra. Sérfræðingar Greining- ardeildar Arion banka lesa já- kvæð tíðindi út úr tölum sem Hagstofan birti í gær og spyrja hvort áhyggjur af bakslagi séu ástæðulausar. Ljóst sé að gangurinn í hagkerfinu sé um- talsvert betri en væntingar voru um hjá Seðlabankanum og öðrum greiningaraðilum. „Ótti margra við að hag- kerfið myndi hægja enn frekar á sér á árinu 2013 virðist sem betur fer ekki ætla að raun- gerast […],“ segir í umfjöll- uninni. Hvað fjárfestingar varðar telur Greiningardeild Arion að þegar litið er framhjá fjárfestingum í skipum og flugvélum séu aðrar fjárfest- ingar að vaxa um ríflega 4%, sem sé gleðiefni. 4% vöxtur gleðiefni GREININGARDEILD ARION Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Áætlunarferðir Strætó á Norður- og Norðausturlandi eru í uppnámi og greiðsluþrot blasir við Eyþingi, Sambandi sveitarfélaga í Eyjafirði, og Þingeyjarsýslum. „Við þurfum að greiða verktakanum sem sér um keyrsluna á svæðinu 4 milljónir króna á þriðjudaginn og þeir pen- ingar eru ekki til. Það blasir því við okkur greiðsluþrot,“ segir Geir Kristinn Aðalsteinsson, formaður Eyþings. Fundað verður með innanríkis- ráðherra um málið á miðvikudaginn og þingmönnum kjördæmisins á þriðjudag. „Ég vona að það finnist lausn á þessu máli sem fyrst því það liggur fyrir að ef verktakinn fær ekki greiðsluna sína á þriðjudaginn þá hættir hann allri keyrslu strax á miðvikudag.“ Heimila ekki lántöku Sveitarfélögin sem standa að Ey- þingi hafa ekki gefið sambandinu heimild til að sækja lán fyrir greiðsl- unni. „Akureyrarbær og Norður- þing hafa frestað afgreiðslu á heim- ild til láns þangað til einhver svör liggja fyrir frá innanríkisráðherra,“ segir Geir en að hans mati er komin þreyta í það hjá sveitarstjórnum að þurfa að taka við verkefnum frá rík- inu sem sveitarfélögin þurfa síðan að borga með. „Staðan er einfaldlega sú að nú sitjum við á neyðarfundum og reynum að finna lausn á málinu.“ Ingvar Erlingsson, forseti bæjar- stjórnar Fjallabyggðar, segir að aksturinn hafi gengið eftir vænt- ingum. „Bæjarstjórn fékk inn á borð til sín minnisblað frá Eyþingi um al- menningssamgöngur þar sem fram kemur að forsendur Eyþings að samkomulagi um áætlunarferðir Strætó á Norður- og Norðaust- urlandi eru ekki lengur til staðar,“ segir Ingvar sem bendir einnig á að framlög frá íslenska ríkinu til verk- efnisins séu of lág til að réttlæta áframhaldandi rekstur. „Ég vona að við fáum aukið fjár- magn frá ríkinu til að halda þjónust- unni áfram úti. Annars er þetta í höndum Eyþings sem er umsjónar- aðili samningsins fyrir hönd sveitar- félaganna á svæðinu,“ segir Ingvar. Greiðsluþrot fyrir norðan Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Strætó Eyþing þarf að greiða verktökum sem sjá um keyrslu á svæðinu 4 milljónir á þriðjudag en peningurinn er ekki til, að sögn formanns félagsins.  Heimild fyrir lántöku frestað fram yfir gjalddaga Fjárfestingar Magnvísitala 2002-2012 Heimild: Hagstofa Íslands 140 120 100 80 60 40 20 0 200 2 200 3 200 4 200 5 200 6 200 7 200 8 200 9 201 0 201 1 201 2 124,38 stig 2006 38,26 stig 2010 Þorsteinn Víglundsson Óháð ráðgjöf til fyrirtækja Firma Consulting gerir fyrirtækjum tilboð í eftirfarandi þjónustu: • Kaup, sala og sameining. • Verðmat fyrirtækja. • Samningaviðræður, samningagerð • Áætlanagerð. • Fjárhagsleg endurskipulagning. • Samningar við banka. • Rekstrarráðgjöf. Firma Consulting, Þingasel 10, 109 Reykjavík. Símar: 820-8800 og 896-6665. Fax 557-7766 info@firmaconsulting.is, www.firmaconsulting.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.