Morgunblaðið - 07.09.2013, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.09.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013 Fyrir kosningar sagði borg-arstjóri í umræðuþætti þann frumlega brandara að hann hefði aldrei flutt flugvöll og vildi þess vegna ekki ræða útfærslur um hvernig það yrði gert. Þarna var hann vitaskuld að ræða um Reykjavíkurflugvöll en þó að óvíst sé hvort reynslan eða þekkingin hafi aukist hefur ákafinn um að leggja niður flugvöllinn ekki minnkað.    Borgarstjóri bættiþví nýlega við um þetta mál að mín- úturnar frá flugvelli inn í sjúkrahús væru ekki endilega mjög mikilvægar og gerði þannig lítið úr rök- semdum þeirra sem vilja halda flugvellinum í nálægð við Landspítalann.    Borgarstjóri gæti sér að skað-lausu hlustað á lækna sem hafa reynslu af þessu eða til að mynda Hörð Guðmundsson hjá Erni, en það flugfélag flýgur með flesta sem fara í sjúkraflugi til annarra landa:    ÍMorgunblaðinuvar haft eftir Herði að þegar flogið væri til Gautaborgar væri vélin látin lenda á Save-flugvellinum sem væri þar í mið- borginni. Og Hörður hélt áfram: „Þegar við fljúgum til Kaupmannahafnar með sjúklinga erum við beðnir að lenda í Roskilde, sem er næst sjúkra- húsinu, svo minnstar tafir verði og ef við förum til Stokkhólms lendum við í Bromma, sem er í miðbæ Stokk- hólms. Þetta er krafa sjúkrahúsanna sem taka á móti sjúklingunum. Ná- lægðin við sjúkrahús skiptir miklu meira máli en margir vilja vera láta.“    Ætli þekking af þessu tagi hafieinhver áhrif á borgarstjóra? Jón Gnarr Kristinsson Sjúkraflug, flug- vellir og sjúkrahús STAKSTEINAR Hörður Guðmundsson Veður víða um heim 6.9., kl. 18.00 Reykjavík 9 alskýjað Bolungarvík 13 skýjað Akureyri 14 léttskýjað Nuuk 7 skúrir Þórshöfn 9 heiðskírt Ósló 18 skýjað Kaupmannahöfn 20 heiðskírt Stokkhólmur 18 heiðskírt Helsinki 17 heiðskírt Lúxemborg 26 heiðskírt Brussel 22 heiðskírt Dublin 12 skýjað Glasgow 12 léttskýjað London 17 léttskýjað París 20 alskýjað Amsterdam 18 léttskýjað Hamborg 27 heiðskírt Berlín 23 heiðskírt Vín 24 léttskýjað Moskva 11 skúrir Algarve 23 léttskýjað Madríd 28 léttskýjað Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 27 léttskýjað Róm 28 léttskýjað Aþena 26 léttskýjað Winnipeg 23 skýjað Montreal 17 léttskýjað New York 20 heiðskírt Chicago 23 léttskýjað Orlando 32 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 7. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:29 20:23 ÍSAFJÖRÐUR 6:29 20:33 SIGLUFJÖRÐUR 6:12 20:17 DJÚPIVOGUR 5:57 19:54 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Sorp í Vestmannaejum er nú flutt á fast land til endurvinnslu og sorp á Kirkjubæjarklaustri er flutt til urð- unar eftir að sorpbrennslustöðvum var lokað á þessum stöðum í lok árs 2012. Var þeim lokað þar sem þær töldust ekki uppfylla settar kröfur í reglugerðum Evrópusambandsins. Í kjölfarið bauð Vestmannaeyja- bær út endurvinnslu sorpsins. End- urvinnslufyrirtækið Kubbur á Ísa- firði var með lægsta tilboðið í útboðinu og greiðir Vestmanna- eyjabær um 60 milljónir króna á ári til fyrirtækisins. Allt sorp er unnið innanlands en horfið var frá hug- myndum um að flytja sorpið til út- landa. ,,Járn og raftæki fara í Hring- rás. Blandaða endurvinnsluefnið, sem kemur beint úr heimilissorpinu, fer í Gámaþjónustuna. Flokkaði pappinnn fer bæði í Gámaþjónustuna og til Sorpstöðvarinnar Kölku,“ segir Sig- urður Óskarsson, framkvæmdastjóri Kubbs. Hann segir að um 40 tonn af sorpi séu flutt með Herjólfi frá Eyj- um vikulega. Lífræni úrgangurinn verður eftir í Eyjum. „Það er mjög gott fyrir okkur þar sem lítið er um góðan jarðveg fyrir gróður í Vestmannaeyjum,“ segir Ólafur Snorrason, formaður um- hverfis og samgönguráðs Vest- mannaeyja. Varmadæla til orkunýtingar Sorpbrennslunni á Kirkjubæjar- klaustri var lokað síðla árs 2012. Varminn sem myndaðist við brennsl- una var notaður til raforkuöflunar. Eftir lokunina þurfti jafnframt að loka sundlauginni á staðnum um nokkra hríð þar sem hún var kynt með rafmagni. ,,Hún var lokuð fram í ágúst á þessu ári. Það þarf gífurlegt rafmagn til að kynda hana,“ segir Eygló Kristjánsdóttir, sveitarstjóri Skaftárhrepps. Hægt var að opna sundlaugina að nýju eftir að fjárfest var í varmadælu. ,,Við nýtum rafmagnið mun betur með tilkomu hennar. Við höfum keypt um 2,5 milljónir kílóvattstunda á ári. Við vonumst til þess að fara nið- ur í 1,5 milljónir kílóvattstunda með tilkomu dælunnar,“ segir Eygló. Sorp á Klaustri fer nú til urðunar á Skógasandi. „Við tökum allt endur- vinnanlegt og lífrænt frá. Það sem eftir stendur fer til urðunar á Skóga- sandi. En við erum með það í vinnslu að urða allt hér á Stjórnarsandi,“ seg- ir Eygló. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Kalka Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sér nú um að endurvinna sorp frá Vest- mannaeyjum. Vikulega eru 40 tonn af sorpi flutt þaðan með Herjólfi. Urða sorpið í stað þess að brenna  Herjólfur flytur um 40 tonn á viku Í rannsóknarskýrslu sem birt var á vef Cambridge-háskóla á miðviku- dag kemur fram að möguleg tengsl séu milli hreinlætis og Alz- heimer. Rannsóknin skoðar tengsl aukins hreinlætis og öflugs heilbrigðiskerfis við Alzheimer- sjúkdóminn. Samanburðurinn er gerður á ríkum löndum með öflug heilbrigðiskerfi og strangar kröfur um hreinlæti m.a. á sjúkrahúsum og heilsugæslum og fátækari lönd- um þar sem staðlar eru eitthvað vægari og hreinlæti er ekki að jafnaði eins almennt og á Vest- urlöndum. Inntak rannsóknarinnar er fólg- ið í því að með auknu hreinlæti sé ofnæmiskerfi líkamans ekki jafnvel undirbúið fyrir sýkingar og veik- indi. Tekið er tillit til fæðing- artíðni og aldurs í rannsókninni. Ísland er sérstaklega tekið fram í rannsókninni en fram kemur að í löndum eins og á Íslandi og Sviss þar sem smitsjúkdómar séu tölu- vert færri en t.d. í Kína og Ghana sé hlutfallslega 12 prósent fleiri með Alzheimer. Hægt er að nálgast rannsóknina á vef Cambridge-háskóla http:// www.cam.ac.uk/research Hreinlæti ríkra þjóða eykur á Alzheimer Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 bokun@baendaferdir.is Síðumúla 2, 108 Reykjavík Fararstjórar: Steingrímur Birgisson og Guðmundur K. Einarsson Saalbach-Hinterglemm Saalbach - Hinterglemm hefur stundum verið nefnd skíðaparadís Alpanna. Púðursnjór, fjölbreyttar brekkur og kristaltært loft gerir skíðaferðina að ógleymanlegu fríi. Verð: 229.600 kr. á mann í tvíbýli. Akstur til og frá flugvelli, morgun- og kvöldverður, ásamt íslenskri fararstjórn er alltaf innifalið hjá okkur! 18. - 25. janúar 2014 Austurríki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.