Morgunblaðið - 07.09.2013, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013
BAKSVIÐ
Sigurður Ægisson
Siglufirði
Upp er runninn 7. september árið
2013, sem í hugum margra lands-
manna hefur töluvert gildi og það
svo mikið reyndar sumstaðar að all-
nokkur pörin hafa ákveðið að ganga í
það heilaga í dag, enda má lesa út úr
dagsetningunni einhverja mestu
töfra- eða happaþulu okkar frá upp-
hafi, 7-9-13, sem ætti þá líklega að
tryggja brúðhjónunum aukaskammt
af hamingju og jafnvel öðrum gæð-
um í framtíðinni.
Elsta skráða heimild um þessa
talnarunu, samhangandi við ein-
hverja útbreiddustu hjátrú sem
þekkist meðal kristinna manna nú til
dags, að banka þrisvar í eða undir
borð eða snerta einhverja viðarteg-
und, er frá 1913 og það er Axel Ol-
rik, texta- og þjóðfræðingur, sem
hefur skráð hana niður eftir fröken
Dahl, nuddkonu einni í Kaupmanna-
höfn. Þar segir orðrétt: „Banke un-
der bordet og sige 7, 9, 13, som
præstekonen gjorde. At det ikke
skal gå ilde med noget, man udtaler
sig forhåbningsfuldt om.“
Nákvæmlega þessi samspyrða, og
eins hitt, að fara með þuluna eina og
sér – en tilgangurinn er sá að reyna
að koma í veg fyrir að ósk sem mað-
ur lætur út úr sér virki ekki stork-
andi á örlögin – mun einungis þekkt
í Danmörku og á Íslandi, eða var það
a.m.k. lengstum. Dr. Ingvar Svan-
berg, þjóðfræðingur við Uppsalahá-
skóla, kannast t.d. ekki við þetta í
Svíþjóð og eiginkona hans ekki í
Færeyjum, þar sem hún er fædd og
uppalin. Hið sama er upp á ten-
ingnum varðandi Noreg og Finn-
land, að því er greinarhöfundur best
veit.
En hvað skyldi vera í gangi
þarna? Af hverju þessar tölur frekar
en aðrar? Margir fræðimenn hafa
reynt að svara þessu, hér og ytra, og
bent á, að í raun séu þær einhverjar
hinar kröftugustu í gjörvallri mann-
kynssögunni.
Sjö
Sjö er langalgengasta talan í Ritn-
ingunni. Og höfuðdyggðirnar í krist-
inni siðfræði eru sjö: hófsemi, for-
sjálni, hugprýði, réttsýni, trú, von og
kærleikur. Einnig dauðasyndirnar:
hroki, ágirnd, losti, reiði, græðgi, öf-
und og leti. Og undur veraldar.
Séu allar tölur frá 1-7 lagðar sam-
an verður útkoman 28, dagafjöldi
tunglmánaðarins og tíðahringsins.
Og ekki þykir slæmt nú á tímum,
frekar en áður, að vera í sjöunda
himni. Í þessari tölu er sjálf lífs-
hrynjandin fólgin.
Níu
Þrír er á sömu lund mikil happa-
tala, býr yfir töframætti og er heil-
ög. Í Gamla testamentinu kemur
hún oft fyrir. Höll Salómons var t.d.
þrisvar sinnum tíu álnir á hæð, þar
voru þrjár gluggaraðir og þrjár vist-
arverur. Nói átti þrjá syni, ættfeður
Ísraelsmanna voru þrír, konungar
Ísraels sömuleiðis, og mestu spá-
mennirnir: Jesaja, Jeremía og Ese-
kíel. Og í Nýja testamentinu koma
vitringarnir með þrjár gjafir, vin-
sælasta kenningin um aldur Jesú er
sú, að hann hafi verið 33 ára þegar
hann var krossfestur og upprisan
varð á þriðja degi. Að því ógleymdu,
að Guð kristinna manna er þríenn:
faðir, sonur og heilagur andi.
Í goðafræðinni sem og öllum
heimi þjóðsagna og ævintýra er
þetta á sömu lund. Og illar vættir
þola ekki umrædda tölu. Hvað þá ef
útkoman er 3 x 3.
Í stærðfræðinni hefur talan níu
líka mikla sérstöðu. Eða eins og
Símon Jón Jóhannsson þjóðfræð-
ingur, höfundur Stóru hjátrúarbók-
arinnar og þeirra fleiri, orðar það á
einum stað: „Það er alveg sama með
hvaða tölu hún er margfölduð,
þversumma útkomunnar, eða þvers-
umman af þversummunni, verður
alltaf níu. Tökum nokkur dæmi: 9 x 7
= 63 (6 + 3 = 9), 9 x 951 = 5.319 (5
+ 3 + 1 + 9 = 18 og 1 + 8 = 9 ), 9 x
10.832 = 97.488 (þversumman er 36
og þversumman af 36 er 9). Talan
níu er sú eina sem býr yfir þessum
eiginleika.“
Og meðgöngutími kvenna er níu
mánuðir. Að fátt eitt sé nefnt.
Þrettán
Talan þrettán er erfiðari viðfangs.
Hún er tvíbent, bæði neikvæð og já-
kvæð. Eyja Margrét Brynjarsdóttir
ritar eftirfarandi um hana á Vís-
indavefnum: „Hræðsla við töluna 13
er kölluð triskaidekafobia. Ýmsar
skýringar hafa verið settar fram um
uppruna þessarar fælni og hjátrúin
sem tengist henni birtist í ýmsum
myndum. Til að mynda hafa mörg
hótel enga hæð sem kölluð er 13.
hæðin, happdrætti forðast að gefa út
miða númer 13, sumum finnst borð-
hald með 13 manneskjum óhugsandi
og fjöldamorðingjar sem hafa 13
stafi í nafninu sínu eru tíndir til hjá-
trúnni til staðfestingar. Þegar þrett-
ánda dag mánaðarins ber upp á
föstudag á dagurinn að vera slíkur
óheilladagur að sumt fólk forðast
jafnvel að mæta til vinnu.
Sú skýring sem heyrist líklega
oftast á neikvæðri ímynd tölunnar
13 er að við síðustu kvöldmáltíð
Krists hafi verið samtals þrettán
menn. Óorðið sem föstudagurinn
þrettándi hefur á sér má svo meðal
annars rekja til þess að krossfesting
Krists á að hafa farið fram á föstu-
degi. (...)
Á hinn bóginn er sagt að sum-
staðar sé 13 talin heillatala. Þar eru
til dæmis nefndir Forn-Egyptar, en
hjá þeim var þrettánda skeið lífs-
hlaupsins dauðinn, eða lífið eftir
dauðann, sem hafði jákvæða merk-
ingu.“
Þannig er nú hefðbundna svarið
við því, hvers vegna sjö, níu og þrett-
án hafi orðið fyrir valinu í áð-
urnefndri töfraþulu.
Lengri útgáfu af þessari grein má
lesa á vefnum siglfirdingur.is.
7-9-13 á Íslandi og í Danmörku
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Brúðkaup Mörg pör hafa ákveðið að ganga í það heilaga í dag, laugardag-
inn 7. september 2013. Þessa brúðkaupsmynd skar Sigurður Júlíusson í tré.
Mörg pör ætla að gifta sig í dag, 7. september 2013 Tölurnar þrjár eru einhverjar hinar
kröftugustu í gjörvallri mannkynssögunni Talan 13 er tvíbent, bæði neikvæð og jákvæð
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Ístak á von á formlegum svörum frá
norsku vegagerðinni í byrjun næstu
viku um hvort fyrirtækið geti haldið
áfram með umfangsmikil vegagerðar-
og jarðganga-
verkefni í grennd
við Narvik og
Stavanger.
Kolbeinn Kol-
beinsson, fram-
kvæmdastjóri Ís-
taks, ásamt fleiri
yfirstjórnendum
hjá fyrirtækinu,
hefur í vikunni
fundað með
fulltrúum verk-
kaupa í Noregi, m.a. norsku vega-
gerðinni og norsku siglingastofnun-
inni. Kolbeinn segir að norska
vegagerðin sé m.a. að kanna hvort
henni sé heimilt að semja um að Ístak
taki við af E. Pihl & Søn sem aðal-
verktaki, eða hvort vegagerðin sé
skuldbundin til að bjóða verkin út á
nýjan leik. Meðal þess sem vegagerð-
armennirnir séu að skoða sé hvaða
áhrif það hafi að í sumum tilvikum er
tiltölulega skammt liðið frá því byrjað
var á verkefnunum. Eftir því sem
verkefni eru lengra komin eru minni
líkur á að bjóða þurfi þau út á nýjan
leik.
Helmingur sendur heim
Ístak er með átta verkefni í Noregi,
sum eru langt komin en annars staðar
er meira eftir. Gjaldþrot E. Pihl &
Søn varð til þess að meirihluti verk-
efna stöðvaðist um tíma en þó ekki öll.
Gjaldþrotið hafði ekki áhrif í Græn-
landi þar sem Ístak er um það bil að
ljúka byggingu vatnsaflsvirkjunar.
Ístak hélt einnig áfram störfum á
þremur stöðum í Noregi; í Alta, Tal-
vik og við Molvíkurhamar nálægt
Brönnesund en á þessum stöðum hef-
ur Ístak unnið að gangagerð og til-
tölulega lítið er eftir af þeim verkefn-
um.
Fimm verkefni í Noregi stöðvuðust
á hinn bóginn alveg þegar fregnir af
gjaldþrotinu bárust og af þeim sökum
var um helmingur starfsmanna Ís-
taks sendur heim til Íslands. Nokkur
fjöldi starfsmanna hefur snúið aftur
til Noregs en töluvert margir eru enn
hér heima.
Kolbeinn segir að í þremur tilvik-
um liggi nú fyrir samkomulag um að
Ístak geti byrjað aftur, þótt ekki sé í
öllum tilvikum búið að undirrita form-
lega samninga. Þar er um að ræða
dýpkun hafnar og hafnargerð á Hús-
ey sem er í bæjarfélaginu Træna,
gerð brimvarnagarða í Honningsvag,
skammt frá Nordkapp sem er nyrsti
tangi Noregs, og vinnu við vatnsafls-
virkjun í grennd við Hamar.
Í Narvik og Stavanger er mesta
vinnan eftir af þeim verkefnum sem
Ístak er nú með í Noregi.
Kolbeinn segir að það komi vænt-
anlega í ljós í byrjun vikunnar hvern-
ig framhaldið verði. Norska vega-
gerðin sé jákvæð í garð Ístaks en hún
verði að gæta að öllum lagalegum
skilyrðum. „Ég á von á því að svarið
verði jákvætt, fulltrúar vegagerðar-
innar hafa nánast sagt það. Nema lög-
mennirnir banni þetta alveg,“ segir
Kolbeinn. Það sé þó ekki víst að vega-
gerðin geti veitt öll svör í byrjun og í
sumum tilvikum sé staðan flóknari en
í öðrum. „En ég er bjartsýnn.“
Kanna hvort bjóða
þurfi verkin aftur út
Ístak ræðir við norsku vegagerðina um framhaldið
Ljósmynd/Ístak
Velkomnir Framkvæmdum í Húsey lauk í nafni Pihl 29. ágúst en hófust aft-
ur í nafni Ístaks 4. september. Ístaksmenn fengu köku af því tilefni.
Kolbeinn
Kolbeinsson
Karlarnir og kúlurnar
Umsóknarfrestur til 10. september
Karlarnir og kúlurnar er verkefni á vegum
Krabbameinsfélags Íslands, Framfarar,
Góðra hálsa og Krafts
Spilað verður í Bakkakoti í Mosfellsbæ
17. september kl. 12:00-18:00
• Karlar sem hafa fengið krabbamein fá tækifæri til að
styrkja sig og leika sér með því að æfa golfsveifluna á
frábærum velli, læra eitthvað nýtt og/eða viðhalda fyrri
færni.
• Golfið er markviss þjálfun - þú leikur til að vinna.
• Þaulvanur og lærður golfkennari, Karl Ómar Karlsson,
kennir réttu tökin, púttið, vippið og sláttinn.
• Steinar B. Aðalbjörnsson, matvæla- og næringarfræð-
ingur, verður með fræðslu um matarræði, hreyfingu og
nestið sem golfarar þurfa að huga að fyrir leik og í leikn-
um sjálfum.
• Tólf menn fá tækifæri - sér að kostnaðarlausu!
Matur - drykkir - vinningar - skemmtun -
fræðsla - útivera - hreyfing
Umsóknir sendist til Ráðgjafarþjónustu Krabbameins-
félagsins til 10. september - fyrstur kemur, fyrstur fær.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Krabbameins-
félagsins www.krabb.is, eða í síma 540 1900, og með
tölvupósti á asdisk@krabb.is.