Morgunblaðið - 07.09.2013, Síða 17

Morgunblaðið - 07.09.2013, Síða 17
þegar fyrirhuguð starfsemi sé komin í það. Heyrði úrtöluraddir Júlíus Vífill segir að þegar hann hóf að láta breyta aðal- og deiliskipu- lagi verbúða við höfnina til að opna fyrir fjölbreytilega starfsemi hafi heyrst margar úrtöluraddir og hann fengið vindinn í fangið. „Það var einkum vegna þess að ver- búðirnar höfðu verið leigðar út í ára- tugi sem lokaðir geymsluskúrar og leigjendur voru ósáttir við að leigunni skyldi sagt upp og sáu ekki tilganginn. „Nú sjá allir að þetta var rétt stefna enda vill fólk upplifa gömlu höfnina,“ segir Júlíus Vífill og bætir því við að nú vilji margir Lilju kveðið hafa. Haft var eftir Degi B. Eggertssyni, formanni borgarráðs, í Morgun- blaðinu í síðustu viku, að núverandi meirihluti hefði „slegið skjaldborg um sjávarútveg í gömlu höfninni“ og lagt áherslu á samspil ferðaþjónustu og væntanlegrar íbúðarbyggðar á svæðinu. Júlíus Vífill segir rangt hjá Degi að núverandi meirihluti hafi mótað þá stefnu að halda atvinnustarfsemi í Reykjavíkurhöfn. Óskhyggja meirihlutans „Það er óskhyggja eða misminni vegna þess að það var ákveðið í tengslum við alþjóðlega samkeppni sem ég hleypti af stokkunum um framtíðarskipulag gömlu hafnarinnar árið 2009 eða á síðasta kjörtímabili. Ástæðan fyrir því að ákveðið var að efna til slíkrar samkeppni og endur- hanna svæðið var að ég vildi ekki að uppbygging íbúðarbyggðar í Reykja- víkurhöfn væri með svipuðum hætti og uppbygging íbúðarhúsa hefur ver- ið við höfnina í Hafnarfirði. Eldra skipulag Mýrargötu og slippsvæðis- ins gerði einmitt ráð fyrir svipaðri lausn. Til að brjóta þetta upp settum við af stað alþjóðlega samkeppni sem ég veitti forystu,“ segir Júlíus Vífill. Á rammaskipulagi Hér má sjá hugmyndir arkitektastofunnar Graeme Massie um uppbyggingu á hafnarsvæðinu. Vesturbugt er í forgrunni. Litla bryggjan á myndinni norður af Vesturbugt er ekki lengur hluti af áformunum. Rammaskipulag Þessi teikning sýnir glöggt hversu mörg hús kunna að rísa ef skipulagið verður að veruleika. FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013 NISSAN QASHQAI NISSAN QASHQAI DÍSIL 4WD VERÐ FRÁ 4.990 ÞÚS. KR. OPIÐ Í DAG FRÁ 12-16 KAUPAUKI AÐ ANDVIRÐI 500 ÞÚS. KR. · Vetrardekk · Dráttarbeisli · iPad 32 GB BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ 500 ÞÚS. KR. KAUPAUKI FYLGIR QASHQAI Þeir sem kaupa Qashqai eru að leita að fallegum fjórhjóla- drifnum bíl sem er hagkvæmur í rekstri og góður í endursölu. Qashqai eyðir einungis frá 4,6 l/100 km Qashqai 1,6 dCi beinsk. Verð: 4.990 þús. kr. Qashqai+2 1,6 dCi beinsk. 7 manna Verð: 5.390 þús. kr. Qashqai 2,0 bensín, sjálfsk. Verð: 5.790 þús. kr. Qashqai 2,0 dCi sjálfsk. Verð: 6.090 þús. kr. iPad 32GBfylgir með ásamtveglegri hlífðartösku GE bílar Reykjanesbæ www.bilahusid.is 421 8808 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 E N N E M M / S ÍA / N M 5 8 9 14 Eins og fram kom í samtali Morgunblaðsins við Bjarna Brynjólfsson, upplýsingastjóra Reykjavíkurborgar, í síðustu viku er óvíst hvenær Miðbakk- inn fer í deiliskipulag. Deiliskipulag fyrir Vestur- bugt, svæði sem afmarkast af Ánanaustum í vestri og af Slippnum í austri, er í kynningu og rennur frestur til að skila inn athugasemdum út 25. sept- ember nk. Miðbakkinn er svæð- ið austur af slippnum en það nær að húsgrunninum við Hörpu þar sem á að rísa hótel. Á milli Vesturbugtar og Mið- bakka verður svonefnd Suður- bugt en austur af Miðbakka er reiturinn Austurbakki. Vesturbugt og Miðbakki eru á aðalskipulagi borgarinnar til 2030 og gera núverandi tillögur ráð fyrir samfelldri byggð á hafnarsvæðinu frá Ánanaustum í vestri og austur að Hörpu. Á teikningunni hér til hliðar má sjá hugmyndir um að tengja fyrirhugaða byggð á Vesturbugt saman við Miðbakkann. Hluti af aðalskipulagi ÓVÍST UM TÍMASETNINGU Ljósmynd/Júlíus Vífill Fyrirmynd Júlíus Vífill horfir til markaðarins við höfnina í Seattle.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.