Morgunblaðið - 07.09.2013, Page 18
SVIÐSLJÓS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Líklega hefur sjaldan verið jafn-
mikil eftirvænting hérlendis eftir
kvikmyndasýningu en 1. septem-
ber 1930, en þann dag hófu bíó-
húsin í Reykjavík að sýna tal-
myndir í stað þöglu myndanna
sem áður höfðu ráðið ríkjum.
Gamla bíó kaus að sýna myndina
Hollywood-revíuna, þar sem boðið
var upp á söng, dans og hljóðfæra-
slátt. Var myndin auglýst sem
„skrautlegasta „revýu“-kvikmynd,
sem gerð hefir verið,“ þar sem 25
af bestu leikurum MGM-kvik-
myndaversins tóku þátt ásamt
„200 dansmeyjum og 100 manna
hljómsveit“. Nýja bíó bauð hins
vegar upp á tvær sýningar af
myndinni „Sonny Boy“ eða „The
Singing Fool,“ sem skartaði Al
Jolson í aðalhlutverki. Myndin
fylgdi eftir Jazz-söngvaranum,
fyrstu talmyndarinnar sem kom út
árið 1927 þar sem Jolson var einn-
ig í aðalhlutverki.
Vinsælasta alþýðu-
skemmtunin
Ásgrímur Sverrisson kvik-
myndagerðarmaður segir að kvik-
myndasýningar hafi verið ein
helsta skemmtun almennings í hin-
um vestræna heimi. „Þetta var
fyrir daga sjónvarps og útvarpið
rétt að koma til sögunnar, þannig
að á fyrri hluta tuttugustu aldar er
þetta vinsælasta alþýðuskemmtun-
in.“ Á þeim tíma var ódýrt að fara
í bíó þannig að fólk fór mjög oft
miðað það sem nú er. Það sem
hins vegar hafi breyst sé að fólk
nálgist nú kvikmyndað efni með
öðrum hætti.
„Þetta voru gríðarleg umskipti í
kvikmyndasögunni þegar talmynd-
irnar komu til sögunnar,“ segir
Ásgrímur og bætir við að þöglu
Kollvarp-
aði þöglu
myndunum
Talmyndir fyrst teknar til sýninga á
Íslandi í byrjun september 1930 Holly-
wood-revían og Sonny Boy fyrstu mynd-
irnar Gríðarleg umskipti þegar hljóð-
myndirnar komu í stað þeirra þöglu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013
Góð brauð - betri heilsa
Handverksbakarí í 19 ár
Dalvegi 4 - 201 Kópavogur
Hamraborg 14 - 200 Kópavogur
Opnunartími Dalvegi:
Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00
laugardaga frá 6:00 til 17:00
sunnudaga frá 7:00 til 17:00
Staða mála
og væntanlegir
kjarasamningar
RAFIÐNAÐARSAMBAND ÍSLANDS
Stórhöfða 31, sími: 580 5200, rafis.is
Fleiri fundir á landsbyggðinni
verða auglýstir þegar nær dregur
sem og á heimasíðu RSÍ.
Fundir í september 2013
Mánudagur 9. september
Neskaupsstaður kl. 12.00 Egilsbúð
Mánudagur 9. september
Egilsstaðir kl. 18.00 Hótel Hérað
Þriðjudagur 10 september
Akureyri kl. 12.00 Strikið
Fundaferð Rafiðnaðarsambands Íslands 2013
STUTT
Hálendið – hjarta landsins er yf-
irskrift verkefnis sem Landvernd
hleypti af stokkunum í Þjórs-
árverum í vikunni. Markmið verk-
efnisins er að vekja athygli á fyr-
irhuguðum framkvæmdum á
hálendi Íslands og gefa fólki kost á
að taka undir kröfu Landverndar
um að hálendinu verði hlíft.
Vefur verkefnisins hefur slóðina
hjartalandsins.is og á ensku hear-
toficeland.org. Í frétt frá Land-
vernd segir að þrátt fyrir yfirlýsta
stefnu stjórnvalda um verndun víð-
erna hafi stöðugt verið gengið á
þessi verðmæti. Enn séu uppi áætl-
anir um virkjanir, uppbyggða vegi
og raflínur á hálendinu.
Ýtt úr vör Fólk á vegum Landverndar í
Þjórsárverum, Hjartafell í bakgrunni.
Vekja athygli á
framkvæmdum
Í tilefni þess að
fulltrúar Ís-
lands, Noregs,
Færeyja og
Evrópusam-
bandsins hittast
í Reykjavík um
helgina og ræða
makríldeiluna
efna samtökin
Heimssýn til makrílhátíðar á Ing-
ólfstorgi í Reykjavík. Hátíðin verð-
ur fyrir framan skrifstofur Evrópu-
sambandsins klukkan 14-17
sunnudaginn 8. september. Boðið
verður upp á grillaðan íslenskan
makríl til þess að mótmæla fyr-
irhuguðum aðgerðum Evrópusam-
bandsins, segir í tilkynningu.
Boðið upp á makríl
Í dag, laugardaginn 7. september,
verður árviss uppskeruhátíð haldin
á Flúðum og nágrenni. Fjölbreytt
dagskrá verður í boði um alla sveit
þennan dag og allir velkomnir, seg-
ir í tilkynningu.
Lögð verður áhersla á Matarkist-
una Hrunamannahreppi en fjöl-
breytt úrval matvæla er framleitt á
þessum slóðum, grænmeti, mjólk-
urvörur, kjöt og sitthvað fleira.
Árleg uppskeruhátíð
haldin á Flúðum
Námskynning, Kilroy live 2013, verður haldin í Bíó Paradís við Hverf-
isgötu í dag, laugardaginn 7. september klukkan 13-17. Þar gefst náms-
mönnum og öðrum áhugasömum tækifæri á að kynnast 11 mismunandi há-
skólum víðsvegar í heiminum.
Einnig munu ráðgjafar Kilroy á hinum ýmsum sviðum verða á svæðinu
til að veita gagnlegar upplýsingar, t.d. um hvernig fólk kemst á íþrótta-
styrk til Bandaríkjanna, starfsnám og almennt um nám erlendis. Lána-
sjóðsfulltrúi Stúdentaráðs Háskóla Íslands mun gefa góð ráð varðandi fjár-
mögnun á háskólanámi erlendis. Baldur Ólafsson námssérfræðingur
heldur stutta kynningu á verkefninu klukkan 14.00 og aftur klukkan 15.00.
Kynning á háskólanámi erlendis
100 ÁRA