Morgunblaðið - 07.09.2013, Síða 19
myndirnar hafi þá verið einar á
sviðinu í tuttugu ár. „Menn höfðu
náð virkilega góðum tökum á því
að gera þöglar kvikmyndir, því það
að segja sögu með myndum er
náttúrulega grunnur kvikmynda.“
Það eigi enn við í dag. Myndirnar
voru þó ekki alþöglar. „Það var þó
alltaf einhvers konar hljóð með, en
það var þá oftast í formi lifandi
tónlistarflutnings á sýningum,“
segir Ásgrímur. Venjulegast spil-
aði þá einn tónlistarmaður á orgel
eða píanó eða eitthvert eitt hljóð-
færi með.
Stirð byrjun talmyndanna
„Talmyndirnar komu með auka-
vídd inn í kvikmyndaformið, bæði
tónlist sem hægt var að flytja inni
í myndunum sjálfum og samtöl á
milli fólks,“ segir Ásgrímur. Með
talmyndunum hafi því opnast ýms-
ir möguleikar en nokkur ár hafi
tekið fyrir kvikmyndagerðarmenn
að ná tökum á nýja forminu.
„Þetta var svolítið stirt og erfitt
fyrst en það er bara eðlilegt þegar
um nýja tækni er að ræða.“
Ásgrímur bendir á að ekki hafi
allir tekið nýju tækninni fegins
hendi eða talið að framtíðin lægi
þar. Hins vegar hefðu þöglu mynd-
irnar fjarað smám saman út.
„Myndmálið sem slíkt lifir hins
vegar áfram.“ Chaplin er oft
nefndur sem kvikmyndagerðar-
maður sem streittist á móti en
hann gerði ekki talmynd fyrr en
um áratug eftir að þær byrjuðu.
„Evrópumenn voru líka seinni til
að taka upp talið, sem og Japanir,“
segir Ásgrímur, en stóru mynd-
verin hefðu keyrt þróunina áfram.
Endurkoma þöglu myndanna
Á síðari árum hafa einstakir
kvikmyndagerðarmenn tekið sig til
og gert þöglar myndir eða myndir
sem fjalla um þann tíma. Ásgrímur
segir að hluta til sé verið að horfa
nú til baka á þennan tíma vegna
þess að miklar umbreytingar séu
að eiga sér stað í kvikmynda-
heiminum við það að stafræn
myndvinnsla ryður sér til rúms.
Ásgrímur nefnir þar myndir á
borð við Hugo eftir Martin Scor-
sese og The Artist, en sú mynd
vann til Óskarsverðlauna sem
besta mynd ársins 2011.
Ásgrímur hefur kennt kvik-
myndasögu um nokkra hríð og
sýnir nemendum sínum oft þöglar
myndir. Hann segir að þeir séu oft
fullir efa í fyrstu. Hann hafi gam-
an af því að sjá hversu fljótt nem-
endurnir skipta um skoðun þegar
þeir horfi á myndirnar. „Það sýnir
að það þarf ekki annað en að opna
hug sinn og þá opnast manni mjög
áhugaverður heimur.“
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Beðið eftir bíómynd Kvikmyndir eru listform tuttugustu aldarinnar og vöktu fyrstu talmyndirnar mikla athygli. Fólk beið gjarnan í löngum biðröðum til
þess að fá miða á vinsælustu myndirnar enda sýningar færri en nú á tímum. Kvikmyndasýningar í Gamla bíó voru eftirsóttar líkt og sjá má á myndinni.
19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013
Haustinu og margskonar uppskeru
verður fagnað í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum í dag, laugardaginn
7. september, þegar býbændur og
félagar í Kvenfélagasambandi Ís-
lands kynna afurðir sínar. Þá verð-
ur þetta síðasta helgin sem leik-
tækin eru opin og afsláttur af
dagpössum auk þess sem Íslands-
mót Hálandaleikanna verður haldið
sunnudaginn 8. september í garð-
inum klukkan 14.
Býbændur verða með uppskeru-
hátíð sína í garðinum líkt og und-
anfarin ár í veitingatjaldinu frá
klukkan 14:00 til 16:00. Býbændur
kynna býflugnarækt og koma með
sýnishorn af uppskeru sumarsins
en gestum gefst kostur á að smakka
hunang beint úr búi og slengt verð-
ur á staðnum. Þá geta áhugasamir
keypt sér íslenskt hunang en tak-
markað magn verður til sölu. Á
sama tíma ætlar Kvenfélag Gríms-
neshrepps að selja bakkelsi og sult-
ur ásamt því að kynna sultugerð
sína. Um er að ræða til dæmis blá-
berjahlaup, drottningarsultu, rifs-
berjahlaup, chilisultu og blandaða
sultu af ýmsum gerðum.
Morgunblaðið/Eggert
Hunang Býbændur kynna býflugnarækt í
Laugardalnum og koma með sýnishorn.
Uppskeru fagnað í
Laugardal í dag
Í Morgunblaðinu 2. september
1930 sagði að uppselt hefði ver-
ið á allar talmyndasýningarnar
daginn áður, en tvær sýningar
voru í Nýja bíói og ein í Gamla
bíói. „Á báðum bíóum mátti
finna að mikil eftirvænting var í
mönnum og að þó að fæstir hafi
skilið hvað sagt var, munu þó
allir hafa samfagnað kvik-
myndastjórunum með ný-
breytni þessa“.
Talmyndirnar voru þó ekki
bara ástæða fyrir eftirvænt-
ingu, því að á öðrum stað í
blaðinu segir frá því að hljóm-
sveitirnar sem léku undir þöglu
myndunum á kvikmyndahús-
unum fram til þessa missi „nú
auðvitað atvinnu sína þar.“ Það
mun þó ekki hafa komið að sök
því að samkvæmt fréttinni náðu
hljóðfæraleikararnir að færa sig
yfir á aðra staði, þar á meðal til
Útvarpsins sem þá stóð til að
stofna.
Mjög spenntir
en skildu lítið
BÍÓGESTIRNIR
Af forsíðu 2. september 1930
Seðlabanki Íslands
Gjaldeyrisútboð
Seðlabanki Íslands mun halda þrjú gjaldeyrisútboð 15. október 2013. Útboðin þrjú eru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum,
samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011 (http://sedlabanki.is/afnam) og skilmála Seðlabanka
Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta frá 18. nóvember 2011 með síðari breytingum
(http://sedlabanki.is/fjarfesting).
Útboð í fjárfestingarleið
-
marksfjárhæð til þátttöku í útboðshluta fjárfestingarleiðarinnar eru EUR 25.000. Fjármálafyrirtæki sem gert hafa samstarfssamning
við Seðlabanka Íslands um milligöngu munu annast framlagningu umsókna um fyrirhugaða þátttöku fjárfesta í útboðinu samkvæmt
fjárfestingarleiðinni. Það útboð er opið fjárfestum sem hafa fengið samþykkta umsókn um þátttöku í fjárfestingarleið. Frestur til að
skila inn umsóknum rennur út í dagslok 25. september n.k.
Útboð í ríkisverðbréfaleið
! "#$ %% &%'( )*
+, í ríkisverðbréfaleiðinni eru EUR 10.000. Tilteknir aðalmiðlarar á skuldabréfamarkaði hafa milligöngu um viðskipti í útboðinu gegn
greiðslu í ríkisverðbréfum.
Útboð um kaup á krónum gegn greiðslu í erlendum gjaldeyri
Seðlabanki Íslands kallar eftir tilboðum frá aðilum sem vilja selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Við-
skiptabönkum er boðið að hafa milligöngu um viðskiptin um kaup á íslenskum krónum í skiptum fyrir erlendan gjaldeyri.
Seðlabankinn áskilur sér rétt til að takmarka heildar viðskiptamagn með hliðsjón af áhrifum útboðanna á lausafjárstöðu fjármálafyrir-
tækja. Endanleg útboðsfjárhæð ræðst af þátttöku. Útboðsfyrirkomulag er með þeim hætti að öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á
sama verði (e. single price). Uppgjör viðskipta í útboðunum þremur verður 3 dögum eftir að útboði lýkur. Tilboðum skal skilað eigi
(- ! '&(% .
*
/! +
/!
0!
!
,
1
!
)
http://sedlabanki.is/utbod.
Stefnt er að næsta útboði 3. desember 2013.
Nánari upplýsingar veita milligönguaðilar, aðalmiðlarar og viðskiptabankar.