Morgunblaðið - 07.09.2013, Page 20
höfðu verið í meirihluta í 20 ár en
misstu einungis einn mann í þessum
kosningum.“ Ármann segir að í
raun hafi það verið nýju framboðin
sem hafi náð inn á kostnað Sjálf-
VIÐTAL
Stefán G. Sveinsson
sgs@mbl.is
Þegar meirihlutinn í Kópavogi
sprakk með látum í ársbyrjun 2012
kom það í hlut Ármanns Kr. Ólafs-
sonar, oddvita Sjálfstæðisflokksins,
að setjast í bæjarstjórastólinn.
Ármann hafði verið virkur í
stjórnmálum, setið í stjórn og
framkvæmdastjórn Sambands
ungra sjálfstæðismanna og verið
aðstoðarmaður ráðherra. Hann
segir ákvörðunina um að fara í
bæjarmálin hafa verið eðlilegt
framhald af því. „Ég var til-
tölulega nýfluttur í Kópavog eftir
að hafa búið í Reykjavík á há-
skólaárunum. Þessi mikli og
skemmtilegi bæjarbragur í Kópa-
vogi kom mér strax á óvart og mig
langaði til að taka þátt í þeirri
uppbyggingu sem hér var,“ segir
Ármann en vinir hans og kunn-
ingjar hvöttu hann til þess að fara
í prófkjör fyrir sveitarstjórn-
arkosningarnar 1998.
Sú ákvörðun bar árangur því að
Ármann komst í efstu sætin og í
bæjarstjórn, þar sem hann hefur
verið síðan; hann sat einnig á Al-
þingi 2007 til 2009. Á þeim tíma
höfðu Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sóknarflokkur stjórnað Kópavogi í
tvö kjörtímabil frá 1990 og héldu
þeir um stjórnartaumana í tvo ára-
tugi, eða fram til síðustu bæj-
arstjórnarkosninga. Við tók nýr
meirihluti fjögurra framboða.
„Það er athyglisvert að Sjálfstæð-
isflokkur og Framsóknarflokkur
stæðisflokks og Samfylkingar, sem
einnig tapaði manni í kosningunum.
„Þá kom þessi túlkun Samfylking-
arinnar um að við hefðum verið kos-
in í burtu en þegar litið er á málin
er ekki hægt að túlka úrslitin þann-
ig að Samfylkingin hefði verið köll-
uð til valda, því áfram var Sjálf-
stæðisflokkurinn stærsti
flokkurinn.“
Gekk á ýmsu
Á ýmsu gekk í samstarfi nýja
meirihlutans áður en hann sprakk
að endingu í ársbyrjun 2012. „Þessi
ósamstæði fjögurra flokka meiri-
hluti sprakk á 20 mánuðum án þess
að gefnar væru trúverðugar skýr-
ingar á því eða ástæður uppsagnar
þáverandi bæjarstjóra,“ segir Ár-
mann. Í kjölfarið þurfti að koma
saman starfhæfum meirihluta. Ár-
mann segir að það hafi verið tölu-
verð áskorun en nokkrar vikur liðu
áður en nýi meirihlutinn tók við.
„Ýmislegt var reynt í þeirri vegferð.
Mörg tækifæri
fyrir Kópavog
í framtíðinni
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013
Lögreglan á Suð-
urnesjum handtók
í vikunni tæplega
tvítugan karlmann
í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar eftir
að hann hafði
reynt að smygla
kannabisfræjum
til landsins. Toll-
verðir stöðvuðu
manninn í flug-
stöðinni, en hann
var að koma frá Berlín og reyndist
vera með rúmlega 200 kannabisfræ
í fórum sínum. Hann var að færður
á lögreglustöð og tekin af honum
skýrsla.
Með fíkniefni í fórum sínum
Lögreglan á Suðurnesjum hand-
tók í vikunni þrjá karlmenn, sem
allir voru með fíkniefni í fórum sín-
um. Einn þeirra var með tóbaks-
blandað kannabis á stofuborðinu,
annar geymdi lítilræði af amfeta-
míni í ísskáp og hinn þriðji ræktaði
kannabis í þvottahúsinu.
Reyndi að smygla
kannabisfræjumFALLEGAR HAUSTVÖRUR
Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | Sími 551 6646
Opið virka daga frá 10-18
„Ég hef lagt til við menntamálaráðherra að Náttúruminjasafn Íslands
verði í Kópavogi og sameinist Náttúrufræðistofu Kópavogs og verði þar
undir sama þaki,“ segir Ármann Kr. Ólafsson. „Náttúrufræðistofa Kópa-
vogs, sem er eina alhliða náttúrugripasafnið á höfuðborgarsvæðinu, er í
nýju og sérhönnuðu húsnæði og yrði mikil hagræðing af því fyrir alla að
flytja náttúruminjasafnið þangað. Hægt væri að rýma betur til fyrir því
með því að flytja Bókasafn Kópavogs nær Smáralind. Ég held það myndi
þjóna bæjarbúum betur að hafa bókasafnið þar.“
Vill sameina náttúruminjasöfn
HAGRÆÐING