Morgunblaðið - 07.09.2013, Page 22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Stútfullar skyrdósir, ávalir ostar,
hnausþykkur þeytirjómi og belg-
miklar mjólkurfernur renna senn
um færibönd verksmiðjuhúsnæðis
við höfnina í Bolungarvík sem hýsti
áður rækjuverksmiðjuna Kampa.
Mjólkurvinnslan Arna hyggur
þar á framleiðslu á laktósafríum
mjólkurvörum, áætlað er að hún
hefjist í næstu viku og mun hráefn-
ið koma frá vestfirskum kúm.
Gangi áætlanir eftir verður fram-
leitt úr um einni og hálfri milljón
lítra á ári og margar nýjungar
munu líta dagsins ljós. Fyrstu vik-
urnar verður framleiðslan einungis
seld á norðanverðum Vestfjörðum,
en innan skamms verður hún fáan-
leg um allt land.
„Eftir þrjú ár áætlum við að
geta unnið úr allri þeirri mjólk sem
framleidd er á svæðinu, sem er um
1,5-1,7 milljón lítrar á hverju ári,“
segir Hálfdán Óskarsson, mjólk-
urtæknifræðingur og einn af eig-
endum Örnu. „Þetta verður eins
vestfirskt og hægt er.“
Hálfdán segist búast við að
framleiðslunni verði tekið fagnandi
„Það er áætlað að 5-10%, þjóð-
arinnar, eða 15.000-30.000 manns,
séu með mjólkuróþol. Þessu til við-
bótar eru margir sem ekki vilja
laktósa af ýmsum ástæðum.“
Laktósafríir ostar
Til að byrja með er búist við
að fimm til sex starfi við fram-
leiðsluna, en þegar ostagerðin
verður komin á fullt skrið er gert
ráð fyrir 10 til 11 starfsmönnum.
Það verður væntanlega á næsta ári
og þá munu ýmsar nýjungar í ís-
lenskri ostaframleiðslu líta dagsins
ljós, að sögn Hálfdánar. Hann er
ófáanlegur til að nefna einstakar
ostategundir, en segir að horft
verði til matargerðar Miðjarð-
arhafslandanna við framleiðsluna.
Hvers vegna varð Bolungarvík
fyrir valinu? „Við vildum vera á
Vestfjörðunum, en það er ekki
mikið um húsnæði á svæðinu sem
hentar undir starfsemi sem þessa.
Kampamenn voru allir af vilja
gerðir til að hjálpa okkur og því er-
um við hér.“
Nostrað við Nettmjólkina
Spurður um hvort nýrra
bragðtegunda í skyr- og jóg-
úrtdósum sé að vænta segir Hálf-
dán að svo verði líklega þegar líður
á. „Við höfum áhuga á að koma Ís-
lendingum á nýtt og spennandi
bragð.“
Tekið er á móti mjólkinni í
mjólkurmóttöku og þaðan er henni
dælt inn í vinnslusalinn, þar sem
hægt er að vinna um 5.000 lítra á
klukkustund. Mjólkin fer í ger-
ilsneyðingu og síðan í skilvindu og í
fitusprengingu ef verið er að fram-
leiða mjólk, en hún kallast Nett-
mjólk og er fitusnauð.
Morgunblaðið/Kristinn
Vestfirsk mjólk Feðgarnir Hálfdán Óskarsson og Óskar Hálfdánarson standa að Örnu ásamt fleirum.
Mjólk, ostar og skyr
úr vestfirskri mjólk
Ný mjólkurvinnsla í Bolungarvík framleiðir Nettmjólk
Bolvíkingurinn Snævar Sölvi Sölvason venti kvæði sínu í kross fyrir nokkru,
sagði upp starfi sínu í fjármálageiranum og hóf nám í leikstjórn og handrita-
gerð í Kvikmyndaskóla Íslands. Hann hefur nú gert tvær kvikmyndir, sem báð-
ar voru teknar í Bolungarvík og segir bæinn og umhverfi hans kjöraðstæður
fyrir kvikmyndagerð. „Ég sýndi fyrri myndina mína, Slay Masters í Félagsheim-
ilinu í Bolungarvík í fyrra og hef líka verið að selja hana á DVD fyrir vestan.“
Myndin fjallar um unga menn sem starfa við að slægja fisk og fýsir mjög að
komast á dansleik.
Í sumar tók Snævar aðra mynd í Bolungarvík, Albatross, sem skartar Bolvík-
ingnum Pálma Gestssyni í aðalhlutverki. Þar er fjallað um ungan og áttavilltan
mann sem eltir kærustuna sína vestur. Hann fer að vinna á golfvellinum í bæn-
um og eru samskipti hans við samstarfsmenn kostuleg. Myndin er í eftir-
vinnslu núna og verður líklega sýnd snemma á næsta ári.
Spurður hvort Bolungarvík henti vel til kvikmyndagerðar segir Snævar Sölvi
svo vera: „Þarna er allt; umhverfið og fólkið. Þarna fæ ég hugmyndirnar mín-
ar.“ annalilja@mbl.is
Leikstjórinn Sævar Sölvi hefur tekið tvær kvikmyndir í Bolungarvík.
Snævar Sölvi fær góðar
hugmyndir í Bolungarvík
Á lofti Bjarnabúðar er fyrsta bað-
karið sem barst til Bolungarvíkur.
Baðkarið var í eigu Bjarna Eiríks-
sonar kaupmanns sem Bjarnabúð er
nefnd eftir.
Bjarni bjó á efri hæðum húss
Bjarnabúðar í vel búinni kaupmanns-
íbúð með fjölskyldu sinni. Þar eru nú
geymslur verslunarinnar og að auki
eru þar varðveittir ýmsir munir úr
tæplega 100 ára sögu hennar.
Til dæmis er þar geymt bókhald
verslunarinnar og forláta skápur
geymir gamla hlífðarsloppa sem var
vinnuklæðnaður verslunarfólks á ár-
um áður.
Morgunblaðið/Kristinn
Baðkar Fyrsta baðkarið í Bolungarvík
var í eigu Bjarna í Bjarnabúð.
Baðkar Bjarna
kaupmanns
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Líklega er það klisja þegar því er
haldið fram að tíminn hafi staðið í
stað á einhverjum tilteknum stað.
Sums staðar á það þó við. Bjarnabúð
á Bolungarvík er einn þessara staða,
en þar er rekin ein elsta verslun
landsins. „Sameinaða versl-
unarfélagið flutti þetta hús hingað
til landsins árið 1920. Eftir að það
fór á hausinn keypti Bjarni Eiríks-
son reksturinn og ég er þriðji eig-
andinn að versluninni,“ segir Stef-
anía Birgisdóttir
Hún hefur rekið verslunina
ásamt eiginmanni sínum, Olgeiri
Hávarðssyni, síðan í byrjun árs 1996.
„Ég tel mig vera að halda í ákveðin
menningarverðmæti með því að
halda versluninni opinni. Þetta er
gríðarlega mikil vinna og ég veit svo
sem ekki hvort einhver annar væri
tilbúinn að reka svona verslun hérna
í bænum. Maður þarf að vera með
rétta hugarfarið í svona rekstri.“
Hvaða hugarfar er það? „Það er
að hafa gaman af vinnunni.“ Finnst
þér gaman í vinnunni? „Já, mér
finnst almennt gaman í vinnunni.
Fólk kemur mikið hingað til að
spjalla og ferðafólk lítur mikið inn,
ferðamönnum hefur fjölgað mikið
frá því að göngin voru opnuð. Ég
vanda mig við að halda rekstrinum í
gamla stílnum. Það er ekki erfitt ef
maður er meðvitaður um það. Fyrir
um tíu árum var ég að velta fyrir
mér að gera búðina nýtískulegri, en
sem betur fer hafði ég vit á að hætta
við það.“
Bjarnabúð var breytt í kjörbúð
um 1960 og var að sögn Stefaníu ein
fyrsta kjörbúð landsins utan Reykja-
víkur. Hún strýkur búðarborðið hlý-
lega. „Þetta borð var keypt við það
tilefni og það hafa margir Bolvík-
ingar strokið.“
Allt á einum stað í Bjarnabúð
Og það sést vel. Málningin á
borðinu er máð eftir hendur bæj-
arbúa en Stefanía segir ekki koma
til greina að mála nýja umferð.
„Þetta borð segir svo margt.“
Margt fæst í Bjarnabúð. Mat-
vara, fatnaður, skólavörur, gjafa-
vörur, bækur og garn. Allt á einum
stað. Sem hlýtur að vera kostur fyrir
önnum kafið nútímafólk.
Í Bjarnabúð er einnig leitast við
eftir föngum að selja matvöru úr
héraði. Þar fæst saltfiskur, fiskur,
rækja, hnoðmör og harðfiskur úr
bænum. Þá er selt bakkelsi frá bak-
aranum á staðnum.
Það kemst býsna mikið fyrir í
Bjarnabúð. „Já, hún tekur lengi við.
Ætli hún sé ekki töluvert stærri að
innan en utan.“
Bjarnabúð er
stærri að inn-
an en að utan
Ein elsta kjörbúð landsins
er starfrækt í Bolungarvík Morgunblaðið/KristinnKaupmennirnir Stefanía og Olgeir við búðarborðið.
Morgunblaðið/Kristinn
Gamaldags Auglýsingar úr fortíð.
VESTFIRÐIR
DAGA
HRINGFERÐ
BOLUNGARVÍK
Grunnkort/Loftmyndir ehf.