Morgunblaðið - 07.09.2013, Page 23
Enginn mjólkursykur Arna mun framleiða ýmsar mjólkurvörur án laktósa.
Að þessu loknu fer mjólkin í
tanka þar sem mjólkursykurinn er
brotinn niður og tekur það ferli allt
að 48 klukkustundir. „Ferlið hjá
okkur er nokkuð lengra en venju-
lega, það sem tekur eina klukku-
stund í hefðbundinni mjólk-
urvinnslu tekur okkur tvo
sólarhringa. Það er meiri hand-
verksvinnsla hjá okkur heldur en
hjá stærri aðilum. Við viljum geta
nostrað við framleiðsluna okkar.“
Gamalt og gott í poka
Hægt verður að pakka 3.000
dósum af skyri eða jógúrti á
klukkustund þegar framleiðslan
verður komin á fullt skrið. Reynd-
ar verður skyrið líka selt upp á
gamla mátann, í pokum. „Það er
þetta gamla góða íslenska skyr,
sem sumir vilja kalla ekta skyr. Og
nú er það laktósafrítt.“
Spurður um nafn fyrirtæk-
isins, Arna, segist Hálfdán áður
hafa rekið fyrirtæki með þessu
nafni. Reyndar sé þetta nafn dótt-
ur hans og það hafi reynst honum
vel að nota það í rekstri. „Annars
er þetta er bara fínt nafn á mjólk-
urvinnslu. Stutt og skemmtilegt.“
Framleiðslusalur Starfsemi Mjólkurvinnslunnar Örnu er í fyrrverandi vinnslusal rækjuverksmiðjunnar Kampa við
höfnina í Bolungarvík og mun framleiðsla á ýmsum mjólkurvörum væntanlega hefjast þar í næstu viku.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013
„Mér þykir vænt um Skólastíg-
inn. Ég geng þar oft upp og
niður og þarna var skólinn
minn,“ segir Magnús Sig-
urjónsson, múrari í Bolung-
arvík.
Skólastígur dregur nafn sitt
af því að þar stóð áður barna-
skóli Bolungarvíkur. Í því húsi
er tónlistarskóli bæjarins núna
starfræktur. „Ætli skólahúsið
hafi ekki verið byggt 1908 og
ég gekk í þennan skóla árin
1962-1965, en þá var hann flutt-
ur í nýrra hús,“ segir Magnús.
Magnús á djúpar rætur í Bol-
ungarvík, en forfeður hans
settust þar að á öldum áður.
„Ætt mín hefur búið hérna í
Bolungarvík í um það bil 500
ár,“ segir Magnús sem lætur
vel af búsetu sinni í Bolung-
arvík.
Samkvæmt götukorti eru 37
götur í Bolungarvík. Aðalstræti
er, eins og nafnið gefur til
kynna, aðalgata bæjarins og
liggur í gegnum hann. Að-
alstræti tekur við af Þuríðar-
braut sem liggur til Ísafjarðar.
Göturnar næst höfninni bera
nöfn henni tengd; t.d. Brim-
brjótsgata, Hafnargata, Sjáv-
arbraut og Mávakambur.
Gatan mín Skólastígur
Morgunblaðið/Kristinn
Skólastígur Gatan er í uppáhaldi hjá Magnúsi Sigurjónssyni.
Á djúpar rætur
í Bolungarvík
Þegar mjólk er gerð laktósafrí er hún blönduð
ensímum sem brjóta laktósann, eða mjólk-
ursykurinn niður. Hálfdán segir engin bæti-
efni tapast við þessa vinnslu og að auki sé
minni viðbætts sykurs þörf en í hefðbundnum
mjólkurvörum.
„Þegar mjólkursykurinn er brotinn niður,
myndast sæta í mjólkinni þannig að okkar
vörur eru 30% sykurminni en hefðbundnar
mjólkurvörur,“ segir Hálfdán.
Minni sykur
ENSÍM BRJÓTA NIÐUR MJÓLKURSYKURINN
Mjólk Ensím brjóta mjólkur-
sykurinn í henni niður.
Skannaðu kóðann
til að horfa á
myndskeið með
fréttinni
Næsti viðkomustaður 100
daga hringferðar Morg-
unblaðsins er Flateyri.
Á mánudaginn
Nyrsti
bærinn á
Vestfjörðum
Bolungarvík er um 900 manna bær sem stendur við utanvert
Ísafjarðardjúp að sunnan og liggur vel að fiskimiðum í utan-
verðu Ísafjarðardjúpi. Í Landnámabók segir að Þuríður
sundafyllir hafi numið land í Bolungarvík. Frá Bolungarvík
hefur verið útræði allt frá landnámsöld og var þar öldum
saman ein stærsta verstöð landsins.
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Venta sófasett og glerborð
Tímalaus hönnun sem hentar hvar sem er
www.facebook.com/solohusgogn
Íslensk hönnun og framleiðsla
Hönnuður:
Sturla Már
Jónsson
Verð: Stóll 98.000
2 sæta sófi 169.000
Borð 58.000
Verð m.v. ullaráklæði.