Morgunblaðið - 07.09.2013, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013
VIÐTAL
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Gísla Hjálmtýssyni, framkvæmda-
stjóra Thule Investments, þykir um-
fjöllun Kastljóss á mánudag og
þriðjudag um málefni tengd honum
ósanngjörn. „Þar var reynt að gera
starfsemi Thule tortryggilega með
margvíslegum hætti en hvergi þó ýj-
að að brotum á lögum, reglum, gerð-
um samningum eða neinu sem talist
geta ámælisverðir viðskiptahættir,“
segir hann.
Thule Investments rekur fagfjár-
festasjóði, þar á meðal Brú 2, sem
sérhæfa sig í nýjum fyrirtækjum, og
hefur komið að um 60 íslenskum
sprotafyrirtækjum, þar á meðal
CCP, Caoz og Betware.
Kastljós fjallaði um Thule og Brú
2, sem skráð er í Lúxemborg, og
tvær fjárfestingar sjóðsins: Blue
Wave, sem rekur úthafsveiðiskip og
stundar veiðar við vesturströnd Afr-
íku, og Leikhúsmógúlinn, sem setur
upp leikrit víða og á sýningarréttinn
að einleiknum Hellisbúanum. Fyrir
skömmu var Blue Wave selt. Eign-
arhald útgerðarfélaganna tveggja er
í svokallaðri skattaparadís. „Þeim
sem ekki eru vanir alþjóðlegum fjár-
festingum kann að þykja eignarhald-
ið flókið og loðið en þannig er mál
með vexti að þetta er alvanalegt fyr-
irkomulag í framtaksfjárfestingum.
Það er mikill misskilningur að milli-
félög séu sett upp í annarlegum til-
gangi.
Það er fernt sem fjárfestar leitast
eftir með því að setja upp þessi félög.
Í fyrsta lagi að aðskilja áhættu. Eign-
arhald á rekstri útgerðarfélagsins og
skipsins var í tveimur félögum til að
aðskilja rekstraráhættuna frá eign-
inni. Það er gert með hagsmuni fjár-
festa Brú 2 í huga.
Í öðru lagi er verið að sækja í
fyrsta flokks löggjöf. Delaware lagði
upp með það fyrir fáeinum áratugum
að þar sé besta löggjöfin til að reka
fyrirtæki. Þar er mikill sveigjanleiki
og t.d. ekkert samhengi á milli
ábyrgðar hluthafa og hvernig skatta-
málum er háttað, líkt og er hér á
landi.
Í þriðja lagi er það misskilningur
að þessi félög séu einungis notuð til
að forðast skatta. Hafa verður hug-
fast að félögin borga skatta þar sem
þau hafa sína starfsstöð. Hún þarf
ekki að vera þar sem eignarhalds-
félagið er staðsett. En svo verður líka
að hafa hugfast, að það eru ekki
hagsmunir lífeyrissjóða sem lögðu fé
í sjóðinn að vera margskattlagðir
vegna þess að þeir eru að fjárfesta í
alþjóðlegu umhverfi.
Í fjórða lagi þá er verið að sækjast
eftir stöðugleika. Félögin eru sett
upp til tíu ára og rekstur þeirra er
samkvæmt ítarlegum stofnskjölum
sem er erfitt að breyta eftir á. Þess
vegna er mikilvægt að félögin séu
skráð þar sem mikill stöðugleiki
ríkir.“
Lögðu 600 milljónir í Blue Wave
- Fram kom í Kastljósi að fjárfest-
ingin í Blue Wave hafi ekki gengið
vel. Hvað var hún stór?
„Brú 2 lagði um 600 milljónir
króna í Blue Wave. Það er rangt að
gefa í skyn að meira en einn millj-
arður hafi tapast og sú fjárhæð nemi
fjórðung af stærð sjóðsins. Sjóðurinn
má einungis leggja 10% af fjárfest-
ingarloforðum sínum í hverja fjár-
festingu. Ég reikna með að fjárfest-
ingin muni skila sér að einhverju
leyti til baka en kaupverðið byggist á
rekstrarárangri nýrra eigenda,“
segir hann.
Gísli bendir á að Brú 2 fjárfesti í
nýjum fyrirtækjum og eðli málsins
samkvæmt komist þau ekki öll á
legg. Hjá þekktu fjárfestingarfélagi í
Silíkondal, sem fjárfestir í nýsköpun,
þá ganga upp 22% af fjárfestingum
þess. „Við skulum því gera raunhæf-
ar væntingar til Thule,“ segir hann.
- Passar fjárfesting í útgerð við
fjárfestingarstefnu Brú 2, en þar eru
flest fyrirtækin tæknifyrirtæki?
„Já, tvímælalaust. Blue Wave not-
ar nýjustu tækni frá Íslandi, er stofn-
að af Íslendingum, réð íslenska sér-
fræðinga til starfa og hafði erlendar
tekjur. Við höfum fjárfest í fyrir-
tækjum sem eru ekki hreinræktuð
tölvufyrirtæki. Má þar nefna Leik-
húsmógúlinn sem framleiðir leiksýn-
ingar og Caoz sem býr til teikni-
myndir.
Fjárfestingarráð Thule fór yfir
fjárfestinguna í Blue Wave og hafði
mikinn áhuga á útgerðinni. Við töld-
um að fyrirtækið gæti verið með
stöðugt tekjuflæði sem myndi
treysta eignasafn sjóðsins.“
Vélin bræddi tvisvar úr sér
Rekstur Blue Wave gekk ekki sem
skyldi vegna þess að vél skipsins
bræddi tvisvar úr sér. „Það er ekki
eðlilegt að missa sveifarás tvisvar
sinnum á sex árum. Þetta var mikið
tjón og litaði afkomuna. Hvort tjón
um sig nemur tæpum milljarði. Við
vorum reyndar betur tryggð í seinna
skiptið. Þess á milli gekk reksturinn
vel.
Í fyrra skiptið þegar vélin bræddi
úr sér, barðist félagið í bökkum en
Starfsemi Thule
gerð „tortryggileg“
Gísla Hjálmtýssyni, framkvæmdastjóra Thule Invest-
ments, þykir ómaklega að sér vegið Munar 800 milljónum í
deilu hluthafa Leikhúsmógúlsins Erfiðleikar í útgerð
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
SPÖNGIN GRAFARVOGI - SÍMI 577 1660
Hjarta úr hvítagulli
25 punkta demantur
99.000,-
Demantssnúra
9 punkta demantur, 14K
57.000,-
Demantssnúra
30 punkta demantur, 14K
157.000,-
- örugg bifreiðaskoðun um allt land
Veist þú hvar myndin er tekin?
Myndin hér að ofan er samsett og tekin á tvemur stöðum.
Veist þú hvaða staðir það eru? Reyndu á kunnáttu þína og berðu
saman við rétt svar sem þú finnur á www. frumherji.is
Skeikaðu ekki á skoðun
Örugg bifreið veitir betri akstur
SEPT.
SKOÐUN
ARMÁN
9