Morgunblaðið - 07.09.2013, Síða 29

Morgunblaðið - 07.09.2013, Síða 29
29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013 Tröllslegt kvöldbrim Engu var líkara en tröll hvíldi lúin bein í tignarlegu kvöldbriminu í kalsalegu haustveðri. Greina má munn og nef kynjaverunnar sem vísa upp í vindinn. RAX Reykjavík er höfuðborg allra landsmanna og því eðlilegt að þeir láti í sér heyra þegar fjallað er um grundvallarþætti í skipu- lagi borgarinnar. Borgaryfirvöld áforma að ganga svo nærri flug- vellinum í Vatnsmýri að hann verði óstarfhæfur á allra næstu árum. Þó hefur alls ekki verið leyst úr hvað komið geti í stað hans. Borgaryfirvöld verða að end- urmeta afstöðu sína til flugvall- armálsins og sýna landsmönnum öllum að Reykjavík sem höfuðborg landsins virði þá skoðun landsmanna að þar sé starfs- ræktur flugvöllur sem gegnir óumdeilanlega lykilhlutverki sem miðstöð sjúkra- og innan- landsflugs. Rökstuddum ábendingum um að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni hefur til þessa því miður verið mætt með viðbragði sem strútar eru þekktari fyrir en skynsamir stjórnendur. Dæmið um flugvöllinn er því miður ekki það eina um óvið- unandi vinnu í skipulagsmálum borgaryfirvalda. Á grannsvæði Seltirninga, við Vesturhöfnina, nálægt Slippn- um og Grandanum, er eitt af alvarlegri dæm- unum um ríkjandi óraunsæi og tillitsleysi. Þarna liggur Mýrargata, sem margir Seltirn- ingar eiga óhjákvæmilega leið um oft á dag, og því eðlilegt að þeir láti sig þróun svæðisins miklu skipta. Vaxandi fjöldi atvinnufyrirtækja er á svæð- inu, að ógleymdu olíugeymasvæði höfuðborg- arinnar í Örfirisey, sem margir tugir olíu- flutningabíla aka frá og til með farm sinn hvern virkan dag. Hringbraut þolir illa meiri umferð. Þreng- ingar á helstu umferðargötum í nærliggjandi hverfum, sem hluti gegnumferðar gæti færst til, t.d. hinar umdeildu breytingar Hofs- vallagötu, spilla enn frekar fyrir. Tryggja verður að borgarbúar komist greiðlega á milli borgarhluta og neyðarrým- ing borgarhverfa verður einnig að vera fram- kvæmanleg, þótt vonað sé í lengstu lög að til slíkra aðstæðna komi ekki. Núverandi áform borgaryfirvalda auðvelda ekki bílaumferð um Mýrargötu heldur þvert á móti þrengja að henni. Hér skal heitið á forystumenn höfuðborg- arinnar að þeir bregðist ekki hlutverki sínu, taki tillit til framkominna ábendinga og at- hugasemda og færi skipulagsmálin inn á raunsærri, tillitssamari og farsælli braut. Eftir Ásgerði Halldórsdóttur »Dæmið um flugvöllinn er því miður ekki það eina um óviðunandi vinnu í skipulags- málum borgaryfirvalda. Ásgerður Halldórsdóttir Höfundur er bæjarstjóri á Seltjarnarnesi. Óraunsæi í skipulagsmálum borgaryfirvalda Við horfum björtum augum til framtíðar. Eftir langa eyðimerk- urgöngu er loksins uppgangur innan kvikmyndagreinarinnar. Á þessu ári tvöfölduðust fram- lög til Kvikmyndasjóðs í gegn- um fjárfestingaráætlun og til að svara auknum umsvifum var stefnt að því að fjárfesting ykist enn frekar til ársins 2015. Þessi aukning var ekki úr lausu lofti gripin. Þverpólitísk samstaða varð í framhaldi af opinberum rannsóknum, skýrslugerðum og bókaskrifum sem leiddu í ljós mikil hagræn áhrif kvik- myndagerðar. Fulltrúar allra flokka á Al- þingi fóru í pontu og lýstu yfir þeirri skoðun sinni að auka þyrfti framlög til fjársveltrar atvinnugreinar sem væri í örum vexti. Afleið- ingar þessa eru m.a að hátt í fjórðungs veltu- aukning frá fyrra ári varð í greininni á fyrstu fjórum mán- uðum ársins og á árinu hafa orðið til um 240 ný ársverk. Þetta skilar sér í rúmlega 1.200 milljónum í beinar tekjur til rík- issjóðs. Íslensk kvikmyndagerð skap- ar ekki bara atvinnu heldur er einnig gjaldeyrisskapandi. Rúm- ur milljarður í kvikmyndasjóð dregur að sér annað eins í er- lendu fjármagni enda rekur greinin sig að stórum hluta á því sem íslenskir kvikmynda- gerðarmenn draga inn í landið eftir að frum- stuðningur kemur að heiman. Þessi aukna fjárfesting hjálpar einnig til við að svara þeirri aðkallandi þörf að hlutur kvenna verði aukinn, átak verði gert í framleiðslu á efni fyrir börn og unglinga og búið verði í haginn fyrir nýliðun. En einnig er mikilvægt að komið hefur verið í veg fyrir frekari atgerv- isflótta eftir að talsvert varð um að lykilfólk innan greinarinnar flytti utan hin mögru ár í kjölfar stóra niðurskurðarins 2010. Íslensk kvikmyndagerð hefur slitið barns- skónum og er sú atvinnugrein, ásamt ferða- þjónustu, sem er í hvað örustum vexti enda eru þessar tvær greinar samtengdar. Stór hluti þeirra ferðamanna, sem hingað koma, tilgreinir kynni sín af menningu og listum sem meginástæðu fyrir heimsókn sinni. Stærstur hluti þeirra íslensku mynda sem framleiddar eru fer á virtustu kvikmyndahá- tíðir heims þar sem margar hverjar hljóta verðlaun og viðurkenningar og íslenskir kvikmyndagerðarmenn vekja í sífellt meira mæli athygli á landi og þjóð á erlendri grundu. Baltasar Kormákur átti nýverið mynd í efsta sæti vinsældalistans í Banda- ríkjunum og Guðmundur Arnar Guðmunds- son fékk verðlaun fyrir stuttmynd sína Hval- fjörður á Cannes nú í vor. Hann bankar á dyrnar með að gera sína fyrstu mynd í fullri lengd, sem og margir efnilegir ungir leik- stjórar er vakið hafa mikla athygli eins og Ása Helga Hjörleifsdóttir, Ísold Uggadóttir og fleiri. Aukin fjárfesting er frábær. En betur má ef duga skal. Mörg aðkallandi verkefni eru framundan og það er von mín að núverandi ríkisstjórn auki fjárfestingu og framlög til kvikmyndagerðar umfram það sem nú er. Það er allra hagur, hvort sem er í efnahags- eða menningarlegu tilliti. Eftir Ragnar Bragason » Aukin fjárfesting ríkisins í íslenskri kvikmyndagerð skilar miklum verðmætum og hagræn áhrif eru ótvíræð. Ragnar Bragason Höfundur er formaður Samtaka íslenskra kvikmyndaleikstjóra. Ákall um aukna fjárfestingu í íslenskri menningu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.