Morgunblaðið - 07.09.2013, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 07.09.2013, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013 Keflavík María Carmen fæddist 11. desember. Hún vó 3.060 g og 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Vala heiða Guðbjartsdóttir og Sigurður Jóhann Jónasson. Nýir borgarar Ég er ekkert sérstaklega duglegur við afmælishald, en viðætlum að fá okkur eitthvað gott að borða í tilefni dagsins,með foreldrunum og unga fólkinu okkar. Við notum þá kannski tækifærið til að ræða fjölskylduferð í berjamó á næstunni, eins og við höfum oft farið undanfarin haust,“ segir Kristinn en hann óttast að berjasprettan sé með lakara móti hér sunnanlands í ár. „Vonandi náum við samt sæmilegum berjum áður en fer að frysta.“ Afmælið markar að jafnaði upphafið að haustinu og verkefnum vetrarins hjá Kristni en honum þykir þó haustið hafa komið held- ur snemma í ár og af meiri krafti en oft áður. „Hvernig sem viðr- ar er nóg að gera hjá mér því auk starfa minna að rannsóknum og þróun hjá Marel sinni ég formennsku í Verkfræðingafélagi Íslands og sit að auki í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, svo það er í ýmis horn að líta í vetur.“ Kristinn segist þá hlakka til að hitta gamlan skólafélaga þeirra hjóna frá því á námsárunum í Bandaríkjunum. „Hann lifir á því að gleypa sverð ofan í maga og sýna þá list. Satt best að segja þá veit ég ekki hvort sverðagleypinum sé hollt að sofa á mjúkri dýnu eða harðri ef hann gistir hjá okkur, en honum verður vonandi ekki meint af.“ Kristinn Andersen er 55 ára í dag Hjónin Kristinn Andersen og eiginkona hans Erla Halldórsdóttir njóta sín vel í sólinni en ætla fljótlega í berjamó í kuldanum heima. Afmælið markar upphaf haustsins Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Elna Þórarins- dóttir verður sjötug á morg- un, 8. sept- ember. Hún hef- ur starfað við fyrirtækja- rekstur og síðan sem verslun- arstjóri í verslun hjá Hrafnistu í Hafn- arfirði. Elna hefur sungið í mörgum kórum og syngur núna í Kór Lágafells- kirkju. Hún ólst upp í Vesturbænum í Reykjavík og er búsett í Mosfellsbæ ásamt eiginmanni sínum Baldvini E.A. Albertssyni. Þau eiga sex börn og 14 barnabörn. Elna heldur upp á afmælið með fjölskyldu sinni. Árnað heilla 70 ára H ope fæddist í Brooklyn í New York City í Bandaríkjum 8.9. 1943 og ólst upp í Bro- oklyn. Hún lauk BA- prófi í sálfræði og heimspeki frá Bro- oklyn College - City University of New York 1964, og Mastersprófi í iðjuþjálfun frá Columbia University í New York 1967. Hope var geðiðjuþjálfi, yfiriðju- þjálfi og handleiðari við Bronx fylk- is-geðsjúkrahús í New York City 1968 -74, kenndi iðjuþjálfun við iðju- þjálfanámsbraut við Columbia Uni- versity 1971-74 og hafði umsjón með öllum iðjuþjálfanemum í verknámi við Bronx geðsjúkrahúsið. Formaður Siðmenntar frá 1997 Hope flutti til Íslands 1974 og hef- ur verið hér búsett síðan. Hún var iðjuþjálfi á Kleppsspítalanum 1974- 77, einn af stofnendum Iðjuþjálfa- félags Íslands 1976 og formaður Iðju- Hope Knútsson, formaður Siðmenntar – 70 ára Verðlaunahafar Siðmenntar 2010 Hope, ásamt Herði Torfasyni og Ara Trausta Guðmundssyni. Bjartsýn baráttukona Hjónin Hope og Einar Knútsson flugvirki og flug-vélstjóri. Þórlaug Ágústsdóttir er fertug í dag, 7. sept- ember. Hún fagnar af- mæli sínu (7- 9-13) og nýt- ur tímamót- anna með vinum og velunnurum á heimili sínu milli kl. 17 og 19. 40 ára Edvard Júl- íusson, fyrrver- andi skipstjóri og útgerðar- maður í Grinda- vík, er áttræður í dag, 7. sept- ember. Hann hóf ungur sjó- mannsstörf, og var einn af þremur stofnendum Hópsness ehf. í Grinda- vík og framkvæmdastjóri þess. Edv- ard sat í bæjarstjórn Grindavíkur í 12 ár og var einn af hvatamönnum að stofnun Hitaveitu Suðurnesja og sat í stjórn félagsins. Einnig kom hann að stofnun Bláa lónsins. Eiginkona hans er Elín P. Alexandersdóttir og eiga þau þrjú börn. Edvard verður að heiman á afmælisdaginn og mun verja deginum með fjölskyldu sinni á erlendri grundu. 80 ára HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA 9:30-18, LAUGARDAGA 11-14 MIKIÐ ÚRVAL AF UMGJÖRÐUM SJÓNMÆLINGAR LINSUMÁTANIR TRAUS T OG GÓ Ð ÞJÓNU STA Í 17 ÁR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.