Morgunblaðið - 07.09.2013, Side 43
þjálfafélagsins 1976-98. Hún kenndi
við ýmsar námsbrautir á heilbrigð-
issviði 1976-92, var formað-ur Geð-
hjálpar 1981-86, fulltrúi Ís-lands hjá
Heimssambandi iðjuþjálfa 1978-2004,
fréttastjóri fagtímarits Heims-
sambands iðjujálfa í 15 ár, stundaði
rannsókn á ofbeldi í skólum 1984 og
hélt fjölda fyrirlestra um það efni
1984-86 og skipulagði tvær ráð-
stefnur á vegum SHS um ofbeldi, hef-
ur verið formaður Siðmenntar frá
1997, hefur skrifað fjölda greina í
dagblöð og tímarit um menningar-
áfall, blönduð hjónabönd, hvernig er
að vera útlendingur, fjölmenning-
arlegt samfélag, geðheilbrigðismál,
neytendamál, ofbeldi, Húmanisma,
og kynlíf, og hefur fjallað um sam-
félagsmálefni í útvarpi og sjónvarpi.
Á sjöunda áratugnum í New York
starfaði Hope í fjölda friðarhreyf-
inga gegn Víetnamsstríðinu, kjarn-
orkuvopnum, kjarnorku, og einnig í
ýmsum mannréttindasamtökum.
Hope spilar á píanó, gítar og fiðlu.
A menntaskólaárunum var hún í
skólasinfóniuhljómsveit og í háskóla
var hún í stjórn þjóðlagafélags.
Hope sat í fyrstu stjórn Kynfræði-
félags Íslands, var stjórnarmaður í
Samtökum Heilbrigðisstétta (SHS)
1990-92, frumkvöðull að borg-
aralegri fermingu á Íslandi 1989, einn
af stofnendum Siðmenntar, félags
siðrænna húmanista 1990, einn af
stofnendum fyrsta Fjölmenning-
arráðs og formaður þess 2003-2008
og var stofnandi og formaður Félags
nýrra Íslendinga 1991-97.
Fjölskylda
Hope giftist Einari Knútssyni
tvisvar, á Íslandi og í New York,
16.10. 1971, og 4.12. 1971. Einar er
fæddur 3.6. 1944, er flugvirki, flug-
vélstjóri, og fyrrv. viðhalds- og eft-
irlitsstjóri hjá Flugleiðum, nú á eft-
irlaunum. Foreldrar hans: Gunn-
hildur Bjarnason, f. 9.9. 1921, fyrrv.
aðstoðariðjuþjálfi og frí-stundamál-
ari, og Knútur Einarsson, f. 10.12.
1921, d. 19.1. 1991, vagn-stjóri hjá
SVR.
Börn Hope og Einars eru Tryggvi
Einarsson, f. 24.2. 1974, reið-
hjólasmiður, bifvélavirki, einkaþjálf-
ari, var verslunarstjóri hja 12 Volt og
starfar nú við þjónustver Heklu bíla-
umboðs; Katla Ein-arsdóttir, f. 17.5.
1977, förð-unarfræðingur, einkaþjálf-
ari, fyrr-verandi módel og stílisti.
Systur Hope eru Linda Rauer, f.
12.10. 1938, fyrrv. kennari og aðger-
ðasinni í New York-fylki, og Bonnie
Loewenstein, f. 16.1.1952, ensku-
kennari og aðgerðasinni í New York.
Foreldrar Hope voru Jack Em-
anuel Loewenstein f. 1.5. 1908, d.
22.5.1981, greinahöfundur hjá The
Wall Street Journal og síðar prent-
verksmiðjueigandi, og Ruth Haskell
Loewenstein, f. 12.11. 1909, d. 12.9.
2005 grunnskólakennari.
Ráðstefnugestir Hope, ásamt Richard Dawkins, þróunarlíffræðingi og
prófessor við Oxfordháskóla, og Brannon Braga, sjónvarpsþáttaframleið-
anda og höfundi fjölda Star Trek sjónvarpsþátta og Star Trek kvikmynda.
Úr frændgarði
Hope
Knútsson
Khaya HindaWilinsky
frá smábæ á landa-
mærum Rússl. og Póll.
Moiske Rabinowitz
frá smábæ á landa-
mærum Rússl. og Póll.
Bertha Rabinowitz
kaupmaður og hjúkrunar-
kona í New York, af rúss-
neskum gyðingaættum
Max Haskelovitch
kennari og kirkju-
söngvari, í New York, af
rússn. gyðingaættum
Ruth Haskell Loewenstein
grunnsk.kennari í New York ná-
frænka leikkonunnar Lee Grant,
móður Dinah Manoff leikkonu.
Anna Leichtman
húsfr. í Ungverjalandi
Adolph Leichtman
stórbóndi í Unverjalandi
Gizella Leichtman
húsfr., frá Debrezen í
Ungverjalandi
Julius Hugo Loewenstein
prentari í New York
náfrændi Marx-bræðra,
grínleikaranna frægu
Jack Emanuel Loewnstein
prentsm.eigandi í New York
Caroline Rothschild
úr Rothschild-fjölskyl-
dunni, frægum auð- og
iðnjörfum í Þýskalandi
Jacob Loewenstein
frá Giessen í Þýskalandi
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013
Sigfús Halldórsson tónskáldfæddist í Reykjavík 7.9.1920. Foreldrar hans voru
Halldór Sigurðsson úrsmiður og
Guðrún Eymundsdóttir húsfreyja.
Halldór var sonur Sigurðar,
hreppstjóra í Skarðshlíð undir
Eyjafjöllum, bróður Ingunnar,
langömmu Þorsteins Thor-
arensens rithöfundar, föður Bjarg-
ar Thorarensen lagaprófessors.
Sigurður var sonur Halldórs, b. í
Álfhólum í Landeyjum Þorvalds-
sonar, bróður Björns, föður Þor-
valds, ríka á Þorvaldseyri.
Guðrún var dóttir Eymundar
Eymundssonar, b. á Skjaldþings-
stöðum, bróður Sigfúsar bóksala
og Sigríðar, langömmu Gríms
Helgasonar, forstöðumanns hand-
ritadeildar Landsbókasafnsins,
föður Vigdísar rithöfundar.
Eftirlifandi eiginkona Sigfúsar
er Steinunn Jónsdóttir og eign-
uðust þau tvö börn.
Sigfús lauk prófi í leik-
tjaldahönnun og málaralist við
Slade Fine Art School í
Lundúnaháskóla 1945, stundaði
nám í Stokkhólmsóperunni 1947-
48, lauk prófi í uppeldis- og
kennslufræði, stundaði nám í
Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands og við Tónlistarskóla
Reykjavíkur.
Sigfús var afkastamikill málari
og hélt fjölda málverkasýninga.
Hans verður þó fyrst og fremst
minnst sem eins ástsælasta tón-
skálds þjóðarinnar á síðustu öld.
Sigfús samdi fjölda frábærra
sönglaga sem mörg hver slógu í
gegn sem dægurlög á sínum tíma.
Mörg þessara laga hafa elst svo
vel að þau hafa orðið sífellt vin-
sælli með hverri kynslóð og eru
nú klassískar perlur. Lög Sigfúsar
eru melódísk og mörg hver ang-
urvær, ekki síst lög hans við ljóð
Tómasar Guðmundssonar.
Meðal þekkustu laga Sigfúsar
eru Litla flugan, Dagný, Við eig-
um samleiö, Tondeleyó og Vegir
liggja til allra átt. Síðastnefnda
lagið er fyrsta íslenska kvik-
myndalagið, samið fyrir myndina
79 af stöðinni.
Sigfús lést 21.12. 1996.
Merkir Íslendingar
Sigfús
Halldórsson
Laugardagur
90 ára
Ester S. Snæbjörnsdóttir
85 ára
Guðrún Sveinsdóttir
Inga Jóna Kristjánsdóttir
Lilja Enoksdóttir
Una Runólfsdóttir
Örnólfur Björnsson
80 ára
Eðvard Júlíusson
Erlingur Ellertsson
Guðrún Gunnarsdóttir
Höskuldur Goði Karlsson
Perla Kristjánsdóttir
75 ára
Auður Stella Þórðardóttir
Benedikt Benediktsson
Gísli Ólafsson Antonsson
Guðbjörg Haraldsdóttir
Guðmundur T. Magnússon
Hafdís Sigurbjörnsdóttir
Lind Ebbadóttir
70 ára
Ásta Alfreðsdóttir
Björn Stefán
Þórarinsson
Hannes Jóhannesson
Konráð Foster
Sigurveig Hanna
Eiríksdóttir
Súsanna Jóna Möller
60 ára
Ágúst Þórður Arnórsson
Björn Jónasson
Björn Ottó Halldórsson
Guðrún Helgadóttir
Hafsteinn Már Línbergsson
Halldór Gunnar Hilmarsson
Jóhannes Ellert Eiríksson
Ólafur Grétar Guðjónsson
Steinunn Kristjánsdóttir
Sveinn Óskarsson
Sveinn Val Sigvaldason
Þorbjörn Jón Jensson
Þorvarður J. Guðbjartsson
Örn Erhard Þorkelsson
50 ára
Guðbjörg Einarsdóttir
Gunnar Maríusson
Jóna Björg Björgvinsdóttir
Kristinn Ingi Jónsson
Ólafur Þór Zoëga
Sigurjón Andri
Guðmundsson
Starri Hjartarson
Violetta Januszauskas
Þorgrímur Friðrik Jónsson
40 ára
Bogi Hólmar Viðarsson
Elma Lísa Gunnarsdóttir
Helgi Jón Magnússon
Hulda Sóllilja Aradóttir
Marías Halldór Gestsson
Piotr Piatkowski
Ragna Haraldsdóttir
Tanja Helena Garðarsdóttir
Þórlaug Ágústsdóttir
30 ára
Atli Már Sigurðsson
Dagmar Markúsdóttir
Eva Margrét Mona
Sigurðardóttir
Hörður Þór Rúnarsson
Magnús Óskar
Þórðarson
Mirela Maljkovic Bozic
Rut Magnúsdóttir
Selma Hreggviðsdóttir
Sigmar Freyr Jónsson
Signý Berg Arnarsdóttir
Sigríður Árdís Ágústsdóttir
Sigríður Ruth Gísladóttir
Sigríður Valdimarsdóttir
Þorsteinn Eggertsson
Þórdís Jóhannsdóttir
Wathne
Sunnudagur
104 ára
María Kristjánsdóttir
95 ára
Auður Jónsdóttir
90 ára
Lilja Halldórsdóttir
85 ára
Ásdís Guðmundsdóttir
Jón Ingimar
Guðmundsson
Jónína Steingrímsdóttir
Ragnheiður Loftsdóttir
Þórunn Ólafía Júlíusdóttir
80 ára
Magnús Konráðsson
75 ára
Anna Pálsdóttir
Birna Berg
Bernódusdóttir
Geirlaug Sigurjónsdóttir
Grétar Jónsson
Guðmundur Valur
Einarsson
Guðrún H. Jónsdóttir
Gunnar Magnús Jónsson
Jóna Stella Jónsdóttir
Sjöfn Kjartansdóttir
70 ára
Ármann Gunnarsson
Bjarni Garðarsson
Elna Þórarinsdóttir
Nils Nilsen
Óskar Helgason
Sigríður Þóroddsdóttir
60 ára
Ástfríður Svala Njálsdóttir
Dane Tisma
Guðrún Jónsdóttir
Jóhann Sigurður
Ögmundsson
Jón Ingi Sigurbjörnsson
Kristín S. Rögnvaldsdóttir
María Alexandersdóttir
Ómar Guðmundur
Jónsson
Valgerður Stefánsdóttir
50 ára
Ásdís Erla Grétarsdóttir
Friðrik Rafnsson
Guðmunda Árnadóttir
Ívar Agnar Rudolfsson
Jakob Valgeir Finnbogason
Jóhanna Gunnarsdóttir
Margrét Sigurbjörnsdóttir
Ólafur Stefán
Guðmundsson
Óskar Ólafsson
Regína F. Heincke
Sigrún Hildur Erlingsdóttir
40 ára
Ágúst Agnarsson
Áslaug María
Sigurbjargardóttir
Elvar Bjarki Helgason
Helgi Þór Hjálmarsson
Ingibjörg Berglind
Arnardóttir
Ingibjörg Ósk Hannesdóttir
Ívar Þór Sigþórsson
Jaroslaw Topolski
Linda Hermannsdóttir
Patrick Kerr
30 ára
Andri Þór Guðmundsson
Anna Lára Friðriksdóttir
Ásdís Eyrún
Sigurgeirsdóttir
Gissur Jónasson
Guðbjörg Kristín
Haraldsdóttir
Kamila Maria
Magnuszewska
Krzysztof Janusz
Szczepaniak
Krzysztof Luszcz
Lárus Mikael Vilhjálmsson
Viðar Aðalsteinsson
Til hamingju með daginn
SALA
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A ÚT
SALA
ÚTSAL
A ÚT
ÚTSAL
A ÚT
SALA
ÚTSAL
A ÚT
SALA
ÚT
ÚTSAL
A ÚT
SALA
ÚTSAL
A ÚT
SALA
Ú
ÚTSAL
A ÚT
SALA
ÚTSAL
A ÚT
SALA
ÚTSAL
A ÚT
SALA
ÚTSAL
A ÚT
SALA
Ú
Faxafeni 8, 108 Reykjavík • sími 534 2727 • netfang alparnir@alparnir.is • www.alparnir.is
20-70% afsl.
ATH. eingöngu í Faxafeni 8, Reykjavík
EKKI MISSA AF ÞESSU,
FYRSTIR KOMA
FYRSTIR FÁ!
Karrimor bakpokar 50% afsl.
Zajo Flíspeysur nú 3.995.-
Nord Blanc Flíspeysa W nú 2.995.-
Göngubuxur 20-50% afsl.
Bolir fljótþornandi 30-50% afsl.
Softshellbuxur nú á 9.995
Úlpur 30-60% afsl.
Öll smávara 20% afsl.
HAD klútar aðeins 995
Fataslár: 2.995.-, 3.995.-, 4.995.-
ÚTSA A
SÍÐASTI DAGUR ÚTSÖLUNNAR
Ú