Morgunblaðið - 07.09.2013, Blaðsíða 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tónlistarkonan Emilíana Torrini er
snúin aftur eftir langa fjarveru, ein
þrjú ár. Síðasta breiðskífa hennar,
Me and Armini, kom út árið 2008 og
hlaut mikið lof gagnrýnenda, hér á
landi sem erlendis, og fylgdi Emil-
íana plötunni eftir með löngu og
ströngu tónleikaferðalagi víða um
heim sem lauk með þrennum tón-
leikum í Háskólabíói í febrúar árið
2010. Eitt lag af plötunni, „Jungle
Drum“, náði fádæma vinsældum í
Þýskalandi sumarið 2009, sat á toppi
listans yfir vinsælustu lögin þar í
landi í níu vikur og náði auk þess
toppsætum lagalista fleiri Evrópu-
landa. Eftir þessa ógnarvelgengni
og miklu tónleikatörn er eins og Em-
ilíana hafi hreinlega gufað upp eða
þar til fyrir skömmu þegar tilkynnt
var að ný breiðskífa, Tookah, væri
væntanleg frá henni. Platan kemur
út á alþjóðavísu á mánudaginn.
„Ég er náttúrlega að vinna plöt-
urnar rosalega lengi og var á tón-
leikaferðalagi í tvö og hálft ár eftir
að platan kom út. Það er svolítið
langur tími fyrir mig og maður er
ekki alltaf að hringja og segja frá því
sem maður er að gera,“ segir Emil-
íana og hlær, spurð að því hvar hún
hafi verið undanfarin þrjú ár. Hún
hafi eignast dreng í september 2010
og nýr kafli tekið við í lífi hennar og
kærkomið frí. Emilíana flutti til Ís-
lands fyrir fimm mánuðum, eftir tíu
ára búsetu í Brighton á Englandi, og
býr nú í Kópavogi, sínum gamla
heimabæ, með fjölskyldu sinni.
– Nú liðu fimm ár milli platna. Þú
kýst greinilega að vinna lengi að
hverri plötu?
„Já, ég vinn plötur það lengi. Ég
var komin út í það mikið sígaunalíf
að það tekur tíma að lenda þessu öllu
þegar maður hættir. Maður þarf í
rauninni að byrja öll sambönd upp á
nýtt, við vini og fjölskyldu, koma sér
aftur í venjulegheitin. Ég gef mér
góðan tíma í það, vinn náttúrlega
tónlist á meðan en er ekkert að flýta
mér. Þetta verður að gerast nátt-
úrulega og það þarf að vera einhver
tími fyrir þróun,“ segir Emilíana.
Þegar hún hafi ákveðið að ráðast í
gerð plötu hafi hún þurft að fara
hægt í sakirnar. „Ég var í London
þá að vinna hana og var ekkert að
taka strákinn minn með, var í tvo
daga og nætur þannig að ég næði
þessum degi inn í nóttina að vinna.
Ég byrjaði á því í nokkra mánuði,
þegar hann var orðinn níu mánaða,
og síðan fór þetta seinna meir út í
þrjá daga.“
– Ertu fullkomnunarsinni þegar
kemur að plötusmíði?
„Nei, ég er bara hæg, þarf bara
tíma til að fylla undirmeðvitundina
og springa svo út. Ég þarf mikinn
bruggunartíma áður en þetta kemur
út. Ég verð mikil moldvarpa, fer inn
í mig. Það sést alltaf þegar ég er að
fara í plötugerð, þótt ég fatti það
ekki sjálf þá verð ég innhverfari og
hætti algjörlega að hlusta á tónlist.
Síðan kemur að því að ég verð að
fara í stúdíó og byrja.“
Farsælt samstarf
Tookah vann Emilíana með sam-
starfsmanni sínum til fjölda ára,
upptökustjóranum Dan Carey sem
vann með henni að síðustu tveimur
plötum, Fisherman’s Woman frá
árinu 2005 og Me and Armini.
„Þegar við kynntumst tengdumst
við rosalega fljótt, urðum bestu vin-
ir,“ segir Emilíana um Carey. „Við
gerðum eiginlega enga tónlist í
marga mánuði, vorum bara að
hangsa, borða hádegismat og
spjalla,“ rifjar hún upp og hlær.
Einn daginn hafi þau sest niður í
stúdíói og farið að spinna, semja tón-
list og leika af fingrum fram. „Hann
spilar og síðan gerist ekkert í hálf-
tíma fyrr en hann spilar eitthvað
sem ég tengi við og þá bregst ég við
því. Þannig byrjuðu lögin að koma
og þannig höfum við unnið mjög
mikið,“ segir Emilíana um sköp-
unarferlið hjá þeim Carey. Tónlistin
flæði fram og hugmyndir að textum
kvikni um leið.
– Plöturnar þínar, a.m.k. þær
tvær síðustu, einkennast að mestu af
Innhverf „Það sést alltaf þegar ég er að fara í plötugerð, þó ég fatti það ekki sjálf þá verð ég meira innhverf og
hætti algjörlega að hlusta á tónlist. Síðan kemur að því að ég verð að fara í stúdíó og byrja,“ segir Emilíana.
Langur bruggunartími
Sjöunda sólóplata Emilíönu Torrini, Tookah, kemur út á
mánudaginn „Tookah“ tengist einstakri hamingju
Tookah Emilíana spegluð á Tookah.
STOFNAÐ 1987
einstakt
eitthvað alveg
Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n S k i p h o l t 5 0 a | S í m i 5 8 1 4 0 2 0 | w w w . g a l l e r i l i s t . i s
M
ál
ve
rk
:
Si
g
u
rb
jö
rn
Jó
n
ss
o
n
Verið
velkomin
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands:
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
Silfur Íslands í Bogasal
Silfursmiður í hjáverkum í Horni
Ég fæ ekki af mér að flýja af hólmi - Hinsegin fólk í máli og mynd á Torgi
Sigfús Eymundsson myndasmiður
- Frumkvöðull íslenskrar ljósmyndunar í Myndasal
Skemmtilegir ratleikir, safnbúð og kaffihús.
Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu:
Þúsund ár - Fjölbreytt verk úr safneign Listasafns Íslands og safnbúð
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is www.thjodmenning.is
www.facebook.com/thjodminjasafn og www.facebook.com/thjodmenning
Opið alla daga í Þjóðminjasafni 10-17, Þjóðmenningarhúsi 11-17
Listasafn Reykjanesbæjar
ÁFRAMHALD - CONTINUITY
Gunnhildur Þórðardóttir sýnir
ný tví- og þrívíð verk.
5. sept. – 27. okt.
Bátasafn Gríms Karlssonar
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Listasafn Erlings Jónssonar
Opið virka daga 12-17, helgar 13-17.
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
Óvænt kynni
- Innreið nútímans í íslenska hönnun
(7.6.-13.10.2013)
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
UPS AND DOWNS - Kees Visser 6.9. - 27.10. 2013
LEIÐANGUR 2011 6.9. - 27.10. 2013
Laugardagsleiðsögn kl. 14 í fylgd Christians Schoen sýningarstjóra
GERSEMAR 18.5. - 27.10. 2013
SAFNBÚÐ - Listaverkabækur, gjafakort og listrænar gjafavörur.
KAFFISTOFA - Heit súpa í hádeginu, úrval kaffidrykkja og heimabakað meðlæti.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600.
Opið daglega kl. 10-17, lokað mánudaga.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
UMHVERFIS LANDIÐ Á FÁEINUM ÁRATUGUM og FORNMENN
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616 • www.listasafn.is
Opið þriðjud.-fimmtud. kl. 11-14, sunnud. 13-16
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
ÚR DJÚPUNUM - Samsýning Listasafns Sigurjóns Ólafssonar og Listasafns Íslands
Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17.
Vísar – húsin í húsinu
Elín Hansdóttir
Ilmur Stefánsdóttir
Marcos Zotes
Theresa Himmer
Gordon Matta-Clark
Sunnudagur 8. september kl. 14
Leiðangur fyrir börn
með Ilmi Stefánsdóttur
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is
sími 585 5790
Aðgangur ókeypis