Morgunblaðið - 07.09.2013, Page 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013
Alex Turner, jafn inn í sig og hann
oft virðist vera, er talsmaður heillar
kynslóðar hér í Bretlandi. Þessi
leiðtogi rokksveitarinnar Arctic
Monkeys er nokkurs konar Paul
Weller síns fólks, kynslóðarinnar
sem er fædd á bilinu ’85-’90 (stund-
um er talað er um Y-kynslóðina í
þessu samhengi). Fyrstu tvær plöt-
ur sveitarinnar, Whatever People
Say I Am, That’s What I’m Not
(2006) og Favourite Worst Night-
mare (2007) skullu líkt og högg-
bylgjur á bresku tónlistarlífi á sín-
um tíma og ungæðisleg orka
sveitarinnar og frábærlega mel-
ódískar lagasmíðar Turners rifu
giska staðnað gítarrokk í gang á
nýjan leik en tilfinnanlegt tómarúm
hafði myndast eftir að The Liber-
tines lognuðust út af í takt við
hnignun annars lykilmannsins þar,
Pete Doherty. Tvær plötur komu
svo í kjölfar þeirra sem nefndar
hafa verið (Humbug, 2009 og Suck
it and See, 2011) þar sem í báðum
tilfellum var reynt að setja smá
snúning á apaformúluna sem þróuð
var á fyrstu tveimur plötunum.
Bretinn hefur kokgleypt þetta allt
saman og þar í landi eru Turner og
félagar miklar hetjur. Skemmst frá
að segja hafa menn og konur því
beðið eftir nýjasta skammtinum í
ofvæni og viðtöl, auglýsingar og
opnudómar prýða flest blöðin
hérna. Og flestir eru dómarnir
einkar jákvæðir …
Úr borg stálsins
í borg englanna
… og rætt er um að Turner hafi
enn og aftur tekist að snara út
sannfærandi, heilsteyptu verki.
Platan sé nokkuð myrk, í raun
nokkurs konar hugleiðing um það
brothætta ástand sem mann-
skepnan er í þegar hún er örþreytt
og útspýtt, vakandi að næturlagi og
fram á morgun. „Svöl og sexí, eftir
miðnætti plata,“ sagði Josh Homme
um plötuna á tónleikum með
Queens of the Stone Age í Tékk-
landi í sumar en Homme stýrði
upptökum á Humbug og í fram-
haldinu tókst vinskapur mikill með
honum og Turner. Arctic Monkeys-
leiðtoginn söng t.d. inn á síðustu
QOTSA-plötu og sama gerir
Homme á AM. Þá er Turner fluttur
til Los Angeles, býr þar með
bandarísku leikkonunni Arielle
Vandenberg og hann og Homme
fara stundum á þeysireið saman á
vélhjólunum sínum. Við erum kom-
in ansi langt frá Sheffield, það er
næsta víst.
Innviðir amerískir
AM var annars tekin upp í Am-
eríkunni, í L.A. og í hljóðverinu
Rancho de la Luna sem er rétt ut-
an við þorpið Joshua Tree í Mo-
jave-eyðimörkinni. Það var James
Ford, samstarfsmaður Turners og
sveitarinnar um árabil, sem hafði
yfirumsjón með upptökunum. Am-
eríka hefur á síðustu árum sokkið
hægt og bítandi inn í tónmál sveit-
arinnar og Turner talar sjálfur um
Dr. Dre og Outkast í tengslum við
plötuna (en einnig um Ike Turner
og Aaliyuh). Áhrif frá hipp-hoppi,
gömlu r og b og sálartónlist flækj-
ast enda um plötuna, smjúga um
tónrásirnar og leggja plötunni til
óræðan, gamaldags sjarma jafnvel.
Yfir henni er þó skuggi eins og áð-
ur segir en eiginlega meira svona
mjúkur, þægilegur „búinn að vera
vakandi alltof lengi“ blær. Skildi
einhver þessa setningu?
Forvitnir geta alltént smellt sér
á eintak strax eftir helgi auk þess
sem sveitin er á umfangsmiklu tón-
leikaferðalagi í þessum skrifuðu
orðum.
Martraðir í
morgunskímunni
Sheffield-sveitin Arctic Monkeys
gefur út fimmtu plötu sína, AM
Gríðarmikill upptaktur og spenna
fyrir gripnum hér í Bretlandi
»Nokkurs konarhugleiðing um það
brothætta ástand sem
mannskepnan er í
þegar hún er örþreytt
og útspýtt, vakandi að
næturlagi og fram á
morgun.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is
Hressir? Alex Turner (lengst til hægri) og félagar í Arctic Monkeys hafa
marga fjöruna sopið þrátt fyrir ungan aldur.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta er nútímaverk sem gerist í
London og fjallar um hluti sem
ungt fólk þarf að takast á við í dag.
Í grunninn er þetta ástarsaga með
öllu því vandræðalega, skrýtna og
yndislega sem fylgir ástinni, ásamt
þeim draugum fortíðar sem óhjá-
kvæmilega fylgja okkur inn í ást-
arsambönd. Inn í verkið fléttast síð-
an ádeila á það hvað tæknin er
orðin stór hluti af lífi okkar,“ segir
Jenný Lára Arnórsdóttir um leik-
ritið Blik eftir Phil Porter í leik-
stjórn Unnars Geirs Unnarssonar
sem leikhópurinn Artic frumsýnir í
Gamla bíói annað kvöld kl. 20.
Jenný Lára, sem stofnaði leik-
hópinn Artic ásamt Unnari Geir, fer
með annað tveggja hlutverka í Blik
á móti Hafsteini Þór Auðunssyni.
Öll hafa þau lokið námi við ASAD-
leiklistarskólann í London. Að sögn
Jennýjar Láru var Blik frumsýnt á
Edinborgarhátíðinni árið 2012 og
sökum vinsælda í framhaldinu sett
upp í Soho Theatre í London. „Upp-
færsla okkar er sú fyrsta utan
enskumælandi heimsins,“ segir
Jenný Lára, en þýðing verksins var
í höndum Súsönnu Svavarsdóttur.
„Mamma er góður þýðandi og vön
leikhúsmanneskja,“ segir Jenný
Lára og jánkar því að gott sé að
geta leitað til fjölskyldumeðlima
þegar mann vantar aðstoð.
„Verkið fjallar um Sophie og Jon-
ah, sem bæði eru talsverðir ein-
stæðingar, en mjög áhugaverðir
karakterar. Við lifum í heimi þar
sem allir eiga helst sífellt að vera á
útopnu, en þau eru bæði inn í sig. Í
einmanaleika sínum grípa þau til
örþrifaráða til að reyna að nálgast
aðra manneskju. Þau hefja sam-
skipti á sérstakan hátt með hjálp
tækninnar. Síðan fara samskipti
þeirra að þróast yfir í samband, en
samt ekki. Í verkinu er þeirri
spurningu velt upp hvað sé sam-
band, hvernig það líti út, hvers það
krefjist og hvað það gefi. Einnig er
spurt hvenær og hversu oft sam-
skipti þurfi að fara fram. Og ekki
síst hvernig,“ segir Jenný Lára og
bætir við: „Þetta minnir mig að
nokkru á enska útgáfu af frönsku
kvikmyndinni Amélie.“
Rannsókn á ástarsögum
Aðeins verða fjórar sýningar á
Bliki á einni viku, þ.e. 11., 13. og 15
september, sem helgast annars veg-
ar af önnum leikaranna en einnig
því að Gamla bíó er umsetið. Að-
spurð segir Jenný Lára það ekkert
launungarmál að leikarar sem læri
erlendis þurfi að hafa meira fyrir
því að sanna sig þegar heim er
komið að námi loknu. Meðal verk-
efna Jennýjar Láru má nefna að
hún leikstýrði Hinum fullkomna
jafningja eftir Felix Bergsson sem
Artic setti upp fyrir ári og var ann-
ar tveggja aðstandenda leikhópsins
Uppsprettunnar sem setti upp þrjú
verk á síðustu menningarnótt. Um
þessar mundir er hún síðan aðstoð-
armaður Benedikts Erlingssonar
leikstjóra Jeppa á fjalli sem frum-
sýndur verður í Borgarleikhúsinu í
byrjun október. „Að þeirri frumsýn-
ingu lokinni held ég norður í land,
en ég fékk styrk frá menningarráði
Eyþings til að safna saman ást-
arsögum Þingeyinga á sl. öld og
vinna upp úr því sýningu með
„verbatim“-aðferðinni,“ segir Jenný
Lára og útskýrir að „verbatim“
leikhús sé rannsóknarleikhús þar
sem leikrit er smíðað upp úr við-
tölum við fólk um tiltekið efni.
Áætluð frumsýning er í desember
og mun Jenný Lára sýna sýningu
sína í öllum þeim sveitarfélögunum
norðanlands sem styrkja uppfærsl-
una.
Sambandsleysi Hafsteinn Þór Auðunsson og Jenný Lára Arnórsdóttir.
Áhugaverðir einstæðingar
í sambandshugleiðingum
Artik frumsýnir
Blik eftir Phil Porter
í Gamla bíói
Menntaskólinn
við Hamrahlíð
www.mh.is
STÖÐUPRÓF
Stöðupróf á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins verða haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð
þann 11. september kl. 16:00 í eftirfarandi tungumálum:
Albönsku, amharísku, arabísku, bosnísku, búlgörsku, eistnesku, filipísku (tagalog og bisaya), finnsku,
hollensku, japönsku, kínversku, króatísku, litháísku, portúgölsku, pólsku, rússnesku, serbnesku,
taílensku, tékknesku, ungversku og víetnömsku.
Rafræn skráning í stöðupróf fer fram á heimasíðu skólans http://www.mh.is/skolinn/exam/.
Frekari upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 595-5200. Sýna þarf persónuskilríki með mynd í prófinu.
Prófgjald, kr. 8000 fyrir hvert próf, ber að greiða inn á reikning Menntaskólans við Hamrahlíð í banka
323 hb 26 nr 106, kt. 460269-3509. Greiðslufrestur er til hádegis á prófdegi, nauðsynlegt er að fram
komi nafn og kennitala próftaka. Réttur til próftöku byggist á að prófgjald hafi verið greitt.
Rektor.
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
mánudaginn 9. september, kl. 18
í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
Jóhannes
S.Kjarval
Jóhannes
S.Kjarval
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og
fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Verkin verða sýnd laugardag 11–17,
sunnudag 12–17, mánudag 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Listmunauppboð
í Gallerí Fold