Morgunblaðið - 09.09.2013, Síða 2

Morgunblaðið - 09.09.2013, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. F ÍT O N / S ÍA F I0 4 3 2 5 9 568 8000 | borgarleikhus.is Hugle ikur D agsso n 4 sýn ingar að eig in val i Áskri ftar- kortið mitt Tæplega fjögur tonn af mat runnu ofan í gesti Reykjavík Bacon Festival sem haldin var á Skólavörðustígnum á laugardaginn, þar sem beikonið var í aðalhlutverki. Talið er að 25-30 þúsund manns hafi sótt hátíðina. Ágóði af sölu matarins rennur til hjartadeildar Landspítalans. Gestir hátíðarinnar runnu á beikonlyktina Morgunblaðið/Styrmir Kári Vildu fjármagna tækjakaup fyrir hjartadeild Landspítala með sölu á beikoni Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Þetta er á umræðustigi. Við höfum rætt allar þær leiðir sem eru okkur færar. Það er ekki búið að taka neina ákvörðun um hvort við förum í leið- togaprófkjör, venjulegt prófkjör, uppstillingu eða röðun á lista,“ segir Óttarr Guðlaugsson, formaður Varð- ar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag- anna í Reykjavík, um hugmyndir um að efna til leiðtogaprófkjörs vegna borgarstjórnarkosninga næsta vor. Felst leiðtogaprófkjör í því að kos- ið er milli einstaklinga sem koma til greina sem forystumenn flokksins í kosningunum og verður sigurvegar- inn borgarstjóraefnið. Leiðtogaprófkjör yrði framkvæmt þannig að allir sjálfstæðismenn í Reykjavík ættu atkvæðisrétt. Yrði síðan raðað í hin sætin á fundi full- trúaráðs en í því eiga sæti tæplega 1.400 manns í 15 hverfafélögum og í Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðis- manna í Reykjavík, Óðni, sem er fé- lag launþega í Sjálfstæðisflokknum, og sjálfstæðiskvennafélaginu Hvöt. Hafa þeir allir atkvæðisrétt. Ef efnt yrði til hefðbundins prófkjörs ættu allir sjálfstæðismenn í borginni at- kvæðisrétt. Ef sú leið yrði farin að stilla upp mönnum á listann kæmi það í hlut kjörnefndar. Yrði það svo- nefnd uppstillingarleið. Fjórða leiðin er að fulltrúaráðið raði mönnum í öll sæti listans með kosningu meðal 1.400 félagsmanna. Stjórn Varðar á eftir að ákveða hvaða leið verður farin og segir Ótt- arr að tímasetning næsta fundar hafi ekki verið ákveðin. Þegar stjórn ráðsins hefur komist að niðurstöðu er boðað til fundar meðal tæplega 1.400 félagsmanna. Að sögn Óttars fundaði stjórn Varðar um ofan- greindar hugmyndir í síðustu viku. Spurður hvenær stjórnin fundi næst segir Óttarr að það verði fljótlega. „Það styttist í ákvörðun.“ Að sögn Ingvars Smára Birgisson- ar, formanns Heimdallar og stjórnarmanns í Verði, vilja lang- flestir Heimdellingar fara leið opins prófkjörs þar sem kosið er í öll sæti. Formaður eins hverfafélagsins, sem vildi ekki koma fram undir nafni, kvaðst fylgjandi leiðtogapróf- kjöri ef það færi fram meðal 1.400 fé- laga í fulltrúaráðinu. Kvaðst viðkom- andi hlynntari því en að láta alla sjálfstæðismenn kjósa í slíku kjöri. Umræðan um leiðtogaprófkjör hafi staðið yfir í nokkurn tíma. Rætt um leiðtogaprófkjör  Stjórn Varðar íhugar ýmsar leiðir til að velja lista fyrir borgarstjórnarkosningar  Formaður Heimdallar segir flesta félagsmenn sína vilja fara leið opins prófkjörs Morgunblaðið/RAX Valhöll Hús Sjálfstæðisflokksins. Sláturtíðin fer hægt en örugglega af stað í ár hjá kjöt- afurðastöðinni KS á Sauðárkróki. „Hún fer heldur rólega af stað en maður hélt að það yrðu meiri læti í ár eftir alla þessa smalamennsku og við erum kannski ekki að ná inn því magni sem maður hefði viljað á þessum fyrstu dög- um,“ segir Ágúst Andrésson hjá KS, sem hefur bætt við sig um 130 manns til að starfa við slátrunina. Sigmundur Einar Ófeigsson, framkvæmdastjóri hjá Norðlenska á Húsavík, segir slátrunina fara ágætlega af stað en að féð sé misjafnt af fjalli í ár. „Vorið var ekki gott og það hefur ekki náð að stækka alls staðar en við vitum samt betur um horfur eftir þessa viku og næstu enda er- um við rétt nýfarnir af stað. Við erum til dæmis ekkert farnir að slátra á Höfn,“ segir Sigmundur. Aðspurður hvernig hafi gengið að manna sláturstörfin segir Sig- mundur vel hafa gengið. „Við bætum alltaf við okkur um 140 manns í sláturtíð og af þeim eru rúmlega 100 manns sem koma erlendis frá.“ mariamargret@mbl.is. Bættu við sig 270 manns í sláturtíðinni norðanlands Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sláturstörf Vel hefur gengið að manna störf við haust- slátrunina í ár. Meirihluti starfsmanna er frá útlöndum.  Slátrun fer vel af stað á Sauðárkróki og Húsavík Heimilismaður Norðurbrúnar 1 í Reykjavík lést í gær eftir að hafa dottið fram af vegg við Brúnaveg og legið þar í talsverðan tíma aðfara- nótt laugardags. Hann var 85 ára gamall. Starfsfólk Hrafnistu kom auga á hann fyrir tilviljun og veitti honum neyðaraðstoð meðan beðið var eftir sjúkrabíl. Við Norðurbrún 1 eru þjónustuíbúðir sem reknar eru af Reykjavíkurborg og ætlaðar þeim sem þurfa á aðstoð og stuðning að halda. Berglind Anna Aradóttir, for- stöðumaður Norðurbrúnar 1, getur ekki veitt upplýsingar um þá þjón- ustu sem maðurinn fékk á Norður- brún vegna laga um persónuvernd en leggur þó áherslu á að hann hafi verið sjálfráða. „Þetta eru þjónustu- íbúðir og fólk hér er sjálfráða og ræður sér sjálft. Þessi heimilis- maður ákvað að fara í næturgöngu og það næsta sem við vitum er að okkur er tilkynnt um að hann hafi dottið,“ segir Berglind sem segir það eðlilegt verkferli að rannsaka atvik sem þessi. „Öll atvik sem koma upp eru skoðuð.“ mariamargret@mbl.is Aldraður maður lést eftir fall  Íbúi í þjónustuíbúð  Öll atvik skoðuð Morgunblaðið/Golli Slys Þjónustuíbúðir að Norðurbrún eru skammt frá Hrafnistu. Maðurinn sem lést á Skíðadals- afrétt á laugardag, eftir að hafa fallið af hestbaki, hét Vilhjálmur Þórarinsson, til heimilis að Syðra- Garðshorni á Dalvík. Hann var 64 ára gamall, fæddur 18. nóvember 1949. Vilhjálmur lætur eftir sig þrjú börn. Vilhjálmur féll af hestbaki, en dánarorsök liggur ekki fyrir. Björgunarsveitir á Dalvík og Akur- eyri voru kallaðar út sem og þyrla Landhelgisgæslunnar. Þegar lækn- ir kom á staðinn var Vilhjálmur úrskurðaður látinn. Lést í göngum á Skíðadalsafrétt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.