Morgunblaðið - 09.09.2013, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.09.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2013 Breska lávarðadeildin er dálítiðsérkennileg löggjafarstofnun a.m.k. í augum ókunnugra. Enda hefur smám saman verið dregið mjög úr áhrifavaldi hennar.    En á það erbent að þar sitja menn sem aldrei þurfa að hafa áhyggjur af endurvali sínu, ólíkt þeim í neðri deildinni.    Þess vegna séu ræður þeirra ogathugasemdir stundum lausari við lýðskrumið, pólitískan rétt- trúnað og lúti síður lögmálum tæki- færismennsku.    Þegar neðri deildin hafnaðinaumlega að heimila Cameron að fara í stríð í Sýrlandi var öldin önnur hjá lávörðunum.    Þar vildi varla nokkur maðurveita heimild til stríðsreksturs í Sýrlandi.    Tebbit lávarður segir að hefðislík beiðni verið borin upp í Lávarðadeildinni hefði hún verið felld þar með miklum meirihluta.    Lávarðar úr öllu litrófi stjórn-málanna tættu í sig hug- myndir Camerons, þar á meðal Douglas Hurd, fyrrverandi utanrík- isráðherra úr Íhaldsflokki, Reid lá- varður, fyrrverandi varnar- málaráðherra Verkamannaflokks, aðmíráll West, fyrrverandi flota- málaráðherra.    Meira að segja Goldsmith lá-varður, æðsti prestur laga og réttar í stjórn Blairs, sá sami og gaf út lögfræðilegan úrskurð um að Íraksstríðið væri löglegt, hafnaði hugmyndum um árás á Sýrland. Lávarðar leggjast gegn stríði STAKSTEINAR Veður víða um heim 7.9., kl. 09.00 Reykjavík 8 skýjað Bolungarvík 12 skýjað Akureyri 9 skýjað Nuuk 3 skúrir Þórshöfn 3 heiðskírt Ósló 13 léttskýjað Kaupmannahöfn 17 heiðskírt Stokkhólmur 13 þoka Helsinki 8 heiðskírt Lúxemborg 15 alskýjað Brussel 16 skýjað Dublin 7 skýjað Glasgow 8 skúrir London 12 léttskýjað París 11 heiðskírt Amsterdam 17 skýjað Hamborg 17 heiðskírt Berlín 15 heiðskírt Vín 13 léttskýjað Moskva 12 alskýjað Algarve 21 léttskýjað Madríd 16 léttskýjað Barcelona 22 léttskýjað Mallorca 18 léttskýjað Róm 20 heiðskírt Aþena 22 skýjað Winnipeg 21 skýjað Montreal 16 skýjað New York 16 heiðskírt Chicago 22 léttskýjað Orlando 23 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 8. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:32 20:20 ÍSAFJÖRÐUR 6:32 20:30 SIGLUFJÖRÐUR 6:15 20:13 DJÚPIVOGUR 6:00 19:50 Flúðum | Árleg uppskeruhátíð í Hrunamannaheppi fór fram á laugardaginn og tókst vel. Dagurinn hófst með hátíðarmessu í Hruna þar sem sr. Eiríkur Jóhannsson prédik- aði og kórar sungu. Sigríður Jónsdóttir, formaður Skógræktarfélag sveitarfélagins, veitti verðlaun fyrir fegursta tréð í sveitinni. Verðlaunin eru fagurskor- inn tréskjöldur, gerður af listakon- unni Helgu Magnúsdóttur í Bryðju- holti. Að þessu sinni varð fyrir valinu 14 metra hátt lerkitré sem Kristín heitin Jónsdóttir, fyrrver- andi húsfreyja á Grafarbakka 1, kom með sem plöntu úr Guttormslundi á Hallormsstað árið 1936. Markaðir voru í Félagsheimilinu að venju, garðyrkjustöðvar opnar, hjólakeppni haldin, frítt var í sund og veitingahús með ýmis tilboð. Uppskeruhátíð á Flúðum fór vel fram Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Uppskera Valdís og Unnsteinn í Langholtskoti – beint frá býli. Tré ársins Mæðgurnar Katrín Ösp Emilsdóttir og Ingunn Lilja Arnórs- dóttir (t.v.) með verðlaunin. Tilkynnt var um líkamsárás á Laugaveginum í Reykjavík síðdegis á laugardag. Tveir góðkunningjar lögreglunnar, sem voru í annarlegu ástandi, slógust fyrir utan vínveit- ingahús og sló annar þeirra 14 ára gamlan dreng sem átti leið um. Foreldrar drengsins fóru með hann á bráðamóttöku Landspítal- ans til aðhlynningar. Annar mann- anna var handtekinn á vettvangi en hinn náði að hlaupa á brott en var handtekinn síðar. Gistu þeir báðir fangageymslu og var rætt við þá í gær um málsatvik. Góðkunningjar slógu til 14 ára pilts Kalla þurfti út björgunarsveitir á laugardags- kvöld vegna hvassviðris. Björgunarsveit- irnar Kyndill úr Mosfellsbæ og Kjölur af Kjalar- nesi voru kall- aðar út vegna þaks sem fór af sum- arbústað í heilu lagi í Miðdal rétt við Meðalfellsvatn. Þá var Hjálpar- sveit skáta í Kópavogi kölluð út vegna þakplatna sem losnuðu af einbýlishúsi. Nokkrar tilkynningar bárust einnig lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu vegna foks á vinnu- pöllum, þakplötum og öðru laus- legu. Annríki björgunar- sveita vegna illviðris

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.