Morgunblaðið - 09.09.2013, Side 18

Morgunblaðið - 09.09.2013, Side 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2013 EINFÖLD ÁKVÖRÐUN VELDU ÖRYGGI FYRIR ÞIG OG ÞÍNA Smiðjuvegi 68-70, Kópavogi  544 5000 Hjallahrauni 4, Hfj  565 2121 Rauðhellu 11, Hfj  568 2035 Fitjabraut 12, Njarðvík  421 1399 Eyrarvegi 33, Selfossi  482 2722www.solning.is – UMBOÐSMENN UM LAND ALLT – Þú paSSaR HaNN VIÐ PÖSSUM ÞIG Smurþjónusta RafgeymarSmáviðgerðir RúðuvökviRúðuþurrkurHjólastillingarDekkjaverkstæði Bremsuklossar Peruskipti driving emotion KORNADEKK JEPPADEKK JEPPADEKK ICE CONTACT VIKING CONTACT 5 I*PIke W419 I*cePt IZ W606 COURSER MSR COURSER AXT driving emotion hvert er þitt hlutverk? - snjallar lausnir Wise býður fjölbreyttar viðskiptalausnir fyrir fólk með mismunandi hlutverk. Gold Enterprise Resource Planning Silver Independent Software Vendor (ISV) TM Borgartún 26, Reykjavík » Hafnarstræti 102, Akureyri sími: 545 3200 » wise@wise.is » www.wise.is Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Hlutir í samfélagsvefnum vinsæla Facebook hækkuðu um rétt rúm 3% í viðskiptum á föstudag. Hjálpaði það Nasdaq-tæknivísitölunni að bæta við sig stigi og enda daginn með grænni tölu, eftir nærri 60 stiga dýfu í upphafi dags. Sterkur í snjalltækjum Hlutir í Facebook enduðu í 43,95 dölum og bendir markaðsfréttavef- urinn MarketWatch á að hækkunin nemi 90% á síðustu þremur mánuð- um. Þykja horfurnar góðar í rekstri Facebook og þá einkum á ört vax- andi snjalltækjamarkaði. Leitarvélin Yelp sótti líka í sig veðrið og hækkaði um nærri 6% í viðskiptum á föstudaginn eftir já- kvæða úttekt Deutche Bank sem mælti með kaupum í fyrirtækinu. Meðal annarra fyrirtækja á bandaríska markaðnum sem komu vel út úr föstudeginum má nefna net- hlutabréfaþjónustuna E*Trade Fin- ancial Corp. sem bætti við sig 4,57% og örgjörvaframleiðandann AMD sem hækkaði um 4,69%. Madden vonbrigði Dagurinn var hins vegar rauður fyrir leikjaframleiðandann Electro- nic Arts sem missti 3,32% þegar sala á tölvuleiknum Madden NFL 25 reyndist undir væntingum, þrátt fyr- ir að hafa verið mest seldi leikurinn í ágúst. Seldist leikurinn í milljón ein- tökum fyrstu vikuna, nokkuð frá 1,65 milljón eintökum sem seldust af síð- ustu útgáfu leiksins á jafnlöngum tíma fyrir ári. Byssuframleiðandinn Smith & Wesson lækkaði um 10,19% þrátt fyrir að hagnaðartölur fjórðungsins hafi hækkað um 49% milli ára, en markaðurinn hafði gert sér vænting- ar um enn betri frammistöðu . Facebook er enn á uppleið  Með styrkingunni á föstudag hefur vefur Zuckerbergs hækkað um 90% á þremur mánuðum  Electronic Arts og Smith & Wesson stóðu ekki undir væntingum þrátt fyrir góðan árangur AFP Veldi Hlutir í Facebook hafa verið á siglingu undanfarið. Mark Zuckerberg stofnandi og stórnandi fyrirtækisins. Lítið hefur farið fyrir fréttum af rafræna gjaldmiðlinum bitcoin síð- ustu vikurnar, enda augu markaða einkum beinst að því að Seðlabanki Bandaríkjanna kunni að stíga á bremsuna, eða að mögulegum stríðsrekstri Bandaríkjahers í Sýr- landi. Á meðan heimsbyggðin leit und- an hefur bitcoin hins vegar sótt mjög í sig veðrið. Hefur verð á bitcoin nærri tvöfaldast í júlí og ágúst og kostar ein bitcoin-eining nú 128,87 dali. Það kann að vera til marks um vöxt og vinsældir bitcoin að selj- endur gjaldmiðilsins mættu í viku- lok til fundar í Downing-stræti og ræddu þar við hátt setta embætt- ismenn frá breska viðskiptaráðu- neytinu. Meðal þess sem rætt var á fundinum var að breskir bankar sýna tregðu til að vilja tengja bankakerfið við greiðslugáttir bitcoin-kauphalla, mögulega af ótta við að viðskipti með sýndargjald- miðilinn geti á endanum leitt til málaferla m.a. vegna hættunnar á peningaþvætti. Í frétt um fundinn minnir Gu- ardian á að HSBC þurfti í desember að greiða bandarískum stjórnvöld- um 1,9 milljarða dala sekt þegar í ljós kom að ónógar varúðarráðstaf- anir höfðu gert mexíkóskum eitur- lyfjahringum fært að streyma fjár- munum gegnum bankann. ai@mbl.is Bitcoin tvöfaldast á tveimur mánuðum AFP Kóði Tölvunotendur láta fara vel um sig á kaffihúsi í Peking. Bitcoin er rafrænn gjaldmiðill fyrir netið.  Rætt um til- slakanir á fundi í Downing-stræti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.