Morgunblaðið - 09.09.2013, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2013
Allt til gjafainnpökkunar
Umbúðakynning dagana 10.-13. september
Komdu á umbúðakynningu okkar og finndu réttu lausnina fyrir þínar vörur.
Flott innpökkun gerir góða vöru enn seljanlegri. Mikið úrval innpökkunarvöru
á lager og einnig hægt að sérpanta lausnir sem koma munu tímanlega fyrir jól.
Eingöngu sala til fyrirtækja!
Opið frá kl. 8.00 – 16.00
Grænn Markaður ehf. | Réttarhálsi 2, 110 Reykavík | Sími 535 8500 | info@flora.is
Bastkörfur fyrir osta, mat, snyrtivörur o.fl.•
Gjafaöskjur fyrir stórt og smátt•
Sellófanpokar, margar stærðir - NÝTT!•
Sellófan á rúllum ýmsar stærðir•
Innpökkunarpappír á rúllum•
Silkipappír í örkum•
Skrautborðar í úrvali•
Pappírspokar í úrvali•
Innpökkunarlausnir fyrir vínflöskur.•
O.fl. o.fl...•
Niðurföll og rennur
í baðherbergi EVIDRAIN
Mikið úrval
– margar stærðir
COMPACT VERA 30cm
8.790,-
AQUA 35cm
13.990,-
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Vestmannaeyjum
PROLINE NOVA 60 cm
23.990,-
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Bandaríska þingið kemur úr sumar-
fríi í dag og má búast við að viðræður
um hernaðaráætlanir Baracks
Obama, Bandaríkjaforseta, gegn
Sýrlandi verði ræddar í vikunni.
Óvíst er hvort stuðningur náist um
hernaðaríhlutun í bæði fulltrúadeild
þingsins og öldungadeildinni en
meira en helmingur þingmanna seg-
ist óviss í afstöðu sinni. Þá er stór
hluti þeirra sem gefið hafa upp af-
stöðu sína andvígur hernaðaríhlutun
Bandaríkjanna.
Lítill stuðningur við hernað
Meira en helmingur Bandaríkja-
manna er á móti því að Bandaríkin
skipti sér af borgarastyrjöldinni í
Sýrlandi og styðja því ekki fyrirhug-
aðar hernaðaraðgerðir Obama. Eins
er mikil andstaða við hernað meðal
almennings í Frakklandi en Franco-
is Hollande, forseti Frakklands, hef-
ur lýst því yfir að Frakkar muni gera
árásir á Sýrland með Bandaríkjun-
um. Meira en 2/3 Frakka eru á móti
loftárásum og öðrum hernaði gegn
Sýrlandi.
Sömu sögu er að segja í Bretlandi
þar sem rúmur helmingur Breta er
andvígur árás á Sýrland. Þá telur yf-
irgnæfandi meirihluti Breta að bíða
eigi eftir niðurstöðu rannsóknar-
nefndar Sameinuðu þjóðanna um
efnavopnaárásina.
Takmarkaðar árásir
Denis McDonough, starfsmanna-
stjóri Hvíta hússins, segir andstöð-
una eðlilega í ljósi þess að Bandarík-
in hafi undanfarinn áratug barist
bæði í Írak og Afganistan. „Það hef-
ur mikið verið lagt á bandaríska her-
aflann undanfarinn áratug og þess
vegna er það ekki ætlun Obama að
fara með fullum þunga inn í Sýrland.
Áætlanir hans gera ráð fyrir tak-
mörkuðum árásum. Við erum ekki að
tala um annað Írak eða Afganistan,
við erum ekki að tala um stöðugar
loftárásir eins og á Líbíu, einungis
takmarkaðar árásir,“ sagði McDono-
ugh við fréttamenn í gær.
Borgarastríðið í Sýrlandi hefur
staðið í tvö og hálft ár og talið er að
hátt í 100 þúsund einstaklingar hafi
látið lífið frá því að átök hófust.
Hernaðarplön
Obama óvinsæl
Almenningur
vill ekki hernaðar-
aðgerðir
AFP
Óvinsæll Obama hefur ekki tryggt
stuðning við hernað gegn Sýrlandi.
Réttað verður yfir hinni 35 ára
gömlu Amira Osman Hamed í Súd-
an fyrir það eitt að neita að ganga
um með slæðu. Verði hún fundin
sek fyrir brot á lögum um velsæmi
á hún í vændum að verða hýdd.
Samkvæmt lögum í Súdan er öll-
um konum skylt að hylja hár sitt
með slæðu. Konur eru sektaðar eða
hýddar fylgi þær ekki lögum um
velsæmi og mega því t.d. ekki
ganga um í síðbuxum.
SÚDAN
AFP
Slæða Konur verða að bera slæðu.
Konur án slæðu
hýddar í Súdan
Talið er að minnst tíu manns hafi
látið lífið í loftárás Atlantshafs-
bandslagsins, NATO, í austurhluta
Afganistans á laugardaginn.
Lögreglustjórinn í Wattapur-
sýslu í Kunar-héraði segir að fjórar
konur, fjögur börn og tveir karlar
hafi látist í árásinni. Í tilkynningu
frá ISAF, herafla NATO í Afganist-
an, segir að tíu vopnaðir uppreisn-
armenn hafi látist í loftárásinni.
Engar upplýsingar hafi borist um
dauða almennra borgara.
AFGANISTAN
Tíu létu lífið loftárás
NATO í Afganistan