Morgunblaðið - 09.09.2013, Qupperneq 31
1986 og vann síðan við förðun hjá
Sjónvarpinu.
Veturinn 1987-88 var hún stiga-
vörður í spurningaþáttunum Hvað
heldurðu? sem Ómar Ragnarsson
stjórnaði. Þar farðaði hún líka og
varð þá gjarnan yrkisefni ýmissa
hagyrðinga sem komu í þættina.
Heiður var viðloðandi förðunar-
deild Sjónvarpsins í tíu ár en sinnti
auk þess textavélritun á fréttum,
aðstoðardagskrárgerð, vinnslu skjá-
auglýsinga – og lestri þeirra sem
og ýmsum afleysingum sem til
féllu.
Heiður lærði myndatöku hjá vin-
um sínum í Sjónvarpinu 1999, vann
á Fréttastofu Sjónvarpsins og í
myndveri Sjónvarpsins til 2004.
Heiður flutti austur á Hérað
2005, varð þá fljótlega hljóðmaður
hjá Svæðisútvarpinu á Austurlandi
og tæknimaður hjá RÚV – Austur-
land, en þar sem maður hennar var
kvikmyndatökumaður og klippari
Svæðisútvarpsins, sáu þau saman
um alla tæknivinnslu fyrir svæð-
isstöðina, útvarp og sjónvarp, frá
2004 og þar til svæðisútsendingar
voru lagðar niður 2010.
Verslunarstörf og tæknivinna
Frá 2010 hefur Heiður stundað
verslunarstörf í versluninni/þvotta-
húsinu Vaski á Egilsstöðum. Auk
þess rekur hún og maður hennar
kvikmyndafyrirtæki, HS Tóka-
tækni. Þau hafa einkum starfað fyr-
ir sjónvarpsstöðvarnar en auk þess
fyrir almenning og sveitarfélög á
svæðinu. Þau sinna myndatökum
og klippingu og setja á diska mynd-
efni sem fólk vill gjarnan halda til
haga. Þá hafa þau gefið út DVD
diska, m.a. um Dráttarvélar á Ís-
landi.
Heiður söng með Kór Verzlunar-
skóla Íslands á árum áður og síðan
í Kór Fríkirkjunnar í Reykjavík í
13 ár. Áhugamál Heiðar snúast um
kvikmyndagerð, ljósmyndun, lestur
og útsaum: „Ég hef virkilega gam-
an af því að vera frænka – á fimm
systkinadætur sem ég reyni að
dekra við þegar hægt er. “
Fjölskylda
Maður Heiðar er Hjalti Stefáns-
son, 27.9. 1964, kvikmyndagerðar-
maður. Hann er sonur Stefáns B.
Guðmundssonar, f. 17.6. 1922, d.
12.2. 2005, bónda á Dratthala-
stöðum á Fljótsdalshéraði, og Hall-
veigar Guðjónsdóttur, 11.5. 1923,
fyrrv. bónda og skálds sem nú býr
á Egilsstöðum.
Börn Hjalta og stjúpbörn Heiðar
eru Sigvaldi Arnar Hjaltason, f.
27.8. 1990, nemi í Reykjavík; Jónný
Hekla Hjaltadóttir, f. 27.9. 1996,
nemi í Borgarnesi.
Systkini Heiðar: Victor Kristinn
Helgason, f. 23.12. 1969, d. 15.11.
2012. Hann var jarðfræðingur í
Reykjavík en ekkja hans er Anna
Sigríður Þráinsdóttir, málfars-
ráðunautur RÚV, og eignuðust þau
þrjár dætur; Birna Huld Helga-
dóttir, f. 25.5. 1971, kjólameistari í
Njarðvík, en maður hennar er Páll
Svavar Pálsson, verkefnastjóri
framkvæmda og fjárfestinga hjá
ISAVIA og eiga þau tvær dætur.
Foreldrar Heiðar eru Helgi
Victorsson, f. 3.8. 1931, fyrrv. kaup-
maður og þúsundþjalasmiður, og
Guðfinna Lilja Gröndal, f. 5.12.
1936, fyrrv. fulltrúi. Þau búa í
Kópavogi.
Úr frændgarði Heiðar Óskar Helgadóttur
Heiður Ósk
Helgadóttir
Þóranna Eyþórsdóttir
húsfr. í Rvík
Gísli Finnsson
járnsm. í Rvík
Pálína Eygló Gísladóttir
húsfr. í Rvík
Victor Kristinn Helgason
veggfóðraram. í Rvík
Helgi Victorsson
fyrrv. kaupmaður í Rvík
Kristbjörg Einarsdóttir
húsfr. á Uppsölum í Flóa
Helgi Jónsson
b. á Uppsölum í Flóa
Guðfinna Einarsdóttir
húsfr. í Rvík
Páll Magnússon
járnsmíðam. í Rvík
Sigríður Pálsdóttir
húsfr. í Rvík
Haukur Gröndal
framkvæmdast.í Rvík
Guðfinna Lilja Gröndal
fyrrv. fulltrúi í Kópavogi
Sigurlaug Gröndal
húsfr. í Rvík
Benedikt Þ. Gröndal
skáld og skrifari Rvík
Kvikmyndatökumaðurinn Heiður
Ósk Helgadóttir við vinnu sína.
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2013
Halldór fæddist á Hauka-brekku í Fróðárhreppi 9.9.1915. Foreldrar hans voru
Sigurður Eggertsson, bóndi og skip-
stjóri í Suður-Bár í Eyrarsveit, og
k.h., Ingibjörg Pétursdóttir hús-
freyja.
Meðal systkina Halldórs var Mar-
grét Sigurðardóttir vþm.
Eiginkona Halldórs var Margrét
Gísladóttir vefnaðarkennari og börn
þeirra Gísli Vilhjálmur, Sigurður
Ingi og Sigurbjörg Guðrún.
Halldór lauk prófi frá Héraðsskól-
anum í Reykholti, stundaði nám við
Samvinnuskólann og lauk búfræði-
prófi frá Hvanneyri 1938.
Halldór var bóndi að Staðarfelli í
Dalasýslu 1937-55 og sveitarstjóri í
Borgarnesi 1955-69. Hann fór lengi
fyrir framsóknarmönnum á Vestur-
landi, sat á Alþingi fyrir Framsókn-
arflokkinn í Mýrasýslu 1956-59 og
var alþm. Vesturlands 1959-79.
Hann var fjármála- og landbún-
aðarráðherra í fyrri ríkisstjórn Ólafs
Jóhannessonar 1971-74 og landbún-
aðar- og samgönguráðherra í rík-
isstjórn Geirs Hallgrímssonar 1974-
78 og beitti sér þá mjög fyrir bygg-
ingu Borgarfjarðarbrúar.
Halldór var formaður Ungmenna-
sambands Dalamanna, formaður
Fellsstrandar- og Klofningsskóla-
hverfis 1946-55, formaður Bún-
aðarfélags Fellsstrandar 1952-55,
sat í stjórn Kaupfélags Stykkis-
hólms 1951-55, í hreppsnefnd Fells-
strandarhrepps 1942-55, í hrepps-
nefnd Borgarneshrepps 1962-70,
formaður Búnaðarsambands
Borgarfjarðar 1962-71, sat í stjórn
Kaupfélags Borgfirðinga 1965-77 og
formaður stjórnar Borgarnes-
læknishéraðs, sat í miðstjórn Fram-
sóknarflokksins 1953-79 og var for-
maður þingflokks Framsóknar-
flokksins.
Halldór naut almenns trausts,
langt út fyrir raðir framsóknar-
manna. Hann var hægur í fram-
göngu, íhugull en gamansamur.
Endurminningar hans komu út í
tveimur bindum: Í fóstri hjá Jónasi,
útg. 1985, og Bilin á að brúa, útg.
1986.
Halldór lést 25.5. 2003.
Merkir Íslendingar
Halldór E.
Sigurðsson
90 ára
Agnete Simson
Inger Jacobsen
85 ára
Guðrún Soffía Jónsdóttir
Jensína Guðmundsdóttir
80 ára
Ásdís Valdimarsdóttir
Ástríður Þórhallsdóttir
Halldór Vilhjálmsson
Jónas Grétar Sigurðsson
Jón Þór Ólafsson
Sigríður E. Zoëga
Solveig Thorarensen
Steinunn Þuríður Hansen
75 ára
Guðni Ásmundsson
Guðrún Ágústa Lárusdóttir
Jóhannes Geir Gíslason
Kolbrún Valdimarsdóttir
Sólveig Guðmundsdóttir
70 ára
Elín Andrésdóttir
Guðlaugur Tryggvi Karlsson
Guðríður Þorleifsdóttir
Lára Ásgerður Albertsdóttir
Sigríður Vilhjálms
Sigurveig Jónsdóttir
Stefán Baldvinsson
Vilhjálmur Þorsteinsson
60 ára
Halldór Ómar Sigurðsson
Marian Tadeusz Trzyna
Marinó Þór Tryggvason
Þórir Bergmundsson
50 ára
Gunnlaugur M. Gunnarsson
Ingigerður Georgsdóttir
Kristín Arnþórsdóttir
Sergia Basalan
Divinagracia
Skarphéðinn Ómarsson
Sveinbjörg Davíðsdóttir
Tryggvi Tryggvason
40 ára
Berglind Bjarnadóttir
Elvar Ingimarsson
Kristbjörg Theódórsdóttir
Kristín Anna
Guðbjartsdóttir
Rós Magnúsdóttir
Sigfús Þór Sigmundsson
Sigurjón Hannesson
Stefán Helgi Stefánsson
Susan Blance Rosento
Yosien Pattiwaellapia
30 ára
Alfreð Örn Sigurðsson
Anton Lyngdal Sigurðsson
Brynhildur Jóna
Helgadóttir
Guðríður Erna
Guðmundsdóttir
Karol Radoslaw Satyla
Kristjana D. Valgeirsdóttir
Marcin Wasilewski
Ragnar Birgisson
Rósa Jóhannsdóttir
Sigmundur Kristjánsson
Símon Freyr Jónsson
Tinna Snædís Bjarnadóttir
Urszula Wiktoria Ostapiuk
Víglundur Páll Einarsson
Til hamingju með daginn
30 ára Þorsteinn ólst upp
í Reykjavík, starfrækir
Hótel Keili og fyrirtækið
Viking guied.
Maki: Íris Ósk Ólafsdóttir,
f. 1981, félagsráðgjafi.
Börn: Sara Mist, f. 2005,
og Daníel Breki, f. 2009.
Foreldrar: Bryndís Þor-
steinsdóttir, f. 1955, hót-
elhaldari, og Ragnar Jón
Skúlason, f. 1945, hár-
skeri og hótelhaldari.
Blóðfaðir er Ragnar Hilm-
ir, búsettur í Svíþjóð.
Þorsteinn Lár
Ragnarsson
30 ára Björgvin ólst upp í
Hrísey, lauk atvinnuflug-
mannsprófi frá Flugskóla
Íslands og starfar hjá flug-
félaginu Atlanta.
Maki: Unnur Ósk Kristins-
dóttir, f. 1985, nemi.
Börn: Kristinn Narfi, f.
2008, Katrín Mjöll, f. 2010,
og Björgvin Snær, f. 2012.
Foreldrar: Narfi Björg-
vinsson, f. 1959, húsa-
smíðam., og Hanna
Hauksdóttir, f. 1959, gjald-
keri.
Björgvin Hauk-
ur Narfason
30 ára Friðrik ólst upp í
Reykjanesbæ, stundar
nám í sjávarútvegsfræði
við HA og starfar hjá
Fjarðarlaxi á Tálknafirði.
Maki: Birna Rán Tryggva-
dóttir, f. 1982, starfs-
maður hjá Fjarðarlaxi á
Tálknafirði.
Foreldrar: Bjarni Frið-
riksson, f. 1960, örygg-
isvörður á Keflavík-
urflugvelli, og Ágústína
Ósk Sigurgeirsdóttir, f.
1959, leikskólakennari.
Friðrik Þór
Bjarnason
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is | stilling@stilling.is
Varahlutir í bíla