Morgunblaðið - 09.09.2013, Síða 36

Morgunblaðið - 09.09.2013, Síða 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2013 Hvað ertu að hlusta á um þessar mundir? El Rojo Adios er mikið á fóninum en það er sænskt band sem spilar á Iceland Airwaves í haust. Nick Cave & The Bad Seeds sem gáfu út frábæra plötu á árinu og spiluðu fyrir stuttu á ATP í Keflavík. Enter 4 með Hjal- talín er búinn að vera föst í spilaranum lengi enda frá- bær plata. Nýja Fuck Buttons platan er góð og svo hef ég verið að rifja upp Spiderland með Slint. Hvaða plata er sú besta sem nokkurn tíma hefur verið gerð að þínu mati? Ég þurfti að hugsa rækilega um svarið við þessari en OK Computer með Radiohead er besta plata sem hefur verið gerð fyrr og síðar. Það er erfitt að finna jafn góða heild í einum pakka. Á plötunni er fullt af frábærum lögum eins og Paranoid Android og Let Down. Lagið Exit Music fær mig ennþá til að kikna í hnjánum. Plöt- urnar Sgt. Peppers með Bítlunum, Relationship of Command með At the Drive in, Curtains með Tind- ersticks og Harvest með Neil Young og No More Shall We Part með Nick Cave eru líka allar mjög ofarlega á mínum lista. Hver var fyrsta platan sem þú keyptir og hvar keyptir þú hana? Ég var níu ára þegar Nevermind með Nirvana og svarta albúmið með Metallica kom út en þessar plötur mótuðu mig svolítið á sínum tíma. Ég ákvað til dæmis að ég ætlaði að læra á trommur eftir að hafa séð Lars Ulrich á Freddie Mercury minningartónleikunum. Þetta voru fyrstu diskarnir sem ég keypti en ég man ekki hvorn ég keypti fyrst. Ég keypti plöturnar í Hljómvali í Keflavík sem var þá eina búðin sem bauð upp á eitthvað úrval af tónlist í bænum. Hvaða íslensku plötu þykir þér vænst um? Lifun með Trúbrot og () (eða ónefnda platan) með Sigur Rós eru mér mjög kærar. Ég hef hlustað óendanlega mikið á þessar plötur og þær voru sérstaklega mikið á fóninum (í ferðageislaspilaranum) á Interrail-ferðalagi sem ég fór í þegar ég var tvítugur. Báðar plöt- urnar virka því eins og hálfgerður „trigger“ á ýmsar minningar um hina ýmsu staði víðs vegar um Evrópu og það getur verið gaman að ferðast aftur á þessa staði í huganum. Hvaða tónlistarmaður værir þú mest til í að vera? Ég væri til í að vera annaðhvort Thom Yorke eða Nick Cave. Þetta eru einfaldlega svölustu menn í heimi og gríðarlegir snillingar. Hvað syngur þú í sturtunni? Like a Virgin með Madonnu. Hvað fær að hljóma villt og galið á föstudagskvöldum? Beck er mjög vinsæll í partíum hjá mér sem og Retro Stefson. The Cure og Hjálmar klikka held- ur aldrei. En hvað yljar þér svo á sunnudagsmorgnum? Frændi minn hann Neil Young er góður á þessum tíma vikunnar og Bill Callahan líka. Í mínum eyrum Tómas Young, verkefnastjóri ÚTÓN og framkvæmdastjóri ATP Iceland Svölustu menn í heimi og gríðarlegir snillingar Snilld OK Computer með Radiohead er afbragð. Svalur Nick Cave er ógur- legur töffari og snillingur. Tónelskur Tómas Young er á kafi í tónlist alla daga.Árið 2154 er jörðin á barmieyðileggingar sökummannmergðar og meng-unar. Þegar svo er komið málum ákveður ríka og fína fólkið að búa til geimstöð, Elysium, sem útleggst sem Ódáinsvellir á ís- lensku. Og nafnið er réttnefni, því að ekki er nóg með að alltaf sé gott veður á geimstöðinni, heldur hefur sjúkdómum og öðrum kvillum svo gott sem verið útrýmt, þökk sé lækningarúmi sem einungis finnst þar um borð. Fátæka fólkið á jörðu niðri reynir allt hvað það getur til þess að brjótast inn í geimstöðina, og leggja sumir allt í sölurnar til þess að geta fengið bót meina sinna. Einn af þeim er Max de Costa (Matt Damon), fyrrverandi bílþjófur sem hefur séð að sér og vill bara lifa heiðarlegu lífi verkamanns. Þegar hann verður fyrir alvarlegu vinnu- slysi sem leiðir til þess að hann á einungis fimm daga eftir ólifaða ákveður hann að taka upp fyrra líf- erni tímabundið til þess að komast í lækningarúm í geimstöðinni. Í vegi hans standa varnarmálaráðherra geimstöðvarinnar, Delacourt (Jodie Foster), og sadískur sendisveinn hennar, Max Kruger (Sharlto Cop- ley úr District 9). Inn í spilið bland- ast æskuástin Frey (Alice Braga) og dóttir hennar sem er með hvít- blæði. Neill Blomkamp, leikstjóri mynd- arinnar, vakti verðskuldaða athygli með mynd sinni District 9, þar sem viðbrögð mannkynsins við geimver- um voru notuð til þess að setja kyn- þáttahatur í annað ljós. Í Elysium er greinilega verið að vísa í umræð- ur um stöðu ríkra og fátækra í heiminum í dag og þær settar í gervi einnar fínustu hasarmyndar sumarsins. Samfélagsádeilan og félagslega raunsæið gengur sem rauður þráður í gegnum myndina, en nær þó sjaldnast að yfirskyggja hasarinn og ofbeldið, sem raunar er full-grafískt þegar áhorfandinn fær að sjá fólk bókstaflega springa í tætlur hægri vinstri. Hvað sem því líður er mjög vel að verki staðið hvað varðar alla tækni- lega þætti myndarinnar og eru tæknibrellurnar til dæmis fyrsta flokks, leikstjórnin traust og leikar- arnir standa sig flestir. Þar er þó ein undantekning á, en Wagner Moura, sem leikur smyglarann Spider, nær engum tökum á hlut- verki sínu og bætir upp fyrir það með skelfilegum ofleik. Handritið er að mestu gott, og nær að leiða huga fólks framhjá verstu götunum í söguþræðinum þangað til í lok myndar. Nokkur atriði eru tölvu- leikjaleg, kannski einum of, og hugsanlega er það með ráðum gert. Sem hasarmynd er Elysium með þeim betri í ár. Meiri áhöld eru um það hversu vel heppnuð samfélags- ádeila myndin er. Erfitt er að meta það hvor mynda Blomkamps, Elysi- um eða District 9, muni verða talin betri þegar fram líða stundir. Hitt er ljóst að það verður fróðlegt að fylgjast með ferli leikstjórans Blom- kamps, sem þorir að feta ótroðnar slóðir. Hasar Matt Damon í kröppum dansi í framtíðartryllinum Elysium. Félagslegur framtíðartryllir Smárabíó, Laugarásbíó, Borgarbíó og Háskólabíó Elysium bbbmn Leikstjóri og handritshöfundur: Neill Blomkamp. Leikarar: Matt Damon, Jo- die Foster, Sharlto Copley, Alice Braga, Diego Luna, Wagner Moura og William Fichtner. Bandaríkin 2013. 109 mínútur. STEFÁN GUNNAR SVEINSSON KVIKMYNDIR Sýning á verk- um Þóreyjar Eyþórsdóttur stendur nú yfir í sal Sambands íslenskra myndlistar- manna, SÍM, Hafnarstræti 16 í Reykjavík. Sýninguna nefnir Þóra Frá einu til annars. Hún hóf ung nám við Myndlistar- og handíðaskólann og hefur áhugi hennar á listsköpun fylgt henni æ síðan, að því er seg- ir í tilkynningu. Þórey hefur haldið margar myndlistarsýningar í gegnum tíð- ina, hér heima sem og erlendis og tekið þátt í fjölda samsýninga. Í sal SÍM sýnir hún ólíka list- miðla og beitir blandaðri tækni í verkum sínum. Sýningin stendur til 25. september og er opin alla virka daga kl. 10-16. Þórey Eyþórsdóttir sýnir í sal SÍM Þórey Eyþórsdóttir PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR. Þúsundir fermetra af flísum með 20 -70% afslætti Baðherbergisvörur 20 -70% afsláttur Teppi og dúkar 25% afsláttur ÚTSALA Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PAR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.