Morgunblaðið - 08.10.2013, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2013
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Miklar makrílgöngur vestur og norð-
ur með landinu valda mönnum
áhyggjum því á þeim slóðum eru upp-
eldisslóðir ungviðis þorsks og loðnu.
Rannsóknir Hafrannsókna-
stofnunarinnar benda til þess að uppi-
staðan í fæðu makríls hér við land sé
áta, svifdýr af krabbaættum.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunarinnar, sagði
að á meðan makríllinn hélt sig mest
fyrir suðaustan og austan land hafi
menn verið rólegir því þar skaraðist
hann ekki við verðmæta nytjastofna á
borð við t.d. ungloðnu og þorskseiði.
Aðalhrygningarstöðvar þorsksins eru
vestan og suðvestan við landið. Þaðan
berast seiðin með strandstraumnum
norður fyrir land á uppeldisstöðv-
arnar. Seiðin halda sig ofarlega í
sjónum fyrsta sumarið og lengi fram
eftir hausti þegar þau taka botn.
„Nú þegar makríllinn hefur teygt
sig vestar og norðar, sérstaklega í ár
og í fyrra, þá er komin skörun,“ sagði
Jóhann. Ekki liggja fyrir nið-
urstöður rannsókna þar sem sýnt er
fram á skaðleg áhrif makríls á um-
rætt ungviði og líklega verður seint
hægt að sanna þau, að mati Jóhanns.
Hann minnti á að þorskárgangurinn
frá 2012 virðist vera vel heppnaður,
þrátt fyrir að makríllinn hafi farið
vestur og norður fyrir land í fyrra.
„Stofn eins og makríll sem fer vítt
og breitt og étur mikið getur unnið
svæðisbundinn skaða ef hann fer yfir
viðkvæmt svæði á viðkvæmum tíma,
til dæmis þar sem þorskseiðin eru
ekki enn farin á botninn, þótt það sjá-
ist ekki í heildarfæðunni,“ sagði Jó-
hann.
Makríll étur sandsíli
Jóhann sagði vitað að sandsíla-
stofninn hefði verið í lægð síðastliðin
5-10 ár. Lægðarinnar í sandsílinu
varð vart áður en sterkar makríl-
göngur hófust á Íslandsmið.
„Við sáum t.d. í Reykjavíkurhöfn í
fyrrasumar spriklandi sandsíli og
makríl að nærast á því,“ sagði Jó-
hann. „Það er alveg inni í myndinni
að makríllinn hafi áhrif á sandsílið.
Að minnsta kosti þannig að hann
hamli því að það nái sér á strik. En
þetta er ekki byggt á miklum gögn-
um því þau eru ekki til.“
Jóhann sagði að sennilega væri
makríllinn nokkuð kræfur í fæðu-
náminu. „Hann er mjög þurftafrekur,
hefur hröð efnaskipti og fitnar hratt á
skömmum tíma í fæðugöngunum.“
Sennilegt er því að makrílganga hafi
mikil áhrif á lífríkið þar sem hún fer
um, enda er þar um að ræða mikinn
fjölda fiska sem fer um stór svæði.
Étur 2-3 milljónir tonna
Undanfarin sumur hefur makríl-
magnið í íslensku lögsögunni í júlí
verið metið um 1,5 milljónir tonna.
Jóhann sagði áætlað að makríllinn
gæti aukið þyngd sína um meira en
40% á meðan hann er hér við land yfir
sumarið.
„Það er veruleg þyngdaraukning.
Menn geta sér til að hann þurfi að éta
2-3 milljónir af sjávarfangi. Lang-
mest af því eru svifdýr samkvæmt
okkar rannsóknum,“ sagði Jóhann.
Svifdýrin eða átan sem makríllinn ét-
ur hefðu ella getað orðið fæða ann-
arra fisktegunda. Til samanburðar
má geta þess að fyrir nokkrum árum
var áætlað að hvalir við Ísland ætu
um sex milljónir tonna á ári.
„Það er augljóst að þegar kominn
er nýr gestur sem tekur til sín 2-3
milljónir tonna þá minnkar fram-
leiðslugeta einhverra annarra fiski-
stofna. En hvort það lendir á stofnum
sem við erum að nýta eða einhverjum
öðrum stofnum er ekki auðvelt að
segja,“ sagði Jóhann. Hann sagði
mikilvægt í vistfræðilegu tilliti hvar í
fæðukeðjunni fæðan er tekin. Fæða
sem er tekin á lægri fæðuþrepum, til
dæmis dýrasvif, skipti minna máli
fyrir vistkerfið í heild en fæða sem
tekin er ofar í fæðukeðjunni, t.d. seiði
eða fullorðinn fiskur.
Áhyggjur af áhrifum á þorskseiðin
Makríllinn er farinn að ganga á uppeldisstöðvar þorsks og loðnu Áhrif skörunar stofnanna eru
ekki enn orðin ljós Frekari rannsókn á fæðunámi makrílsins er fyrirhuguð á næstu mánuðum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Makríll Mikið af makríl, um 1,5 milljónir tonna, kemur í ætisleit á Íslands-
mið. Talið er að makríllinn auki þyngd sína um 40% meðan hann dvelur hér.
Doktorsnemi við Háskóla Íslands
ætlar að rannsaka frekar hvað
makríll étur á Íslandsmiðum. Um
er að ræða rannsókn á vegum
Hafrannsóknastofnunar í sam-
starfi við HÍ og Matís. Greint var
frá verkefninu á vísindaráðstefnu
ICES sem var nýlega í Reykjavík.
Hingað til hafa rannsóknir á
magainnihaldi bent til þess að
áta sé uppistaðan í fæðu mak-
ríls. Aðallega hefur verið rann-
sakaður makríll sem veiðist fjarri
landi. Í fyrra voru og tekin sýni í
Faxaflóa og Breiðafirði. Guð-
mundur Óskarsson, fiskifræð-
ingur hjá
Hafrannsókna-
stofnun, sagði
að samsetning
fæðunnar þar
hefði verið svip-
uð og fjær landi.
Í sumar voru
tekin fleiri sýni,
t.d. í Steingríms-
firði. Endanlegar niðurstöður
liggja ekki fyrir en unnið verður
úr sýnunum á næstu mánuðum.
Vitað er að fæðugerðir meltast
mishratt, fisklirfur verða t.d. fyrr
ógreinanlegar en átan.
Makríllinn étur mest átu
FREKARI RANNSÓKNIR Á FÆÐUNÁMI MAKRÍLS
Jóhann
Sigurjónsson
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Óvild gamalgróinna bankastofnana í
garð íslensku útrásarbankanna var
ríkjandi þegar íslenska fjármálakerf-
ið riðaði til falls haustið 2008 sem og
andstaða erlendra ríkisstjórna sem
kærðu sig ekki um samkeppni frá Ís-
landi á fjármálasviðinu.
Þetta kom fram í máli Hannesar
Hólmsteins Gissurarsonar, prófess-
ors í stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands, á ráðstefnu Rannsóknarseturs
um nýsköpun og hagvöxt í Öskju, Há-
skóla Íslands, í gær. Var tilefnið að nú
eru liðin fimm ár frá hruninu.
Ýmis nýmæli komu fram í máli
Hannesar. Hann sagði þannig frá því
að árið 2005 rannsakaði breska leyni-
þjónustan, MI5, íslensku bankana
vegna gruns um að þar leyndist fé frá
rússnesku mafíunni. Þá tiltók hann
hvernig fram kemur í æviminningum
Alistair Darling, fjármálaráðherra
Bretlands, þegar íslenska bankakerf-
ið hrundi, að íslenskir bankamenn
hefðu lagt Íhaldsflokknum til fé, höf-
uðandstæðingi Verkamannaflokks-
ins, flokk Darling, í breskum stjórn-
málum. Þá hefði Darling verið undir
þrýstingi frá sveitarstjórnarmönnum
úr Verkamannaflokknum sem lögðu
fé sveitarfélaganna inn á Icesave-
reikninga.
Björguðu öðrum bönkum
Hinn 7. október 2008 hefðu bresk
stjórnvöld stöðvað starfsemi Kaup-
þings og Landsbankans en komið öll-
um öðrum bönkum á Bretlandi til
bjargar. Daginn eftir hefðu bresk
stjórnvöld sett hryðjuverkalög á Ís-
land og við það öll sund lokast.
Hannes rifjaði einnig upp hvernig
bandaríski seðlabankinn hefði neitað
að gera gjaldeyrisskiptasamninga við
Ísland, en hefði þá gert það við önnur
ríki á Norðurlöndum. Ísland hefði
staðið eitt og berskjaldað í fjármála-
fárviðrinu. Loks hefðu verðmætar
eignir föllnu íslensku bankanna verið
seldar á brunaútsölu.
Fram kom í máli Hannesar að ís-
lenska bankahrunið hefði ekki verið
dýpri kreppa en varð í mörgum Evr-
ópuríkjum í fjármálafárviðrinu, þeg-
ar útlánabólan sprakk með hvelli. Ís-
lenska bankakerfið hefði verið stórt
en það sama mætti segja um banka-
kerfin í Sviss og Bretlandi. Íslenskir
bankamenn hefðu verið áhættusækn-
ir en ekki meiri glannar en aðrir.
Hannes rifjaði upp orsakir alþjóða-
kreppunnar og hvernig margt hefði
lagst á eitt um að auka framboð af
ódýru lánsfé. Þá benti Hannes á að
þjóðarframleiðsla hefði dregist meira
saman í sjö Evrópuríkjum en á Ís-
landi árið 2009 en mestur varð sam-
drátturinn í Lettlandi, eða um 18% af
vergri landsframleiðslu (VLF). Þá
benti Hannes á að skammtímaskuldir
í íslenska bankakerfinu hefðu verið
minni en t.d. í Sviss og Bretlandi.
Varð hlutfallið á Íslandi mest ríflega
tvöföld VLF.
Annars konar fjármálamiðstöð
Hannes vék að rannsóknarskýrslu
Alþingis og hvernig þar væri mikið
fjallað um það markmið að Ísland yrði
alþjóðleg fjármálamiðstöð.
Sagði Hannes að hugmyndin hefði
upphaflega komið frá Mikael Karls-
syni, prófessor í heimspeki við Há-
skóla Íslands, og þeir tveir þróað
hana í sameiningu. Hugmyndin hefði
gengið út á að laða hingað til lands
stórfyrirtæki með lágum sköttum og
stöðugu stjórnarfari, líkt og á t.d.
væri gert á Ermarsundseyjum. Hug-
myndin hefði þannig ekki gengið út á
að láta íslenska banka vaxa erlendis
og skapa fjármálabólu á Íslandi.
Jafnframt sagði Hannes að reglu-
verkið hér hefði ekki verið minna í
sniðum en í ríkjum ESB, ásamt því
sem hann rifjaði upp þau skref sem
voru stigin til þess að auka frjálsræði
til athafna á Íslandi 1991-2004.
Umskipti hefðu orðið árið 2004
þegar Jón Ásgeir Jóhannesson og fé-
lag hans Baugur hefðu haft betur í
orrustunni um fjölmiðlafrumvarpið.
Á árunum 2004-2008 hefði tekið við
skeið klíkukapítalisma, þar sem stór-
eignamenn beittu fjölmiðlum í sína
þágu með gagnkvæmum stuðningi
stjórnmálamanna. Dómskerfið hefði
spilað með. Brá Hannes síðan upp
skjámynd af útlánum þriggja helstu
viðskiptasamstæðna Íslands árin
2005 til 2008 sem sýndi hvernig
stærstur hluti lánanna tengdist
Baugi. »12
MI5 rannsakaði íslensku bankana
Breska leyniþjónustan kannaði hvort íslensku útrásarbankarnir hefðu tengsl við rússnesku mafíuna
Fjármálaráðherra Bretlands var undir þrýstingi flokksbræðra sinna vegna fjár á Icesave-reikningum
Morgunblaðið/Kristinn
Í Öskju Frá vinstri eru Eamonn Butler, forstöðumaður Adam Smith-stofnunarinnar, Pythagoras Petratos, kennari
við Oxford, Hannes Hólmsteinn, Ásgeir Jónsson og Stefanía Óskarsdóttir, lektor í stjórnmálafræði við HÍ.
Fern meginmistök voru gerð
eftir hrunið á Íslandi, að mati
Ásgeirs Jónssonar, lektors í
hagfræði við Háskóla Íslands,
og eins ræðumanna í Öskju.
Í fyrsta lagi voru kröfuhöfum
færð yfirráð yfir Íslandsbanka
og Arion banka og eiga þeir nú
miklar eignir í krónum, sem eru
m.a. tilkomnar vegna mikils
hagnaðar bankanna frá hruni. Í
öðru lagi hafi kröfuhöfum
Landsbankans verið afhent
skuldabréf í erlendum gjaldeyri
sem er ríkistryggt, í ljósi 98%
eignarhlutar ríkisins í bank-
anum. Í þriðja lagi hafi björgun
sparisjóðakerfisins reynst dýr
og þeir fjármunir nýst illa. Í
fjórða lagi hafi mikil og dýr-
keypt mistök verið gerð þegar
ríkið kom Íbúðalánasjóði til að-
stoðar, í stað þess að láta sjóð-
inn fara í þrot á sama tíma og
stóru bankana.
Erlendir kröfuhafar eigi nú
1.000 til 1.300 milljarða eignir í
krónum, ígildi 50-70% þjóðar-
framleiðslunnar. Líkti Ásgeir
vandanum við þá erfiðu stöðu
sem Þjóðverjar voru í eftir fyrri
heimsstyrjöldina þegar þeim
var gert að greiða himinháar
stríðsskaðabætur í Versala-
samningunum, sem þeir gátu
engan veginn staðið undir.
Nýr „Versala-
samningur“
LEKTOR UM SNJÓHENGJU