Morgunblaðið - 08.10.2013, Blaðsíða 12
VIÐTAL
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Í miðri efnahagskreppu gefst frá-
bært tækifæri fyrir stjórnvöld víðs
vegar um heim til að laða að erlenda
fjárfesta, endurskipuleggja hag-
kerfið og opna það upp á gátt, segir
Pythagoras Petratos, kennari í fjár-
málafræði við Said-viðskiptaskólann
í Oxford-háskólanum í Bretlandi.
Grikkinn Petratos er staddur hér
á landi þessa dagana en hann hélt
erindi á alþjóðlegri ráðstefnu um
bankahrunið í gær. Rannsóknar-
setur um nýsköpun og hagvöxt stóð
fyrir ráðstefnunni í samstarfi við
AECR, Evrópusamtök íhaldsmanna
og umbótasinna. Auk Petratos héldu
þau Eamonn Butler, Hannes Hólm-
steinn Gissurarson, Ásgeir Jónsson
og Stefanía Óskarsdóttir erindi.
Petratos, sem lauk háskóla-
prófum í fjármálafræðum, heilsu-
hagfræði og Evrópustjórnmálum
sem og doktorsprófi frá Lundúnahá-
skóla, fjallaði um ástandið á Kýpur
og gerði í stuttu máli grein fyrir
hagsögu þess.
Breytingar eftir Kalda stríðið
„Stjórnmálaástandið þar í landi
var skelfilegt í gamla daga – bæði
fyrir og eftir seinni heimsstyrjöld-
ina. Ástandið hafði, eins og gefur að
skilja, gríðarleg áhrif á efnahagslíf
Kýpverja og hagkerfi landsins,“
segir hann í samtali við Morgun-
blaðið.
Það breyttist hins vegar til betri
vegar, að mati Petratos, eftir kalda
stríðið. „Þá voru kýpverskir mark-
aðir opnaðir í frekara mæli. Stjórn-
völd löðuðu að erlenda fjárfesta, þar
á meðal rússneska, sem varð til þess
að banka- og fjármálageiri landsins
óx verulega. Einnig má nefna að
Kýpverjar gerðust aðilar að Evr-
ópusambandinu sem leiddi til aukins
pólitísks stöðugleika.“
Hann segir að í augum margra
hafi Kýpur verið gott land til að
fjárfesta í. „Aðildin að Evrópusam-
bandinu auðveldaði allt þetta ferli.
Fjárfestingar jukust, húsnæðisverð
fór upp í hæstu hæðir og ferðamenn
streymdu til landsins,“ bætir hann
við.
Kýpverska líran varð, að sögn
Petratos, sterkari og sterkari, sem
bitnaði á samkeppnishæfni landsins.
„Ég, ásamt mörgum öðrum, trúði
því að evran væri traustur gjaldmið-
ill þannig að mínu mati var sú
ákvörðun, að taka upp evruna, rétt.“
Titill erindisins var „Fjármála-
kreppan í Kýpur“, en hann segir tit-
ilinn vísa til þess að alþjóðleg
kreppa hafi riðið yfir heimsbyggðina
sem hafi haft áhrif á hagkerfi Kýp-
ur. Kreppan hafi ekki verið sérkýp-
verskt fyrirbæri.
Petratos nefnir þrjár kreppur
sem hafi allar haft sitt að segja. „Í
fyrsta lagi er það alþjóðlega fjár-
málakreppan sem hófst í Bandaríkj-
unum og hafði dómínóáhrif á önnur
hagkerfi. Í öðru lagi er það skulda-
kreppan í Evrópu sem hefur haft
gífurleg áhrif á Kýpur. Loks má
nefna þá kreppu sem Kýpverjar
hafa þurft að glíma við innanlands.“
Dragi úr skattbyrði
– Hvernig er hægt að koma í veg
fyrir að alþjóðleg kreppa hafi svona
gríðarleg áhrif á lítil hagkerfi?
„Við ættum að nota í meira mæli
áhættulíkön. Ekki aðeins fjármála-
líkön heldur einnig líkön sem meta
aðra þætti, svo sem pólitíska áhættu
og órökvísi einstaklinga. Þá væri ráð
að bankar auki eigið fé sitt, svo ann-
að dæmi sé tekið.“
Hann bætir því við að mikilvægt
sé að fækka sköttum og draga úr
skattbyrði. Máli sínu til stuðnings
nefnir hann kúrfu Laffers en
Lafferkúrfan er notuð til að skýra
teygni á milli skatttekna og
skattprósenta. Við ákveðna
skattprósentu næst hámark skatt-
tekna sem þýðir að hærri skattpró-
senta muni ekki skila auknum
tekjum í ríkissjóð. „Háir skattar
hafa einnig skaðleg áhrif á alla efna-
hagsstarfsemi. Og að sjálfsögðu þarf
að draga úr skrifræði. Gera þarf
regluverkið einfaldara til að auka
erlendar fjárfestingar.
Í miðri efnahagskreppu gefst frá-
bært tækifæri til að laða að erlenda
fjárfesta, endurskipuleggja hag-
kerfið og opna það upp á gátt,“ segir
Petratos að lokum.
Morgunblaðið/Ómar
Kennari Petratos hefur verið gestakennari við marga gríska háskóla, þar á meðal Krítarháskóla og Þessalíuhá-
skóla, en einnig við Cambridge-háskóla. Í dag kennir hann fjármálafræði við Oxford-háskólann í Bretlandi.
Gott tækifæri til að
opna markaði í kreppu
Dr. Petratos vill draga úr skrifræði hjá hinu opinbera
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2013
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hefur síðustu ár lagt áherslu á sýni-
legt eftirlit í umferð. Það hefur verið
hvað mest á stofnbrautum á morgn-
ana og síðdegis þegar umferðin er
mikil og þá gjarnan við stærstu
gatnamót höfuðborgarsvæðisins. Þá
hefur hún og verið í íbúðahverfum
við grunnskóla.
Þannig hefur lögregla reynt að
hægja á umferð, auka árvekni öku-
manna og öryggi á stöðum þar sem
slysahætta er mikil. Þetta verklag
hefur gefist vel að mati lögreglu og
mun halda áfram,“ segir í tilkynn-
ingu frá lögreglunni.
Lögregla hefur hinsvegar áhyggj-
ur af brotum í umferð sem eru
hættuleg vegfarendum en erfitt hef-
ur reynst að stemma nægjanlega
stigu við, svo sem farsímanotkun án
handfrjáls búnaðar og vöntun á
notkun bílbelta og stefnuljósa, segir í
tilkynningunni. Lögreglan mun því,
auk hefðbundinnar sýnilegrar lög-
gæslu, einnig nota ómerktar lög-
reglubifreiðar í október til að fylgj-
ast með þessum brotum sérstaklega
og grípa inn í ef þörf krefur. Hún
hvetur á sama tíma alla ökumenn til
að vera með í þeirri baráttu að fækka
slysum með því að nota þann sjálf-
sagða öryggisbúnað sem bílbeltin
eru og sýna samferðafólki í umferð
þá virðingu að gefa stefnuljós þegar
það á við og tala ekki í farsíma án
handfrjáls búnaðar.
Lögreglan eykur eftirlit
Morgunblaðið/Ernir
Eftitlit Lögreglan verður mjög sýnilega í október.
NÝTT
Nicotinell er samstarfsaðili
Krabbameinsfélagsins
Nicotinell Spearmint 2 mg og 4 mg lyfjatyggigúmmí. Inniheldur nikótín. Ábendingar: Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið
dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja, að hætta og
auðveldar þeim sem ekki geta hætt, eða eru tregir til þess, að draga úr reykingum. Skammtar fyrir fullorðna 18 ára og eldri:
Skammta skal ákvarða út frá því hversu háður nikótíni einstaklingurinn er. Mælt er með 4 mg lyfjatyggigúmmíi fyrir
einstaklinga með mikla nikótínþörf og fyrir þá sem ekki hefur tekist að hætta með notkun 2 mg lyfjatyggigúmmís. Ef þú
reykir fleiri en 30 sígarettur/sólarhring má miða við notkun 4 mg, 20-30 sígarettur/sólarhring er miðað við 2 eða 4 mg eftir
þörf en ef reykt er minna en 20 sígarettur á sólarhring er æskilegt að nota 2 mg. Ef þú færð aukaverkanir við notkun stærri
skammtsins (4 mg lyfjatyggigúmmí), skaltu íhuga minni skammt í staðinn. Tyggja skal eitt stk við reykingaþörf þar til finnst
sterkt bragð. Þá skal láta það hvíla milli kinnar og tannholds. Þegar sterka bragðið minnkar skal tyggja aftur. Þetta skal
endurtaka í 30 mín. Venjuleg notkun er 8-12 stk, þó ekki fleiri en 15 stk af 4 mg og 25 stk af 2 mg lyfjatyggigúmmíi á
sólarhring. Meðferðarlengd er einstaklingsbundin en skal í flestum tilfellum standa í a.m.k. 3 mánuði, skal þá draga smám
saman úr notkun lyfjatyggigúmmísins. Meðferð skal hætt þegar neyslan er komin niður í 1-2 lyfjatyggigúmmí á sólarhring.
Venjulega er ekki mælt með notkun lyfsins lengur en í eitt ár. Sumir, sem eru hættir að reykja, gætu þó þurft lengri meðferð
til þess að forðast að byrja aftur að reykja. Geyma skal afgangs lyfjatyggigúmmí þar sem reykingaþörf getur skyndilega
komið upp aftur. Ráðgjöf getur aukið líkurnar á því að reykingafólk hætti að reykja. Nota má lyfið til að lengja reyklaus
tímabil og draga þannig úr reykingum. Ef ekki hefur dregið úr fjölda sígaretta á sólarhring eftir 6 vikur skal leita faglegrar
ráðgjafar. Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er reiðubúin til þess, þó ekki síðar en eftir 6 mánaða meðferð.
Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að hætta reykingum eftir 9 mánaða meðferð. Frábendingar: Ofnæmi fyrir
nikótíni eða einhverju hjálparefnanna, reykleysi. Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing því ekki er víst að þú megir nota
lyfið ef þú: ert á meðgöngu eða með barn á brjósti, hefur nýlega fengið hjartabilun eða hjartastopp, ert með hjarta- eða
æðasjúkdóm, of háan blóðþrýsting, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil/nýrnahettur, magasár eða verulega skerta nýrna- og/eða
lifrarstarfsemi eða ef þú ert yngri en 18 ára. Einstaklingum með gervitennur og þeim sem eiga í erfiðleikum með að tyggja
tyggigúmmí er ráðlagt að nota önnur lyfjaform nikótínlyfja. Sjúklingar með arfgengt frúktósaóþol skulu ekki nota lyfið.
Athuga ber að lyfið inniheldur natríum og bútýlhýdroxýtólúen (E321). Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað
er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Jafnvel lítið magn
af nikótíni er hættulegt börnum og getur valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfishafi: Novartis Consumer
Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
®
Loksins
á Íslandi!
Nicotinell með
Spearmint bragði
- auðveldar þér að
hætta reykingum