Morgunblaðið - 08.10.2013, Side 20

Morgunblaðið - 08.10.2013, Side 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2013 KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! REKSTRAR- OG ÖRYGGISVÖRUR VERKTAKANS Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466 Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00. Mingora. AFP. | Í heimabæ pakist- önsku stúlkunnar Malala Yousafzai biðja skólastúlkur fyrir því að hún fái friðarverðlaun Nóbels í ár – en margar þeirra halda þeim draumi leyndum vegna þess að í samfélagi þeirra eru skoðanir mjög skiptar um stúlkuna. Malala er sextán ára og varð heimsfræg eftir að talibani skaut hana í höfuðið fyrir að berjast fyrir menntun kvenna. Stjórnmálamenn og frægt fólk á Vesturlöndum hafa lofsungið hana fyrir réttindabarátt- una en á heimaslóðum hennar í Swat-dal í norðvesturhluta Pakist- ans einkennist afstaða íbúanna til hennar af tortryggni og jafnvel fyrirlitningu. Of ung til að fá Nóbelinn? Tilkynnt verður á föstudaginn kemur hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels í ár. Malala er álitin líklegust til að verða fyrir valinu, að sögn breska veðbankans Paddy Power. Aðrir efast um að rétt sé að veita svo ungri stúlku Nóbelinn. „Ég er ekki viss um að það sé viðeigandi, frá sið- ferðilegu sjónarmiði, að veita barni verðlaunin,“ segir Tilman Brück, yfirmaður friðarrannsókna- stofnunarinnar SIPRI í Stokkhólmi. Safia, vinkona Malala í bænum Mingora í Swat-dal, segir hana verð- skulda verðlaunin og kveðst styðja heilshugar baráttu hennar fyrir því að stúlkur fái að ganga í skóla. „Reiðhjól er ónothæft með aðeins eitt hjól: þjóðfélagið er eins og reið- hjól, menntun karla er fyrra hjólið, menntun kvenna er hitt hjólið.“ Swat-dalur naut eitt sinn mikilla vinsælda meðal ferðafólks vegna náttúrufegurðar en það breyttist þegar talibanar náðu dalnum á sitt vald árið 2007 og stjórnuðu sam- kvæmt sjaríalögum. Pakistanska hernum tókst að hrekja flesta vopn- aða liðsmenn íslamistanna úr daln- um tveimur árum síðar en hreyf- ingin er enn öflug á nokkrum afmörkuðum svæðum og heldur þar áfram baráttu sinni fyrir íslömsku ríki. Einn liðsmanna morðsveitar talibana skaut Malala í höfuðið eftir að hún hóf baráttu sína fyrir því að allar stúlkur fengju að ganga í skóla. Hún lifði árásina af og stundar nú nám á Englandi eftir að hafa leitað sér lækninga þar. Skólasystur Malala í Mingora styðja hana heilshugar og vilja að land þeirra verði þekkt fyrir annað en talibana og sprengjur. „Malala er öðrum sönn fyrirmynd, ekki aðeins okkur heldur öllum Pakistönum,“ segir Rehana Noor Bacha, fjórtán ára stúlka í bænum. Baráttan fyrir menntun kvenna hefur borið árangur í dalnum eftir að talibanar voru hraktir þaðan. Hlutfall stúlkna sem ganga í skóla hefur hækkað í tæp 50% úr 34% frá árinu 2011. Um 90% drengja í daln- um ganga nú í skóla. Menntamálayfirvöld í Pakistan segja að minnst þúsund kennslukon- ur og 200 kennslustofur vanti enn til að hægt verði að sjá öllum stúlkum í dalnum fyrir menntun. Liður í vestrænu samsæri? Malala er orðin ein af frægustu unglingum í heiminum. Frægt fólk á borð við Madonnu, Angelinu Jolie, Hillary Clinton og Bono hefur lýst yfir stuðningi við baráttu hennar. Frægð Malala á Vesturlöndum hefur kynt undir tortryggni í garð hennar meðal afturhaldssamra Pak- istana sem telja að konur eigi að halda sig utan við sviðsljósið og að barátta hennar sé liður í samsæri vestrænna afla sem vilji grafa undan hefðbundnum gildum múslíma í Pakistan. „Bandaríkjamenn bjuggu Malala til með það fyrir augum að ýta undir eigin nektarmenningu og koma óorði á Pakistan í heiminum,“ segir Maulana Gul Naseeb, forystu- maður í einum af helstu trúarlegu stjórnmálaflokkunum í Pakistan. Á samskiptavefjum hafa margir Pakistanar furðað sig á því að Vesturlönd skuli hampa stúlku, sem særðist í árás talibana, en gleyma afgönskum og pakistönskum börn- um sem hafa beðið bana í sprengju- árásum Bandaríkjahers. Vona í laumi að Malala fái Nóbelinn AFP Námfúsar Pakistanskar stúlkur í skóla í bænum Mingora, höfuðstað Swat-dals. Stúlkurnar vona að Malala Yous- afzai hljóti friðarverðlaun Nóbels í ár fyrir baráttu sína fyrir því að allar stúlkur í Pakistan fái að ganga í skóla. AFP Dáð Malala Yousafzai tekur við mannréttindaverðlaunum í London.  Skólastúlkur í Swat-dal í Pakistan biðja fyrir því að 16 ára stúlka fái friðarverðlaun Nóbels fyrir baráttu sína fyrir menntun kvenna  Margir Pakistanar tortryggja hana og réttindabaráttu hennar Þrír vísindamenn við bandaríska háskóla hljóta nóbelsverðlaunin í læknavísindum í ár. Uppgötvanir þeirra eru sagðar hafa veitt vísindamönnum mikil- væga innsýn í starfsemi fruma líkamans og aukið þekkinguna á sjúkdómum á borð við sykursýki og tauga- og ónæmissjúkdóma. Verðlaunahafarnir eru Bandaríkjamennirnir James Rothman, prófessor við Yale-háskóla, og Randy Schek- man, prófessor við Kaliforníuháskóla, og Þjóðverjinn Thomas Suedhof, prófessor við Stanford-háskóla. Þeir fá verðlaunin fyrir rannsóknir á því hvernig frumur skipuleggja flutn- ingakerfi sitt. Þeir deila með sér verðlaunafénu, jafnvirði rúmra 150 millj- óna króna. Verðlaunin verða afhent í Stokkhólmi 10. desember. Veittu innsýn í starfsemi fruma ÞRÍR MENN FENGU NÓBELSVERÐLAUNIN Í LÆKNAVÍSINDUM James Rothman A.m.k. sex hermenn og þrír lögreglumenn biðu bana í árásum sem talið er að stuðningsmenn Bræðralags múslíma hafi gert í Egyptalandi í gær. Dag- inn áður lágu a.m.k. 50 manns í valnum eftir hörð átök milli öryggissveita og stuðningsmanna Bræðralags múslíma í Kaíró og fleiri borgum. Blóðug átök í Egyptalandi AFP 118,28 karata hvítur demantur var seldur á yfir 30,6 milljónir dala, eða um 3,7 milljarða króna, á uppboði í Hong Kong í gær. Þetta er hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir demant í heiminum. Kaupandinn vill ekki láta nafns síns getið en uppboðið stóð í sex mínútur. „Við erum ótrúlega spennt,“ segir Quek Chin Yeow, sem stjórnaði uppboðinu hjá Sotheby í Asíu. Hann segir að steinninn hafi verið í einkaeigu. „Þessi sala sannar að við getum haldið risastór uppboð hér í Hong Kong,“ seg- ir uppboðshaldarinn. KÍNA Dýrasti demantur í heiminum seldur Demanturinn er egglaga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.