Morgunblaðið - 08.10.2013, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.10.2013, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2013 Fögnuður Haustsólin gleður marga þessa dagana og hún dregur suma að sjónum í Nauthólsvík. Þangað kemur sjósundsfólk gjarnan til að fá sér sundsprett í hafinu, sem bætir, hressi og kætir. RAX Í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins er fjallað um Rík- isútvarpið og rifjaðir upp atburðir liðinnar tíðar. Bréfritari fer aft- ur til ársins 1984, verk- falls opinberra starfs- manna í BSRB, þegar Ríkisútvarpinu var lok- að.Við þá atburði hafi meirihluti þingmanna komist á þá skoðun að afnema ætti einokun RÚV og opna fyrir samkeppni á öldum ljósvakans. Bréfritari Reykjavíkurbréfs segir: Ríkisútvarpið og verkfall BSRB 1984 „Þegar starfsmenn Ríkisútvarps- ins ákváðu að loka Ríkisútvarpinu, hreinlega slökkva á því, þótt engin sambærileg stofnun væri til staðar, til þess að styrkja stöðu BSRB í verkfallsbaráttu gegn ríkisvaldinu (ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) opnuðust augu margra. Það var þá þannig sem starfsmennirnir, með fréttastofuna í broddi fylkingar, litu á „öryggis- hlutverk“ þeirrar stofnunar. Reynd- ar sá fréttastofan fljótlega að hún hafði leikið af sér, því hún hafði áður gert verkfallsmönnum miklu meira gagn með svívirðilega lituðum frétt- um sínum og þrýsti á að hún fengi að opna aftur. Þeir sem gættu ríkra al- mannahagsmuna á þeim tíma gleyma því seint, hvernig hún var grímulaust misnotuð í kjölfarið.“ Og síðan er rakin framganga Rík- isútvarpsins í Búsáhaldabyltingunni og komist að þessari niðurstöðu: „Pólitísk misnotkun, sem vissulega ofbýður sífellt fleirum, er stóralvar- leg, en þó er hún eins og hégómi hjá framantöldum atriðum. En saman sýna þau að það er eitt- hvað stórkostlega brogað við þessa starf- semi og þar á bæ virð- ist ekki nokkur maður með ábyrgð líta í eigin barm. En kann ekki svo að fara, rétt eins og 1984, að svo alvarleg mistök ásamt viðvar- andi og síversnandi misnotkun og yfirgangi fámenns hóps, sem kemst upp með að haga sér eins og hann eigi Ríkisútvarpið, ofbjóði langlundargeði landsmanna og opni augu þeirra?“ Margir þátttakendur Nú vill svo til að við sem lesum þennan boðskap erum ekki öll sögu- laus og sum okkar voru þátttak- endur í þeim atburðum sem hér er lýst og taka því þessar sendingar til sín. Ég var á þessum tíma fréttamað- ur á RÚV og auk þess formaður Starfsmannafélags Sjónvarps og stjórnarmaður í BSRB og einnig hvatamaður að umræddu verkfalli og lokun Ríkisútvarpsins. En það voru fleiri þátttakendur. Ríkisstjórnin var eins og bréfritari Reykjavíkurbréfs rifjar upp, sam- ansett á sama hátt og í dag. Fram- sóknarflokkur fór með forsætisráð- herraembættið og Sjálfstæðisflokkur fjármálin en borgarstjórinn var Davíð Oddsson, viðsemjandi starfsmanna Reykja- víkurborgar í umræddum verkfalls- átökum. Skuldakreppa… Ríkisstjórnin hafði verið mynduð á vordögum árið 1983. Fyrsta verk hennar var að afnema vísitölu launa en láta vísitölu lána halda sér. Þegar verðbólgan náði himinhæðum – á annað hundrað prósent um nokk- urra mánaða skeið – æddu lánin upp á við en kaupmátturinn rýrnaði. Upp úr sauð haustið 1983 þegar Sig- túnshópurinn svokallaði sameinaði fólk úr öllum stjórnmálaflokkum til að krefjast úrbóta og átti hann eftir að beita sér allt til ársins 1988 fyrir umbótum í húsnæðiskerfinu. Hremmingarnar sem margir lentu í á þessum tíma voru ekki smáar í sniðum enda töpuðu margir öllu sínu. … og launakreppa En launahliðin var á könnu verka- lýðshreyfingarinnar. Mörgum þótti hún sein til að rísa upp og var vax- andi ólga innan hreyfingarinnar, einkum í opinbera geiranum, en þar var þá sáralítið launaskrið miðað við það sem viðgengist hafði á almenn- um vinnumarkaði á þessum tíma. Kjörin versnuðu með ógnvænlegum hraða hjá taxtabundnu launafólki. Síðsumars 1984 þegar yfirgnæf- andi meirihluti BSRB-félaga sam- þykkti verkfallsboðun gengust heildarsamtökin fyrir upplýsinga- herferð um launakjör félagsmanna. Birtar voru í auglýsingatíma Sjón- varpsins myndir af einstaklingum ásamt starfsheiti þar sem sagt var hvað þeir væru með í laun. Útvarpsráð bannar auglýsingar Útvarpsráð undir forystu Sjálf- stæðisflokksins ákvað að banna þessar auglýsingar og varð það enn til að kynda undir reiði fólks. Þótti þarna vera beitt póiltísku ofríki. Í auglýsingunum var ekkert að finna annað en upplýsingar um launakjör fólks sem var orðið mjög aðþrengt á þessum tíma. Þegar síðan ríkisstjórnin ákvað að stöðva launagreiðslur til ríkisstarfs- manna, sem áttu lögum samkvæmt að fá fyrirframgreidd laun, 1. októ- ber þótt verkfall ætti ekki að hefjast fyrr en nokkrum dögum síðar, boð- uðu samtök starfsfólks Rík- isútvarpsins til fundar þar sem ákveðið var að leggja samstundis niður vinnu. Öryggisþjónusta Rík- isútvarpsins var þó ekki skert. Brá nú svo við að hinn pólitíski meirihluti útvarpsráðs gerði allt sem hann gat til að koma í veg fyrir að öryggis- hlutverki og lágmarksþjónustu væri fullnægt, mætti það verða til að sverta verkfallsmenn. Krafist fangelsisdóms yfir verkfallsmönnum Fyrir þetta var síðan reynt að láta okkur gjalda og var okkur nokkrum forsvarsmönnum stefnt fyrir dóm og krafist fangelsis yfir okkur bæði fyr- ir undirrétti og síðar fyrir Hæsta- rétti. Þegar ákæran var lesin upp kom fram að eðlilegt væri að ég fengi þyngsta dóminn vegna þess hve gagnrýninn ég hefði verið á embætti Ríkissaksóknara! Ekki féll dómur á þennan veg en þetta lýsir andrúmsloftinu, þegar „augu margra“ þingmanna opn- uðust, að sögn bréfritara Reykjavík- urbréfs, fyrir pólitískri misnotkun á Ríkisútvarpinu! Oft ósáttur við linku Ríkisútvarpsins Misnotkunin var hins vegar út- varpsráðs en ekki starfsmanna. Af þeirra hálfu hef ég sjaldan orðið var við misnotkun þótt margt megi gagnrýna eins og gengur í öllu starfi. En þá hefur það verið á báða bóga. Hefur mér reyndar lengst af fundist fréttastofur RÚV, útvarps og sjónvarps, heldur linar í gagnrýni á sitjandi stjórnvöld. Það á jú að vera hlutverk þeirra að vera upplýs- andi og sýna þeim sem með völdin fara sanngjarnt og faglegt aðhald. Stundum hefur þó prýðilega tekist upp í þessu efni. Þá hef ég ekki verið sáttur við hve linkulega RÚV hefur stundum stað- ið með starfsmönnum sínum, til dæmis þegar þáverandi mennta- málaráðherra, yfirmaður RÚV, lét þingfréttamann koma á heimili sitt til að lesa honum pistilinn. Afskipti ráðherra og beinn og óbeinn þrýst- ingur er síður en svo einsdæmi. Það þekkja allir sem hlut eiga að máli. Þekkti á eigin skinni Sjálfur fékk ég lengi að kynnast því í starfi mínu á fréttastofum Rík- isútvarpsins, hvernig reynt var að hafa áhrif á fréttamenn með stöðugu áreiti. Ég var talinn hættulega vinstrisinnaður og með tíðum og reglulegum hætti gerðist það eftir að ég hafði verið með þætti og fréttaauka að mín var beðið í síman- um með nafnlaust pólitískt ógnandi skítkast. Var mér sagt af innanbúð- armanni í Sjálfstæðisflokknum á þessum tíma, að þetta væri skipu- lagt pólitískt einelti frá þeim stjórn- málaflokki ættað. Þörf á yfirvegun og festu Nú virðist mér tími hins pólitíska eineltis vera að renna upp að nýju. Með reglulegu millibili sjáum við hvernig eigendur markaðsmiðlanna misbeita valdi sínu. Ef fer sem horf- ir verður Ríkisútvarpið nú tekið undir sams konar tyftingarvald. Þessu þarf að mæta af yfirvegun en jafnframt mikilli festu. Eftir Ögmund Jónasson » ...við sem lesum þennan boðskap er- um ekki öll sögulaus og sum okkar voru þátttak- endur í þeim atburðum sem hér er lýst... Ögmundur Jónasson. Höfundur er alþingismaður. Við erum ekki öll sögulaus

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.