Morgunblaðið - 08.10.2013, Blaðsíða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2013
Fögnuður Haustsólin gleður marga þessa dagana og hún dregur suma að sjónum í Nauthólsvík. Þangað kemur sjósundsfólk gjarnan til að fá sér sundsprett í hafinu, sem bætir, hressi og kætir.
RAX
Í Reykjavíkurbréfi
Morgunblaðsins er
fjallað um Rík-
isútvarpið og rifjaðir
upp atburðir liðinnar
tíðar. Bréfritari fer aft-
ur til ársins 1984, verk-
falls opinberra starfs-
manna í BSRB, þegar
Ríkisútvarpinu var lok-
að.Við þá atburði hafi
meirihluti þingmanna
komist á þá skoðun að
afnema ætti einokun RÚV og opna
fyrir samkeppni á öldum ljósvakans.
Bréfritari Reykjavíkurbréfs segir:
Ríkisútvarpið og
verkfall BSRB 1984
„Þegar starfsmenn Ríkisútvarps-
ins ákváðu að loka Ríkisútvarpinu,
hreinlega slökkva á því, þótt engin
sambærileg stofnun væri til staðar,
til þess að styrkja stöðu BSRB í
verkfallsbaráttu gegn ríkisvaldinu
(ríkisstjórn Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks) opnuðust augu
margra. Það var þá þannig sem
starfsmennirnir, með fréttastofuna í
broddi fylkingar, litu á „öryggis-
hlutverk“ þeirrar stofnunar. Reynd-
ar sá fréttastofan fljótlega að hún
hafði leikið af sér, því hún hafði áður
gert verkfallsmönnum miklu meira
gagn með svívirðilega lituðum frétt-
um sínum og þrýsti á að hún fengi að
opna aftur. Þeir sem gættu ríkra al-
mannahagsmuna á þeim tíma
gleyma því seint, hvernig hún var
grímulaust misnotuð í kjölfarið.“
Og síðan er rakin framganga Rík-
isútvarpsins í Búsáhaldabyltingunni
og komist að þessari niðurstöðu:
„Pólitísk misnotkun, sem vissulega
ofbýður sífellt fleirum, er stóralvar-
leg, en þó er hún eins og hégómi hjá
framantöldum atriðum. En saman
sýna þau að það er eitt-
hvað stórkostlega
brogað við þessa starf-
semi og þar á bæ virð-
ist ekki nokkur maður
með ábyrgð líta í eigin
barm. En kann ekki
svo að fara, rétt eins og
1984, að svo alvarleg
mistök ásamt viðvar-
andi og síversnandi
misnotkun og yfirgangi
fámenns hóps, sem
kemst upp með að haga
sér eins og hann eigi
Ríkisútvarpið, ofbjóði
langlundargeði landsmanna og opni
augu þeirra?“
Margir þátttakendur
Nú vill svo til að við sem lesum
þennan boðskap erum ekki öll sögu-
laus og sum okkar voru þátttak-
endur í þeim atburðum sem hér er
lýst og taka því þessar sendingar til
sín.
Ég var á þessum tíma fréttamað-
ur á RÚV og auk þess formaður
Starfsmannafélags Sjónvarps og
stjórnarmaður í BSRB og einnig
hvatamaður að umræddu verkfalli
og lokun Ríkisútvarpsins.
En það voru fleiri þátttakendur.
Ríkisstjórnin var eins og bréfritari
Reykjavíkurbréfs rifjar upp, sam-
ansett á sama hátt og í dag. Fram-
sóknarflokkur fór með forsætisráð-
herraembættið og
Sjálfstæðisflokkur fjármálin en
borgarstjórinn var Davíð Oddsson,
viðsemjandi starfsmanna Reykja-
víkurborgar í umræddum verkfalls-
átökum.
Skuldakreppa…
Ríkisstjórnin hafði verið mynduð
á vordögum árið 1983. Fyrsta verk
hennar var að afnema vísitölu launa
en láta vísitölu lána halda sér. Þegar
verðbólgan náði himinhæðum – á
annað hundrað prósent um nokk-
urra mánaða skeið – æddu lánin upp
á við en kaupmátturinn rýrnaði.
Upp úr sauð haustið 1983 þegar Sig-
túnshópurinn svokallaði sameinaði
fólk úr öllum stjórnmálaflokkum til
að krefjast úrbóta og átti hann eftir
að beita sér allt til ársins 1988 fyrir
umbótum í húsnæðiskerfinu.
Hremmingarnar sem margir lentu í
á þessum tíma voru ekki smáar í
sniðum enda töpuðu margir öllu
sínu.
… og launakreppa
En launahliðin var á könnu verka-
lýðshreyfingarinnar. Mörgum þótti
hún sein til að rísa upp og var vax-
andi ólga innan hreyfingarinnar,
einkum í opinbera geiranum, en þar
var þá sáralítið launaskrið miðað við
það sem viðgengist hafði á almenn-
um vinnumarkaði á þessum tíma.
Kjörin versnuðu með ógnvænlegum
hraða hjá taxtabundnu launafólki.
Síðsumars 1984 þegar yfirgnæf-
andi meirihluti BSRB-félaga sam-
þykkti verkfallsboðun gengust
heildarsamtökin fyrir upplýsinga-
herferð um launakjör félagsmanna.
Birtar voru í auglýsingatíma Sjón-
varpsins myndir af einstaklingum
ásamt starfsheiti þar sem sagt var
hvað þeir væru með í laun.
Útvarpsráð bannar auglýsingar
Útvarpsráð undir forystu Sjálf-
stæðisflokksins ákvað að banna
þessar auglýsingar og varð það enn
til að kynda undir reiði fólks. Þótti
þarna vera beitt póiltísku ofríki. Í
auglýsingunum var ekkert að finna
annað en upplýsingar um launakjör
fólks sem var orðið mjög aðþrengt á
þessum tíma.
Þegar síðan ríkisstjórnin ákvað að
stöðva launagreiðslur til ríkisstarfs-
manna, sem áttu lögum samkvæmt
að fá fyrirframgreidd laun, 1. októ-
ber þótt verkfall ætti ekki að hefjast
fyrr en nokkrum dögum síðar, boð-
uðu samtök starfsfólks Rík-
isútvarpsins til fundar þar sem
ákveðið var að leggja samstundis
niður vinnu. Öryggisþjónusta Rík-
isútvarpsins var þó ekki skert. Brá
nú svo við að hinn pólitíski meirihluti
útvarpsráðs gerði allt sem hann gat
til að koma í veg fyrir að öryggis-
hlutverki og lágmarksþjónustu væri
fullnægt, mætti það verða til að
sverta verkfallsmenn.
Krafist fangelsisdóms yfir
verkfallsmönnum
Fyrir þetta var síðan reynt að láta
okkur gjalda og var okkur nokkrum
forsvarsmönnum stefnt fyrir dóm og
krafist fangelsis yfir okkur bæði fyr-
ir undirrétti og síðar fyrir Hæsta-
rétti. Þegar ákæran var lesin upp
kom fram að eðlilegt væri að ég
fengi þyngsta dóminn vegna þess
hve gagnrýninn ég hefði verið á
embætti Ríkissaksóknara!
Ekki féll dómur á þennan veg en
þetta lýsir andrúmsloftinu, þegar
„augu margra“ þingmanna opn-
uðust, að sögn bréfritara Reykjavík-
urbréfs, fyrir pólitískri misnotkun á
Ríkisútvarpinu!
Oft ósáttur við linku
Ríkisútvarpsins
Misnotkunin var hins vegar út-
varpsráðs en ekki starfsmanna. Af
þeirra hálfu hef ég sjaldan orðið var
við misnotkun þótt margt megi
gagnrýna eins og gengur í öllu
starfi. En þá hefur það verið á báða
bóga. Hefur mér reyndar lengst af
fundist fréttastofur RÚV, útvarps
og sjónvarps, heldur linar í gagnrýni
á sitjandi stjórnvöld. Það á jú að
vera hlutverk þeirra að vera upplýs-
andi og sýna þeim sem með völdin
fara sanngjarnt og faglegt aðhald.
Stundum hefur þó prýðilega tekist
upp í þessu efni.
Þá hef ég ekki verið sáttur við hve
linkulega RÚV hefur stundum stað-
ið með starfsmönnum sínum, til
dæmis þegar þáverandi mennta-
málaráðherra, yfirmaður RÚV, lét
þingfréttamann koma á heimili sitt
til að lesa honum pistilinn. Afskipti
ráðherra og beinn og óbeinn þrýst-
ingur er síður en svo einsdæmi. Það
þekkja allir sem hlut eiga að máli.
Þekkti á eigin skinni
Sjálfur fékk ég lengi að kynnast
því í starfi mínu á fréttastofum Rík-
isútvarpsins, hvernig reynt var að
hafa áhrif á fréttamenn með stöðugu
áreiti. Ég var talinn hættulega
vinstrisinnaður og með tíðum og
reglulegum hætti gerðist það eftir
að ég hafði verið með þætti og
fréttaauka að mín var beðið í síman-
um með nafnlaust pólitískt ógnandi
skítkast. Var mér sagt af innanbúð-
armanni í Sjálfstæðisflokknum á
þessum tíma, að þetta væri skipu-
lagt pólitískt einelti frá þeim stjórn-
málaflokki ættað.
Þörf á yfirvegun og festu
Nú virðist mér tími hins pólitíska
eineltis vera að renna upp að nýju.
Með reglulegu millibili sjáum við
hvernig eigendur markaðsmiðlanna
misbeita valdi sínu. Ef fer sem horf-
ir verður Ríkisútvarpið nú tekið
undir sams konar tyftingarvald.
Þessu þarf að mæta af yfirvegun en
jafnframt mikilli festu.
Eftir Ögmund
Jónasson » ...við sem lesum
þennan boðskap er-
um ekki öll sögulaus og
sum okkar voru þátttak-
endur í þeim atburðum
sem hér er lýst...
Ögmundur
Jónasson.
Höfundur er alþingismaður.
Við erum ekki öll sögulaus