Morgunblaðið - 08.10.2013, Blaðsíða 16
AUSTURLAND
DAGA
HRINGFERÐ
VOPNAFJÖRÐUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2013
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Þegar Cathy Josephson kom til Ís-
lands í fyrsta skipti árið 1994
fannst henni hún vera komin heim.
Hálfu ári síðar hafði hún selt flest-
ar föggur sínar og flutti alfarið til
Íslands. Nánar tiltekið á Vopna-
fjörð, á staðinn sem forfeður henn-
ar höfðu flutt frá fyrir um 100 ár-
um til Minnesota í Bandaríkjunum.
„Ég er fædd og alin upp nærri
Minneota í Minnesota. Í þorpinu
bjuggu margir Vestur-Íslendingar.
Afi minn og amma fluttu, eins og
svo margir aðrir, frá Vopnafirði
árið 1893,“ segir Cathy. En afi
hennar, Sigfús Árnason, fæddist á
Hrunafelli en amma hennar Elín
Kristjánsdóttir, fæddist í Viðvík.
Hún segir að fyrstu Íslendingarnir
hafi komið til Minnesota árið 1845.
„Um 90% þeirra sem fluttu þangað
voru frá Vopnafirði,“ segir Cathy.
Hún segir að tengsl margra við Ís-
land hafi rofnað. Helst hafi þó
tengsl haldist meðal þeirra sem
sóttu kirkju. „Þetta var bara fólk
sem kom í kirkju tvisvar á ári. Um
páska og jól. En við vissum alltaf
hver var hvað og hver átti rætur
að rekja til Íslands. Oft vissum við
það líka vegna þess að þegar við
vorum í heimsókn hjá fólki þá var
það með bækur á heimili sínu. Við
grínuðumst oft með það að Íslend-
ingarnir keyptu bækur en þeir
sem áttu rætur að rekja til Belgíu
eða Póllands, keyptu land og unnu
eins og skepnur. Íslendingarnir
keyptu bækur og sendu krakkana í
háskóla,“ segir Cathy og hlær.
Stolt af upprunanum
Hún fæddist árið 1951.
Mamma hennar, Helen Irene Spe-
ars, fæddist í Arkansas og átti
rætur á Englandi og Írlandi. Pabbi
hennar, Frank Allan Josephson
var íslenskur.
Árið 1994 ákváðu hún og
frændfólk hennar að fara til Ís-
lands til að skoða landið. „Þá voru
um 100 ár síðan afi og amma fóru.
Um leið og ég kom til Íslands vissi
ég að hér átti ég heima. Ég fann
það í beinunum og þó ég geti ekki
alveg útskýrt þetta, þá fannst mér
ég geta andað þegar ég kom,“ seg-
ir Cathy. Á ferð sinni um landið
segir hún að frændfólk hennar hafi
fundið skyldmenni um allt land og
ferðin hafi verið mjög eft-
irminnileg. „Ég var alla tíð mjög
stolt af því að vera íslensk og var
ófeimin að segja frá því. Mamma
kenndi mér að vera stolt af upp-
runanum. Sjálf var hún mjög stolt
af sínum uppruna. Pabbi var líka
mjög stoltur af því að vera íslensk-
ur.“
Íslendingarnir
keyptu bækur
Hún segir að í æsku hafi fólki
fundist hún dálítið skrítin þegar
hún sagðist vera frá Íslandi en
henni hafi ekki verið strítt af þeim
sökum. „Í kirkjunni voru líka
Norðmenn en við áttum alltaf mun
Morgunblaðið/Golli
Heima Cathy Ann Josephson fannst sem hún væri komin heim þegar hún kom til Íslands í fyrsta skipti árið 1994.
Cathy fannst hún
geta andað á Íslandi
Vestur-Íslendingur seldi allt og flutti til Íslands
Hellisheiði eystri nálgast að vera einn hæsti fjallvegur landsins, á efstu
bungu er komið í 655 metra hæð. Vegurinn hefur verið endurbættur talsvert í
tímans rás, en er þó aðeins fær yfir sumarið. Sé komið að heiðinni úr norðri frá
Vopnafirði er ekið upp við bæinn Böðvarsdal hjá Dallandi og komið niður hjá
Ketilsstöðum, sem er ysti bær í Jökulsárhlíð. Leiðin er brött báðum megin. Há-
ar og langar brekku nyrðra en að sunnan, það er í Jökulsárhlíð, er ekið niður
hlíðina í sneiðingum sem eru líkastar stiga. Þar er og afar víðsýnt yfir og sést
út á haf, til Dyrfjalla, yfir Fljótsdalshérað og inn til fjalla.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hellisheiði Af suðurbrún heiðar er gott útsýni til fjalla og yfir Héraðssand.
Einstakt útsýni af efsta hjalla
Liðsmenn slökkviliðs Vopnafjarðar
eru 11 talsins og vinna á bakvöktum
samhliða öðrum störfum. Slökkviðið
er eitt fárra minni slökkviliða á
landsbyggðinni sem einnig sinna
sjúkraflutningum en Hlynur Sigur-
geirsson varðstjóri segir þau verk-
efni mun tíðari en útköll vegna elds-
voða.
„Við erum með einn sjúkrabíl en
hreppurinn hefur verið að byggja
upp, þannig að við erum mjög vel
tækjum búnir og þetta er stórt svæði
sem við sinnum, alveg inn að heiði og
svo höfum við verið að fara langleið-
ina upp á Biskupsháls,“ segir hann.
Hlynur segir að útköll vegna
sjúkraflutninga hafi verið 56 í fyrra
en útköll vegna eldsvoða 6. Sú tala
sveiflist nokkuð ár frá ári. Vopna-
fjörður og fimm önnur sveitarfélög
reka saman Brunavarnir Austur-
lands, með slökkviliðsstjóra á Egils-
stöðum.
Tæki Slökkviliðið er vel tækjum búið og sinnir einnig sjúkraflutningum.
Líka í sjúkraflutningum
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Mikil gleði braust út á Vopnafirði
þegar knattspyrnuliðið Einherji
komst upp úr fjórðu deild Íslands-
móts karla í knattspyrnu og upp í þá
þriðju. Rúsínan í pylsuendanum var
svo sigur í úrslitaleik mótsins og
tryggði Einherji þar með sinn fyrsta
sigur í deildarkeppni. Liðið var að
mestu skipað heimamönnum ef und-
an er skilinn einn Akureyringur og
tveir leikmenn sem þó eiga sterk
tengsl við bæinn. Hinn þrítugi þjálf-
ari Einherja, Víglundur Páll Ein-
arsson, segir að stundin hafi verið sú
ljúfasta á sínum ferli. „Þetta hefur
gríðarlega mikla þýðingu fyrir
íþróttafélagið og sýnir að það er
hægt að gera eitthvað. Krakkarnir
sjá að það er hægt að vinna að ein-
hverju sem skilar árangri,“ segir
Víglundur.
Stór hluti bæjarbúa
kom á leiki
Knattspyrna er svo til eina
íþróttin sem stunduð er með skipu-
lögðum hætti í bænum. „Þetta lyftir
öllu samfélaginu upp. Það sýndi sig
best þegar 250-300 manns mættu á
leiki til að styðja við bakið á okkur. Í
690 manna bæjarfélagi verður það
að teljast býsna gott,“ segir Víg-
lundur og bætir við: „Hinir sem
mættu ekki voru sennilega fastir í
vinnunni,“ segir Víglundur.
Í úrslitaleiknum lagði liðið Ber-
serki að velli 2-0 og fjölmenntu
Vopnfirðingar á leikinn. „Fólki þótti
vænt um að sjá alla þessa heima-
menn sem spiluðu leikina. Um kvöld-
ið eftir úrslitaleikinn var ball fyrir
fullu húsi. Fólk stóð fyrir utan rút-
una og klappaði fyrir okkur þegar
við gengum inn,“ segir Víglundur.
Búið að leggja nýjan grasvöll
Einherji átti sitt blómaskeið á
árunum 1981-1985 þegar liðið lék í
þrjú ár í næstefstu deild. Fyrst undir
stjórn Ólafs Jóhannessonar, sem síð-
ar varð landsliðsþjálfari íslenska
karlalandsliðsins, en svo undir
stjórn Njáls Eiðssonar. Víglundur
„Þetta lyftir öllu
samfélaginu upp“
Nær 300 bæjarbúar mættu á leikina
Morgunblaðið/Golli
Stoltur Víglundur Páll Einarsson er þjálfari karlaliðs Einherja.