Morgunblaðið - 08.10.2013, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 08.10.2013, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2013 Vagn Leví Sigurðsson ætlar að eyða afmælisdeginum í eldhús-inu. Hann starfar sem kokkur hjá tölvuleikjaframleiðand-anum CCP, þar sem hann eldar fyrir 270-280 manns í hverju hádegi, en um þessar mundir eru vetrarfrí í eldhúsinu og Vagn ætl- ar einnig að standa kvöldvaktina. Hann segir CCP skemmtilegan og líflegan vinnustað og starfsfólkið gott. „Við erum fjögur í eldhúsinu sem sjáum um matinn. Á morgnana kl. 8 er morgunmatur; hafragrautur, soðin egg, álegg og alls konar, og svo er hádegismatur kl. 12-13.30,“ segir afmælisbarnið en hann leitast við að hafa matseðilinn fjölbreyttan. „Þetta er ekki þannig að það sé alltaf fiskur á þriðjudögum, heldur spilum við þetta eftir hendinni og reynum að dreifa þessu; kjöt og fiskur og léttari matur. Svo tvisvar í viku er kvöldmatur líka,“ segir hann. CCP sé stór vinnustaður, þar sem einhver starfsemi sé í gangi allan daginn og að öllu jöfnu um 130-140 manns í kvöldmat, þegar hann er á boðstólum. Utan vinnu ver Vagn tíma sínum með fjölskyldunni en þar fyrir utan er það fótboltinn sem heillar og einu sinni í viku spilar hann með gömlum félögum úr Ölduselsskóla. „Alltaf á miðvikudögum tökum við 50 mínútna syrpu. Þetta er eiginlega svokallaður bumbu- bolti en það er alveg spenna og harka af og til,“ segir hann og lýsir ánægju með gengi sinna manna í enska boltanum. „Liverpool eru mínir menn,“ segir hann. „Maður er glaður þessar fyrstu umferðir en heldur sig á mottunni; er á jörðinni. Það er nóg eftir af mótinu og ég er bara rólegur. Þetta er gaman á meðan er.“ holmfridur@mbl.is Vagn Leví Sigurðsson er 39 ára í dag Afmælisbarn Með eiginkonu sinni Elvu Dögg Gunnarsdóttur, en þau eiga tvö börn saman, Gunnar Leví 7 ára og Unu Ingveldi 4 ára. Eldar fyrir nær 300 á hverjum degi Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Reykjavík Baltasar Breki Ben fæddist 27. janúar kl. 1.01. Hann vó 4.560 g og var 53 cm langur. Móðir hans er Birg- itta Ben Þórarinsdóttir. Nýir borgarar Neskaupstaður Heiðrún Bára fæddist 28. janúar. Hún var 4.420 g og 54,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Ólafur Diðrik Ólafsson og Þóra Birgit Jó- hannesdóttir. S tella fæddist í Bryggju- húsinu á Akureyri 8.10. 1923 en ólst upp í Hin- rikshúsi á Eyrinni, að mestu leyti hjá föðurfjöl- skyldu sinni. Hún var í Barnaskóla Akureyrar og stundaði síðan nám við Gagnfræðaskólann á Akureyri í tvo vetur. Afkomendur orðnir 189 talsins Ung að árum giftist Stella eigin- manni sínum, Gunnari Konráðssyni, og varð brátt húsfreyja á barnmörgu heimili en börn þeirra hjóna urðu 14 talsins, tíu dætur og fjórir synir. Einn sonur þeirra lést fimm ára en hin börnin eru öll á lífi. Fjöldi barna- barnanna er 52, langömmubörnin eru 106 og langalangömmubörnin eru 17 talsins. Stella á því 189 af- komendur eða fleiri en nokkur annar núlifandi Íslendingur svo vitað sé. Stella hafði meira en nóg að gera þegar börnin voru að komast á legg. Stella Stefánsdóttir, móðir og formóðir 189 afkomenda – 90 ára Með börnunum Stella ásamt börnum sínum á Akureyri, á útfarardegi eiginmanns hennar, 2004. Ríkasti Íslendingurinn Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Stella og sonarsonur Gunnar Konráðsson, alnafni afa síns, gerði athyglis- verða stuttmynd um Stellu, ömmu sína. Hann segist fyrir vikið hafa kynnst þessari merkiskonu mun betur við gerð myndarinnar. „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Plastbox fyrir smávörur Ta kt ik / 39 31 / ja n 13 Pöntunarsími: 535 1300 Allt fyrir vöruhús og lager Draghálsi 4 - 110 Reykajvík Sími: 535 1300 - Fax: 535 1305 - verslun@verslun.is Brettatjakkur 2,3 tonn Plaststrimlahurð Hraðlokun Kæli- og frystiklefar - Tilbúnir og eða smíðaðir eftir máli Hurðar í lagerrýmið Merkingar á hillukerfi og gólf Starfsmannaskápar Brettahillukerfi - stækkanlegt Smávöruhillur M7 Milli-hillukerfi Árekstarvarnir í vöruhús Staflarar Vöruvagnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.