Morgunblaðið - 08.10.2013, Page 19

Morgunblaðið - 08.10.2013, Page 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2013 Reginn á nú um 192 þúsund fermetra  Eignasafnið hefur vaxið um 40 þúsund fermetra á árinu Morgunblaðið/Ásdís Nýjustu kaupin 3. október var til- kynnt um kaupin á Austurstræti 16. Fasteignafélagið Reginn hafði yfir að ráða eignasafni upp á um 152 þúsund fermetra í október 2012. Miðað við tilkynnt og/eða frágeng- in kaup á árinu 2013 þá stendur eignasafn félagsins í dag í um 192 þúsund fermetrum. Eignasafn Regins stóð í 152 þ. fm í lok októ- ber 2012. „Frá þeim tíma hefur félagið fest kaup á Hafnarstræti 83-89, Hótel KEA Akureyri, Ofanleiti 2 og í tengslum við þau kaup fjögur minni fasteignafélög. Stórhöfða ehf., Goshól ehf., Almenna bygg- ingafélagið ehf. og síðast VIST ehf. núna í september. Einnig festi Reginn kaup á fast- eignafélaginu Summit ehf. í maí sl. Eftir þessa stækkun Regins var eignasafn Regins 189 þúsund fer- metrar,“ segir m.a. í tilkynningu frá Regin. „Að afloknum kaupum á Austur- stræti 16 mun heildarfermetra- fjöldi Regins hf. verða 192 þús,“ segir þar einnig. Í kjölfar kaupanna var fljótlega gengið frá leigusamningu á þeirri eign við Verkfræðistofuna Verkís hf. Samhliða þessum samningi keypti Reginn upp nokkur lítil fasteignafélag sem höfðu hýst ýmsa starfsemi Verkís. Umfang þeirra viðskipta var um 8.500 fer- metrar. Félagið VIST ehf. var inn- an þessarar viðskipta en frágang- ur á þeim kaupum fór ekki fram fyrr en í september sl. og nam stærð þessa hluta 4.200 fermetr- um, samkvæmt því sem fram kem- ur í Morgunkorni Greiningar Ís- landsbanka í gær. Vanessa Fox, sérfræðingur á sviði leitarvéla á netinu, verður með vinnustofu hjá TM Software í Hörpu þann 11. október. Vanessa vann áður hjá Google, meðal annars við þróun Webmas- ter Central, segir í frétt frá TM Software. Hún hefur ennfremur haldið fjölda fyrirlestra og vinnu- stofa um heim allan og gefið út bók- ina Marketing in the Age of Google. Vanessa er stofnandi Nine by Blue sem þróað hefur hugbúnað til að aðstoða vefstjóra. Vinnustofa um leit á netinu Vanessa Fox  Sérfræðingur á sviði leitarvéla Í tilefni Smáþings sem fram fer næst- komandi fimmtudag vann Hag- stofa Ís- lands út- tekt fyrir Samtök at- vinnulífsins sem gefur góðar vís- bendingar um umfang og mikilvægi lítilla og meðalstórra fyrirtækja á Íslandi á árunum 2010-2012. Í henni kemur m.a. fram að lítil og meðalstór fyr- irtæki (með færri en 250 starfs- menn) greiddu 2/3 heildarlauna í atvinnulífinu á árinu 2012 eða um 366 milljarða króna. Heildarlauna- greiðslur í atvinnulífinu námu 555 milljörðum 2012. Þetta kemur fram á heimasíðu Samtaka at- vinnulífsins. Mikilvæg Þýðing lít- illa og meðalstórra fyrirtækja er mikil. Greiddu 2/3 heildarlauna Grísk stjórnvöld gera ráð fyrir ör- litlum hagvexti á næsta ári, eða 0,6%, samkvæmt drögum að fjár- lagafrumvarpi fyrir árið 2014 sem kynnt voru í gær. Samkvæmt fréttavef Breska rík- isútvarpsins, BBC, í gær reikna grísk stjórnvöld þannig með því að sex ára samfelldu samdráttarskeiði í Grikklandi ljúki á þessu ári. „Við sjáum fyrir okkur að sam- dráttarskeiðinu verði lokið á árinu 2014,“ sagði Christos Staikkouras, fjármálaráðherra Grikklands, m.a. við fréttamenn þegar drögin að fjárlagafrumvarpi ársins 2014 voru kynnt. Hagkerfi Grikkja hefur á undan- förnum sex árum dregist saman um 23% og eins og ítrekað hefur komið fram hefur efnahagur landsins ver- ið drifinn áfram af neyðarlánum frá „Þríeykinu“ svonefnda, Evrópska seðlabankanum, Framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins og Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum. Samtals hefur Grikkland fengið í lán á tíma- bilinu 240 milljarða evra, eða sem nemur tæplega 40 þúsund millj- örðum króna. AFP Grikkland Christos Staikkouras, fjármálaráðherra Grikklands, kynnti fréttamönnum drög að fjárlagafrumvarpi næsta árs í gær. Grikkir reikna með hagvexti á næsta ári  Er 6 ára samdráttarskeiði lokið? Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum (Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum. Er á Facebook Kvef eða flensa? Ég er asma- og ofnæmissjúklingur og viðkvæm fyrir kvefi, hálsbólgu, eyrnabólgum og ennis- og kinnholusýkingum. Mér finnst tinktúran Sólhattur og hvönn svínvirka fyrir mig og það skemmir ekki hversu einfalt er að nota hana. – Inga Harðardóttir www.annarosa.is Tinktúran Sólhattur og hvönn er talin styrkja ónæmiskerfið. Hún hefur m.a. reynst afar vel gegn kvefi, hálsbólgu, flensu, hósta og ennis- og kinnholusýkingum ásamt því að örva blóðflæði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.