Morgunblaðið - 08.10.2013, Síða 28

Morgunblaðið - 08.10.2013, Síða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2013 ✝ Ólafur Siem-sen fæddist í Reykjavík 5. októ- ber 1953. Hann lést á heimili sínu 28. september 2013. Ólafur var sonur hjónanna Ludwig Hartwig Siemsen, f. 4. júní 1921, d. 8. nóvember 1996 og Sigríðar Siemsen, f. 8. janúar 1923, d. 1. apríl 2007. Ólafur var þriðji elstur í röð fimm systkina. Hin eru í aldursröð 1) Árni, f. 7. febrúar 1950; 2) Sigríður, f. 8. janúar 1952; 3) Elísabet, f. 26. febrúar 1955; 4) Helga, f. 15. september 1965, d. 14. janúar 1973. Ólafur kvæntist 1. mars 1975 eftirlifandi eiginkonu sinni, Auði Snorradóttur, hjúkr- unarfræðingi, f. 10. júlí 1953. Auður er dóttir hjónanna þeirra eru a) Brynja Karen, f. 21. júlí 2006 og b) Jökull Logi, f. 13. júní 2012; 4) Anna Sigríð- ur, f. 27. október 1989. Ólafur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1973 og hóf nám í lyfja- fræði við Háskóla Íslands það sama ár. Hann lauk prófi sem aðstoðarlyfjafræðingur frá Há- skóla Íslands í júní árið 1976. Ólafur stundaði nám við Dan- marks Farmaceutiske Højskole í Kaupmannahöfn frá 1976 til ársins 1980 og útskrifaðist það- an sem cand.pharm í janúar 1980. Ólafur starfaði sem að- stoðarlyfjafræðingur í Apóteki Austurbæjar, í Laugavegs Apó- teki og sem lyfjafræðingur í Lyfjaverslun ríkisins frá 1980 til ársins 1984. Ólafur hóf störf hjá Pharmaco árið 1984, síðar Actavis, og hefði fagnað þrjátíu ára starfsafmæli sínu í febrúar á næsta ári. Útför Ólafs fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 8. október 2013, og hefst athöfnin klukkan 15. Snorra Hallgríms- sonar, f. 9. október 1912, d. 27. janúar 1973 og Þuríðar Finnsdóttur, f. 27. júlí 1915, d. 25. september 1993. Börn Ólafs og Auð- ar eru: 1) Guð- mundur, f. 29. des- ember 1978, áður kvæntur Ástu Guð- jónsdóttur, f. 17. nóvember 1977. Börn þeirra eru a) Auður, f. 24. nóvember 2003 og b) Katrín, f. 10. nóv- ember 2006. Guðmundur er í sambúð með Hrund Ott- ósdóttur, f. 18. desember 1978, þau eiga Hrafnhildi Kötlu, f. 30. apríl 2011; 2) Snorri, f. 3. júní 1980, í sambúð með Jóni Kjart- ani Ágústssyni, f. 13. apríl 1984; 3) Rósa, f. 20. júní 1985, í sam- búð með Jóhanni David Barða- syni, f. 24. júlí 1985, börn Elsku besti pabbi okkar. Margar dýrmætar stundir höf- um við átt saman. Alltaf varstu til staðar fyrir okkur fjölskylduna og var alltaf hægt að leita til þín og fá ráð og stuðning. Þú studdir mann í einu og öllu og hafðir allt- af áhuga á því sem maður var að gera, hvort sem það var í leik, námi eða starfi. Þú varst pabbinn sem allt gat, hvort sem það var að smíða, búa til eða gera við hluti og héldum við systurnar á tíma- bili þegar við vorum litlar að þú værir smiður þar sem þú varst sí- fellt að dytta að hlutum eða græja og gera hvort sem það var heima eða uppi í bústað í Grafn- ingnum. Margar eftirminnilegar ferðir fórum við saman innanlands sem utan. Hvort sem það var í Grafn- inginn, útilegur, skíðaferðir, hringtúr um landið eða sólar- landaferðir var alltaf gaman að ferðast með þér. Við systkinin urðum á unga aldri víðförlari en margur annar og græddum á þessum ferðalögum allskonar fróðleiksmola um hina ýmsu staði sem á vegi okkar urðu. Þú varst sælkeri mikill eins og flestir í fjölskyldunni og þótti þér fátt betra en þegar við komum með eitthvert heimalagað gúm- melaði handa þér með kaffinu. Mamma átti líka stundum í mestu vandræðum með þig fyrir jólin þegar þú varst búinn að stel- ast í allt suðusúkkulaðið sem átti að fara í jólabaksturinn. En það gerði ekkert til því þá var bara keypt meira til að eiga í allar gómsætu kökurnar sem mamma bakaði. Þú varst algjör prakkari og stríðnispúki og hafðir unun af því að stríða okkur krökkunum og mömmu. Sérstaklega okkur systrunum þar sem við urðum alltaf svo æstar yfir þessari stríðni þinni og það þótti þér fyndið. Þú gast alltaf séð það já- kvæða við hlutina og sást furðu- legustu hluti í fyndnu ljósi. Hár- beitt grínið var til staðar alveg fram á þína síðustu daga og sama hversu veikburða og lasinn þú varst orðinn kom alltaf smá grín frá þér annað slagið sem lét okk- ur systkinin og mömmu brosa í gegnum tárin. Þrátt fyrir prakkaraskapinn varstu samt alltaf svo rólegur og yfirvegaður og jákvæður fyrir öllu sem þú tókst þér fyrir hend- ur. Æðruleysi einkenndi þig líka og kom kannski best fram þegar þú greindist af veikindum þínum. Þá sagðirðu okkur með yfirveg- aðri röddu að maður réði ekki alltaf þeim verkefnum sem mað- ur fengi í hendurnar en þetta væri verkefni sem þú þyrftir að takast á við og þú ætlaðir þér að gera það með stæl. Og það gerð- irðu svo sannarlega, elsku pabbi okkar, þó þér hafi ekki tekist að ljúka verkefninu á þann hátt sem við öll hefðum viljað. Baráttuhug- urinn og dugnaðurinn í þér ein- kenndi þig alveg fram á síðustu stundu og er það eitthvað sem við munum ávallt muna. Það vantar mikið í lífið eftir að þú kvaddir en við vitum að þú vakir yfir okkur og munum við systkinin efna loforð okkar við þig og passa hana mömmu fyrir þig. Elsku hjartans pabbi okkar, þakka þér allar fallegu og skemmtilegu samverustundirn- ar. Þínar lillur, Rósa og Anna Sigríður (Anna Sigga). Kær bróðir er kvaddur í dag. Ólafur, eða Óli frændi eins og börnin mín kölluðu hann ætíð, var okkur afar kær. Hann var rétt rúmu ári eldri en ég og mót- aðist án efa af því að vera á milli tveggja atorkumikilla systra. Hann lét okkur um að tala en hugsaði þess meira. Rólegur, yf- irvegaður og jafnlyndur en jafn- framt stríðinn og með skemmti- legan húmor. Hann var mikill fjölskyldumaður og virtist alltaf hafa tíma fyrir börnin sín og síðar afabörnin. Með þeim gat hann verið tímunum saman í ýmsu grúski, í bílskúrnum eða í Grafn- ingnum sem var hans griðastað- ur. Þar leið honum afskaplega vel enda fékk hann þar útrás fyrir það sem honum þótti skemmti- legast, smíðar. Hann hafði stund- um á orði að hann hefði kannski átt að verða smiður, ekki það að hann hafi ekki verið ánægður með sitt lífsstarf heldur var hann hagleikssmiður. Strax í æsku man ég varla eftir honum öðru- vísi en að vera að „betrumbæta“ ýmsa hluti. Stundum urðu nokk- ur stykki eftir þegar búið var að setja vekjaraklukku saman, en samt sem áður gekk hún. Hann var mikill pælari og gátu ferða- langarnir á Húsafellshátíðirnar t.d. reitt sig á að honum tækist að koma „nestinu“ til skila. Stund- um var setið í heilan dag í her- berginu hans og drukkið úr heil- um kókkassa, en flöskurnar voru svo ansi heppilegar undir annað. Þá var búið að pæla í hvernig best væri að tappa á án þess að klókir verðir yrðu þess áskynja að búið væri að fikta við innihald- ið. Ýmsum tilraunum man ég líka eftir í kjallaranum á Fjölnisveg- inum en allar voru þær í hans huga tilraunir til að finna upp á einhverju nýju, reyna á nýja kunnáttu og ekki spillti ef uppá- tækið gengi nú upp. Ólafur var börnum mínum ekki aðeins móðurbróðir heldur mikill vinur. Fjölskyldurnar voru í mörg ár nágrannar og elstu börnin ólust nánast upp eins og systkini. Mér var hann ætíð góð- ur stóri bróðir, ótrúlegt hvað hann nennti stundum að leyfa mér að dröslast með. Líklegast hefur honum stundum þótt betra að hafa mig með heldur en að standa í einhverju þrasi, það var ekki hans stíll. Hann átti ógrynni af vinum sem löðuðust að ljúfri lund og miklum húmor. Fráfall hans er þyngra en orð fá lýst, hann var ungur og fullur af lífi og gekk upp um öll fjöll þegar sjúk- dómurinn knúði dyra. Hann tókst á við veikindin sem hvert annað verkefni sem þyrfti að leysa, ekk- ert vol eða víl heldur barðist hann fram á síðasta dag. Í MR kynntist Ólafur ástinni sinni, henni Auði. Þau hafa geng- ið saman samstiga í næstum 40 ár. Þau hafa kynnst ýmsu mót- læti í lífinu en þeim hefur ætíð tekist að finna leiðina áfram og búa börnum sínum fallegt heim- ili. Börn þeirra fjögur eru nú öll uppkomin, tengdabörn og barna- börn hafa bæst við og enginn var stoltari af hópnum sínum en Ólaf- ur. Orð fá ekki lýst aðdáun minni og virðingu fyrir Auði sem hjúkr- aði Ólafi í veikindum hans og gerði honum kleift að vera heima þar til yfir lauk. Í sorginni og erf- iðu lokastríði tókst henni að skapa umgjörð fegurðar og friðar sem börn, tengdabörn og barna- börn munu ætíð minnast. Hvíl í friði, elsku bróðir. Elísabet (Beta). Ólafur Siemsen mágur minn og vinur tengdist fjölskyldu minni fyrir fjórum áratugum þegar þau Auður systir mín tóku saman. Við bræður kunnum fljótt að meta þennan nýliða í fjölskyld- unni. Sýnt var að Auður væri komin í góða höfn og drengurinn reyndist hafa ýmsa eiginleika sem féllu vel að þeirri sérkenni- legu fjölskyldu sem hann ánetj- aðist – bættu hana raunar upp svo um munaði. Ólafur var skarp- ur, rólegur og hógvær, gat tekið stríðni og jafnvel svarað í sömu mynt. Miklu skipti að áliti okkar bræðra hversu liðtækur hann var til slarkferða og sumarbústaða- smíða. Eftirminnilegar eru smíðaferðir okkar bræðra, mága og félaga austur í Landbrot að haustlagi um miðjan áttunda ára- tuginn, alltaf í grenjandi rigningu og niðaþoku svo ekki sá út úr augum. Þangað hafði Ólafur ekki komið fyrr á fullorðinsárum og það var fyrst í fjórðu ferð sem hann leit landið í Vestur-Skafta- fellssýslu. Þá sá um stund til sól- ar einn sunnudagsmorgun og Óli, staddur uppi á þaki á verðandi sumarbústað í Tungu, leit í kring- um sig og mælti spök orð – „já svona lítur þá út hérna“. Ólafur fór varlega að okkur mágum sínum í fyrstu en fór fljótlega að hafa vit fyrir mér við smíðar og ýmislegt annað sem krafðist verksvits og útsjónar- semi. Hann átti drjúgan þátt í að koma upp bústaðnum í Tungu og gera hann íveruhæfan. Hann tók við forráðum við gamla bústað fjölskyldunnar í Grafningi, end- urbyggði, endurbætti og hélt við. Oft hjálpaði hann mér við smíðar og lagfæringar, heima og í Tungu, og þá var það ekki alltaf aðstoðin sem mest var um vert; ekki síður félagskapurinn og samveran. Mikill samgangur var með fjöl- skyldum okkar þegar börnin voru að alast upp. Okkur foreldr- unum þótti þessi samvist góð og gaman að hafa hópinn saman, ekki síst í Tungu. Krakkarnir kynnust því vel, varð vel til vina, er það enn og raunar er þessi frændsystkinahópur býsna þétt- ur. Samgangurinn hélst alla tíð en breyttist eins og gengur eftir því sem börnin eltust og barna- börnum fjölgaði. Ólafur var fjölskyldumaður í þess orðs bestu merkingu; hann sinnti liði sínu vel, var Auði og krökkunum ekki aðeins eigin- maður og faðir heldur einnig fé- lagi og vinur. Þannig fjölskyldur er gaman að umgangast og þann- ig er það sannarlega með fjöl- skyldu þeirra Auðar. Ólafur var heilsteyptur maður, vel gefinn og gerður, traustur og yfirvegaður. Hann var skapgóður, glaðvær og jafnan var stutt í kímni og bros. Hann var harðduglegur og út- haldsgóður við allt sem hann tók sér fyrir hendur, hvort sem það var í vinnu eða leik, heimili, börn eða barnabörn. Við mágarnir kynntumst snemma vel og bundumst vin- fengi sem varð varanlegt. Við átt- um skap saman og jafnan fór vel á með okkur. Vissa strengi áttum við sameiginlega hvað snerti Auði og fjölskyldur okkar en eitthvað annað kom því til viðbótar sem hvað mig varðar grundaðist á mannkostum Ólafs, góðu skapi hans, lítillæti og hlýleika. Það var gott að eiga Óla Siemsen að mági og vini. Það er afar sárt að sjá á eftir honum. Ég er þakklátur fyr- ir samfylgd hans og vináttu. Hallgrímur Snorrason. Ólafur mágur minn eða Óli frændi eins og við í fjölskyldunni kölluðum hann til aðgreiningar frá syni mínum er fallinn frá langt fyrir aldur fram. Það koma margar minningar upp í huga minn þegar ég lít til baka yfir þau rúm fjörutíu ár sem liðin eru frá því að ég kynntist honum fyrst á árshátíð Framtíðarinnar í MR, sem fram fór í Súlnasal Hótel Sögu. Í miðjum dansi við systur hans vatt hann sér að mér og sagði: passaðu þig á henni, ég þekki hana. Samverustundirnar hafa verið margar eins og í sum- arbústöðum þeirra í Þorsteinsvík og Tungu, skíðaferðum í Bláfjöll, veiðiferðum, sjötímanum, Rót- arýstarfinu og gönguferð á Snæ- fellsjökul árið 2010, sama ár og hann greindist með þann illvíga sjúkdóm sem nú hefur tekið hann frá okkur. Við sem eftir sitjum getum yljað okkur við þessar góðu endurminningar. Ólafur sýndi mikið æðruleysi fram á síðustu stundu og hélt húmornum í lagi þar til yfir lauk. Í samtali við hann fyrir stuttu hafði ég orð á því hvað hann væri búinn að standa sig vel í barátt- unni við sjúkdóminn. Svar hans var mjög skýrt: „Það er nú ekk- ert miðað við hvernig hún Auður hefur staðið sig eins og hetja við að annast mig og komið því til leiðar að ég gat verið heima í um- sjón hennar.“ Söknuður fjölskyldunnar er mikill og verður erfitt fyrir þau að hafa ekki Óla sér við hlið leng- ur. Hvíldu í friði, kæri vinur, og megi minningin um góðan eigin- mann, föður, tengdaföður og afa hjálpa þeim í gegnum erfiða tíma. Guðmundur Ámundason. Elsku Óli frændi. Það er af- skaplega erfitt að skrifa þessi stuttu minningarorð um þig en jafnframt gleðilegt að rifja upp allar þær góðu minningar sem við deildum. Mínar fyrstu minningar um þig eru fyrir hartnær 30 árum frá Suðurvanginum og seinna Hjallabrautinni. Þar brölluðum við frændurnir Gummi og Snorri ýmislegt og alltaf varst þú þol- inmæðin uppmáluð. Það má segja sem svo að ég hafi verið eilítið eins og heimalningur hjá ykkur Auju á þeim árum og því er óhætt að fullyrða að þið Auja eigið stór- an hlut í mér. Fyrir það verð ég ævinlega þakklátur. Þegar ég komst á táningsárin man ég eftir tíðum ferðum í Grafninginn og í Tungu þar sem þú stundaðir tvær af þínum uppáhaldsiðjum af miklum móð; að dytta að húsun- um og veiða. Við strákarnir tók- um mest þátt í veiðinni og þeirri ástríðu deildum við með þér allir og vorum meðlimir í sama veiði- klúbbi. Það er mikil eftirsjá að þér úr þeim góða hópi þar sem þú varst yfirleitt sá sem hélt uppi fjörinu. Fyrir um það bil 14 árum kynntir þú mig fyrir lyfjaiðnaðin- um þegar við Gummi aðstoðuðum þig við jólatalninguna á lagernum í Delta. Höfum við nafnarnir síð- an verið viðloðandi Delta, seinna Actavis, og í nokkur ár unnum við meira að segja í sömu deild. Allan þann tíma sem ég vann á Íslandi varst þú eilífur viskubrunnur fróðleiks og ávallt tilbúinn að að- stoða mig sem og aðra samstarfs- félaga. Þetta gerðir þú alltaf með bros á vör og jafnvel flautandi lagstúf. Betri fyrirmynd er vart hægt að finna og hef ég reynt að tileinka mér þína þrotlausu þjón- ustulund og lundarfar, þó ég komist vart með tærnar þar sem þú hafðir hælana. Þú varst mikil félagsvera og lést þig sjaldan vanta á nokkra viðburði, hvorki vinnutengda né hjá fjölskyldunni. Ég man svo vel eftir brúðkaupsveislu okkar Eyju fyrir þremur árum þar sem þið Auja svifuð um gólfið undir harmonikkuleik. Mér skildist á öðrum brúðkaupsgestum að þú hefðir verið á dansgólfinu allt kvöldið og hefðir ekki einungis dansað við Auju heldur einnig við vinkonur okkar Eyju sem allar höfðu á orði hve magnaður þú værir á dansgólfinu. Þrautseigja þín og jákvæðni eftir að sjúkdómurinn byrjaði að láta að sér kveða hafa verið hreint ótrúleg. Þú varst alltaf tilbúinn að spjalla, aldrei var uppgjöf til í dæminu og ávallt gast þú séð ljósa punkta í tilver- unni. Ég er þakklátur fyrir að hafa náð að spjalla við þig tvisvar í vik- unni áður en þú kvaddir okkur þar sem þú varst, eins og alltaf, nokkuð brattur og barst þig vel þó þú viðurkenndir að þú værir orðinn frekar lélegur. Ekki grun- aði mig þá að þetta væru síðustu samtöl okkar í lifandi lífi. Elsku Óli frændi, ég kveð þig nú með miklum trega og á eftir að sakna þín afar mikið. Allar góðu minningarnar og sú stað- reynd að þú verður hjá mér í hug- anum um aldur og ævi hjálpa til í sorginni. Hvíl í friði, elsku Óli. Elsku Auja og fjölskylda, ég vona að minningarnar um góðan og kærleiksríkan mann hjálpi í sorginni, því minningarnar lifa að eilífu. Þinn frændi, Ólafur Guðmundsson. Fyrir meira en þrjátíu árum hjóluðum við Óli saman hvern virkan dag um það bil tuttugu kílómetra frá Amager í Lyfjafræ- ðiháskólann í Kaupmannahöfn. Þetta voru góðir tímar og margt spjallað á leiðinni og ekki skemmdi fyrir þegar við litum inn á ölstofu til að lífga upp á and- ann og var þá mun léttara að hjóla heim. Óli var einstaklega traustur og góður félagi, léttur í skapi og sá ætíð björtu hliðarnar. Hjálpsamur, orðheppinn og hrókur alls fagnaðar þegar það átti við. Á þessum árum var erfiðara að hafa samskipti við ættinga á Ís- landi en nú er og varð því sam- heldni og samgangur fjölskyldna stúdenta á Øresundskollegíinu á Amager mikill og flest tækifæri notuð til að gleðjast saman. Minnist ég sérstaklega þeirra tímamóta í lífi Óla og Auðar þeg- ar frumburðurinn fæddist og fram undan var gamlárskvöld og Auður á fæðingardeildinni. Ekki kom annað til greina en að nota kvöldið til að gleðjast og voru búningar í samræmi við tilefnið. Góður hópur fagnaði nýju ári saman, framtíðin var óráðin, lifað var í áhyggjuleysi líðandi stund- ar. Óli var fagmaður góður og var lyfjaframleiðsla, og þá sérstak- lega allt sem að töfluframleiðslu laut, innan hans sérsviðs. Ef afla þurfti upplýsinga um lyfjafram- leiðslu var hann ætíð reiðubúinn til að upplýsa og leiðbeina. Hvenær sem kallið kemur kaupir sér enginn frí. Þessi orð Hallgríms Péturs- sonar koma upp í hugann þegar gott fólk kveður. Við Una send- um Auði og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. Megi minningin um góðan og traustan dreng lifa. Bessi Gíslason. Það er haust 1969 og við æsku- vinkonurnar erum að hefja nám í Menntaskólanum í Reykjavík. Sumar okkar koma úr Kvennó og aðrar úr Hagaskóla. Landsprófið að baki og framtíðin okkar. Stúd- entaóeirðirnar í París, hippa- tímabilið í blóma og við finnum mjög vel fyrir breytingum í lofti. En í þá daga gengu strákarnir í sjötta bekk í jakkafötum með lakkrísbindi og stelpurnar mættu í skólann í pilsum með uppsett hárið. Meðal nemenda sem hófu nám þetta haust var strákahópur uppalinn í Þingholtunum og svo fór að vinatengsl mynduðust á milli stelpnanna úr Vesturbæn- um og strákanna úr Þingholtun- um. Í þessum hóp var hann Ólaf- ur okkar, oftast kallaður Óli Sím, sem við kveðjum nú í dag. Með árunum bundumst við sterkum vináttuböndum og enn sterkari varð sú taug, þegar hann Óli Sím gerðist eiginmaður Auðar. Síðan eru liðin mörg ár og minning um þennan dreng yljar svo sannar- lega. Alltaf hrókur alls fagnaðar í ferðum okkar og alltaf lumaði hann á óvæntu útspili, sem setti punktinn yfir iið. Brosandi gerði hann grín að sjálfum sér og at- hugasemdir hans hittu alltaf í mark. Viljum við þakka fyrir all- ar ferðirnar sem við fengum að njóta með honum. En fyrr á þessu ári fór saumaklúbburinn ásamt mökum til sólarlanda og síðustu ár hafa eftirminnilegar ferðir verið farnar í Jökulfirði og á Langanes. Það er ekki unnt að skrifa um hann Óla Sím nema minnast á hana Auði eiginkonu hans og lífsförunaut. Þau hafa verið afar samhent og miklir mát- ar. Börn og barnabörn hafa átt kærleiksríka foreldra og afa og ömmu. Þau hafa ferðast innan- lands og til útlanda um fjölmörg ár. Náttúruunnendur fram í fing- urgóma. Við hittumst á mynda- kvöldi heima hjá þeim hjónum fyrir fáum vikum, þá skynjuðum við að það væri að styttast hjá Óla lífshlaupið. Viðmót hans þetta kvöld gerði okkur öll nánari Ólafur Siemsen

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.