Morgunblaðið - 09.11.2013, Síða 30
30 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Óttast var að mikið tjón hefði orðið
af völdum ofurfellibylsins Haiyan
sem gekk yfir miðhluta Filippseyja í
gær. Fyrstu mælingar bentu til þess
að þetta væri fjórði öflugasti fellibyl-
ur sögunnar og sá öflugasti sem farið
hefði yfir land, að sögn bandarískra
veðurfræðinga.
Ekki var vitað í gærkvöldi hversu
mikið manntjón varð í náttúruham-
förunum og talið var að það tæki
nokkra daga að afla upplýsinga um
tjónið á afskekktum stöðum.
Milljónir manna þurftu að flýja
heimkynni sín vegna óveðursins í
tuttugu héruðum. Yfirvöld á Filipps-
eyjum höfðu varað við því að meira
en tólf milljónir manna gætu verið í
hættu.
Talsmenn nokkurra hjálparsam-
taka á Filippseyjum vöruðu við því
að manntjónið gæti reynst mikið,
þeirra á meðal Anna Lindenfors,
framkvæmdastjóri Barnaheilla
(Save the Children) á Filippseyjum.
„Við óttumst að eyðileggingin af
völdum fellibylsins Haiyan verði
mikil og því miður óttumst við að
margir láti lífið,“ hafði fréttavefur
breska ríkisútvarpsins eftir Linden-
fors.
Góðs viti að úrhellið
var ekki mjög mikið
Í gærkvöldi var vitað um þrjá sem
létu lífið en talið var líklegt að fleiri
hefðu farist. Talsmaður almanna-
varnastofnunar Filippseyja, Reyn-
aldo Balido, kvaðst þó vera vongóður
um að fellibylurinn myndi ekki valda
eins miklu manntjóni og margir aðr-
ir skæðir fellibyljir í sögu Filipps-
eyja, t.a.m. fellibylur sem kostaði um
1.900 manns lífið í desember í fyrra.
Balido sagði að viðbúnaðurinn síð-
ustu tvo daga vegna óveðursins hefði
verið miklu meiri en fyrir fellibylinn í
desember þegar margir íbúanna
voru óviðbúnir náttúruhamförunum.
„Fólk hefur lært sína lexíu,“ hafði
fréttaveitan AFP eftir Balido.
Fellibylnum í gær fylgdi ekki eins
mikið úrhelli og óttast var og það
þótti minnka líkurnar á því að marg-
ir hefðu látið lífið í náttúruhamför-
unum. Þegar fellibyljir valda miklu
manntjóni á Filippseyjum verða yfir-
leitt flest dauðsfallanna vegna úr-
hellis og flóða sem fylgja lægðunum.
Rafmagnslaust varð og símasam-
band rofnaði víða á hamfarasvæðun-
um. „Ég var skelfingu lostin.
Vindurinn var svo sterkur og hávað-
inn í honum svo mikill, hann var eins
og öskrandi kona. Ég sá tré falla nið-
ur,“ hafði AFP eftir konu í borginni
Catbalogan á eyjunni Samar.
Fellibylurinn fór ekki yfir höfuð-
borgina Manila, sem er um 600 kíló-
metra norðvestan við Samar. Auk
Samar gekk bylurinn yfir eyjarnar
Leyte og Panay og nyrsta hluta
Cebu, meðal annars Cebu-borg,
næststærstu borg landsins, með 2,5
milljónir íbúa.
Fellbylurinn fór frá Filippseyjum
í gærkvöldi, var yfir Suður-Kínahafi
og stefndi í áttina að Víetnam og La-
os.
Ofurfellibylur olli usla
Milljónir manna flúðu heimkynni sín á Filippseyjum vegna eins öflugasta fellibyls sögunnar
Yfirvöld á eyjunum vona að mikill viðbúnaður fyrir hamfarirnar hafi fyrirbyggt mikið manntjón
AFP
Ólgusjór Íbúi (t.h.) Legazpi á Filippseyjum á strönd þegar fellibylur gekk yfir borgina í gær. Hermt var að sést hefðu allt að fimmtán metra háar öldur við
strendur á hamfarasvæðunum. Yfirvöld sögðu að vegir hefðu lokast vegna trjáa sem rifnuðu upp með rótum og það hefði torveldað björgunarstörf.
20 km
Fellibylurinn Haiyan
Heimild: Pagasa/Sjóher Bandaríkjanna/HKO
Tacloban
Cebu-
borg
Guiuan
Bogo
Cardiz
Iloilo
Roxas
Ormoc
Butuan
SAMAR
MASBATE
LEYTE
BOHOL
MINDANAO
CEBU
NEGROS
PANAY
Meðalvindhraði
í gærmorgun:
88 m/s
Í hviðum: 105 m/s
Gekk yfir miðhluta Filippseyja í gær
FILIPPSEYJAR
MANILA
Á hverju ári ganga um það bil
tuttugu fellibyljir eða hitabeltis-
stormar yfir Filippseyjar sem eru
tólfta fjölmennasta land í heim-
inum, með nær 99 milljónir íbúa.
Filippseyjar eru fimmta stærsta
eyríki heims og samanstanda af
alls 7.107 eyjum.
Á ári hverju deyja hundruð og
stundum jafnvel þúsundir manna
af völdum hitabeltisstorma eða
fellibylja á eyjunum. Hitabeltis-
lægðirnar myndast yfir heitum
sjó í Kyrrahafi, nálægt miðbaug,
og Filippseyjar eru oft fyrsta
landið sem verður fyrir þeim áður
en vindhraðinn fer að minnka aft-
ur.
Fimmti fellibylurinn í ár
Margir vísindamenn óttast að
loftslagsbreytingar í heiminum
geti orðið til þess að skæðum
fellibyljum fjölgi en aðrir segja að
of snemmt sé að fullyrða nokkuð
um það. Með óveðrinu í gær hafa
alls 24 fellibyljir og hitabeltis-
stormar gengið yfir Filippseyjar,
fleiri en á meðalári. Aðeins fimm
þeirra voru skilgreindir sem felli-
byljir og það þykir tiltölulega lág
tala, einkum miðað við árið 1993
þegar fellibyljirnir voru flestir,
eða alls nítján. Að meðaltali eru
fellibyljirnir átta eða níu á ári.
Mannskæðasta óveðrið á Filipps-
eyjum varð 15. nóvember 1991
þegar hitabeltisstormurinn
Thelma olli aftakaflóðum í borg-
inni Ormoc á Leyte-eyju. Yfir
5.100 manns létu þá lífið.
Talið er að um 1.900 manns hafi
farist af völdum fellibylsins
Bopha sem gekk yfir Mindanao-
eyju 3. desember í fyrra. Slík
óveður eru tiltölulega sjaldgæf á
Mindanao og talið er að mann-
tjónið hafi verið svona mikið
vegna þess að íbúarnir voru óvið-
búnir hamförunum.
Valda hundruðum dauðsfalla
UM TUTTUGU FELLIBYLJIR OG HITABELTISSTORMAR Á ÁRI
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/weledaísland
Weleda birkisafinn er bragðgóður drykkur sem örvar vatnslosun og styður við náttúrulega út-
hreinsun líkamans, birkisafinn léttir á líkamanum, losar bjúg og byggir hann upp. Það er mikilvægt
fyrir líkamalega vellíðan. Í samhljómi við mann og náttúru. Lesið meira um lífrænar vörur á weleda.is
Útsölustaðir Weleda eru apótek og heilsuverslanir um allt land.
Vilt þú létta á líkamanum?
Weleda Birkisafinn hjálpar!