Morgunblaðið - 10.12.2013, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2013
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Aldrei hefur meira verið selt af skyri erlendis en á
árinu sem er að líða. Í Finnlandi og Danmörku er
aukningin um 130-140% og á næsta ári er áætlað að
salan í Finnlandi verði um 1.800 tonn. Framundan er
uppbygging markaða í Sviss og Færeyjum, en skyr fer
í fyrstu í átta lúxusverslanirnar í Sviss eftir um þrjá
mánuði.
Heildarsöluverðmæti skyrs í verslunum á Norður-
löndum verður um 4,8 milljarðar á þessu ári. Útflutn-
ingstekjur af skyri eru í ár áætlaðar um 520 milljónir
og jafnframt hefur MS umtalsverðar tekjur af sérleyf-
um í Noregi, Danmörku og Svíþjóð, að sögn Jóns Ax-
els Péturssonar, framkvæmdastjóra sölu- og markaðs-
sviðs Mjólkursamsölunnar.
Í Færeyjum er eins og í Sviss tollfrjáls aðgangur og
hófst útflutningur þangað í haust. Skyr frá Íslandi
verður því á næsta ári selt í Finnlandi, Sviss, Fær-
eyjum og Bandaríkjunum, en samkvæmt sérleyfi um
framleiðslu í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og að hluta í
Finnlandi.
Anna ekki eftirspurn
Sala á skyri í Finnlandi er enn eitt árið umfram
áætlanir og endar í um þúsund tonnum, að sögn Jóns
Axels. Fyrstu 400 tonnin eru tollfrjáls, en ákveðið var
að flytja 50 tonn þangað til viðbótar og greiða af þeim
háa tolla. Það var gert til að mæta ört vaxandi eftir-
spurn og til að verja markaðinn. Rúmlega 500 tonn
voru framleidd í Danmörku til sölu í Finnlandi, en sér-
leyfishafinn þar gat ekki annað aukinni eftirspurn bæði
í Danmörku og Finnlandi. Agnar Friðriksson, útflutn-
ingsstjóri MS, sem nú er að láta af störfum vegna ald-
urs, hefur borið ábyrgð á og stýrt þeirri öflugu upp-
byggingu sem átt hefur sér stað í Finnlandi frá árinu
2011, að sögn Jóns Axels.
Salan á skyri í Finnlandi og Danmörku jókst um
135% á þessu ári, um 21% í Noregi en dróst saman um
3% í Svíþjóð. Í heild jókst skyrsala um 56% á Norð-
urlöndunum og er orðinn tvisvar sinnum stærri mark-
aður þar en á Íslandi í magnsölu.
Gott útlit en tveir flöskuhálsar
Jón Axel segir að útlitið sé almennt gott fyrir næsta
ár. „Draumastaðan væri að geta framleitt hér heima
allt það skyr sem spurn er eftir í þessum viðskipta-
löndum,“ segir Jón Axel.
„Í því sambandi eru tveir flöskuhálsar. Í fyrsta lagi
tollarnir sem eru í löndum Evrópusambandsins og í
öðru lagi afkastagetan því ef við ætluðum að fram-
leiða skyr hér heima fyrir alla þessa markaði hefðum
við einfaldlega ekki næga mjólk. Nú þegar er mark-
aðurinn í Finnlandi orðinn svo stór að öll umfram-
mjólk hér heima hefði farið í þá framleiðslu. Þess
vegna verða samningar um sérleyfi að koma til. Það
er okkar leið til að komast framhjá tollunum og til að
sporna gegn því að aðrir komi með sambærilega vöru
og hafi af því tekjur.“
Skyrið selst grimmt
Söluþróun skyrs á Norðurlöndum 2009 - 2013 (uppfært des 2013)
Breyting Breyting
Sala í kg. 2009 2010 2011 2012 2013 2009-2013 2012-2013
Danmörk (sérleyfi) 163.000 220.000 311.000 760.000 1.780.000 992% 134%
Noregur (sérleyfi) 284.000 1.210.000 1.900.000 2.000.000 2.420.000 752% 21%
Svíþjóð (sérleyfi) 0 0 0 400.000 390.000 -3%
Finnland (eigin sala) 0 0 265.000 410.000 980.000 139%
Heildarsala kg. 447.000 1.430.000 2.476.000 3.570.000 5.570.000 1.146% 56%
Enn eitt metárið í skyr-
sölu á Norðurlöndum
500 milljónir í útflutningstekjur auk tekna af sérleyfum
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Rúmlega 44.500 sendingar sem
annaðhvort komu að utan með pósti
eða í gegnum hraðflutningsfyr-
irtæki, og voru undir 2.000 krónum
að verðmæti, voru sendar til Ís-
lands árið 2012.
Til samanburðar komu um 143
þúsund sendingar undir 10 þúsund
krónum að verðmæti til landsins
sama ár.
Eins og fram hefur komið lagði
samráðshópur á vegum forsætis-
ráðuneytisins til að öll aðflutnings-
gjöld á innfluttar vörur undir 2.000
krónum yrðu afnumin.
Ef tekið er dæmi um eldhúsáhald
sem kostar 1.900 krónur, þá hafa
hingað til lagst á það 485 krónur
þegar aðflutningsgjöldin eru reikn-
uð með. Fyrir íþróttavöru sem einn-
ig kostar 1.900 krónur leggjast á
723 krónur. „Þetta geta verið ótal
hlutir sem fólk er að panta og eru
undir 2.000 krónum að verðmæti.
Þetta eru slæður, gerviskartgripir,
tölur, hnappar og margt fleira,“
segir Brynjar Smári Rúnarsson,
forstöðumaður markaðsdeildar hjá
Íslandspósti. Bendir hann á að
margir hafi nýtt sér þjónustu Ali
Express en um 400% aukning hefur
orðið hjá netversluninni frá því á
sama tíma í fyrra.
15,5 milljónir króna
Verði aðflutningsgjöld afnumin
leiðir það til þess að Íslandspóstur
hættir að innheimta umsýslugjald
af vörum undir 2.000 krónum að
verðmæti. Á síðasta ári innheimti
fyrirtækið rúmar 15,5 milljónir í
umsýslugjöld fyrir vörur undir
2.000 krónum.
Nær til tuga þús-
unda sendinga
44.500 sendingar undir 2.000 krón-
um að verðmæti til landsins árið 2012
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Japanir hafa mikinn áhuga á norð-
urljósum og þessi markaður er allt-
af að stækka. Það má finna ýmsar
svona smugur á markaðnum og
þetta er afrakstur þeirra sambanda
sem við komum okkur upp við fólk í
Japan,“ segir Ingi Þór Guðmunds-
son, forstöðumaður sölu- og mark-
aðssviðs Flugfélags Íslands.
Fulltrúar FÍ gengu á dögunum
frá samkomulagi við ferðaskrifstof-
una Viking Inc. í Tókýó um norður-
ljósaflug frá Reykjavík. Viðtökurn-
ar eystra hafa verið góðar. Fyrsta
ferðin í þessum dúr var farin í nóv-
ember og tókst
vel. Þrjár ferðir
eru á áætlun í
febrúar og þegar
eru um 100 sæti í
þær seld. Fyrir-
komulagið er
klukkustundar-
flug með Fok-
ker-vél frá FÍ
sem klifrar upp
fyrir ský og á
þær slóðir sem helst má vænta að
sjáist til norðurljósa. „Flugstjórinn
fylgir norðurljósaspá næturinnar
og flýgur þangað sem best sést í
þann tryllta dans sem norðurljósin
stíga stundum,“ segir Ingi Þór.
Í Japan, landi hinnar rísandi sól-
ar eins og það er stundum kallað,
eru við lýði menningarsiðir tengdir
norðurljósunum. Trú fólks þar er
til dæmis sú að ef barn kemur und-
ir í leikjum elskenda, á meðan
norðurljósin eru á fullu, verði út-
koman góð.
Fólk af ýmsu þjóðerni öðru hefur
áhuga á norðurljósaferðum. Ís-
lenskar ferðaskrifstofur sem
standa að ferðum útlendinga hing-
að til lands eru flestar hverjar með
svona leiðangra á sölulistum sínum.
Þátttakendur í þeim, sem koma
einkum og helst frá Bretlandi og
Bandaríkjunum, skipta þúsundum.
Eru gjarnan fólk sem stendur á
tímamótum í lífinu – og vill þá gera
eitthvað virkilega óvenjulegt.
Ísland hefur sérstöðu
„Svigrúmið á norðurljósamarkaði
er mikið. Íslendingar eru framar-
lega en eiga eigi að síður í tals-
verðri samkeppni við til dæmis
Noreg og Finnland, en þó ekki svo
að við finnum mikið fyrir henni
heldur. Ísland hefur alveg skýra
sérstöðu og er beinlínis í tísku um
þessar mundir, enda fjölgar ferða-
mönnum sem hingað koma alveg
ævintýralega. Þess nýtur flugið
eins og aðrar greinar ferðaþjónust-
unnar,“ segir Ingi Þór Guðmunds-
son.
Með Japani í norðurljósadansinn
Norðurljósaflugferðir á Íslandi slá í gegn í Japan Með minnst 100 ferðamenn upp fyrir skýin
Smuga á markaðnum Fjölgun ferðamanna er alveg ævintýraleg, segir markaðsstjóri FÍ
Stór markaður
» Um 100 sæti í norðurljós-
flug FÍ í febrúar eru nú þegar
seld.
» Gæfubörn getin undir
brandi ljósum á himni.
» Nýr tími í ferðaþjónustunni
sem stækkar óðum. Sam-
keppni við Noreg og Finnand.
» Ísland hefur sérstöðu og er í
tísku. Ævintýraleg fjölgun
ferðamanna.
Ingi Þór
Guðmundsson
Jón Axel Pétursson segir að
markaðurinn í Sviss sé mjög
spennandi. Þar er tollfrjálst
aðgengi samkvæmt samningi
milli landanna auk þess sem
bæði Sviss og Ísland eru utan
Evrópusambandsins. MS á í
samstarfi um dreifingu í Sviss
við fyrirtækið ICECO, en það
er rekið af Jóni Aðalsteinssyni
og hans fólki. Frá árinu 1994
hefur ICECO flutt fisk frá Ís-
landi til Sviss.
Jón Axel segir að á fyrsta ári sé áætlað að
selja um 100 tonn af skyri frá Íslandi til Sviss.
Hann segir markaðinn þar á margan hátt sam-
bærilegan við Noreg og kaupgeta mikil í báðum
löndum. Skyrið var kynnt á vörusýningu í nóv-
ember í samstarfi Mjólkursamsölunnar, Íslands-
stofu og ICECO og fékk góðar viðtökur að sögn
Jóns Axels.
Bæta skyrinu
við fiskinn
MJÓLKURSAMSALAN SEMUR VIÐ ICECO UM
DREIFINGU Á SKYRI Í SVISS
Jón Axel
Pétursson
tofrandi jolagjafir
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 • loccitane.com
Jólatilboð: 6.350 kr.
Andvirði: 8.480 kr.
Fótakrem 30 ml - 1.250 kr. | Sápa 100 g - 680 kr.
Húðmjólk 75 g - 1.360 kr. | Sápa fyrir hendur & líkama
300 ml - 2.550 kr. | Handkrem 75 ml - 2.640 kr.*
.. ‘
ASSISHEA BUTTER GJAFAK
*E
kk
is
el
t
íl
au
sa
sö
lu
.